Morgunblaðið - 24.11.1982, Page 19

Morgunblaðið - 24.11.1982, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. NÓVEMBER 1982 67 Ritsafn Þorgils gjallanda Bókmenntir Erlendur Jónsson Þorgils gjallandi: RITSAFN I. 268 bls. Jóhanna Hauksdóttir og I'oröur Helgason sáu um útg. Skuggsjá. Hafnarfirði, 1982. Þorgils gjallandi varð einn af brautryðjendum íslenskrar skáld- sagnaritunar. Hann fæddist árið eftir að fyrsta íslenska skáldsagan kom út (orðið skáldsaga var þá ekki enn til í íslensku). Og hann var orðinn hálfþrítugur þegar Jón Thoroddsen sendi frá sér Mann og konu. Þessar staðreyndir verður að hafa í huga þegar maður virðir fyrir sér þá stíltækni sem hann, fertugur, þingeyskur bóndi, réð yf- ir þegar hann — í skaphita, og raunar einnig í sótthita — skrifaði sína fyrstu sögu, Leidd í kirkju. Ef frásöguformið hefði þá verið hér eins slípað og t.d. að taka í Frakk- landi hefði margt verið að stíl hans fundið. En smásagan, að ekki sé talað um skáldsöguna, var hér enn á tilraunastigi. Lesendur tóku viljann fyrir verkið þegar bóndinn réðst í að senda frá sér smásagna- safnið Ofan úr sveitum. Þá var hann einu ári betur en fertugur. En honum fyrirgafst ekki aðeins vegna þess að hér var fátt til sam- anburðar heldur einnig fyrir þá sök að hann hafði mikið að segja, hann hafði skoðanir og setti þær einarðlega fram. Sögur hans reyndust vera boðskaparbók- menntir — hinar fyrstu sem sáu dagsins ljós hér á Fróni, að minnsta kosti ef mið er tekið af skilningi þeim sem lagður er í orð- ið nú á dögum. Og þó svo að þessi fertugi bóndi væri óskólagenginn var hann hreint ekki ómenntaður, öðru nær. Sveitungar hans voru margir áhugamenn um menntir og skáld- skap, þeir stofnuðu lestrarfélag og lásu Norðurlandahöfunda á frum- málinu. Þaðan kom raunsæis- stefnan, ádeilan og að nokkru leyti söguefnin. Þessir menn hrifust af vígorð- um Brandesar: að rithöfundar ættu að setja problemer under deb- at og láta sig varða málefni sam- félagsins á líðandi stund. Boð- skapurinn var þannig mest frá Brandesi kominn. En prestaádeil- una fengu þeir aðallega frá Norð- mönnum. Þar var kirkjan raunveruleg valdastofnun og prestastéttin, sem þótti í meira lagi íhaldssöm, hafði þar ærið áhrifavald. Hér gegndi öðru máli. Margir íslenskir prestar, kannski fleiri heldur en færri, voru erfiðismenn og létu eitt yfir sig og heimafólk sitt ganga, gengu að allri algengri vinnu með vinnufólkinu, mötuðust með því og laumuðust í bólið hjá nágrannakonunum þegar bóndinn var fjarri — í göngum eða kaup- stað! Þorgils gjallandi, sem hét nú raunar Jón Stefánsson, var ein- mitt afsprengi þess konar bólfim- leika — móðir hans var laundóttir prests, lengra þurfti ádeiluhöf- undurinn ekki að leita að brokk- gengum presti. Af því var saga sem hann lét að vísu óskráða — þó sönn væri talin! En tískan hleypur oft með Is- lendinga í gönur. Þannig mögnuðu raunsæishöfundarnir með sér prestaádeiluna og létu sem presta- stéttin væri hér viðlíka áhrifa- valdur og í Skandinavíu. Sú þjóð- félagsmynd, sem þeir drógu upp, var því ekki að öllu leyti sönn, hún var ýkt, gaf ekki rétta mynd af raunveruleikanum. í mesta lagi má segja að hún styddist við raunveruleikann: prestastéttin Jóhanna Kristjónsdóttir Álfrún Gunnlaugsdóttir: AF MANNA VÖLDUM Tilbrigði um stef Útg. Mál og menning 1982 