Morgunblaðið - 24.11.1982, Page 16

Morgunblaðið - 24.11.1982, Page 16
64 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. NÓVEMBER 1982 Ad loknum aðalfundi sveitarfélaga á Vesturlandi Guðjón Ingvi Stefánsson f ræðustól, ncstur honum Guðmundur Vésteinsson, Akranesi, fundarstjóri, Jón Þór Jónasson, Hjarðarholti, fundarstjóri, og lengst til hægri, Sturla Böðvarsson, Stykkishólmi, fráfarandi formaður. Næst sést á kollinn á Kristófer Þorleifssyni og Kristjáni Pálssyni, báðir úr Ólafsvík. Ferðamálasamtök Vesturlands: Hugmyndir uppi um stofnun ferðaskrifstofu HUGMYNDIR eru uppi á Vesturlandi um að stofna ferðaskrifstofu sem starfaði í nánum tengslum við Ferðamálasamtök Vesturlands. í skýrslu Benedikts Jónssonar, ferðamálafulltrúa Vesturlands, sem dreift var á aðal- fundi Samtaka sveitarfélaga i Vesturlandskjördæmi, kom hann fram með tillögur að framtíðarverkefnum á sviði ferðamála á Vesturlandi. Tillögur Benedikts eru m.a. stofnun ferðaskrifstofu eins og áður segir, námskeiða- hald fyrir starfsfólk hótela og annarra feröaþjónustugreina, útgáfa ferða- handbókar, gerð áætlana um tjaldsvæði þar sem m.a. er gert ráð fyrir að skipulagt verði eitt stórt tjaldsvæði í Reykholti, gera akfæra skemmtilega fjallvegi, koma á fót gæðaeftirliti, skipuleggja hestaleiðir og umferð hesta- manna og koma upp nauðsynlegri aðstöðu fyrir þá með hæfilegu millibili og bjóða uppá aukna fjölbreytni í þjónustu t.d. með bjargsigi, ferðum með hestakerru og merkingu gönguleiða svo eitthvað sé nefnt. Það er augljóst skv. þessari upp- talningu að ferðaþjónustuaðilar á Vesturlandi eru með ýmislegt á prjónunum og hafa ferðamála- samtökin þegar sannað ágæti sitt, en þau voru stofnuð á sl. vori. Hef- ur starf þeirra vakið landsathygli og eru aðrir landshlutar þegar farnir að huga að stofnun svip- aðra samtaka. Guðjón Ingvi Stefánsson, fram- kvæmdastjóri Samtaka sveitarfé- laga í Vesturlandskjördæmi, sagði í skýrslu sinni til aðalfundar SSVK: „Eitt umfangsmesta verk- efni samtakanna á liðnu starfsári var á sviði ferðamála og ber ráðn- ing og störf Benedikts Jónssonar sem ferðamálaráðunauts þar hæst. Mig langar til að koma enn nokkrum hugleiðingum á fram- færi, þó þegar sé búið að fjalla talsvert um þau, þar sem ég tel að hér sé um mjög mikilvæg mál að ræða fyrir atvinnulífið á Vestur- landi. Fáar atvinnugreinar hafa eflst jafnmikið á síðustu áratug- um og með aukinni velmegun og lengingu orlofs hljóta miklir vaxt- armöguleikar að vera fyrir hendi í ferðamannaþjónustu og ekki síst hér á Vesturlandi, þar sem mikil uppbygging hefur farið fram á síð- ustu árum. Sennilega erum við á réttri leið hér en Birgir Þorgilsson markaðsstjóri Ferðamálaráðs hef- ur sagt að starfið hjá okkur í sumar væri merkasta framtak í ferðamálum hér á landi um langt árabil. Mikill áhugi er fyrir því að halda þessu starfi áfram og raun- ar að efla það. En það kostar pen- inga, en þó þarf það ekki alltaf að kosta mikla peninga. A sviði al- mennrar þjónustu má nefna upp- lýsingamiðstöð, námskeiðahald og aukna auglýsingastarfsemi, en þó við séum stolt af bæklingnum okkar fer lítið fyrir honum í sam- anburði við glæsilegustu prent- verk sem unnin