Tíminn - 31.07.1965, Síða 16
NÚ META ÞEIR HANN
NTB-Moskvu, 30. júlí.
Eitt bindi af úrvalsljóðum
sovézka Ijóðskáldsins Boris
Pastemak er nýlega komið út
í Leningrad og annað ljóða-
safn er í prentun í Moskvn. Len
ingrad útgáfan er ein stærsta
heMdarútgáfa á ljóðnm Paster
naks til þessa. Þar em m. a.
ljóð, sem ekki hafa birzt á
prenti áður og einnig nokkur
Framhald á bls 14
'Ti'pa,- ■-!
pgfl
■ ■
.1T í. ,w
Hii
:i :!V!
„ r;
fáir ætla sér að sitja heima. um 30 langferðabíla til að
. ■..............................■■■::
> :
« ' ','A,
"////■//
///////■/
m
*
.
■ : ■:
■■■/■// ///■///■
■■■/■ .
TiMAMYND — GE
Myndin hér að ofan er fekin í gærkvöldi á Bifreiðastöð íslands, þegar fólk var að búa sig til helgarferðanna.
Þórsmörk enn efst á
JHM—Reykjavík, föstudag.
Þúsundir og aftur þúsundir
landsmanna ætla að leggja
land undir fót um helgihá.
Sumir fara í eivikabUum, aðrir
með hópferðum, og enn aðrir
á hestum. Flestir ætla að búa
í tjöldum, en auk þess em
flest hótel landsins yfirfidl,
og mangir munu sofa í sælu-
húsum eða skólum. Ómögulegt
er að ímynda sér þann fjölda
landsmanna, sem mun ferðast
um þessa helgi verzlunar-
manna, en bó er bað vitað. að
Tíminn hafði samband við
ferðaskrifstofur í Reykja-
vík í dag, föstudag, til
þess að kynna sér, hve marg-
ir fara á þeirra vegum og hvert
menn fara. í fyrra var það
Þórsmörk, og nú bendir allt
til þess, að fjölmennast verði
þar aftur í ár. Þó munu margir
fara í Þjórsárdalinn.
Ferðaskrifstofa Úlfars Ja-
cobsen fer með um 1000 manns
í Þórsmörk um helgina, þar af
fara 370 í kvöld, en afgangur-
inn á morgun. Úlfar mun nota
flytja allt þetta fólk, og fara
sumir bílanna tvær ferðir. Til
að skemmta þessum hóp af
fólki, sem flest er á aldrinum
14—18 ára, verður hljómsveit
með í förinni, sem mun leika
fyrir dansi til kl. 3 á laugar-
dags- og sunnudagsnóttina.
Þeir, sem vilja, eiga kost á
gönguferðum um Mörkina, og
íþróttaæfingum til liðkunar.
Guðmundur Jónasson mun
verða með 10—12 bíla í ferð-
um um helgina, einn fer á
morgun í einkaferð þvert yf-
ir landið með nokkra góðborg-
ara; aðrir fara með um 200
manns í Þórsmörk. Þá eru
tveir b.vlar með hópferðir á
Norðurlandi. Enn aðrir lang-
ferðabílar eru leigðir í hópferð
ir á vegum fyrirtækja og fé-
laga.
Eifct mesta vandamálið hér
í borg þessa dagana, fyrir þá,
er sjá um þessar ferðir, er
það, að það er ekki nokkur leið
að fá fleiri langferðabíla. Þetta
kemur sér illa, því að fleiri
og fleiri óska þess að komast
út úr bænum. Einn ferðaskrif
stofumaðurinn sagði: „Við höf-
um ekki gert annað sl. háifam
mánuð en að segja, að við ihiöf-
um ekki fleirí bíla.“
Bifreiðastöð fslands mtm fara
með 15—20 bíla af fólki á
Húsafellsmótið, og gæti farið
með fleiri, en þeir eru bara
ekki fáanlegir. BSÍ fer með
um 4 bíla af fólki í Þórsmörk
í dag, föstudag, og með 6 bíla
á morgun, eða samtals um 400
manns. Þessar ferðir í Þórs-
mörk eru sætaferðir, en ekki
hópferðir.
Ferðaskrifstofan Lönd og
Framhald á bls. 14.
Mikill viðbúnaður lögreglu, skáta, vegaeftirlits og FÍB:
Með útbúnað frá
Almanna vörnum!
Hér slást menn úr Hjálparsveit skáta koma útbúnaðinum frá
Almannavörnum fyrlr á bjl fyrir utan Skátaheimilið. — Tímam.-GE
JHM-Reykjavík, föstudag.
Mikill viðbúnaður er til að
veita landsmönnum alla þá
fyrirgreiðslu, aðstoð og lög-
gæzlu, sem möguleg er úti
á landsbyggðinni um helgina.
Viðkomandi aðilar hafa verið
að leggja síðustu hönd á verk
ið í dag, föstudag, og
einstaklingar hafa verið að
ganga frá bílum sínum og út-
búnaði. Mikið hefur verið að
gera á benzínsölum, bifreiða
verkstæðum, varahlutaverkstæð
um og á hjólbarðaviðgerðaverk
stæðum.
Blaðið snéri sér til Ólafs
Jónsson, fulltrúa lögreglu-
stjóra og spurði hann um við
búnað lögreglunnar um þessa
helgi.
— Við verðum með, eins og
áður, 12 manna flokk i Þórs
mörk, fyrir utan 30 manna
flokk úr hjálparsveit skáta og
flokk manna frá skógræktinni.
undir stjórn skógarvarðarins
sem fengið hefur ýmsan útbún
að frá Almannavörnum að láni.
— Við munum flytja alla
ölvaða menn af staðnum
og verða þeir sendir til Rvíkur.
Þá verðum við með
löggæzlulið í Bjarkarlundi, Snæ
fellsnesi, á Vestfjörðum, og í
Borgarfirði, á Þingvöllum, og
á Laugarvatni.
— Vegaeftirlitið verður víða,
bæði hér í nánd við Reykjavík
og svo annars staðar, eins og
t. d. fyrir austan. í vegaeftirlit
inu verða aðstoðarmenn frá Bif
reiðaeftirlitinu.
— Við bH-juðum í dag að
koma í vegwyrir það að mjög
lélegir bílar fari úr bænum
og verði hættulegir fyrir um-
ferðina.
— Þá er búið að biðja um
flokka á dansleiki í Aratungu,
Þjórsárver og á Hvalfjarðar-
ströndina.
— Bílarnir á vegum landsins
munu skipta þúsundum um helg
ina, og mikill hluti landsmanna
mun verða á ferðalögum. Við
biðjum alla að aka með gát og
stuðla að því að hegðun allra
verði góð. Lögreglan er við
því búin að senda aukalið
hvert sem er, ef þörf krefur,
sagði Ólafur að iokum.
Næst snéri blaðið sér til
Magnúsar Valdimarssonar hjá
Félagi íslenzkra bifreiðaeig
enda og spurði hann um þeirra
undirbúning.
— Þetta er í fyrsta sinn sem
við verðum með bíla í öllum
Framhald á bls. 14
VEÐRID
Samkvæmt veSurfréttum í gær-
kvöldi átti að haldast þurrt hér
sunnan og suðvestanlands og víð
ast léttskýjað. Norðanlands var
búizt við að stytti upp í dagf
en að léttskýjað yrði á suðvest.
urlandi. — Á sunnudag var
spáin bjartviðri og norðanátt
sunnanlands, en rigning og kalsa
veður fyrir norðan.