Morgunblaðið - 24.11.1982, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 24.11.1982, Blaðsíða 12
60 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. NÓVEMBER 1982 un hans. Það er eins og ekkert af því tagi heppnist almenni- lega síðan: Samningaviðræður hafa verið hafnar, en þeim ekki lokið. Síðara samkomulagið um takmörkun kjarnorkuvígbúnað- ar, SALT-II, var loks undirritað 1979 en dróst svo inn í vaxandi spennu í samskiptum austurs og vesturs, og hefur ekki enn þann dag í dag hlotið fullgild- ingu. Viðræður um fækkun í venjulegum herafla í Mið- Evrópu voru hafnar árið 1973, en hafa nú, níu árum síðar, ekki leitt til neinnar niðurstöðu. Á þessu eru margar skýr- ingar, en sú sem teljast verður hin veigamesta er eftirfarandi: Takmörkun á vígbúnaði er orð- in léttvæg pólitískt séð. I stað þess að vera nothæft tæki til að móta pólitíska stefnu í sam- skiptum austurs og vesturs — en til þess dugir það eingöngu — er takmörkun vígbúnaðar orðin sífellt meira að eins konar fyrirslætti vegna skorts á póli- tískri stefnu. Pólitískri heild- arstefnu hrakar Andstæður okkar tíma við Kúbudeiluna og áratuginn, sem á eftir fór, eru ærið áberandi. Ögrun Sovétríkjanna var þess eðlis, að Bandaríkin gátu þá ekki þolað þeim hana. Ekki ein- göngu vegna hinna nýju sov- ézku eldflaugastöðva í Karab- íska hafinu, heldur — og það tók Kennedy skýrt fram í sjón- varpsræðu sinni 22. október 1962 — vegna hinnar snöggu, einhliða breytingar á status quo. Á atómöld er slík breyting á valdastöðu risaveldanna með öllu óþolandi, því sjálfur stöð- ugleikinn og yfirsýn mála er hið óhjákvæmilega skilyrði þess að geta lifað af. eftir dr. Christoph Bertram Hinn 14. október árið 1962 snéri bandarísk U-2-flugvél heim úr könnunarleiðangri með fáheyrðan farm innanborðs — það er að segja filmur, sem í einu og öllu staðfestu hinar verstu grunsemdir manna í Washington: Sovétríkin voru sem sagt, þrátt fyrir allar sínar margendurteknu fullyrðingar um hið gagnstæða, í óða önn að koma fyrir suður á Kúbu lang- drægum eldflaugum, búnum kjarnaoddum, og var eldflaug- unum beint að skotmörkum í Norður-Ameríku. Þetta var ekki í fyrsta sinn á atómöld, sem við lá að til alvar- legra átaka kæmi milli atómris- anna tveggja. Hins vegar hafði undirbúningur slíkra átaka aldrei áður verið kominn á slíkt flugstig eins og í þetta sinn. Þeir, sem í þá daga fylgdust grannt með rás atburðanna, minnast þess enn þann dag í dag með feginsamlegu and- varpi, á hvern hátt þessi deila var svo endanlega til lykta leidd. Forseti Bandaríkjanna, John F. Kennedy, lét með vilja hjá líða að svara þessu ögrandi ruddabragði Sovétmanna með þeim tilsvarandi ruddalega mótleik að gera hreinlega inm rás í hið óhlýðna eyríki Kúbu. í þess stað valdi hann þann kost- inn að setja algjört hafnbann á Kúbu til þess að geta sett sov- ézk flutningaskip, hlaðin eld- flaugum, föst á hafi úti. Banda- ríkjaforseti kvaðst reiðubúinn til að skuldbinda sig að virða kúbanskt yfirráðasvæði og full- veldi eyjunnar undir stjórn Castros, og einnig hina pólitískt mikilvægu bækistöð Sovét- manna, ef Sovétríkin tækju niður skotpallana og flyttu þær eldflaugar á brott, sem þegar