Morgunblaðið - 24.11.1982, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 24.11.1982, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. NÓVEMBER 1982 63 Stjórnunarfélagið býður upp á sjálfsnám um tölvur Hægt að vinna að eigin verkefnum, eða fylgja ákveðnum námslínum „TILGANGUR sjálfsnáms um tölv- ur, sem við bjóðum upp á, er jafn margþættur og nemendur eru marg- ir. Sjálfsnám er ætlað þeim, sem vilja læra um tölvur almennt, læra ákveðna notkun tölvunnar, Ld. við ritvinnslu eða áætlanagerð, eða læra um innra verk tölvunnar,“ sagði dr. Kristján Ingvarsson, forstöðumaður Tölvufræðslu Stjórnunarfélags ís- lands, í samtali við Mbl., er hann var inntur eftir þeirri nýjung félags- ins, að bjóða nú upp á sjálfsnám um tölvur. „Sjálfsnám um tölvur gagnast þeim sem vilja æfa sig á tölvur eða vinna að eigin verkefnum, hvort heldur þau eru persónulegs eðlis eða vegna atvinnu þeirra," sagði Kristján ennfremur. Hverjir eru kostir sjálfsnáms? „Kostir sjálfsnáms á tölvur eru þeir að nemandi fer yfir námsefni á eins löngum tima og hann telur nauðsynlegan, ákveður sjálfur hvenær hann kemur í tölvufræðsl- una og auk þess er aðgangur að tölvum, leiðbeinanda og námsefni mun ódýrari en á reglulegum námskeiðum. Arangur námsins er fenginn með aðstoð skipulagðra námslína og leiðsögn leiðbeinenda, sem hafa háskólamenntun í tölvu- fræðum." Dr. Kristján Ingvarsson Hvernig fer námið fram? „Sjálfsnámið fer fram á kvöldin frá klukkan 18.00—20.00, og 20.00—22.00, en einnig á öðrum tímum, þegar regluleg námskeið eru ekki haldin. Nemendur skrá sig sjálfir á þann tíma, sem hentar þeim bezt. Kort, sem veita aðgang að tölvunum og öðrum kennslu- búnaði fást hjá leiðbeinanda. Tvær gerðir af kortum eru í gangi, þ.e. fyrir einn nemanda og tvo, en þau gilda í 10 klukkustundir, þ.e. 5 skipti, en hvert skipti eru eins og áður sagði 2 klukkustundir. Við ráðleggjum nemendum að taka aðeins 2 tíma í einu með til- liti til árangurs í náminu, en að sjálfsögðu er mönnum leyfilegt að taka 4 tíma í einu, sérstaklega ef viðkomandi er að vinna að eigin verkefni, en ekki læra. Ennfremur hefur reynslan sýnt, að þegar tveir sitja við tölvur er árangur námsins betri, en þegar um einn er að ræða.“ Hvernig er námslínum háttað? „Nemendum er frjálst að vinna á tölvurnar við hvaða verkefni sem er. Þannig getur notandi sem hefur eitthvert sérstakt verkefni í huga notað vélarnar í það. Þeir sem þess óska geta fylgt ákveðinni námslínu. Námslína er ekki annað en skipulögð yfirferð á ákveðnu efni. Þannig er gengið frá efninu, að það hentar að æfa sig í 10 klukkutíma á tölvu. Að auki er nauðsynlegt fyrir nemandann að fara yfir efnið heima, en sá þáttur er misjafn eftir því um hvaða námslínu er að ræða," sagði dr. Kristján Ingvarsson, forstöðu- maður Tölvufræðslu Stjórnunar- félags íslands, að siðustu. Janúar — september: Um 146 millj. marka tap hjá Volkswagen VOLKSWAGEN hefur tapað um 146 milljónum vestur-þýzkra marka á þessu ári, að sögn talsmanna fyrir- tækisins, en á sama tíma, þ.e. fyrstu níu raánuði ársins 1981, var hagnað- ur fyrirtækisins um 15 milljónir vestur-þýzkra marka. Sala fyrirtækisins á heima- markaði í Vestur-Þýzkalandi jókst um 0,75 fyrstu níu mánuðina í ár og nam um 28.074 milljörðum vestur-þýzkra marka, borið saman við 27.865 milljarða vestur-þýzkra Aðalástæðan er slæm staða á Banda- ríkjamarkaðnum marka á sama tíma í fyrra. Hins vegar dróst sala fyrirtæk- isins á erlendum mörkuðum sam- an um 0,45% í mörkum talið, en fyrstu níu mánuðina nam hún 18.882 milljörðum vestur-þýzkra marka á móti 18.965 milljörðum vestur-þýzkra marka á sama tima í fyrra. Talsmaður fyrirtækisins sagði aðalástæðuna fyrir tapi fyrirtæk- isins í ár vera slæma stöðu Banda- ríkjamarkaðar, auk þess sem al- mennur efnahagssamdráttur hefði auðvitað sitt að segja. Á tímabilinu janúar-september seldi Volkswagen alls 1,623 millj- ón bíla á móti 1,692 milíjón bílum á sama tíma í fyrra. Samdráttur- inn er því um 4% milli ára. Rafeindaiðnaðurinn: Uppbyggingin felst m.a. 1 