Býsna margir nýir höfundar kveða sér hljóðs á þessu hausti. Einn þeirra er Álfrún Gunnlaugs- dóttir með bókina Af manna völd- um, undirtitill tilbrigði um stef. Þetta er hijóðlát bók og allir þætt- irnir fjalla þó um og hafa að meg- intema mannleg átök. Höfundur- inn gerir máli sínu óvenjulega vel skil, og það er næstum erfitt að vita, hvar eða hvernig maður á að byrja að skrifa um þessa bók. Auðvifað væri í lófa lagið að byrja á þáttunum og taka hvern fyrir sig, eða gera úttekt á persónunum, sömuleiðis væri auðvitað hægt að velta fyrir sér, hvort þættir Álf- rúnar skuli settir á einhvern bókmenntalegan bás. Ekkert af Álfrún Gunnlaugsdóttir þessu er þó rétt einfalt og þess vegna ákvað ég á endanum að skrifa bara þau hughrif sem bókin vakti hjá mér. Mannleg átök — það er sem sagt temað, en það er ekki með hávaða og látum, heldur sérstaklega vönduðum og á stund- um óþægilega innhverfum stíl og frásagnarmáta, fagmannlegum umfram annað. Það er víða mikið sagt í afar stuttu máli. Lesandinn getur ekki gengið að þessum þátt- um og gleypt þá hráa; þrátt fyrir yfirlætisleysi kalla þeir á heila- brot og umhugsanir því að hér er fjarska margt látið liggja á milli línanna. Bataljon 99 eftir Gerd Nyquist Erlendar bækur Jóhanna Kristjónsdóttir BATALJON 99 er eftir norska rithöfundinn Gerd Nyquist. Ég hef ekki lesið eftir hana bók, síð- an ég þýddi eftir hana ágætan reyfara fyrir mörgum árum, Maanen over Munkeby. Hélt að Bataljon 99 væri ein af þessum norsku hetjusögum úr styrjöld- inni og af því að hún átti í hlut festi ég kaup á henni, þótt ég hafi að öðru leyti löngu gefizt upp á slíkum bókum, enda allar svona næstum því eins. Bataljon 99 kom mér á óvart. Hér er skýrslubók, eða heiipildarsaga um sveit bandarískra hermanna í heimsstyrjöldinni síðari, sem áttu það sameiginlegt að vera af norsku bergi brotnir. Til þess að komast í sveitina var skilyrði að skrifa og skilja norsku. Menn- Gerd Nyqist irnir í sveitinni fengu aldrei að vita fyrirfram um verkefnin sem þeim yrðu úthlutuð, en allir von- uðust þeir til að komast til Nor- egs. Það gerðu jæir að lokum. Að líkindum hafa þeir fengið ein- hverja erfiðustu þjálfun í vetr- arhernaði sem veitt var í Banda- ríkjunum, í búðum í 3000 metra Ýmsir þáttanna gerast utan ís- lands og sumir eru ekki síðri hin- um og hefur íslenzkum höfundum þó oft orðið hált á því að setja sögusviðið upp úti í löndum, svo er ekki hér og væntanlega hefur langdvöl höfundar erlendis ráðið nokkru, en fyrst og fremst vald hennar á máli og efni. Stundum fannst mér Álfrún beinlínis leika sér að því að færa atburði þátt- anna til og frá í tíma og rúmi. Þar er meðal annars átt við tilbrigði nr. IX, og VIII og mér fannst það ekki takast til fullnustu. Þættirnir III og VI eru eftirminnilegir og almennt fannst mér höfundi lagið að lýsa hugrenningum barna á af- ar notalegan og tilgerðarlausan hátt. Þó að ég ítreki að mannleg átök séu inntak hvers þáttar, með ýmsu móti að vísu, verð ég að viður- kenna, að ýmsir þeirra verða býsna laustengdir heildarmynd- inni, svo sem sgan um ungu stúlk- una í mótmælagöngunni og Ahmet í Túnis. Þar finnst mér vera farið dálítið út á skakk. Sam- töl höfundar eru í samræmi við aðra gjörð þessarar bókar, vel skrifuð, eðlileg og þjál og á góðu máli. Ástæða er til að fagna út- komu þessarar