eru og ferða- skrifstofur gefa út til að auglýsa sólarlandaferðir fyrir Islendinga. Skipulagðar pakkaferðir vítt um völl til veiða og náttúruskoðunar á söguslóðum og til afþreyingar hafa borið á góma og kannski verða hestaferðir að Kötlum og söngskemmtanir í Stefánshelli efst á vinsældalistanum eftir nokkur ár. Óhjákvæmilega þarf einnig að festa nokkurt fé í fram- kvæmdum til að bæta aðstöðu ferðafólks á áningarstöðum, til vegagerðar og merkinga, í tjald- stæði, o.fl. og er þá ótalinn sögu- aldarbærinn Snorrastofa í Reyk- holti en slík bygging var ekki ofviða íslenskri kvikmyndagerð í frumbernsku. Auknir möguleikar m.a. heimilisiðnaðar í framleiðslu minjagripa eru eflaust fyrir hendi. Kannski finnst ykkur þetta óraunhæfar skýjaborgir en hver hefði trúað því fyrirfram að lítill töfrateningur skyldi færa Ung- verjum milljónir í erlendum gjald- eyri?“, sagði Guðjón Ingvi Stef- ánsson. HBj. Vilja láta mótmæla hvalveiðibanninu Aðalfundur Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi skoraði á ríkisstjórnina að mótmæla samþykkt alþjóðahvalveiðiráðsins um algert hvalveiðibann frá og með árinu 1986. í samþykktinni segir: „Fundurinn bendir á, að hér er um mikið hagsmunamál að ræða, ekki aðeins fyrir byggðir Vesturlands, heldur þjóðarbúið í heild, enda eru hvalaafurðir 1,3% af útflutningstekjum þjóðar- innar. Þá minnir fundurinn á, að hvalveiðistöðin í Hvalfirði hefur verið rekin í 35 ár og ávallt með góöri og skynsamlegri stjórnun veiðanna og undir vísindalegu eftirliti. Ósannað er að hvalastofninn sé að ganga til þurrðar eða að honum sé ógnað með ofveiði.“ Sr. Jón Einarsson í Saurbæ, oddviti Hvalfjarð- arstrandarhrepps, sagði í samtali við Mbl. þegar hann var spurður að því hversu mikið hagsmunamál hval- veiðarnar væru fyrir sveitar- félagið: „Beinir hagsmunir sveitarfélagsins hér eru þær 240 þús. sem hvalveiðistöðin greiðir í aðstöðugjald og er það VÍ5 af öllum tekjum hreppsins. Einnig hefur allt- af eitthvað af fólki úr sveit- inni atvinnu við þetta og einnig úr nágrannasveitarfé- lögunum en óbeinir hags- munir eru af þessu fyrir allt héraðið. Þessar hvalveiðar hafa gengið vel og fyrirtækið hef- ur verið vel rekið. Það hefur alltaf lagt mikið af mörkum til menningarmála og t.d. gefið Hallgrímskirkju í Saurbæ stórgjafir sem sýnir vel hug þessara manna. Við teljum það óeðlilegt og ósanngjarnt að stöðva þessar veiðar fyrst og fremst vegna tilfinningasemi einhverra manna sem hafa síðan safn- að fjölda þjóða inn í alþjóða- hvalveiðiráðið, sem þó engra hagsmuna hafa að gæta, til þess að stöðva skynsamlega nýtingu þessarar auðlindar hér hjá okkur, sem hvala- stofninn vissulega er. Þá má nefna það að Hvalur hf. er eina útgerðarfélagið sem aldrei hefur notið neinna styrkja frá hinu opinbera og þetta eru einu veiðarnar sem höfð hefur verið full stjórn á allan þennan tíma. Þeir hafa alltaf verið með fjóra báta í 3‘/2 mánuð á ári og alltaf verið með ákveðinn há- markskvóta. Smáhvalurinn hefur ekki verið veiddur og veiðarnar hafa verið undir vísindlegu eftirliti. Auðvitað er það æskilegast að þurfa ekkert líf að drepa, en annað er óraunhæft og þar eru hvalveiðarnar ekki verri en margt