Morgunblaðið - 12.11.1982, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 12.11.1982, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. NÓVEMBER 1982 Minning: Krístján Guðlaugsson hæstaréttarlögmaður Fæddur 9. september 1906 Dáinn 2. nóvember 1982 Á þessu ári hefur stúdentsár- gangurinn frá 1927 orðið að sjá á bak þremur félögum, nú síðast Kristjáni Guðlaugssyni, hæsta- réttarlögmanni. Hann andaðist 2. þ.m. í Borgarspítalanum. Meðan heilsan leyfði, tók hann mikinn þátt í félagslífi okkar og lét sér annt um að treysta og viðhalda vináttutengslum við gamla skóla- félaga. Fullu nafni hét hann Kristján Magnusen Guðlaugsson. Var hann skírður nafni náins ættingja úr móðurætt, Kristjáns Magnusen, sýslumanns og kammerráðs á Skarðsá á Skarðsströnd. Er mér kunnugt um, að þessi nafngift var honum ekkert hégómamál, miklu fremur hvatning og áminning um að hann ætti til góðra að telja og bæri að hafa það hugfast er út í lífsbaráttuna kæmi. Foreldrar Kristjáns voru séra Guðlaugur Guðmundsson, síðast prestur á Stað í Steingrímsfirði og kona hans Margrét Jónsdóttir, prests á Staðarhrauni. Kristján fæddist 9. september 1906 á Dag- verðarnesi í Dalasýslu, yngstur tólf systkina. Hann ólst að mestu upp að Stað í Steingrímsfirði þar til hann hóf nám í Menntaskólan- um í Reykjavík. Um líkt leyti hætti faðir hans prestsskap og þau hjón fluttu til Reykjavíkur og hjá þeim átti Kristján síðan heim- ili alla sína skólatíð. Varð það vinsæll samastaður margra skóla- bræðra Kristjáns, einkum þeirra sem áhuga höfðu á skáldskap og íslenskum fræðum, enda var séra Guðlaugur fjölfróður í þeim efn- um og skáldmæltur vel. Hann sendi raunar frá sér ljóðabók um þessar mundir, þá kominn nokkuð yfir sjötugsaldur og orðinn bjind- ur. Á seinni árum hafði Kristján stundum orð á því, að hann hefði verið hálfgerður sveitamaður, eins og hann komst að orði, fyrst eftir að hann kom hingað til bæjarins. Ekki urðu menn þess þó varir að það tæki hann langan tíma að samlagast bæjarbragnum. Hann var að upplagi mjög félagslyndur, ófeiminn og frjálsmannlegur í framkomu. Mjög fljótt fór hann að taka virkan þátt í félagslífi nem- enda. Naut það góðs af því, að um þessar mundir fékkst hann tals- vert við eigin ljóðagerð og skáldskap. Átti hann ekki langt að sækja þá áráttu þar sem faðir hans var, svo sem fyrr segir. Hér má einnig geta þess, að elsti bróðir hans, Jónas, var á sínum tíma vel- þekktur rithöfundur og skáld. Hann var lengi búsettur í Dan- mörku og starfaði þar um skeið, m.a. sem blaðamaður við „Social- Demokraten". Hann andaðist árið 1916 á Skagen. Kristján bar mikla virðingu fyrir þessum bróður og tel ég líklegt, að minningin um skáldferil hans hafi orðið Krist- jáni hvatning til dáða á þessu sviði. Því var það, að þegar árið 1927, er Kristján lauk stúdents- prófi, sendi hann frá sér ljóðabók og var hún að mestu árangur þess, sem hann hafði ort í menntaskól- anum. Hann nefndi bókina Skugga og fékk hún góða dóma. Þvi miður lét Kristján hér staðar numið, enda þótt hann legði skáldskapinn ekki með öllu á hill- una. Telja ýmsir, sem um það mega teljast dómbærir, að mikils hefði mátt vænta af Kristjáni í þessum efnum, hefði hann áfram lagt rækt við skáldgáfu sína. Einn er sá vettvangur annar sem Kristján