bókar og verður mjög forvitnilegt að sjá, hvað næst kemur frá hendi Álfrúnar, eftir svo eftirtektarverða frum- smíð. hæð í Colorado. Þeir gengu á land á meginlandinu með öðrum bandarískum hermönnum og tóku þátt i nokkrum grimmi- legustu bardögum stríðsins. Þeir voru látnir vera á heiðursverðin- um þegar Hákon konungur sneri heim úr útlegðinni. Milli þess notuðu þeir allan sinn frítíma til að leita uppi norska ættingja sína með mismunandi miklum árangri. Bókin er athyglisverð lesning, þegar maður hefur gert sér grein fyrir uppbyggingu hennar og efnistökum. Gerd Nyquist hefur varið miklum tíma og orku í að afla fanga í myndum og máli til að gera hersveitinni verðug skil og starf hennar hið merkasta því að í upphafi verksins virtist svo sem hvergi væri heimildir að finna um þessa hersveit. Gerd Nyquist hefur búið í Osló og hefur skrifað a.m.k. átta aðr- ar bækur, flestar eru skáldsögur og ég veit ekki til að hún hafi spreytt sig á heimildar- eða sögulegum skýrslum áður. Þó að þetta sé náttúrulega býsna stað- bundið efni fannst mér engu að síður fengur að því að kynnast þessari bók, sem er ekki aðeins skýrsla heldur og læsileg skýrsla. Þorgils gjallandi var hér þrátt fyrir allt forrétt- indastétt, mitt í þeirri efna- hagslegu vesöld sem hér hafði lengi ríkt, hafði nokkurn veginn í sig og á; tómstundir til að lifa líf- inu, og efni á að mennta syni sína og þannig að viðhalda forréttind- um sínum. Bestar eru lýsingar Þorgils gjallanda á lífi, kjörum og áhuga- málum bændafólksins. Hann var sjálfur bóndi og mun ekki hafa harmað það hlutskipti sitt. Stritið lokaði ekki augum hans fyrir dá- semdum í ríki náttúrunnar eins og stundum vill verða, heldur þvert á móti. Þannig fengu húsdýrin verð- uga hlutdeild í sögum hans. Skuggsjá hefur nú hafið útgáfu ritsafns Þorgils gjallanda undir umsjá þeirra Jóhönnu Hauksdótt- ur og Þórðar Helgasonar. Mun það koma út í þrem bindum. í fyrsta bindinu, sem nú er nýkomið út, eru dýrasögur Þorgils gjallanda og fer vel á að hafa þær fremst fyrst ekki var farið eftir aldurs- röð. Annars hefst þetta bindi á langri ritgerð um höfundinn og verk hans eftir Þórð Helgason. Mér brá dálítið þegar ég byrjaði á henni, þótti hvatvíslega af stað farið. En við áframhaldandi lestur og nánari athugun komst ég að raun um að Þórður hefur unnið verk sitt af mikilli natni og mjög sökkt sér niður í verkefnið. Til dæmis hefur hann farið í gegnum sveitarblöð þau sem gefin voru út — handskrifuð — í Mývatnssveit á dögum Jóns Stefánssonar, en svo hét hann réttu nafni sem fyrr segir, Þorgils gjallandi var dulnefni eins og kunnugt er. Ljóst er að sveilar- blöðin höfðu geysileg áhrif á alla hugsun manna í sveitinni, segir Þórður. Þá gerir hann ýmsar at- huganir á stíl Þorgils gjallanda. Eina athugasemd langar mig að gera við skrif Jóhönnu og Þórðar um Þorgils gjallanda. Þau skrifa oft aðeins Þorgils. Það þykir aldrei hæfa þegar um skáldanöfn er að ræða — allt í lagi að segja aðeins Jón þegar t.d. er átt við Jón Stefánsson ef allir vita hvern við er átt. Hitt hefur hingað til verið venja, og hún að mínum dómi nauðsynleg, að rita dulnefnið full- um stöfum. Það fer alls ekki milli mála að Þorgils gjallandi var meðal brautryðjendanna í íslenskri skáldsagnaritun. Ef hliðsjón er höfð að bágri aðstöðu hans hljóta verk hans að teljast