Morgunblaðið - 12.11.1982, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. NÓVEMBER 1982
11
Tvær bækur eftir
Braga Sigurjónsson
SKJALDBORG hefur gefið út tvær
bækur eftir Braga Sigurjónsson,
fyrrverandi alþingismann og ráð-
herra, bókina „Boðsdagar hjá
þremur stórþjóðum“ og „Sunnan
Kaldbaks, ljóð“. Fyrrnefnda bókin
er 192 blaðsíður, en hin síðar-
nefnda 95.
Sverrir Haraldsson
Ljóöabók eftir
Sverri Haraldsson
SKJALDBORG á Akureyri hefur
gefiö út Ijóðabókina Að leikslokum
eftir Sverri Haraldsson sóknarprest
í Borgarfirði eystra.
Að leikslokum geymir 54 ljóð, og
eru þar á meðal ljóð, sem áður
birtust í tveimur ljóðakverum, Við
bakdyrnar 1950 og Rímuð ljóð á
atómöld 1952.
Gísli Jónsson menntaskóla-
kennari las handritið yfir og próf-
örk að bókinni, en Að leikslokum
er 143 blaðsíður, unnin í prent-
smiðju Björns Jónssonar.
bandi hvort við annað. Um tíma
hittast þau og endurheimta trúna
á lífið, sem svo síðan skilur þau að.
Stjórnandinn Brai hefur áður
gert þrjár langar myndir og marg-
ar stuttar.
UNDARLEGT FERÐALAG
(Un etrange voyage). Stjórnandi
Alain Cavalier (1981). Sýningar-
tími 99 mínútur. Myndin byggir á
atviki sem umrætt var í blöðum
1978 og segir frá leit manns að
móður sinni, sem hverfur úr
járnbrautarlest á leiðinni milli
Troyes og Parísar, en á þeirri leið
er engin viðkomustaður. Hann
ákveður því að ganga meðfram
járnbrautarsporinu. Dóttir hans
slæst í förina; en samband þeirra
hefur ekki verið upp á það besta
og lýsir myndin meðal annars því,
hvernig þau færast nær hvort
öðru á ferðalaginu.
í sýningarskrá er haft eftir leik-
stjórann Alain Cavalier, að í þess-
ari mynd sinni hafi hann verið að
reyna að ná fram „þessu vanda-
sama jafnvægi milli geðshrær-
ingar og spennu".
HARKALEG HEIMKOMA
(Retóur en force). Stjórnandi
Jean-Marie Poiré (1980). Sýn-
ingartími 94 mínútur. Þetta er
gamanmynd sem segir frá heim-
komu manns úr fangelsi, þar sem
hann býst við að fjölskylda og væn
fjárfúlga bíði hans. En reyndin
verður önnur og rekur myndin þau
atvik sem fylgja í kjölfarið.
í sýningarskrá segir að myndin
sé dæmigerð fyrir vissa tegund
mynda í Frakklandi, sem blómstri
þar um þessar mundir og byggi á
gálgahúmor, þar sem ótrúlegustu
atvik komi fyrir hið venjulegasta
fólk.
Leikstjórinn hefur gert þrjár
langar myndir, er þetta önnur
þeirra og hefur hann skapað sér
nafn sem gamanmyndaleikstjóri.
í fyrrnefndu bókinni segir
Bragi Sigurjónsson frá heim-
sóknum til þriggja landa,
Bandaríkjanna, Kína og Rúss-
lands. Um 50 myndir eru frá
heimsóknunum í bókinni. í ferð-
unum til Rússlands og Kína voru
margir þjóðkunnir menn í för
með Braga. I Kínareisunni, sem
farin var 1956, voru: Jakob Bene-
diktsson, Jörundur Brynjólfsson,
Magnús Jónsson, Brynjólfur
Bjarnason, Ólafur Jóhannesson,
Björn Þorsteinsson, Kristján
Bender og Jón Helgason. I Rúss-
landsreisunni 1973 voru aftur á
móti í för með Braga: Eysteinn
Jónsson, Steinþór Gestsson,
Garðar Sigurðsson og Benóný
Arnórsson. í Bandaríkjaförinni
1952 voru með Braga 11 blaða-
menn frá þátttökuríkjum Atl-
antshafsbandalagsins.
Kötturinn sem hvarf
eftir Nínu Tryggvadóttur
Bragi Sigurjónsson
Síðarnefnda bókin, ljóðabókin,
er áttunda ljóðabók, sem Bragi
Sigurjónsson lætur frá sér fara,
alls 50 ljóð.
Bækurnar eru báðar prentað-
ar í Prentsmiðju Björns Jóns-
sonar á Akureyri.
HJÁ Máli og menningu er komin
út barnabókin Kötturinn sem
hvarf eftir Nínu Tryggvadóttur.
Þetta er önnur útgáfa bókarinnar,
en hún kom fyrst út árið 1947 hjá
Heimskringlu.
í fréttatilkynningu útgefanda
segir m.a.:
„Kötturinn sem hvarf er
skemmtilegust af öllum barna-
bókum Nínu og hefur fyrir
löngu áunnið sér sess sem ein af
fáum klassískum íslenskum
barnabókum. Bókin segir frá
litlu kisu með ljósið í rófunni
sem týnist og finnst hvergi,
hvar sem leitað er — hefur stol-
ist út á músaveiðar. Sagan er í
bundnu máli í þulu — eða
barnagælustíl sem Nína fer
listilega með og prýdd gullfall-
egum myndum. Myndirnar í
þessari útgáfu eru offsetprent-
aðar, en upphaflega voru mynd-
irnar dúkristur sem þrykktar
voru á hverja bók.“
Nína Tryggvadóttir
Hverju
CVARtR IÆKNIRINN 7
Ll Jj
OÁLFSÖGÐ fJETMTT ISþfANDRÓK
■ Hvers vegna eiga margir karlmenn í vanda vegna blöðruhálskirtils?
■ Hvaða getnaðarvörn er öruggust og hættuminnst?
■ Getur mikil sykurneysla orsakað sykursýki?
■ Getaallirnotaðkontaktlinsur?
■ Hvaðerskröpun?
■ Afhverjukemurflasa?
i Afhverjustafarútferð?
■ Hversvegnagránarhárið?
■ Hvernig verka megrunarlyf?
i Afhverjustafarhöfuðverkur?
■ í hverjuermænustungafólgin?
■ Erhægtaðlæknaheilablóðfall?
• •
llum þessum spurningum og á fjórða
hundrað til viðbótar svarar þessi bók.
Spurningum sem mörgum finnst e.t.v. erfitt
að bera upp við heimilislækninn.
(3 uðsteinn Þengilsson læknir þýddi og endur-
sagði bókina.
HverjuSvararLæknirinn? -
355 spurningar og svör um heilsufar, læknismeðferð,
lyfjanotkun o.fl., með yfir 200 skýringarmyndum,
ásamt lista yfir læknisfræðileg heiti og hugtök.
Hverju Svarar æknirinn? er sjálfsögð
handbók á hverju heimili.
Bræðraborgarstíg 16 Sími 12923 - 19156