haslaði sér völl á í skólalífinu. Hann tók fljótt að sækja málþing nemenda. Varð hann þar brátt vel hlutgengur, mælskur vel og sérstaklega orð- heppinn og hnyttinn í andsvörum. Kom þessi æfing honum að góðu gagni síðar á lífsleiðinni, því að um aldarfjórðungsskeiö tók hann mikinn þátt í stjórnmálum. Þann- ig var hann um skeið formaður sambands ungra sjálfstæðis- manna, einnig í miðstjórn Sjálf- stæðisflokksins og í framboði fyrir hann. Ritstjóri Vísis var hann í 15 ár og annaðist einnig ritstjórn ýmissa stjórnmálarita um lengri eða skemmri tíma, s.s. Stefnis, Heimdallar, blaðs ungra sjálfstæðismanna o.fl. rita, sem hér verða ekki talin. I skóla fylgdi Kristján frjáls- lynda flokknum að málum, en síð- ar Sjálfstæðisflokknum, eftir sameiningu íhalds- og frjálslynda flokksins. Kristján var ávallt eindreginn fylgismaður hins frjálsa framtaks einstaklingsins, fastur fyrir í skoðunum og þótti því ekki alltaf þægur flokksmaður. Að loknu stúdentsprófi innrit- aðist Kristján í lögfræðideild Há- skóla íslands og lauk þar prófi með lofsverðum vitnisburði 1932. Um sex ára skeið eftir lögfræði- próf var Kristján starfsmaður Hf. Shell á Islandi. Þar komst hann í kynni við fjölbreytt viðskiptalíf landsmanna. Var það honum góð- ur undirbúningur fyrir þann vett- vang, sem hann hafði stefnt að með háskólanámi sínu. Árið 1938 hóf hann sjálfstæð lögfræðistörf og stofnaði sína eigin lögfræði- skrifstofu. Þegar litið er á starfsferil hans er það áberandi, að hann hefir nýtt lögfræðimenntun sína meira en almennt gerðist í þágu fyrir- tækja atvinnulífsins, bæði með lögfræðilegri ráðgjöf og síðan á stundum með beinni stjórnun þeirra í formi eða hlutverki stjórnarformanns eða meðstjórn- anda þessara félaga. Ekki hefir það verið tilviljun að Kristján var 1974 skipaður í nefnd til að athuga frumvarp til laga um hlutafélög. Þau eru orðin mörg fyrirtækin, sem Kristján hefur á þennan hátt haft afskipti af. Skulu nokkur þeirra nefnd hér og er þá aðeins drepið á fáein, sem við sögu hafa komið. Hann var í blaðaútgáfu- stjórn Vísis frá 1936—’59, í stjórn Félagsprentsmiðjunnar frá 1939 og formaður frá 1952, ennfremur form. Anilinprents hf. frá 1954 og í stjórn Hvals hf. frá stofnun fé- lagsins 1947. Þá hafði Kristján mikil afskipti af flugmálum og var raunar einn í forystusveit þeirra, sem byggðu upp þennan þýð- ingarmikla atvinnuveg íslendinga. Þannig var hann formaður félags- stjórnar Loftleiða hf. frá 1953 þar til hann varð varaformaður Flug- leiða hf. í júlí 1973 og síðar for- maður um eins árs skeið til aðal- fundar 1976. Það er engum vafa undirorpið, að afskipti Kristjáns af flugmálum munu jafnan verða talin einn merkasti þátturinn á starfsferli hans. í þessu sambandi má ekki gleyma, að á þessu sviði og tímabili var við mörg erfið lögfræðileg vandamál að glíma — ekki aðeins er taka til íslensks réttarfars, heldur einnig til al- þjóðaréttar og réttarreglna um flugmál, sem á þessum tíma voru í hraðri þróun. Þetta var ekki síst mikilsvert atriði eftir að íslensku flugfélögin fóru að hasla sér völl á alþjóða vettvangi. Eins og að líkum lætur hefur Kristján að makleikum hlotið margvíslega viðurkenningu. Þann- ig hefur hann verið sæmdur orðu riddara og síðar stórriddara hinn- ar islensku fálkaorðu. Þá