Morgunblaðið - 12.11.1982, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 12.11.1982, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. NÓVEMBER 1982 + Eiginkona mín og móðir okkar, HILDIGUNNUR JÓAKIMSDÓTTIR, Hrannargölu 9, ísafirði, lést í Landspítalanum 10. nóvember. Kveöjuathöfn fer fram í Fossvogskapellu föstudaginn 12. nóvember kl. 10.15. Halldór Kristjónsson og barnabörn. t Eiginmaöur minn og faöir okkar, EIRÍKUR JÓI SIGURÐSSON, Aöalgötu 12, Keflavík, lést aö heimiii sínu miövikudaginn 10. nóvember 1982. Stefanía Guömundsdóttir og börn. + JÓN S. JÓNSSON frá Purkey, Klofningshreppi, Dalasýslu, veröur jarösunginn frá Stykkishólmskirkju, kl. 2 laugardaginn 13. nóvember. Fósturbörn og aörir vandamenn. + Útför eiginmanns míns, GUÐNA JÓNSSONAR, fyrrverandi bónda aö Jaöri Hrunamannahreppi, til heímilis aö Langageröi 15, fer fram frá Bústaöakirkju, mánudaginn 15. nóvember kl. 13.30. Jarðsett verður í Gufuneskirkjugaröi. Kristín Jónsdóttir. + Móöir okkar, ÓLÖF ÞORLEIFSDÓTTIR frá Hömrum, verður jarösungin frá Grundarfjaröarkirkju, laugardaginn 13. nóvember kl. 14.00. Þeir sem vildu minnast hennar eru vinsamlegast beðnir aö láta Grundarfjaröarkirkju njóta þess. Ferö veröur frá Umferðarmiöstöðinni kl. 8.00 sama dag. Börn og tengdabörn. + Innilegar þakkir til allra þeirra er sýndu okkur samúö og vinarhug viö fráfall og útför HJÁLMTÝS HJÁLMTÝSSONAR. Sérstakar þakkir til kvenfélags Breiöholts. Guórún B. Daníelsdóttir, Hlíf Svava Hjálmtýsdóttir, börn og barnabörn. + Þökkum af alhug auösýndan vinarhug og samúö við andlát og jarðarför, DÓRÓTHEU JÓHAHNESDÓTTUR,, Hátúni 4, er lést þann 28. október. Guö blessi ykkur öll. Ingólfur Jónsson, Jóhannes Sveinn Halldórsson, Ingibjörg St. Hjaltalín, Sigrún Siguróardóttír, Grétar Snar Hjartarson, Jón Rafn Sigurösson, Kristín I. Jóhannsdóttir, Erlingur Gunnar Sigurösson, Pirkko Sartoneva, Stefán Már Ingólfsson, Marianna Franzdóttir. + Þökkum innilega öllum þeim sem sýndu okkur samúö og vináttu vegna andláts og jarðarfarar ELÍSABETAR HELGADÓTTUR, handavinnukennara, Bjarnarstíg 10. Sérstakar þakkir færum viö starfsliöi deild 1-A á Landakotsspítala. Jóhanna Jónsdóttir, Sverrir Bjarnason, Helgi Bjarnason, Sigrún Þorsteínsdóttir, Ásta Bjarnadóttir, Guðmundur Þorsteinsson, barnabörn og barnabarnabörn. Margrét Tómasdótt- ir — Minningarorð Fædd 31. maí 1899 Dáin 5. nóvember 1982 I dag verður gerð frá Fossvogs- kirkju útför Margrétar Tómas- dóttur, Hamrabergi 12, áður á Grettisgötu 58B, í Reykjavík. Margrét var fædd að Einifelli í Stafholtstungum 31. maí 1899 og var því 83 ára er hún lézt 5. nóv- ember sl. Foreldrar hennar voru hjónin Ástrós Sumarliðadóttir og Tómas Guðmundsson, bóndi að Einifelli. Vegna heilsubrests föður hennar var Margréti komið í fóst- ur, þá fjögurra ára að aldri, til föðurbróður síns, Guðmundar Guðmundssonar, bóna í Hróars- holti í Villingaholtshreppi í Flóa, og konu hans Guðrúnar Halldórs- dóttur. Ólst Margrét þar upp til fullorðinsára. Haustið 1918 fer Margrét til Reykjavíkur til náms við ljós- mæðraskólann og útskrifast það- an í apríl 1919, þá 19 ára gömul, og er nokkrum vikum síðar skipuð yf- irsetukona