Morgunblaðið - 12.11.1982, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 12.11.1982, Blaðsíða 18
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. NÓVEMBER 1982 ----------------- Tónleikar Tónlistar- félagsins LAUGARDAGINN 13. október kl. 14.30 e.h. veróa haldnir í Austurbæj arbíói þriðju tónleikar Tónlistarfé- lagsins í Reykjavík á þessum vetri. I»ar kemur fram sænska Ijóóa- söngkonan Ingrid Stjernlöf en und- irleikari verður austurríski píanó- leikarinn Erik Werba. Ingrid Stjernlöf er borin og barnfædd í Stokkhólmi, en býr nú í Málmey á Skáni. Hún lærði list sína í Stokkhólmi, Vín, London og New York og við óperuskóla sænska ríkisins í Gautaborg. Frá því 1969 hefur hún aflað sér frægðar fyrir söng sinn á hljóm- leikum, bæði austanhafs og vest- an. Hefur hún að sönnu mest lagt stund á ljóðasöng, en á óperusviði hefur hún þó einnig vakið mikla athygli. Píanóleikarinn Erik Werba er löngu heimskunnur und- irleikari og hefur hann leikið á hljómleikum og inn á hljómplötur, með mörgum frægustu ljóða- söngvurum nútímans. Hann hefur á síðustu árum tekið sérstöku ástfóstri við Island og íslenska söngvara og hefur komið fram á tónleikum Tónlistarfélagsins ásamt Sigríði Ellu Magnúsdóttur, Ólöfu Kolbrúnu Harðardóttur og Garðari Cortes. Efnisskráin á tónleikum Stjernlöf og Werba nú á laugar- daginn samanstendur af sönglög- um og lagaflokkum eftir Sten- hammar, Debussy, Brahms, Liszt, Mahler, Dvorák o.fl. (Fréttatilkynning) Ingrid Stjernlöf Basar Kven- félags Grens- ássóknar ÁRLEGUR basar Kvenfélags Grens- ássóknar verður haldinn í Safnaðar- heimilinu við lláaleitisbraut laugar- daginn 13. nóvember og hefst hann klukkan 14, á ávarpi sóknarprestsins, séra Ilalldórs S. Gröndal, sem að þessu tilefni segir m.a.: „Að venju verða þar á boðstólum margir fallegir og nytsamlegir hlutir, sem koma sér vel nú fyrir jólin bæði til gjafa og annars. Einn- ig verður þar mikið af gómsætum og nýbökuðum kökum. Kvenfélagið hefur alla tíð verið ein styrkasta stoð kirkjunnar, al- menn starfsemi félagsins hefur ver- ið mikil og góð og það hefur fært kirkjunni margar gjafir og stórar. Að baki slíku starfi og gjöfum er góður hugur til kirkjunnar og líka mjög mikil vinna og áhugi. Nú er það okkar að þakka þetta fórnfúsa starf með því að koma á basarinn og verzla vel. Ég vil því skora á allt safnaðar- fólk og aðra velunnara Grensás- kirkju að fjölmenna í safnaðar- heimilið á laugardaginn 13. nóvem- ber kl. 14.00. Kvenfélag Grensássóknar, hafið þökk fyrir allt og Guð blessi starf ykkar." Vilmundur Ólafur Ólafur Ragnar Verktakastarfsemi á Keflavíkurflugvelli: Geir Snarpar deilur um, hvert vísa á þingsályktunartillögu Tillögu Vilmundar Gylfasonar (A) o.fl. um úttekt á verktakastarfsemi við Keflavíkurflugvöll var vísað til utanríkismálanefndar í Sameinuöu þingi í gær, eftir snarpar umræður um þingsköp og sögulegar atkvæða- greiðslur um, hvaða þingnefnd skyldi um fjalla. Vilmundur hafði gert tillögu um allsherjarnefnd en Olafur ióhannesson, utanríkisráð- herra, um utanrikismálanefnd, sem varð fyrir valinu. hingkjörin rannsóknarnefnd Tillaga Vilmundar Gylfasonar felur í sér að Alþingi kjósi 7 inanna rannsóknarnefnd, sem „láti fara fram itarlega úttekt á fyrirtækinu íslenzkir aðalalverk- takar, enda hafi nefndin vald til þess að kalla þá fyrir sig sem hún telur eiga hlut að máli. Nefndin skal kanna viðskipti félagsins og dótturfyrirtækja þess frá upphafi, umfang viðskipta, verðákvarðanir, ágóða og skiptingu arðs. Þá skal nefndin kanna öll önnur viðskipti við varnarliðið." — „Tilgangur út- tektarinnar er að kanna, hvort