höfðu verið settar upp. Hinn sovézki andstæðingur hans, Khrútsjov, dró í land. Það var því diplómatísk færni, festa í framkomu og viljinn til til- slakana sem þarna höfðu unnið sigur yfir stríðshættunni. Á barmi glötunar Þetta sambland af ögrunum, árekstrum og diplómatískum umleitunum réð ekki einvörð- ungu úrslitum í deilum risa- veldanna á þessum tíma, heldur hefur það mótað mjög eindregið sjálfan veruleikann og allar vonir manna á öld kjarnorkunn- ar. Við njótum enn þann dag í dag góðs af því: Veruleikann, sökum þess að þetta hvatti Sov- étríkin enn frekar til að ná hið fyrsta því marki að standa jafn- fætis Bandaríkjunum, bæði í strategískum búnaði og einnig í hefðbundnum vopnabúnaði. Áhrifin á vonir manna á atóm- öld felast fyrst og fremst í því, að menn tóku nú að gera sér pólitíska grein fyrir þeirri óumflýjanlegu nauðsyn, að haft yrði eftirlit með kapphlaupinu um kjarnorkuvígbúnað. Með Kúbudeilunni hófst ára- tugur vígbúnaðareftirlitsins: Báðir aðilar gerðu sér ljóst, að þeir höfðu staðið á yzta barmi kjarnorkustyrjaldar, og leituð- ust nú báðir við með samninga- viðræðum og samþykktum að ná tökum á þeim veruleika, sem kjarnorkan skóp. Það var gerður hver samning- urinn á fætur öðrum: Samning- urinn um stöðvun tilrauna með kjarnorkusprengjur frá 1963 leggur bann við kjarnorku- sprengingum í andrúmsloftinu, í geimnum og neðansjávar; sama ár næst samkomulag um Myndin sýnir þegar stýriflaug er skotið á loft frá færanlegum skotpalli sem dreginn er af sérsmíðuðum bíl. Hafíst verður handa við að koma 464 stýriflaugum búnum kjarnasprengjum fyrir í 5 löndum Vestur-Evrópu í lok næsta árs, náist ekki samkomulag um niðurskurö meðal- langdrægra kjarnorkuvopna í Evrópu fyrir þann tíma. beint símasamband milli Moskvu og Washington; 1967 bann við að koma fjöldadráps- tækjum fyrir úti í geimnum, 1968 samningurinn um að beita sér gegn frekari dreifingu kjarnorkuvopna. Árið 1972 und- irrituðu þjóðarleiðtogar Banda- ríkjanna og Sovétríkjanna fyrsta samkomulagið um tak- mörkun á kjarnorkuvígbúnaði beggja landanna (SALT-I), og féllu þau þá að mestu frá upp- byggingu frekari eldflauga- varna. Vaxandispenna á ný En svo er hann liðinn þessi árangursríki áratugur fyrir eft- irlit með vígbúnaði og takmörk- Það var því skoðun Banda- ríkjamanna, að jöfnun Kúbu- deilunnar og viðleitnin að koma á fót eftirliti með vígbúnaði væru hvorttveggja ein pólitísk heild. Ekki var svo mjög um að ræða að bregðast við og skjóta loku fyrir einstaka sérlega ógnun, heldur fremur hitt að koma á laggirnar vissu hegðun- armynstri, sem heimsveldin tvö Þess var minnst nú í haust, að 20 ár voru liðin frá Kúbudeilunni. Meðal þeirra sem kvöddu sér hljóðs af því tilefni var dr. Christoph Bertram, stjórnmálaritstjóri vestur-þýska viku- blaðsins Die Zeit. Hann tók við rit- stjórnarstörfum við blaðið nú í haust, en dr. Bertr- am var fram til þess forstjóri Alþjóðahermála- stofnunarinnar í London (Internat- ional Institute for Strategic Studies). Diplómatísk færni, festa og til- slakanir sigruðu stríðshættuna Nú þarf nýtt átak í afvopnunarmálum með samræmdri pólitískri stefnu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.