Morgunblaðið - 24.11.1982, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. NÓVEMBER 1982
59
stóran spón úr aski sínum, því
þeir hafa setið einir að því valdi
að velja fréttir og annað dag-
skrárefni fyrir almenning. Þeir
hafa álitið það sitt hlutverk að
ala almenning upp, velja hvað sé
boðlegt, hvað menningarlegt eða
þjóðlegt, hvað einstaklingunum
sé fyrir bestu, allt út frá því,
hvað þeir telja, eins og þeir orða
það, „samfélagslega æskilegt" til
að „auka þroska og vit einstakl-
inganna og standa vörð um
sjálfstæði íslands".
Þar sem ríkisfjölmiðlungarnir
telja sig fara með þetta hlutverk,
er ekki óeðlilegt að þeir grípi til
stórra orða af þessu tagi til að
verja aðstöðu sína og völd. Ríkis-
fjölmiðlungarnir telja til dæmis
það, að ráðherra skyldi leyfa sér
að skipa þessa endurskoðunar-
nefnd, „einhverja grófustu móðg-
un sem dengt hefur verið í andlit
starfsfólks Ríkisútvarpsins í
mörg ár“, svo vitnað sé til orða
eins þeirra í útvarpserindi hans
um þessi mál nýlega.
En ríkisfjölmiðlungarnir hafa
ekki setið við orðin tóm. Þeir
kröfðust þess t.d. að ráðherra
skipaði fulltrúa þeirra í endur-
skoðunarnefndina og sendu
nefndinni tillögur sínar í þessum
efnum. Þeir hafa misnotað að-
stöðu sína í ríkisfjölmiðlunum til
að vekja efasemdir hjá almenn-
ingi um frjálst útvarp. Nú síðast
hafa þeir birt á síðum dagblað-
anna rök sín fyrir frelsisskerð-
ingunni og eru þau einmitt af því
tagi sem þú nefndir.
Þetta sýnir fálmkennda til-
raun ríkisfjölmiðlunganna til að
berjast á móti þróun, sem vegna
tæknibyltingarinnar hefur leitt
til aukins tjáningarfrelsis. En
þeim er ekki sú gáfa gefin að
gera sér ljósa örvæntingarfulla
tilraun ríkisvaldsins til að beisla
þróunina og tryggja rétt ríkisins
um ókomna framtíð. Þeir ættu
því að styðja þetta frumvarp, ef
þeir ætla að vera samkvæmir
sjálfum sér.
Frjálslyndir menn, sem ekki
fallast á rök þau sem að frelsis-
skerðingunni eru færð, verða að
bindast samtökum um breyting-
ar á þessu frumvarpi. Fyrir
okkur er einungis aðgengilegt
frumvarp sem tryggja mun fullt
tjáningarfrelsi," sagði Auðun að
lokum.
Frá ráðstefnunni.
Heimdallur:
Fjölsótt ráðstefna um
öryggis- og
HEIMDALLUR gekkst nýlega
fyrir ráðstefnu um öryggis- og
varnarmál. Stóð ráðstefnan yfir
laugardaginn og sunnudaginn
30.—31. okt. sl. A laugardag voru
fluttir fyrirlestrar, en á sunnudag
var farið í kynnisferð á Keflavíkur-
flugvöll og skoðuðu þátttakendur
þar varnarstöðina.
Á ráðstefnunni voru fluttir
fjórir fyrirlestrar, Björn Bjarna-
son blaðamaður ræddi um
NATO og Varsjárbandalagið,
Gunnar Gunnarsson starfsmað-
varnarmál
ur Öryggismálanefndar ræddi
stöðuna á N-Atlantshafi, Birgir
ísl. Gunnarsson alþingismaður
fjallaði um friðarhreyfingar og
afvopnunarmál og Kjartan
Gunnarsson framkvaemdastjóri
ræddi aukna þátttöku íslendinga
í vörnum landsins.
Að fyrirlestrum loknum var
sýnd nýleg kanadísk kvikmynd
um KGB og þær starfsaðferðir
sem tíðkast þar á bæ og þótti
myndin fróðleg.
Ráðstefnan var fjölsótt.
Frá fundi sem haldinn var í Kópavogi. Á myndinni eru frá vinstri: Þorsteinn
Halldórsson, formaður Týs, Geir H. Ilaarde, formaður SUS, og Erlendur
Kristjánsson, annar varaformaður SUS.
Hér kemur tækifærið að
kaupa ódýr jólafót á alla
fjölskylduna.
T.d.
Buxur frá kr. 99.-
Kjólar frá kr. 199.-
Jakkaföt frá kr. 489.-
Skór frá kl*. 49.-
Fáið ókeypis eintak af nýjasta Kays-listanum.
ERUM FLUTT AÐ
HÓLSHRAUNI 2,
(rétt hjá Fjarðarkaup á móti Glerborg).
PM B.MAGNUSSON
mtmuwm HÓLSHRAUNI 2 • SÍMI 52866 - P.H. 410 - HAFNARFIRÐI