þessum viðskiptum verði komið haganlegar fyrir en nú er og hvort ágóða af þeim verði með öðrum hætti haganlegar og réttlátar skipt en nú er. Talsmaður nefnd- arinnar skal gefa Sameinuðu þingi skýrslu að úttektinni lokinni." Viötökur tillögunnar á Alþingi • Vilmundur Gylfason (A) mælti fyrir þessari tillögu sl. þriðjudag og urðu þá þegar nokkrar umræð- ur um málið. Þar tók VG fram að tillaga þessi væri flutt af stuðn- ingsmönnum samstarfs lýðræðis- þjóða, en þeir vildu leggja þær skyldur á þetta samstarf, „að það vekti ekki réttmæta tortryggni annarra". • Ólafur Ragnar Grímsson (Abl.) sagði þingmenn Alþýðubandalags fylgjandi meginatriðum tillögunn- ar en við „teljum hinsvegar nauð- synlegt að hún verði gerð nokkru ítarlegri og víðtækari áður en Al- þingi afgreiðir hanna endanlega." • Matthías Bjarnason (S) sagðist sammála því að úttekt á verktaka- starfsemi á Keflavíkurflugvelli færi fram, „og þó fyrr hefði verið". Matthías sagði Aðalverktaka af- kvæmi ríkisins og tveggja fyrir- tækja, Sameinaðra verktaka og Regins hf. Matthías sagði að verk- takastarfsemi ætti að vera frjáls en ekki bundin við einhverja ákveðna verktaka. Hann lét að því liggja að annar máttarstóipi Aðal- verktaka væri sakaður um að „breyta einkaframtaki víða um land“ og mun þar hafa átt við Reg- in hf., sem tengist SIS. Vilmundur snuprar þingforseta • Jón Baldvin Hannibalsson (A) tók undir efnisatriði tillögunnar og taldi nauðsynlegt, að Alþingi legði meiri áherzlu á eftirlitsvald sitt og eftirlitsskyldu. • Albert Guðmundsson (S) sagði m.a. að þennan verktakamarkað þyrfti að opna. Annað mál væri að þessi tillaga sé „ekki í þeim anda“ sem hann teldi réttan, enda ekkert tilefni til að ætla, „að hér hafi ein- hvers konar óheiðarleg starfsemi átt sér stað“. Hvað þingnefnd skal um fjalla Vilmundur Gylfason hafði gert tillögu um, að mál þetta fengi um- fjöllun í allsherjarnefnd en utan- ríkismálaráðherra lagði til, að því væri vísað til utanríkismálanefnd- ar. Forseti hugðist fyrst bera upp tillögu utanríkisráðherra. Kvaddi Vilmundur Gylfason sér þá hljóðs um þingsköp. Deildi hann á þá meinsemd að frammámenn túlk- uðu jafnan lögin sér í hag og væru forsætisráðherra og utanríkis- ráðherra þar fyrir öðrum. Hann taldi forseta misbeita valdi sínu, ef tillaga utanríkisráðherra væri borin upp á undan sinni, og væri slíkt valdníðsla. Ef forseti héldi fast við þá málsmeðferð væri það krafa af sinni hálfu, að hann véki úr forsetastóli meðan þingið tæki ákvörðun um þingnefnd. Sakaði hann forseta um „vikulega" mis- beitingu í fundarstjórn. Ólafur Ragnar Grímsson (Abl.) tók í sama streng og VG. Hann taldi málefni Regins hf. og frysti- hús á Patreksfirði ekki heyra til utanríkismálum — né stórbygg- ingar á Ártúnshöfða. Þetta mál ætti ekki erindi í utanríkisnefnd þegar af þeirri ástæðu að hún væri eina nefnd þingsins sem háð væri þagnarskyldu, en það útilokaði eðlileg skil á umfjöllun málsins til þingsins. Sverrir Hermannsson taldi rétt að bera fyrst upp tillögu VG því tillaga ÓIJ væri ekki breytingar- tillaga, heldur væri hér um að ræða tvær sjálfstæðar tillögur. Jón Helgason, forseti Samein- aðs þings, sagði ekki sitt, heldur Sameinaðs þings, að ákveða þing- nefnd, og sjálfsagt væri, svo hart sem málið væri sótt, að bera fyrst upp tillögu VG. Ólafur Jóhannesson, utanríkis- ráðherra, sagði samning þann, sem verktakastarfsemi á Kefla- víkurflugvelli byggðist á, vera gerðan af utanríkisráðuneyti við varnarliðið. Utanríkisráðuneytið skipaði og formann Aðalverktaka. Hér væri um málaflokk að ræða, sem heyrði til utanríkisráðuneyt- inu, og