Morgunblaðið - 12.11.1982, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. NÓVEMBER 1982
13
Jóhanna Kristjónsdóttir
aftur formaður FEF
hann féll frá fyrir aldur fram sem
kunnugt er. I góðum félagsskap
fór Kristján stundum með ljóð sín
og leyndi sér ekki að hér var kunn-
áttumaður að verki. Skilja mátti
það á Kristjáni að hann hefði haft
áhuga fyrir að halda lengra á
þessari braut og vissulega voru
efnin fyrir hendi, en af ýmsum
ástæðum varð ekki af því.
A þessum uppbyggingarárum í
sögu Loftleiða lágu leiðir okkar
Kristjáns ekki ósjaldan saman
erlendis vegna samninga, sér-
staklega á Norðurlöndum. Þar var
hann vel heima, enda stundaði
hann nám í þeim heimshluta og
kunni glögg skil á öllu. Hann var
mikill kunnáttumaður um lög-
fræðileg málefni, sem skipti miklu
við gerð flókinna samninga.
Kristján var ákaflega dagfars-
prúður maður, hlýr, elskulegur og
glaðvær í viðmóti svo og greiðvik-
inn. Hann var sérlega samvinnu-
þýður, glöggur vel, sanngjarn og
fljótur að átta sig á aukaatriðum
og aðalatriðum þegar ákvarðanir
þurfti að taka í veigamiklum mál-
um. Undir farsælli forystu Krist-
jáns við stjórnarstörf í Loftleiðum
á þessum fyrstu árum, minnist ég
ekki að ágreiningsmá! hafi risið
sem ekki voru farsællega leyst.
Eftir sameiningu íslensku flug-
félaganna, sem Kristjáni var mik-
ið áhugamál, starfaði hann áfram
um nokkurt skeið fyrir Flugleiðir
hf. og var þá m.a,. formaður
stjórnar félagsins í nær tvö ár.
Gegndi hann því starfi farsællega,
sem öðrum, þar til hann lét af
störfum fyrir nokkrum árum sakir
aldurs.
Hjónaband Kristjáns var far-
sælt, en kona hans er Bergþóra
Brynjúlfsdóttir, hin mesta sæmd-
arkona, sem nú lifir mann sinn.
Bjó hún honum ástríkt heimili,
þar sem gestrisni var í hávegum
höfð á sérlega smekklegu og list-
rænu heimili þeirra hjóna. Börnin
urðu tvö, Anna, húsmóðir í
Reykjavík, og Grétar, lögfræðing-
ur.
Bergþóru og börnum þeirra
hjóna, svo og öðrum afkomendum
og skyldmennum er vottuð einlæg
samúð.
Sigurður Helgason
Þar sem ég geri ráð fyrir að ein-
hverjir verði til þess að rekja
æviferil Kristjáns heitins Guð-
laugssonar hér í blaðinu í dag mun
ég einungis láta frá mér fara
nokkur kveðjuorð frá samstarfs-
manni hans í þá tvo áratugi sem
Kristján var í fararbroddi fylk-
ingar Loftleiðamanna.
Enda þótt mér þyki öðrum
þræði alltaf dapurlegt að minnast
þeirra deilna sem urðu innan Loft-
leiða árið 1953 vegna þess hve
ágætir menn voru þar í báðum
fylkingabrjóstum þá var ekki um
annað að ræða eftir að átökin voru
hafin en að berjast til sigurs með
öllum tiltækum ráðum.
Einn mesti vandi þeirra sem
skipulögðu væntanleg stjórnar-
skipti var að velja hinni nýju
stjórn traustan fyrirliða. Nefnd
voru nöfn ótal valinkunnra borg-
ara og hæfileikar þeirra metnir og
vegnir. Að lokum voru allir á einu
máli um að einungis einn maður
Birting
afmœlis- og
minningar-
greina
ATHYGLI skal vakin á þvi, að
afmælis- og minningargreinar
verða að berast blaðinu með góð-
um fyrirvara. Þannig verður
grein, sem birtast á í miðviku-
dagsblaði, að berast i síðasta lagi
fyrir hádegi á mánudag og hlið-
stætt með greinar aðra daga. f
minningargreinum skal hinn
látni ekki ávarpaður. Þess skal
einnig getið, af marggefnu til-
efni, að frumort Ijóð um hinn
látna eru ekki birt á minningar-
orðasíðum Morgunblaðsins.