annað sem við þurfum að gera,“ sagði Sr. Jón Ein- arsson. HBj. Sturla Böðvarsson fráfarandi formaður SSVK: „Þungar áhyggjur af þróun fram- haldsmenntunar í kjördæminu“ Framhaldsskólamál hafa veriö mikið til umræðu á Vcsturlandi sem og í fleiri landshlutum og hafa menn áhyggjur af þróun mála á því sviði m.a. vegna þess að löggjöf um framhaldsnám vantar. Sturla Böðvarsson, fráfarandi formaður Samtaka sveitarfélaga í Vestur- landskjördæmi, sagði í skýrslu sinni til aðalfundar samtakanna: „Stjórn SSVK hefur haft þungar áhyggjur af þróun framhalds- menntunar í kjördæminu. Ekkert hefur enn bólað á löggjöf um fram- haldsnám og menntamálaráðu- neytið hefur ekki viljað fallast á samning um þá skipan, sem í raun og veru er komin á hér í kjördæm- inu með samstarfi skólanna. Vegna þessa ástands var fram- kvæmdastjóra, SSVK og fræðslu- stjóra falið að skrifa þingmönnum kjördæmisins bréf.“ Bréfið fer hér á eftir: „Eins og okkur öllum er kunn- ugt hefur FJölbrautaskólinn á Akranesi nýlega hafið sitt 6. starfsár. Með stofnun skólans og ágætu samstarfi hans við fram- haldsdeildir víða í kjördæminu hafa möguleikar fólks til fram- haldsmenntunar hér stóraukist og aðsókn að skólanum og sam- starfsdeildum hans hefur sann- að það, að hér var gæfuspor stig- ið í þessum þýðingarmikla mála- flokki fyrir byggðir Vesturlands. Framhaldsmenntun og skipulag hennar hefur fengið ýtarlega umfjöllun á mörgum aðalfund- um Samtaka sveitarfélaga í Vesturlandskjördæmi á síðustu árum. Ýtarlegt nefndarálit með tillögum um stofnun Fjölbrauta- skóla Vesturlands var lagt fram haustið 1979. Aðalfundur SSVK og fræðsluráð Vesturlands hafa ítrekað lýst yfir stuðningi við þær hugmyndir, sem þar koma fram, en viljað leggja áherslu á að Alþingi setti fyrst löggjöf um framhaldsnám og samræmd ákvæði um skiptingu kostnaðar við það. Sveitarstjórnamenn um land allt hafa lengi beðið eftir lagasetningu Alþingis um það efni þar sem þeir telja núgild- andi íög ruglingsleg og ekki sam- ræmast þróun framhaldsmennt- unaré-síðustu árum. Hér með er þeim eindregnu tilmælum beint til alþingismanna Vestur- landskjördæmis að þeir vinni að því að samræmd lög um fram- haldsnám og greiðslu kostnaðar vegna þess verði sett hið fyrsta. Jafnframt væntum við þess að njóta stuðnings yðar hér eftir sem hingað til, til að þær hug- myndir, sem liggja að baki sam- starfs um framhaldsnám á Vest- urlandi og stofnun Fjölbrautask- óla Vesturlands fái sem fyllstan framgang." Undir þetta bréf skrifuðu Guðjón Ingvi Stefáns- son, framkvæmdastjóri SSVK, og Snorri Þorsteinsson, fræðslu- stjóri. Sturla Böðvarsson sagði einn- ig í ræðu sinni: „Það er von stjórnar SSVK að þingmenn kjördæmisins leggi áherslu á þetta mikilvæga mál. Fræðslu- málin eru eitt stærsta viðfangs- efni sveitarfélaganna. Sveitar- stjórnarmönnum er ljóst, að fræðslumálin eru mikilvæg fyrir alla stöðu og þróun sveitarfélag- anna. í umboði sveitarfélaganna og menntamálaráðuneytisins hefur fræðsluráð með höndum stjórn fræðslumála í kjördæm- inu. Fræðsluráðin eru því meðal allra mikilvægustu stofnana sveitarfélaganna og þau ber að styrkja.“ HBj.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.