Morgunblaðið - 12.11.1982, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. NÓVEMBER 1982
25
Minning:
Frímann Konráðsson
Nývarð Konráðsson
Fæddir 18. ágúst 1966
Dánir 30. október 1982
Það er erfitt að sætta sig við að
Frímann og Nývarð séu dánir. Af
hverju þeir? Sú spurning vaknar
ósjálfrátt í huga manns. Þeir, sem
áttu svo mikið af gleði að gefa,
fullir lífsþróttar og ástar á lífinu,
teknir burt í einni svipan svo
snemma að morgni lífsins. Því
fáum við ekki svarað. En þó dvöl
þeirra hér á meðal okkar hafi ver-
ið stutt, var hún góð. Við vinkon-
urnar kynntumst þeim um síðustu
páska í heimabyggð þeirra á
Ólafsfirði, en önnur okkar á mikið
af skyldfólki þar. Við vorum oftast
fjögur saman, ásamt Gumma,
besta vini þeirra. Það streymdi
alltaf gleðin og húmorinn frá þeim
bræðrum þannig að maður gat
ekki annað en verið í góðu skapi,
þegar þeir voru nálægir. Við tók-
um líka fljótt eftir því hvað þeir
voru samrýndir. Ef þeir t.d. voru
að segja frá einhverju skiptust
þeir á að tala, skiptu frásögninni
bróðurlega á milli sín.
Einn atburður er okkur vinkon-
unum mjög minnisstæður og mun-
um aldrei gleyma. En það var þeg-
ar við heimsóttum heimili þeirra
að Burstabrekku. Það fór ekki
milli mála að þeir voru mjög
hreyknir af heimili sínu og voru
ólatir við að sýna okkur hluti sem
tengdust þeim sjálfum, foreldrum
þeirra eða systkinum. Mynda-
albúmin voru skoðuð við mikla
kátínu og áttu þeir fullt í fangi
með að útskýra hver væri hvað, ef
eldri myndum af þeim tvíburun-
um brá fyrir. Þetta var ógleyman-
legur dagur sem við áttum með
Sigurlaug Steinunn
Sigurðardóttir — Minning
Fædd 26. nóvember 1913
Dáin 2. nóvember 1982
I dag verður jarðsungin frá
Dómkirkjunni í Reykjavík tengda-
móðir mín, Sigurlaug Steinunn
Sigurðardóttir, Miðtúni 20 hér í
borg. Hún var dóttir hjónanna
Marinar Ingibjargar Guðmunds-
dóttur og Sigurðar Kr. Ólafssonar.
Hafði hún um nokkurra ára skeið
átt við vanheilsu að stríða og
dvaldist síðustu tæp tvö árin ann-
að slagið í spítala, farin að heilsu
og kröftum. Dauðinn kom því til
hennar eins og lífsins engill og
leysti hana undan frekari kröm
ellihrumleikans. Það var erfitt að
sjá að baki svo góðri konu sem
Sigurlaug var lifa lengi lífi sem
allt gildi hafði misst fyrir hana.
Þess vegna bærist þökk til Guðs
nú í brjósti að andi hennar skuli
hafa fengið lausn úr jarðneskum
viðjum og geti nú flogið frjáls á
vit vina á æðri tilverusviðum Guðs
eilífa ríkis.
Með Sigurlaugu er horfin góð
kona sem öllum vildi gott gera og
leið henni vel ef allt gekk vel hjá
börnum hennar og ættingjum.
þeim bræðrunum og mun trúlega
sterkast tengjast minningu þeirra
í hugum okkar. Annars er það
skrýtið hvað þetta er fljótt að ger-
ast. Önnur okkar var á Ólafsfirði
um verslunarmannahelgina síð-
ustu og var þá eitt kvöld ásamt
bræðrunum heima hjá vini þeirra.
Þar héldu þeir fjörinu uppi að
vanda með bröndurum og öðru
gamni, þannig að við krakkarnir
veltujmst um af hlátri. Ekki
renndi hún í grun að þetta yrði
síðasta stundin sem hún ætti með
þeim.
Við sendum okkar dýpstu sam-
úðarkveðjur til foreldra þeirra og
systkina og biðjum góðan Guð að
styrkjaæ þau og blessa.
Ellý og Matta.