í Villingaholtshreppi í Flóa. Þótti hún lagin og farsæl ljósmóðir og var hún kölluð til sængurkvenna utan síns umdæm- is og tók á móti mörgum börnum í nálægum hreppum þau tæp fjögur ár, sem hún gegndi þessum störf- um í Flóanum — eða þar til hún veiktist alvarlega. Fékk hún sam- tímis barnaveiki og skarlatsótt og var flutt til Reykjavíkur til lækn- inga. Er hún hafði náð fullri heilsu ræðzt hún til verzlunarstarfa í Braunsverslun í Reykjavík. Þar starfaði hún unz hún giftist 19. júní 1926 Karli Guðmundssyni, þá búfræðingi frá Hvanneyri og síðar rafvélavirkjameistara. Karl var sonur Guðmundar Sigfreðssonar, bónda og hreppstjóra í Króki á Rauðasandi, og konu hans Guð- rúnar Thoroddsen. Þau Margrét og Karl áttu síðan heimili sitt í Reykjavík, að undan- skildu árinu 1929—1930, er Karl annaðist rafstöð útgerðarinnar og fiskvinnslunnar í Viðey, er þar var þá rekin. Kom það sér vel fyrir sængurkonur í eynni þann vetur, að þar dvaldi þá ljósmóðir, sem hlýddi kallinu, þótt sjálf væri hún þá langt gengin með þriðja barn sitt. I tæpa tvo áratugi bjuggu þau hjón á Nönnugötu 1 og rúma tvo áratugi á Grettisgötu 58B. Karl Guðmundsson lézt í apríl 1977. Þeim hjónum varð 9 barna auð- ið og eru átta á lífi, þau eru: Ásta Guðrún, Guðmundur, kvæntur Hrefnu Árnadóttur, Hrefna Sig- ríður, gift Steingrími Guðjóns- syni, Anna Kristjana, gift Werner Rasmussyni, Margrét Björk. gift Erni Þór og síðar Yngva Ólafs- syni, en hún lézt fyrir fáum árum, Kristinn, kvæntur Kristínu Stef- ánsdóttur, Tómas, kvæntur Ásu Jónsdóttur, Einar og Ragnar. Barnabörnin eru 17 og barna- barnabörnin 2. Margrét Tómasdóttir átti 5 systur og 3 bræður. Margrét var yngst systkinanna, þeirra, sem fullorðinsaldri náðu, og síðust til að kveðja. Elzt systkinanna var Guðrún, Ijósmóðir á ísafirði um nokkur ár, skáldmælt vel og orti undir höfundarnafninu Arnrún frá Felli. Hún fluttist vestur um haf og giftist þar Carli Bjarna- syni, prófessor við Harvard-há- skóla í Bandaríkjunum. Inga, gift- ist Niels Nielsen, veitingamanni í Kaupmannahöfn. Elín, ráðskona á Gömlu-Grund, Guðmundur, bóndi í Trandraseli í Borgarfirði, kvænt- ur Ólöfu Jónsdóttur frá Einifelli. Sigríður, ráðskona á Nýju-Grund, elliheimilinu í Hafnarfirði og Ak- urhóli. Einar, kolakaupmaður í Reykjavík, kvæntur Ragnhildi Jónsdóttur. Anna, hjúkrunarkona í Kaupmannahöfn. Kristján dó tveggja ára gamall. Faðir minn, Einar Tómasson, bróðir Margrétar, bjó í næsta ATHYGLI skal vakin á því, að afmælis- og minn- ingargreinar verða að berast blaðinu með góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í mið- vikudagsblaði, að berast í síðasta lagi fyrir hádegi á mánudag og hliðstætt með greinar aðra daga. í minn- ingargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður. Þess skal einnig getið, af marggefnu tilefni, að frumort ljóð um hinn látna eru ekki birt á minningarorðasíð- um Morgunblaðsins. Handrit þurfa að vera vélrituð og með góðu línubili. + Þökkum auösýnda samúö vegna andláts og útfarar ÓSKARS HARALDSSONAR, Vesturgötu 61. Sigurlína Jónsdóttir, Kristín Haraldsdóttir. + Þakka auösýnda samúö vegna fráfalls eiginmanns míns, KJARTANS