Handrit þurfa að vera vélrituð og
með góðu línubili.
sameinaði alla þá kosti sem hver
og einn hinna átti helsta sér til
ágætis. Allir urðu sammála um að
ef unnt yrði að fá Kristján Guð-
laugsson til að vera í kjöri til
formennsku þá væri liði svo vel
fylkt að betur yrði ekki á kosið.
Til þessa lágu mörg gild rök og
góð. Kristján var þá á ágætum
aldri, 47 ára gamall. Hann átti að
baki glæsilegan feril sem mála-
færslumaður og ritstjóri. Enda
þótt hann væri beinskeyttur og
harðfylginn var hann góðkunnur
drengskaparmaður sem hafði á
löngum starfsferli jafnt áunnið
sér traust og virðingu samherja og
andstæðinga. Hann hafði reynst
farsæll fésýslumaður í stjórnun
margra félaga. Honum mátti jafnt
treysta til mikilla stórræða og far-
sællar forystu. Vegna alls þessa
var hann hinn sjálfkjörni fyrirliði.
Það tókst að lokum að fá sam-
þykki Kristjáns til að vera í kjöri
til formennsku að því tilskildu að
gamall aldavinur hans og sam-
herji tæki þar einnig sæti. Aðal-
fundinum fræga lauk svo með því
að Kristján gekk þaðan fremstur í
flokki sigurvegaranna.
Hér urðu mikil þáttaskil í lífi
Kristjáns Guðlaugssonar. For-
mennska í stjórn Loftleiða reynd-
ist honum í senn svo freistandi og
tímafrek aö smám saman þokuðu
öll fyrri störf fyrir hinu nýja við-
fangsefni og brátt gerðist hann í
senn stjórnarformaður og starfs-
maður Loftleiða. Það var hann allt
til þess er félagið var sameinað
Flugfélagi íslands árið 1973. Eftir
það var hann um hríð formaður
stjórnar Flugleiða.
A þeim tveim áratugum sem
Kristján gegndi formennsku í
stjórn Loftleiða gerðist eitt mesta
ævintýri íslenskrar atvinnusögu.
Lítið og vanmáttugt íslenskt félag
reis úr ókynni og örbirgð til þess
að verða heimskunnugt og öflugt
fyrirtæki sem bar hróður Islands
út yfir öll landamæri.
Það er sennilega freistandi að
nota nú þetta tækifæri minn-
ingargreinar til þess að bera lof á
Kristján fyrir frumkvæði hans að
mörgum prýðilegum vel heppnuð-
um áhlaupum eða skynsamlega
skipulögðum varnarsigrum í sögu
Loftleiða. Það mun ég ekki gera
enda þótt hans megi oft minnast
með þökkum, þegar það er rifjað
upp sem reyndist félaginu til
heilla. Ég ætla að réttara sé að
hafa nú uppi að það var e.t.v.
Kristjáni fremur að þakka en ein-
hverjum einum öðrum úr okkar
hópi hve forystan í félaginu
reyndist samvirk og hve aðdáanl-
ega henni tókst að sameina okkur
öll um það að vinna einhuga að
öllum þeim málum sem við töldum
að hugsanlega gætu reynst félagi
okkar til góðs. Én það var f^st og
fremst hinn óbilandi einhugur
okkar allra sem olli því hve oft við
sigruðum í kröppum leik, hve un-
aðslegt okkur öllum þótti að mega
njóta þess að verja öllum kröftum
í hópi kærra samstarfsmanna
þessa tvo áratugi. Kristján ein-
angraði sig aldrei á neinum hefð-
artróni. Til hans gátu allir leitað
með nýjar hugmyndir eða persón-
uleg vandamál. Öllum tók hann af
sömu ljúfmennskunni, sama
drengskap og þeim sem einkenndi
allan hans ævrferil.
Við fundum það réttilega og
skildum að Kristján var fremstur
í okkar flokki. En hann leitaðist
við að láta okkur finna að hann
teldi sig fremstan í flokki jafn-
ingja. Og það gerði hann í senn að
sigursælum og vinmörgum fyrir-
liða. Þess vegna verður okkur öll-
um gott að mega muna hann.