hefur hann verið sæmdur danskri orðu (D.Chr. X. frm.) og orðu frá Lux- emborg (Off. Lux. O.M.j. Þá var Kristján á sínum tíma sæmdur gullstjörnu Stúdentafélags Reykjavíkur. Hygg ég, að það hafi verið honum einkar kær viður- kenning. Hér að framan hefur það verið rakið, að Kristján var einkar far- sæll í starfi. í einkalífi var hann einnig hamingjusamur, enda helst slíkt oft í hendur. Árið 1932, 7. október, kvæntist Kristján Berg- þóru skólasystur sinni. Var hún dóttir Brynjúlfs Björnssonar, tannlæknis í Reykjavík og konu hans Guðrúnar Önnu Guðbrands- dóttur. Þau Kristján felldu þegar í skóla hugi saman og bundust þar ævarandi tryggðaböndum. Hefur Bergþóra jafnan staðið við hlið manns síns með sóma, auk þess sem hún hefir skapað honum og börnum þeirra fagurt heimili, ríkt af hlýju og menningu. Þeim Kristjáni varð tveggja barna auðið; eru það Anna gift Hauki Steinssyni, tannlækni og Grétar Brynjúlfur, lögfræðingur, nú varaformaður stjórnar Flug- leiða hf. Kona mín og ég, svo og stúd- entsfélagar úr árgangnum 1927 sendum Bergþóru og fjölskyldu hennar innilegar samúðarkveðjur um leið og við minnumst Krist- jáns og þökkum samfylgdina. Oddur Guðjónsson Með Kristjáni Guðlaugssyni, sem andaöist 2. þ.m. í Borgarspít- alanum, er genginn mikill at- hafnamaður og góðviljaður mannvinur. Að loknu háskólaprófi í lögfræði frá Háskóla íslands 1932 hóf hann störf hjá einu af stærstu fyrirtækjum landsins Shell á íslandi og kynntist þá at- vinnulífinu hvarvetna um landið. Hann varð hæstaréttarlögmað- ur 1940. Á þessum árum tók hann virkan þátt í stjórnmálum en starfaði jafnframt að málflutningi í Reykjavík. Ritstjóri dagblaðsins Vísis var hann um 15 ára skeið, 1938—1953, en ritstýrði auk þess ýmsum öðrum blöðum og tímarit- um. Kristján unni frjálsu framtaki og jafnrétti í hvívetna. Svo sem vænta mátti um svo víðsýnan at- hafnamann, voru honum falin margvísleg trúnaðarstörf, en þar ber hæst þátttaka hans í uppbygg- ingu flugsins hér á landi. Kynni okkar Kristjáns hófust þegar við fórum að starfa saman í stjórn Félagsprentsmiðjunnar hf., fyrir 43 árum. Hann var þá ritari stjórnarinnar, en var kjörinn formaður 1952 og formaður stjórnar Anilinprents hf. síðan það fyrirtæki var stofnað 1954. Öll stjórnarstörf Kristjáns báru vott um drengskap, sanngirni og víðsýni. Ómetanleg þekking hans á þjóðmálum og stjórnsýslu varð meðstjórnendum hans leiðarljós í hverjum vanda. Hann var fljótur að átta sig á kjarna hvers máls og greina hann frá hisminu. Þótt Kristján ætti svo annríkt um dagana, að sjaldan mætti um frjálst höfuð strjúka fyrir verk- efnunum, tók hann sér stöku sinn- um frí og naut þá hvíldar og hressingar við jarðræktar- og gróðursetningarstörfin í sumar- bústaðalandinu í Rauðhólum. Hann unni landi og þjóð og undi sér hvergi betur en hjá fjölskyld- unni í guðs grænni náttúrunni. Eiginkonu Kristjáns, Bergþóru, börnum þeirra, Önnu og Grétari, og fjölskyldum flyt ég fyrir hönd fjölskyldu minnar, stjórnar og allra starfsmanna prentsmiðj- anna hugheilar samúðar- og sakn- aðarkveðjur við fráfall forustu- manns og vinar. Bjami Konráðsson Kristján Guðlaugsson var fædd- ur að Dagverðarnesi í Dölum, 9. september 1906. Foreldrar hans voru frú Margrét Jónasdóttir og séra Guðlaugur Guðmundsson. Systkinin