BJARNASONAR, fyrrv. sparisjóðsstjóra trá Siglufirói, Fyrir hönd vandamanna, Helga Gísladóttir. Lokað kl. 14.00 í dag föstudag vegna útfarar Kristjáns Guðlaugssonar hrl. Félagsprentsmidjan hf., Anilinprent hf., Stimplagerd Félagsprentsmidjunnar hf. nágrenni við Nönnugötu 1 og var mikill samgangur, vinátta og tíður samfagnaður milli heimila þeirra systkina. Barnalán var mikið hjá báðum. Við vorum 11 systkinin, 9 systur og 2 bræður. Leið varla sá dagur að við hittumst ekki oftar en einu sinni til leiks, skrafs og ráðagerða. Var þá oft þröngt á þingi og mikið hlegið, enda marg- ar sögur þá enn sagðar, sem enn eru rifjaðar upp. Margrét og Karl og foreldrar mínir voru einlægir vinir og gátu þrátt fyrir barnamergðina gefið sér tóm til að taka í spil og stytta sér stundir. Ótaldir eru þeir dag- ar, sem við systur „skruppum upp á Nönnugötu til Möggu frænku" til að ræða við hana um okkar leyndarmál í einrúmi og fá holl ráð og leiðbeiningar. Var þá oft lagt fast að henni að lesa í bolla eða spil um óorðna hluti. Þrátt fyrir þungt heimili átti hún alltaf tíma til að sinna okkur. Flestum okkar systra kenndi hún að fara með prjóna og stýra nál. Margrét var frábær myndar- og dugnaðarkona til allra verka. Síð- ustu æviárin lét hún heldur ekki verk úr hendi falla og prjónaði, heklaði og hnýtti teppi handa börnum, barnabörnum og barna- barnabörnum. Var kappið þá stundum meira en kraftar leyfðu. Fyrir allt það, sem ég hef hér drepið á, og margt fleira, er vottar umhyggju hennar og elsku í okkar garð, viljum við systkinin þakka henni af alhug, nú er leiðir skiljast að sinni. Við vottum fjölskyldu og ástvinum hennar innilegrar sam- úðar. Megi Guð blessa minningu Mar- grétar Tómasdóttur. Ásta Einarsdóttir í dag er borin til hinstu hvíldar Margrét Tómasdóttir, Hamra- bergi 12, áður á Grettisgötu 58b, Reykjavík. Margrét var fædd að Einifelli í Stafholtstungum, Borg- arfirði, þar sem foreldrar hennar bjuggu, en þau voru hjónin Tómas Guðmundsson frá Hróarsholti í Flóa, Tómassonar prests í Vill- ingaholti og Ástrósar Sumarliða- dóttur. Ætt hennar kann ég ekki að rekja. Margrét fluttist barn að aldri að Hróarsholti í Flóa til föðurfólks síns þar, er faðir hennar missti heilsuna. Þar ólst hún upp, og var þar sín þroskaár. Að beiðni Vill- ingaholts- og Hrunagerðishreppa fór hún í ljósmæðraskólann 1918 og lauk þar námi 1919. Gerðist síð- an ljósmóðir í þeim hreppum en reyndar náði starfssvæðið út fyrir þá. Henni fórst ljósmóðurstarfið vel úr hendi, og var afar lánssöm í því starfi, en þá voru allar aðstæð- ur aðrar og erfiðari en nú á tím- um. Eftir nær fjögurra ára starf veiktist hún alvarlega og fluttist til Reykjavíkur vegna veikind- anna. Þegar hún komst til heilsu á ný fór hún að vinna í Braunsverzl- un, og vann þar, þangað til hún giftist 19. júní 1926 Karli Guð- mundssyni, rafvirkja, sem lengi var sýningarstjóri í Tjarnarbíói og síðar Háskólabíói. Þau hófu bú- skap á Vesturgötunni hjá Ástrósu móður Margrétar. Um eins árs skeið bjuggu þau í Viðey og tók hún þar á móti börnum, lengst bjuggu þau á Nönnugötunni. Þau eignuðust 9 börn og eru 8 á lífi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.