Morgunblaðið - 12.11.1982, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. NÓVEMBER 1982
15
Andropov líklegasti
eftirmaður Brezhnevs
— sem fyrrverandi
yfirmaöur KGB —
Fedorchuk og
Chernyenko einnig
taldir koma til greina
NÚ, ÞEGAR Leonid Brezhnev, for-
seti Sovétríkjanna og leiðtogi sov-
ézka kommúnistaflokksins er lát-
inn, beinast augu manna austan-
hafs sem vestan að hugsanlegum
eftirmanni hans. Alls ekki er unnt
að segja með neinni vissu fyrir um,
hver sá maður verður. Svo litla
innsýn hefur heimurinn inn í hið
sovézka valdakerfi. Einn líklegasti
eftirmaður Brezhnevs á valdastóli
er þó Vuri Andropov, fyrrverandi
yfirmaður sovézku öryggislögregl-
unnar (KGB). Hann hefur hins
vegar lítið sézt opinberlega að und-
anförnu. Andropov er 68 ára og
hefur um skeið verið heilsuveill og
það getur auðvitað sett strik 1
reikninginn, þegar eftirmaður
Brezhnevs verður valinn. Ýmislegt
bendir til, að þeirri skoðun vaxi
fylgi innan forystu sovézka komm-
únistaflokksins, að ekki eigi að
láta gamlan mann taka við af
Brezhnev.
Því hefur athygli margra að
undanförnu beinzt að eftirmanni
Andropovs i KGB, en það er Vit-
aly Fedorchuk hershöfðingi, sem
hefur alla tíð starfað í öryggis-
lögreglunni. Undir hans stjórn
hefur KGB gripið til strangra
ráðstafana gegn andófsmönnum.
Fedorchuk er skjólstæðingur
Andropovs, en skipun hans í
stöðu yfirmanns KGB kann að
stafa af því, að þeir, sem sæti
eiga í stjórnmálaráði kommún-
istaflokksins, vilji ekki að
stjórnmálamaður ráði yfir ör-
yggislögreglunni, á meðan milli-
bilsástand ríkir eftir dauða
Brezhnevs.
Þá hefur að undanförnu borið
óvenju mikið á tiltölulega ung-
um manni, Mikhail Gorbachev, á
meðal fremstu valdamanna Sov-
Yuri Andropov
étríkjanna. Hann er 51 árs að
aldri og yngsti fulltrúinn í
stjórnmálaráðinu. Annar í hópi
hinna yngri valdamanna er
Vladimir Dolgikh (58), sem verið
hefur aukafulltrúi í stjórnmála-
ráðinu. Talið er líklegt, að hann
taki sæti Andrei Kirilenkos, sem
vikið hefur úr embætti. Kiril-
enko var einn af átta flokksrit-
urum, og fór með skipulagsmál
kommúnistaflokksins, en réð
jafnframt miklu um yfirstjórn
iðnaðar- og efnahagsmála. Ekki
er lengra siðan en í fyrrasumar,
að vestrænir sérfræðingar töldu
Kirilenko einn þeirra manna,
sem helzt kæmu til greina sem
aðalleiðtogi kommúnistaflokks-
ins, ef Brezhnev félli frá. Aðal-
keppinautur hans var Konstant-
in Chernynenko, sem hefur kom-
ið fram í hlutverki helzta aðstoð-
armanns Brezhnevs, síðan Sus-
lov, hugmyndafræðingur komm-
únistaflokksins, lézt.
Lítið bar á þeim Dolgikh og
Gorbachev opinberlega þar til í
haust. Gengi Gorbachevs kemur
nokkuð á óvart, þar sem hann
hefur stjórnað landbúnaði Sov-
étríkjanna, síðan hann tók sæti í
Vitaly Fedorchuk
hópi æðstu forystumanna fyrir
tveimur árum og á þeim tíma
hefur honum ekki tekizt að
stöðva öfugþróunina á því sviði.
Skýringin á velgengni hans virð-
ist einkum sú, að hann hefur
áhrifamikia stuðningsmenn í
stjórn kommúnistaflokksins að
baki sér og þeirra helztur er eng-
inn annar en Yuri Andropov. Því
má vel vera, að Gorbachev verði
valinn æðsti eða næstæðsti mað-
ur flokksins nú.