voru tólf. Elstur var Jónas Guðlaugsson skáld, en Kristján var yngstur. Eftirlifandi systkin eru þrjú: frú Jóhanna Guðlaugsdóttir, frú Theódóra Guðlaugsdóttir og Guðmundur Guðlaugsson fyrrv. framkvæmda- stjóri. Útför tengdaföður míns, Krist- jáns Guðlaugssonar fer fram í dag. Með honum er genginn val- inkunnur sæmdarmaður og dreng- ur góður. Ég átti því láni að fagna að kynnast Kristjáni Guðlaugs- syni fyrir um þremur áratugum síðan. Þau kynni urðu nánari, er ég síðar gekk að eiga dóttur hans Önnu Kristjánsdóttir. Ég minnist þess með hlýju, hve vel þau hjón Kristján og kona hans Bergþóra Brynjúlfsdóttir (Björnssonar tannlæknis) og sonur þeirra Grét- ar Br. Kristjánsson, tóku mér. Árin liðu og milli okkar styrkt- ust böndin, sem urðu að órjúfan- legri vináttu. Áhugamálin voru mörg. Þekk- ing Kristjáns var djúptæk og víð- feðm, bókmenntir, listir, stjórn- mál, gróður jarðar, skógrækt, ættfræði og mannleg samskipti að viðbættri góðri kímnigáfu. Oft höfum við hjón ásamt tengdaforeldrum mínum eytt sumarleyfum okkar saman, í ógleymanlegum ferðum til fjöl- margra landa, og það er ekki að- eins með sólskin í huga, sem ég hugsa til þessara ferða, það var sólskin hvern einasta dag. Minnisstæð er einnig ferðin um Dalina, á gamlar æskuslóðir Kristjáns. Komið var við á Skarði, eina höfuðbóli landsins, sem verið hefur í leigu sömu ættar frá land- námstíð, en þangað rakti hann ætt sína. Þó var einn staður öllum öðrum fremri. Unaðsreiturinn við Rauð- hóla, þar sem hann byggði falleg- an sumarbústað og gróðursetti fjölda trjáa. Þar undi hann öllum stundum. Kristján var farsæll maður bæði í starfi og einkalífi. Hann átti traust og gott heimili, góða konu, góð börn, barnabörn og ný- fætt barnabarnabarn. Ég vil kveðja vin minn Kristján Guðlaugsson með ljóði, sem hann orti sjálfur til látins vinar síns Péturs Hafstein lögfræðings, sem fórst með togaranum Apríl 1. des- ember 1930, um leið og ég sendi samúðarkveðjur til allrar fjöl- skyldunnar. Vinur og bróðir, við horfum hljóðir í helgra minninga aringlóðir. Þau gleymast eigi á einum degi hin góðu kynni frá gengnum vegi. Þú vildir bæta, þú vildir kæta, illgresi úr hverjum akri ræta. Létta höfga og lýðinn göfga, kenna val milli vits og öfga. Hvern grunaði grandið og gæfustrandið, þú áttir að byggja og nema landið. I>ú hefir ei flúið ei hopað né snúið frá háu marki, nei stríðið er búið. Við skiljum ei sköpin en skynjum töpin, störum á dauðann og stjörnuhröpin. Hlustum á niðinn heiminn og kliðinn, en þú hefir öðlast eilífa friðinn. (K.G.) Haukur Steinsson Upp úr seinni heimsstyrjöldinni komu fram hugmyndir um að stofna hlutafélag til hvalveiða og hvalvinnslu hér á landi. Kristján Guðlaugsson var einn af hvata- mönnum þess framtaks að Hvalur hf. var stofnaður 1947. Átti hann sæti í stjórn Hvals hf. allt frá upp- hafi og var dyggur og trustur máttarstólpi fyrirtækisins alla tíð. Sem unglingur minnist ég nafna (en þannig ávörpuðum við hvor annan) sem hins hógværa og yfir- lætislausa manns. Var ég oftast í fylgd með föður mínum heitnum er fundum okkar bar saman á þeim árum. Man ég hve faðir minn mat mikils álit nafna á hinum ýmsu málum er upp komu og feng- ist var við á hverjum tíma. Er ég var ráðinn framkvæmda- stjóri Hvals hf. að föður