Aldrei munum við gleyma henni,
svo margs er að minnast og marg-
ar voru ferðir hennar austur fyrir
fjall til fjölskyldu minnar og gaf
hún sér þá oft tíma til að leika við
börnin. Öft var líka tekið í spil og
minnist ég þess hve gaman hún
hafði af því. Þar sem góðir menn
ganga, þar eru Guðs vegir. Megi
Sigurlaug ganga þann veg á ljóss-
ins eilífðarströnd. Blessuð sé
hennar minning. Jóhannesi og
börnum hennar, ættingjum og
vinum votta ég mína dýpstu sam-
úð.
Á hendur fol þú llonum
som himna stýrir borg,
þad allt er áttu í vonum
og allt er veldur sorg.
Ilann bylfjjur getur bundid
t»g bugad storma her.
Hann fótstig getur fundið
sem f*r sé handa þér.
Steinar Sigurður Guðjónsson
In^^^mpeningaseðla og
myntar í gömlum krónum
Athygli fólks er vakin á því að nú er hver síðastur að fá gömlum krónum
skipt fyrir nýjar, en lokafrestur til að innleysa seðla og mynt t gömlum krónum
rennur út um ruestu áramót.
I Slegnir peningar (mynt)
1 KRÓNA Þvermál: 22,5 mm Þyngd: 4,75 g. 1 KRÓNA Þvermál: 17 mm Þyngd:0,61 g
Málmur: Nikkel/látún Útgefnir: 1925-1975 Málmur: Á1 Útgefnir: 1976-1980
5 KRÓNUR Þvermál: 20,75 mm Þyngd: 4,00 g
Málmur: Kopar/nikkel Útgefnir: 1969-1980
10 KRÓNUR Þvermál: 25 mm Þyngd: 6,50 g
Málmur: Kopar/nikkel Útgefnir: 1967-1980
u
Peningaseðlar, útgefnir af SHÐLABANKA ÍSLANDS skv. lögum nr. 10
frá 29. mars 1961:
100 KRÓNUR
Stserð og myndefni sbr. A 100 krónur. Aðallitir: Blágrænn og
fjöllitaívaf (framhlið), blágrænn (bakhlið).
500 KRÓNUR
Stærð: 150 x 70 mm. Myndefni: Á framhlið er mynd af
Hannesi Hafstein, en á bakhlið er mynd af fiskibát og áhöfn hans á veiðum.
AðaUitir: Grænn (framhUð og bakhhð).
50 KRÓNUR Þvermál: 30 mm Þyngd: 12,50 g
Málmur: Nikkel Útgefnir: 1968 (minnispeningur)
50 KRÓNUR Þvermál: 30 mm Þyngd: 12,50 g
Málmur: Kopar/nikkel Útgefnir: 1970-1980
II Peningaseölar
A
Peningaseðlar, útgefnir af LANDSBANKA ÍSLANDS - SEÐLABANKA
skv. lögum nr. 63 frá 21. júní 1957:
100 KRÓNUR
Stærð: 150 x 70 mm. Myndefni: Á framhUð er mynd af
Tryggva Gunnarssyni og Hólum í Hjaltadal, en á bakhlið er mynd
af fjárrekstri og Heklu í baksýn.
AðaUitir: Blágrænn og fjöllitaivaf (framhlið), ljósgrænn (bakhUð).
1000 KRÓNUR
Stærð: 160 x 70 mm. Myndefni: Á framhlið er mynd af
Jóni Sigurðssyni og Alþingishúsinu, en á bakhlið er mynd af Þingvöllum.
AðaUitir: Blér og fjöllitaívaf (framhlið), blár (bakhUð).
Stærð: 160 x 70 mm. Myndefni: Á framhlið er mynd af
Einari Benediktssyni og rafstöðinni við Írafoss, en á bakhlið er mynd af
Dettifossi. Aðallitir: Ljósbrúnn og fjöllitaívaf (framhlið og bakhlið).
f öllum framangreindum peningaseðlum (A og B) er lóðróttur
öryggisþráður og vamsmerki, sem ber mynd af Sveini Bjömssyni,
fyrsta forseta lýðveldisins.
8
St
1
8
Bankar og sparisjóðir eru ekki lengur skuldbundnir til að innleysa gamlar krónur,
en munu taka að sér milligöngu fyrir viðskiptavini að fá þær innleystar hjá
Seðlabankanum, en hann mun innleysa peningana að einum hundraðshluta
ákvæðisverðs fram til 31. desember 1982.
Reykjavík, í nóvember 1982
SEÐLABANKI ÍSLANDS