upp- byggingu öflugs framleiðslufyr- irtækis og þjónustumiðstöðvar Undirbúningsfélag rafeindaiðnað- arins vinnur nú að gerð tillagna um 5 ára áætlun og aðstoð við rafeindaiðn- að á íslandi, segir m.a. í nýju frétta- bréfi, sem félagið hefur sent frá sér. Þar segir, að tillögur um mark- vissa uppbyggingu rafeindaiðnaðar- ins felist m.a. í uppbyggingu öflugs framleiðslufyrirtækis og þjónustu- miðstöðvar. Hefur verkefnisstjórnin nú undirbúið drög að 5 ára áætlun um þróun rafeindaiðnaðarins, en efni þeirra er grundvallað á skýrslu eftir Stefán Guðjohnsen, en gert er ráð fyrir að unnið verði að verkefn- inu fram til ársloka. Helztu atriði skýrslunnar eru, að sett verði á fót stofnun, þjón- ustumiðstöð fyrir rafeindaiðnað- inn, t.d. með samvinnusamningi á milli aðila sem þegar eru fyrir í landinu, og nánu sambandi við norrænar þjónustumiðstöðvar á refeindasviði. Er reiknað með að nauðsynlegra tækja yrði aflað til þess að þjónustumiðstöðin gæti sinnt hlutverki sínu á eðlilegan hátt, og að þar starfi menntaðir sérfræðingar á ýmsum sviðum raf- eindatækni. Um leið verði eitt framleiðslu- fyrirtæki eflt til þess að geta sinnt þörfum allra rafeindafyrirtækj- anna fyrir samsetningu og fram- leiðslu rafeindatækja, sem þau hefðu hannað og þróað. Sótt yrði um aðstoð Norræna iðnaðarsjóðs- ins við að standa straum af kostn- aði við tækniyfirfærslu á fram- leiðslutæknisviðinu frá hinum Norðurlöndunum. Stefnt er að því að efla með samningum og ráðgjöf úrval að- stoðarfyrirtækja til þess að svara þörfum rafeindafyrirtækjanna. Leitað verður eftir styrkjum frá Iðnrekstrarsjóði til þessa þáttar. Þá er hugmyndin að afla inn- lendra og erlendra ráðgjafa til þess að aðstoða rafeindafyrirtækin við markaðsathuganir, rekstrar- áætlanir, vöruþróunarverkefni og framleiðslutæknileg verkefni. Síð- an yrði samstarfi við Útflutn- ingsmiðstöð iðnaðarins komið á, þannig að hún geti sinnt mark- aðssetningu fyrir rafeindafyrir- tækin á erlendum mörkuðum. Mik- ill fjárfestingarsparnaður er sam- fara því, að fyrirtækin sameinist um kaup á nauðsynlegum og góð- um búnaði til hönnunar á rafeindatækjum. Ef hvert fyrir- tæki þyrfti að gera slíkt væri ein- ungis um að ræða miðlungsbúnað, segir að síðustu í fréttabréfinu. Þess má geta, að stofnendur Undirbúningsfélagsins eru Fram- leiðni, Óðinn, Póllinn, Rafís, Raf- agnatækni, Sameind, Tæknibúnað- ur, Örtækni og Örtölvutækni, en í verkefnisstjórn sitja Jón H. Magn- ússon, sem er verkefnisstjóri, Gylfi Aðalsteinsson, Arnlaugur Guð- mundsson og Stefán Guðjohnsen. Síðan bætast við þeir Vilhjálmur Lúðvíksson, Þorvarður Alfonsson, Snorri Pétursson og Hörður Jóns- son. Sól - sauna - snyrting Hjá okkur veröiö þiö fljót aö veröa brún í Silver Super Solarium-bekkjum okkar. Sauna og góö hvíld- araöstaöa. Öll almenn snyrting, andlistbaö, húöhreinsun, hand- og fótsnyrting, vaxmeöferö, litun og fleira. Notaleg setustofa og alltaf heitt á könnunni. Heilsuræktin Þinghólsbraut 19, Kópavogi. Sími 43332. Polaroid augnabliksmyndirnar eru hrókur alls fagnaðar Polaroid660 myndavélin tryggir fallegri, litríkari og skarpari augnabliksmyndir ■ Rafeindastýrt leifurljós gefur rétta blöndu af dagsbirtu og „Polaroid"-ljósi hverju sinni, úti sem inni. ■ 660 vélin hefur sjálfvirka fjarlægðarstillingu frá 60 cm til óendanlegrar, 640 vélin er með fix focus og 650 vélin með fix focus og nærlinsu. ■ Óþarft að kaupa flash og batteri því batteri er sampakkað filmunni. ■ Notar nýju Polaroid 600 ASA litmyndafilmuna, þá hröðustu í heimi! helmingi Ijósnæmari en aðrar sambærilegar filmur! ■ Algjörlega sjálfvirk. ■ Á augabragði framkallast glæsilegar Polaroid litmyndir sem eru varanleg minning líðandi stundar. ■ Polaroid 660 augnabliksi r.ynda vélin er metsölu augnabliksmyndavélin í heiminum í ár! Tökum gamlar vélar upp í nýjar Polaroid vélar. Kynntu þér kjörin! Polaroid filmur og vélar fást í helstu verslunum um land allt. Polaroid Einkaumboð: Ljosmyndaþjonustan hf., Reykjavík.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.