ég hef fullan rétt til, sem þingmaður, að gera tillögu um nefnd, sagði utanríkisráðherra, og þingið sker siðan úr, eftir leikregl- um þingræðisins. Jón Baldvin Hannibalsson (A) sagði þrennt hafa átt sér stað á þessum fundi: Mistök í fundar- stjórn, sem hefðu verið leiðrétt, þingreglur væru þverbrotnar með efnisumræðum um þingsköp — og mannasiðir ekki viðhafðir í orð- ræðu. „Umræðan er til skammar," sagði Jón Baldvin. Þagnarskylda háir ekki starfi nefndarinnar Fellt var við nafnakall að vísa umræddri tillögu til allsherjar- nefndar. Samþykkt var, einnig við nafnakall, að utanríkismálanefnd fjallaði um meðferð hennar. Geir Hallgrímsson, formaður utanríkismálanefndar, kvaddi sér hljóðs að lokinni atkvæðagreiðslu og sagði: Sjálfsagt er að allir þeir, ein- stakir nefndarmenn eða nefndin í heild, sem óska eftir að fá aðila til viðræðna, verði til kvaddir. Þagn- arskylda í utanríkisnefnd kemur því aðeins til, að formaður nefnd- arinnar eða utanríkisráðherra kveði á um hana. Ég hygg að máls- þættir þeir, sem hér koma við sögu, séu ekki á þann veg, að ekki megi greina frá því á Alþingi sem fram fer í nefndinni þá varðandi, enda þurfa mjög veigamikil rök til að koma, svo þagnarskyldu sé beitt. Sem formaður nefndarinnar vil ég taka fram, að ástæðulaust er að gera meðferð nefndarinnar á þessu máli tortryggilega, vegna meintrar leyndar, og ég vænti þess að góð samvinna verði í nefndinni um umfjöllun málsins. Ólafur Jóhannesson, utanríkis- ráðherra, sagði getsakir Ólafs Ragnars Grímssonar út í hött. Það eitt hafi fyrir sér vakað, er hann gerði tillögu um utanríkisnefnd, að tillagan, eðli málsins sam- kvæmt, ætti þar heima. Af minni hálfu mun ekki koma fram nein ósk um leynd, þetta mál varðandi. Annað mál er, hvað hugsanlegir viðmælendur nefndarinnar, einka- aðilar, kunna að gera, en þeir eiga sinn rétt, óháð því hvaða þing- nefnd hefði fjallað um málið. Þingfréttir í stuttu máli Nefnd til að spyrja dómsmálaráðherra Vilmundur Gylfason (A) mælti í gær fyrir tillögu til þingsálykt- unar, þessefnis, að Alþingi kjósi hlutfallskosningu 2ja manna nefnd „til þess að spyrja dóms- málaráðherra eftirfarandi spurningar: Hefur dómsmála- ráðherra talið ástæðu til þess að gera athugasemdir við embætt- isfærslu sýslumanns á Höfn í Hornafirði hinn 18. ágúst sl.? Nefndin verði ólaunuð". Tillaga þessi er flutt vegna þess „að þó svo forseti Sameinaðs þings geti gert um það tillögu að banna fyrirspurnir til ráðherra, svo sem gerðist á fundi Sameinaðs þings hinn 13. október sl., getur hann engri slíkri heftingu beitt á málfrelsi þingmanna gegn þing- sályktunartillögu," segir í grein- argerð. Fyrirspurnir • Helgi Seljan (Abl.) hefur lagt fram fyrirspurn til fjármála- ráðherra um kaup lífeyrissjóða á skuldabréfum, skv. lánsfjár- áætlun, hvern veg lífeyrissjóðir hafi staðið skil á kaupum skuldabréfa. • Pétur SigurÖKson (S) hefur lagt fram fyrirspurnir til við- skiptaráðherra um starfs- mannahald ríkisbanka o.fl.: Um fjölda útibúa ríkisbankanna, um starfsmannafjölda Seðlabanka og viðskiptabanka ríkisins, um laun og hlunnindi og hve margir starfsmenn muni starfa við hina fyrirhuguðu gjaldeyrisdeild Búnaðarbanka. • Árni Gunnarsson (A) spyr sjávarútvegsráðherra, hvort hann hyggist breyta þeim regl- um, sem nú gilda um skiptingu rækjuafla á Húnaflóa í Ijósi þeirra breytinga, sem orðið hafi á atvinnuöryggi þeirra staða er aflans hafa notið. • Markús Einarsson, veður- fræðingur, tók í gær sæti á Al- þingi sem varamaður Jóhanns Einvarðssonar (F), vegna fjar- veru hans erlendis.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.