Val eftirmanns Brezhnevs
verður mál málanna innan for-
ystu svoézka kommúnistaflokks-
ins á næstunni, þar sem Brezhn-
ev er fallinn frá. Enginn veit,
hve lengi það millibilsástand á
eftir að vara, en vestrænir sér-
fræðingar telja, að hin nýja
harka innanlands sýni, að sov-
ézkir valdamenn vilji vera vel á
verði gagnvart því álagi, sem
skapast nú eftir fráfall Brezhn-
evs. Sem fyrr segir, er Yuri
Andropov talinn líklegur arftaki
Brezhnevs, þar sem hann hefur
beztu valdaaðstöðuna til þess að
taka við af honum og ekki
ósennilegt, að næstur honum
komi Gorbachev.
Tæpur þriðjungur þing-
manna lét ekki sjá sig
Bt'lfast, ||. nóvember. AP.
NOKÐUR-ÍRSKA þingið kom í fyrsta skipti saman í dag í Stormont-
þinghúsbyggingunni. Ekki komu nema 59 af 78 kjörnum þingfulltrúum
til þingsetningar þennan fyrsta dag, m.a. enginn úr röðum þingmanna
IRA, sem hlutu kosningu. Höfðu þeir lýst því yfir fyrir kosningar, að þeir
ætluðu sér að hundsa þingið. Andstæðingar IRA lýstu kjöri þingmanna
þeirra fimm, sem „umboði hluta þjóðarinnar til áframhaldandi ofbeldis-
verka“.
„Það er ósanngjarnt að ætla
að setning þingsins leiði til frek-
ara ofbeldis," sagði James Prior,
Irlandsmálaráðherra bresku
stjórnarinnar. „Við verðum að
sýna eitthvert frumkvæði og
reyna að fylla það tómarúm, sem
ríkt hefur á Norður-írlandi um
margra ára skeið.“
Leiðtogar mótmælenda óttast
á hinn bóginn, að sú morðalda,
sem riðið hefur yfir Norður-ír-
land að undanförnu, sé skipulögð
í þeim tilgangi að grafa undan
þessu nýskipaða þingi og henni
muni ekki ljúka á næstunni.
Óttast þeir einnig mjög hryðju-
verk á sunnudag, en þá er ár síð-
an Robert Bradford, einn helsti
leiðtogi mótmælenda, var myrt-
ur.
Með setningu þessa þings von-
aðist Prior til þess að grafa
mætti stríðsöxina og beisla hat-
rammar deilur kaþólikka og
mótmælenda, sem varað hafa í
áraraðir. Tæpast verður honum
að ósk sinni því flestir þeirra
þingmanna, sem komu til þing-
setningar í dag, eru harðlínu-
menn úr röðum mótmælenda.
Þeir hafa hótað því að deila
aldrei völdum með kaþólikkum.
Fjöldamorðin ljós fyrr
en talið hefur verið
Jerúsalom, 11. nóvember. Al*.
FRAM KOM í yfirheyrslun vegna
fjöldamoróanna í Líbanon, aó
fregnir um að 300 Palestínumenn
hefóu verið myrtir í flóttamanna-
búóunum skammt fyrir utan Beir-
út bárust aóstoóaryfirmanni ísra-
elsku leyniþjónustunnar, Moshe
Hcvroni, aðeins sex stundum eftir
aó atburðirnir hófust.
Kom þetta fram í framburði
Hevroni fyrir rétti í dag. Sagðist
Hevroni hafa komið þessu á
framfæri við háttsettan aðstoð-
armann, Ariel Sharon varnar-
málaráðherra, að morgni föstu-
dagsins. Framburður aðstoð-
armannsins, sem segist ekki
hafa frétt af atburðunum fyrr en
seint á föstudeginum, sé því rak-
in lygi.
I yfirheyrslum undanfarna
daga hefur með öllum tiltækum
ráðum verið reynt að komast að
því hvenær æðstu embættis-
menn þjóðarinnar fréttu af
fjöldamorðunum.
Við
erum farnir
að hugsa
til jólanna
Auk þess
við sérstaklepa á í dag:
NYSLÁTRAÐ
FOLALDAKJÖT í ÚRVALI
NÝJAR SVÍNASTEIKUR
NÝSLÁTRAÐ
HROSSAKJÖT í ÚRVALI
NAUTASTEIKUR
FERSKAR OG FROSNAR
LAMBAKJÖT ÚRBEINAÐ
NIÐURSAGAÐ OG
í HEILUM SKROKKUM
ALI-GÆSIR
ALI-ENDUR,
HREINDÝRA-
STEIKUR,
RJÚPUR,
GRÁGÆSIR
I MIKLU URVALI
Kynning á grænmetis-
kjötbúöing kl. 4—7 í dag
OPIÐ TIL 8
í KVÖLD
0G TIL HÁDEGIS
Á MORGUN
Vörumarkaðurinn hf.
sími 86111