Það er okkur öllum, hinum
óbreyttu liðsmönnum Loftleiða,
mikill munaður að mega minnast
áratuganna tveggja í sögu Loft-
leiða, eiga allar minningarnar frá
þeim dýrlegu dögum. Ég er sann-
færður um að þessir tveir áratugir
voru Kristjáni einnig mjög ham-
ingjuríkir. Ég er viss um að hann
hefur aldrei unað lífinu betur við
störf en meðan hann sat við
stjórnvöl Loftleiða. Og ég er viss
um að það var fyrst og fremst
vegna þess hve ríkan þátt hann
átti í að móta þann einhug allra
samstarfsmanna sem er í senn
jafn fágætur og hann er lífsnauð-
synlegur öllum fyrirtækjum.
Við leiðarlok er nú margt að
minnast sem okkur ber að þakka
frá þessum liðnu árum. Við áttum
þar margar gleðistundir en einnig
nokkra dapra daga. En allt áttum
við það sameiginlegt, sigrana og
áföllin, gleði og sorg, því að okkur
fannst að við værum öll í einni og
sömu samvirku fjölskyldunni und-
ir öruggri forystu. Óg fyrir það
ber nú einkum að þakka Kristjáni
Guðlaugssyni vift vegamótin
miklu.
Sigurður Magnússon
FÉLAG einstæðra foreldra heldur
árshátíð sína laugardaginn 13. nóv-
ember í Kiwanis-húsinu í Brautar-
holti 26 og verður húsið opnað
klukkan 21. Danshljómsveit sem
kallar sig Meinvillinga leikur fyrir
dansi fram eftir nóttu. Aðgöngumið-
ar fást við innganginn.
Nýkjörin stjórn Félags ein-
stæðra foreldra kom nýlega sam-
an og skipti með sér verkum.
Formaður var kjörinn Jóhanna
Kristjónsdóttir blaðamaður, en
hún hætti formennsku fyrir þrem-
ur árum, og hefur verið formaður
húsnefndar FEF síðan, en gaf nú
kost á sér til formanns á ný. Var-
aformaður var kjörinn Jón Börkur
Ákason, ritari Edda Ragnarsdótt-
ir og gjaldkeri Birna Karlsdóttir.
Meðstjórnendur eru Svavar Sig-
mundsson, Sigrún Þórðardóttir,
Kristjana Ásgeirsdóttir og Hösk-
uldur Svavarsson. Endurskoðend-
ur eru sem fyrr Baldur Garðars-
son og Ragna U. Helgadóttir.
Þá segir í fréttatilkynningu
FEF að afhending jólakorta sé
hafin á skrifstofunni í Traðarkots-
sundi 6, nýtt félagsbréf kom út í
Jóhanna Kristjónsdóttir
sl. mánuði, jólamarkaðsnefnd
undirbýr jólamarkað, sem verður
síðla þessa mánaðar og húsnefnd
er að hefja lokaátak við vinnu í
kjallara Skeljaneshússins.
Ný bók frá Bókaklúbbi AB og Setbergi:
Ljósmyndabókin
— handbók um ljósmyndatækni
BÓKAKLÚBBUR Almenna bókafé-
lagsins í samvinnu við bókaútgáfuna
Setberg hefur sent frá sér bók um
Ijósmyndatækni og Ijósmyndagerð
eftir John Hedgecoe, prófessor í
Ijósmyndun við Konunglega lista-
háskólann t London.
Fyrstu kaflar bókarinnar fjalla
um myndavélar, linsur og annan
útbúnað við myndatöku, síðan eru
teknar fyrir svart-hvítar myndir,
eiginleikar þeirra og vinnsla, þá
litfilmur á sama hátt. Næst er
fjallað í máli og myndum um töku
ljósmynda og hagnýtingu ljóssins
til að ná margs konar blæ og
áhrifum, innihald mynda, manna-
myndir, ljósmyndun hreyfinga
o.s.frv.
Þá er fjallað um myrkraher-
bergið, síðan sérstök viðfangsefni,
svo sem um ljósmyndun í vatni,
myndun stjarna og himingeims:
ins, geymslu filma og mynda o.fl. í
lok bókarinnar eru skrár og skýr-
ingar orða. Skýringamyndir fylgja
hverjum kafla.
Ljósmyndabókin er 352 bls. að
stærð og unnin bæði hér heima og
á Ítalíu. Þýðendur bókarinnar eru
Arngrímur, Lárus og Örnólfur
Thorlacius.
Úrvalið er frá
Nú eru fyrirliggjandi hjá hjólbaróasölum um land allt Bridgestone
diagonal (ekki radial) vetrarhjólbaróar.
25 ára reynsla Bridgestone á islandi sannar öryggi og endingu.
Gerió samanburó á verói og gæóum.