Morgunblaðið - 12.11.1982, Blaðsíða 32
^^^skriftar-
síminn er 830 33
j^uglýsinga-
siminn er 2 24 80
FÖSTUDAGUR 12. NÓVEMBER 1982
Málverkaþjófnaður upplýstur:
Kjarvalsmálverkið er
ónýtt eftir að hafa ver-
ið vafið um hin verkin
MÁLVERKIN, sem stolið var í Klausturhólum fyrir skömmu,
komu í leitirnar í gær. Var eitt verkanna, olíumálverk eftir
Jóhannes Kjarval, ónýtt, en talið er að hinum megi bjarga, að
því er Guðmundur Axelsson í Klausturhólum sagði í samtali
við Morgunblaöið í gærkveldi. Auk Kjarvalsmyndarinnar var
stolið málverkum eftir Kára Eiríksson, Svein Þórarinsson,
Höskuld Björnsson og Kristínu Jónsdóttur. Voru þau minna
skemmd er þau fundust, enda hafði Kjarvalsmálverkið verið
notaö sem umbúðir utan um hin verkin.
Málverkin öll eru hundruð
þúsunda króna virði, og aðeins
verkið sem eyðilagðist er met;
ið á tugi þúsunda króna. I
salnum, sem þeim var stolið
úr á sínum tíma, voru þó enn
verðmætari málverk, sem
þjófarnir skildu eftir. Sam-
Halldór Kunólfsson verslunar-
stjóri í Klausturhólum með
Kjarvalsmálverkið, sem fannst í
gær, skellótt, rifið og gjörónýtt
eins og vel sést á myndinni.
Ljósm.: Krislján Örn Klíasson.
kvæmt . upplýsingum Rann-
sóknarlögreglu ríkisins hefur
einn maður játað aðild að
málverkaþjófnaðinum, og
annar hefur verið úrskurðaður
í gæsluvarðhald til mánudags
vegna gruns um aðild að mál-
inu. Mennirnir, sem eru um
tvítugt, hafa báðir komið við
sögu lögreglunnar áður. Ekki
er vitað til að reynt hafi verið
að koma málverkunum í verð,
heldur lágu þau umhirðulaus í
íbúð í Reykjavík í hinum dýru
„umbúðum".
Greiðslur fyrir álrannsókn iðnaðarráðherra 2,8 milljónir fyrir árið 1981:
Hafnarfjarðarbær og tveir
sjóðir látnir borga kostnað
Sakaði þing-
forsetann
um vikulega
hlutdrægni
VILMUNDUR Gylfason, alþingis-
maður, sakarti Jón Helgason, forseta
sameinaðs þings, um þinghneyksli
og vikulega hlutdrægni á þingfundi í
gær.
Jón Baldvin Hannibalsson, al-
þingismaður, sagði efnislega við
þessa sömu umræðu, að þrennt
hefði gerzt á þessum fundi: 1) mis-
tök í fundarstjórn, sem hefðu ver-
ið leiðrétt, 2) þingsköp þverbrotin
með efnislegri umræðu þegar ein-
göngu átti að ræða þingsköp, 3) og
gengið á svig við mannasiði í um-
ræðunni sjálfri. Umræðan er til
skammar, sagði Jón Baldvin.
Sjá nánar á þingsíðu Mbl. í dag.
Fíkniefnamisferli:
5 í gæslu-
varðhald
FIMM voru úrskurðaðir í gæslu-
varðhald í gær og fyrradag og eru
gæsluvarðhaldsúrskurðirnir frá 15 og
til 30 daga að lengd, samkvæmt upp-
lýsingum sem Mbl. fékk hjá fíkni-
efnadeild lögreglunnar í gær.
Hér er um tvö mál að ræða. í
öðru málinu var maður handtekinn
á Keflavíkurflugvelli með talsvert
magn fíkniefna í fórum sínum, en
sá var að koma frá Amsterdam í
Hollandi. Maður þessi er um fer-
tugt og hefur hann áður komið við
sögu fíkniefnalögreglunnar.
í hinu málinu hafa fjórir verið
úrskurðaðir í gæsluvarðhald og er
það mál talið umfangsmikið. Það
hófst með handtöku manns sl.
þriðjudag og þá um kvöldið var gerð
húsleit í ákveðnu húsi í borginni og
fundust þar fíkniefni, aðallega
kannabisefni. Þar var tvennt hand-
tekið og úrskurðað í gæsluvarðhald.
Síðan var sá fjórði tekinn í gær og
settur í varðhald. Samkvæmt upp-
lýsingum lögreglunnar tengjast
nokkrir aöilar síðara málinu.
í VIKUNNI barst bæjarstjórn Hafn-
arfjaróar bréf frá fjármálaráðuneyt-
inu þar sem tilkynnt er að vegna út-
lagðs kostnaðar iðnaðarráðherra í
sambandi við rannsókn hans á starf-
semi íslenzka álversins í Straumsvik
yrðu 2,8 milljónir króna dregnar frá
framleiðslugjaldi fyrirtækisins til ís-
lenzkra aðila fyrir árið 1981. Ráðu-
neytið hefur þegar dregið 595 þúsund-
ir króna frá framleiðslugjaldsgreiðsl-
um í ár til Hafnarfjarðarbæjar, en
bæjaryftrvöld mótmæla þessu harð-
lega og segjast engar heimildir hafa
gefið til þessara rannsókna, né séu
nein hcimildarákvæði í samningum
ríkisins við Hafnarfjarðarbæ sem
réttlæta slíka aðför.