mínum látnum þá hófst samstarf okkar nafna í stjórn Hvals hf. Varð ég þess fljótt áskynja að þar fór skarpgáfaður og víðlesinn maður er fylgdist vel með þróun mála bæði innanlands sem utan. Hann var tillögugóður, ráðhollur, fljótur að setja sig inn í hlutina og ekkert banginn við að ráðast á brattann ef það mátti verða til framfara í rekstrinum. Nafni var framsýnn og glöggskyggn, enda slyngur lögfræðingur. Nafni var hreinn og beinn og kom til dyranna eins og hann var klæddur. Það sannar svo ekki verður um villst hans litríki ferill bæði í stjórnmálum og í atvinnu- lífinu. Gaman var að heyra hann segja frá þátttöku sinni í stjórnmálum og hvernig hlutirnir gerðust á þeim árum. Endaði það þannig, að er honum fannst hann ekki passa inn í kramið lengur, þá sagði hann skilið við stjórnmálin og helgaði krafta sína atvinnulífinu. Hann var mikill talsmaður hins frjálsa framtaks og eru verk hans í at- vinnulifinu bezti vitnisburður um það hverju menn eins og nafni fá áorkað ef þeir fá að njóta sín. Hann var ljóðelskur og hag- mæltur vel og hafði gaman af að fara með kvæði og vísur á góðri stund. Var hann þá hrókur alls fagnaðar eins og reyndar endra- nær. Með nafna er genginn einn af sonum íslands, er braust áfram til metorða og virðingar úr blárri fá- tækt fyrir eigin dugnað og kjark. Það er alltaf mikil eftirsjá að slíkum mönnum, en huggun er það harmi gegn að árin voru orðin mörg og mikið verk hafði áunnist og fyrir okkur liggur jú öllum að kveðja einn góðan veðurdag. Var það mér mikið lán að kynn- ast og fá tækifæri til að starfa með og læra af manni eins og nafna. Fyrir það verð ég ævinlega þakklátur. Ég vil fyrir mína hönd, móður minnar og systur votta frú Berg- þóru og niðjum þeirra okkar inni- legustu samúð. Kristján Loftsson Kynni okkar Kristjáns Guð- laugssonar hófust þegar við báðir vorum kjörnir í stjórn Loftleiða hf. í fyrsta sinn árið 1953. Krist- ján átti þá að baki langan starfs- feril sem ritstjóri og málflutn- ingsmaður, sem hvorutveggja voru tímafrek störf og því anna- samt hjá honum. Auk þess var Kristján í stjórn nokkurra fyrir- tækja. Þrátt fyrir það tókst hann þessi stjórnarstörf á hendur, en gerði sér væntanlega ekki þá grein fyrir því hve umfangsmikil þau áttu eftir að verða. Á þessum árum voru miklir erf- iðleikar í rekstri Loftleiða hf., en þó tókst þá að leggja þann grunn að uppbyggingu sem síðar leiddi til mikillar og ábatasamrar út- þenslu í starfsemi félagsins, sem alþjóð er kunn. Það var því mikils virði að njóta þekkingar og reynslu Kristjáns við lausn ýmissa vandamála á þessum árum, enda var hann kjör- inn formaður félagsins og sat það sæti til sameiningar íslensku flug- félaganna 20 árum síðar, 1973. Kristján var mikill fróðleiks- brunnur á fjölmörgum sviðum. Hann var ákaflega vel að sér í bókmenntum, bæði íslenskum og erlendum og mikill smekkmaður um hverskonar listir, enda hinn mesti fagurkeri og heimsmaður í þeim efnum. Það var bæði skemmtilegt og fróðlegt að ræða slíka hluti við Kristján. Á yngri árum hafði Kristján fengist við skáldskap og m.a. gefið út Ijóðabók. í Kristjáni bjó mikil skáldaæð, enda var Jónas bróðir hans Guðlaugsson eitt mest lof- andi Ijóðskáld á sínum tíma, en

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.