stórvirki. Því telst til almennrar menntunar okkar Islendinga að þekkja skáld- verk hans og bakgrunn þeirra. Utgáfa Skuggsjár fer að flestu leyti vel af stað og vonandi verður framhaldið með því sniði að þess- um góðu bókmenntum verði búin þess konar umgerð sem hæfir slíkri þjóðareign. Lokkandi Berg- mál Bergþóru Hljóm plotur a Arni Johnsen Bergmál Bergþóru er eins og sannkallað bergmál sem laðar og lokkar þann sem um fjöllin fer og Bergþóra sinnir fjöllum mannlífs- ins, tilfinningum og hlýju, sem hún býður samferðamönnum sín- um að feta með sér. Bergþóra Árnadóttir hefur sífellt teygt sig hærra og hærra mót sól sönggyðj- unnar og hún hefur þroskað með sér sviphreinan og einlægan stíl í vísnaflutningi sínum, þvi fyrst og fremst er hún vísnasöngvari þótt henni sé auðvelt að bregða undir sig betri fætinum i sígildum dæg- urlagatíl og jafnvel blús eins og bregður við á nýjustu plötu henn- ar, Bergmáli. I seinni tíð finnst mér Bergþóra hafa skotið laglínu sinni eilítið á ská við hið hefðbundna ljóðræna lag, en hún ræður samt vel við það og þessi svolítið abstrakt lög hennar venjast mjög vel, enda eru þau þá oftast samin við ljóð sem beinlínis hrópa á lag til þess að fljóta á, fá vind í seglin. Bergmál Bergþóru Árnadóttur er mjög fjölbreytt plata og áheyri- leg, útsetningar Gísla Helgasonar og Helga Eiríks Kristjánssonar eru unnar af mikilli smekkvísi og skemmtilegum frumlegheitum á plötu vísnasöngvara og öll er plat- ■ JHÉÍEfiMíllo/' 5 IM.H»Qltl. / an hin vandaðasta smíði. Berg- þóra hefur samið öll lögin sjálf, utan eitt, sem æskuvinkona henn- ar, Ingunn Bjarnadóttir, hefur gert og það ber vott um að bernska þeirra vinkvenna hefur titrað af tónlist og kærleika til hins góða. í ljóði án lags eftir Stein Stein- arr blúsar Bergþóra á léttu tónun- um og ferst það ljómandi úr hendi. Af mörgum góðum lögum má nefna Barnið í þorpinu, ljóð Davíðs, einlægt og hljómfagurt lag. Löngun, ljóð Aðalsteins Ás- bergs Sigurðssonar, er skemmti- legt ljóð og lagið er sótt i hjart- slátt ljóðsins, enda byggja þau hvort annað upp, lagið og ljóðið, og ekki skemmir það að höfund- arnir flytja það stórvel saman í vinalegum dúett. Sýnir er hugljúft lag sem fellur vel að rödd Berg- þóru og útsetningin er bráðsnjöll. Þá er lagið Vorið kemur eftir Ing- unni gott dæmi um það sem fólk hér og þar á í gullabúum sínum, eitthvað sem lífgar upp á hvers- dagsleikann þegar það allt í einu og eins og fyrir tilviljun fer á fæt- ur og skellir sér á meðal gesta og gangandi. Einu sinni þú byggir á smellnum texta Bergþóru með fullfermi af tilfinningu og von í hjarta. Ljóð Halldórs Laxness, Frændi þegar fiðlan þegir, er fal- lega flutt lag og Bergþóra tileink- ar það minningu látins bróður sem hvarf yfir móðuna miklu að- eins 7 ára gamall. Sá minningar- blær sem Bergþóra og pabbi henn- ar, Árni Jónsson, túlka, fellur vel að ljóðinu og gefur því sérstæðan svip, nýja hlið. Styrkur Bergmáls er í ljóðum cg lögum og platan vinnur á við nán- ari kynni. Hún hrífur ekki með sér eins og flóðbylgjan, hún niðar eins og undiraldan og það þarf að venj- ast henni svo menn geti notið sigl- ingarinnar til fulls. Hlustandinn þarf að koma til móts við Berg- þóru og þá á hann vináttu vísa, vináttu með sigildum vísnasöngv- ara.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.