í bréfi fjármálaráðuneytisins
segir að þessi fjárhæð sé dregin frá
Hafnarfjarðarbæ, Byggðasjóði og
Iðnlánasjóði, þ.e. þeim aðilum sem
greitt fá af framleiðslugjaldi ÍSAL.
Éinar I. Halldórsson bæjarstjóri í
Hafnarfirði hafði eftirfarandi að
segja, er Mbl. innti hann álits á
þessu í gærkvöldi: „Ráðuneytið til-
kynnti okkur, er við áttum von á
greiðslum fyrir ágústmánuð síð-
astliðinn, að af þeirri greiðslu yrði
dregið og eigum við nú samtals 595
þúsund krónur inni hjá ráðuneytinu
sem teknar hafa verið af okkur á
þessum forsendum. Bréf ráðuneyt-
isins var rætt á bæjarráðsfundi í
dag og mér falið að mótmæla þess-
ari aðför harðlega."
Einar sagði einnig: „Það er tekið
fram af bæjaryfirvöldum, að þessar
athuganir ráðherrans séu ekki að
okkar ósk, án okkar vitundar og
bænum alls óviðkomandi." Þá sagði
hann að framleiðslugjaldið til
Hafnarfjarðarbæjar kæmi í stað
annarra skatta til sveitarfélagsins,
ekki væru neinar heimildir í samn-
ingum Hafnarfjarðarbæjar og
ríkisins sem heimiluðu ráðuneytinu
að standa að slíku. Hann sagði í
lokin að ráðuneytið hefði enn ekki
staðið við gefin fyrirheit um lög-
mæta endurskoðun og hækkun
framleiðslugjalds til bæjarins og
kæmi þetta því enn meira á óvart.
„Þessari samningsbundnu endur-
skoðunarheimild hefur ekki verið
sinnt, en samkvæmt útreikningum
er vangreitt fyrir tímabilið 1979 til
1982 alls um 5,3 milljónir króna,
auk vaxta."
*
„Eg féll vegna
afstöðu minnar í
máli Korchnois“
— segir Fridrik Olafsson eftir að hafa
lotið í lægra haldi í kosningu til FIDE
11. novembcr 19X2. r ra llalli llallssyni blm. Mbl. í Luzern í Sviss.
„ÉG SAGÐI að ég stæði eða félli
með ákvörðun minni, að fjölskyldu-
mál Victors Korchnoi yrði að leysa,
og svo virðist sem Sovétmenn hafi
ekki fyrirgefið mér afstöðu mína.
Þegar að leikslokum er spurt virð-
ist Ijóst að ég féll vegna afstöðu
minnar í Korchnoi-málinu," sagði
Friðrik Olafsson í samtali við
blaðamann að loknu forsetakjörinu
til Alþjóðaskáksambandsins í gær.
Mikil spenna ríkti þegar gengið
var til kosninga hér í Luzern í
morgun, loft var lævi blandið er
fulltrúar gengu til kosninga og
fullkomin óvissa virtist ríkja um
úrslit kosninganna. En þegar eft-
ir fyrstu umferð var ljóst að
stefndi í öruggan sigur Campo-
manes frá Filippseyjum. Hann
hlaut 52 atkvæði, F’riðrik 37 og
Júgóslavinn Kazic 19 atkvæði.
Kliður fór um salinn þegar þessi
úrslit voru kynnt. Ljóst var að
Friðrik átti enga möguleika í
seinni umferðinni.
„Ekki eru allir viðhlæjendur
vinir" sagði Guðmundur G. Þór-
arinsson alþm. er úrslitin úr fyrri
umferð voru birt, og átti við að
ýmsir þeirra er kváðust myndu
styðja Friðrik, höfðu ekki gert
það. Campomanes var sterkari en
nokkurn óraði fyrir, varnargarð-
Frá atkvæðatalningunni á FIDE-þinginu í gær. Fráfarandi forscti FIDE og hinn nýkjörni, Friðrik Olafsson og
Florencio B. Campomanes.
Símamynd Al'
ar hans héldu á meðan vörn Frið-
riks lét undan öfugt við það sem
stuðningsmenn Friðriks höfðu
vonað. Er síðari atkvæðagreiðsl-
an rann upp var öll spenna horf-
in, söguleg stund í sögu FIDE var
runnin upp. Er tölur birtust í
annað sinn brutust út fagnaðar-
læti stuðningsmanna Campo-
manes. Hann hlaut 65, á móti 43
atkvæðum Friðriks, munurinn
var meiri en nokkurn óraði fyrir.
Sjá „Baktjaldamakk og mútur
réðu ríkjum“ og fleiri viðtöl á
miðopnu Mbl. i dag.