Morgunblaðið - 24.11.1982, Page 21

Morgunblaðið - 24.11.1982, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. NÓVEMBER 1982 69 Svissneski rithöfund- urinn Spáth í heimsókn 10 ára afmælis- fundur SPOEX SAMTÖK psoriasis- og exemsjúkl- inga, SPOEX, er 10 ára um þessar mundir. Og í tilefni þess verður sérstakur afmælisfundur haldinn fimmtudaginn 25. nóvember kl. 20.00, í Súlnasal Hótel Sögu. Á dagskrá fundarins verður meðal annars erindi, sem Jón Guðgeirsson yfirlæknir húð- deildar Landspítalans flytur, og sænskur læknir mun kynna nýtt lyf- Til sýnis verður nýr ljósa- lampi með UVB-geislum, sem er sérstaklega hannaður fyrir psoriasis-sjúklinga, og hentar vel til heimilisnota. Sýnd verður kvikmynd um psoriasis-húð- Sauðfjárslátrun KEA: Meðalþyngd '/2 kg meiri en í fyrra ÞANN 22. október lauk sauðfjár- slátrun í sláturhúsi KEA á Akureyri, en um viku fyrr á Dalvík. Alls var slátrað 53.160 kindum eða 1.132 kindum fleiri en 1981. Meðalþyngd var 14.492, sem er 0,451 kg meira en 1981. Mestu meðalþynd dilka hjá þeim, sem slátruðu yfir 100 dilk- um, höfðu: Akureyri: Meðalþ. dilka Félagsbúið Hríshóli, Saurbæjarhr. 18.398 kg. Dalvík: Andrés Kristinsson, Kvíabekk, Ólafsf. 16.456 kg. Mestu meðalþyngd hjá þeim, sem slátruðu 30—100 dilkum, höfðu: Akureyri: Meðalþ. dilka Daníel B. Björnss., Merkigili, Hrafnagilshr. 20.857 kg. Dalvík: Konráð Gottliebsson, Bustar- brekku, Ólafsf. 20.698 kg. Þekkir þú Afmælis og kynningarrit Samtaka psoriasis og exemsjúklinga sjúkdóminn sem fengin var frá Svíþjóð. í tilefni afmælisins verður rætt um fortíð og framtíð sam- takanna, afmæliskaffi drukkið o.fl. Á fundinum liggur frammi litprentað kynningarrit um psoriasis-húðsjúkdóminn, sem samtökin hafa gefið út, og allir geta fengið, endurgjaldslaust. í ÞESSARI viku er væntanlegur til landsins svissneski rithöfundurinn Gerold Spáth. Mun hann lesa úr verkum sinum á fimmtudag, 25. nóvember, klukkan 20.30 í stofu 102 í Lögbergi. Gerold Spáth er fæddur 1939. Faðir hans var orgelsmiður í Rapp- erswill við Ziirichsee. Handverkið sjálft lærði hann ekki, en hann var hinsvegar sölumaður í fjölskyldu- fyrirtækinu, bæði í heimalandi sínu og erlendis. Hingað til hafa verið gefnar út fimm skáldsögur eftir hann; sú fyrsta 1970 (Unschlecht), sú síð- asta 1980 (Commedia). Fyrir utan það skrifaði hann smásögur og ferðasögur frá ferðum sínum um Ítalíu, Austur-Þýskaland og Al- aska. 1979 hlaut hann Alfred- Döblin-verðlaunin. Ekki leið langur tími þangað til Spáth fékk á sig orð fyrir að vera „hinn svissneski Gtinter Grass". Var þar átt við frásagnagleðina, húmorinn og ímyndunaraflið, sem ekki skortir hjá Spáth frekar en hjá Grass. Bókmenntagagn- rýnendur hafa jafnvel kallað hann arftaka þeirra Rabelais, Sterne, Jean Paul og Faulkner. Skáldsögur hans bera mörg ein- kenni hinna hefðbundnu „skáld- sagna" (Picaro-sögur); að vísu er veröldin sem hann lýsir frá- brugðin fyrri tíðum að mörgu leyti, en mannseðlið sjálft hefur lítið breyst. í „Commedia" segir hann frá lífi 203 persóna úr öllum áttum og stéttum. Það er ekki fráleitt að segja að lífið sjálft, dásamlegt eða viðbjóðslegt eins og það getur verið, eða örlög manna séu viðfangsefni hans, og kannski svolítið meira, eða eins og hann sjálfur kemst að orði í einni skáldsögu: ' „Það er satt og reyndar mjög gott að segja, að maður eigi að gera grín að lífinu, að hlæja að því, að skammast út í það, að lofa og prísa það, að yrkja um það, en: þegar öllu er á botninn hvolft, þá er þetta líf miklu sterkara en þú. Á bak við allt sem maður bölvar eða lofsyngur stendur í raun og veru sami lífsóttinn — það er að segja dauðinn." Djúpivogur: Mikið af dauðri síld í rækjutroll Djúpavogi, 22. nóvember. SÍLDVEIÐIBÁTAR eru enn við veiðar inni á Berufirði og hafa fengið góðan afla. Rækjusjómenn hafa einnig sótt afla inn í Beru- fjörð. Kvarta þeir nokkuð undan, að mikið af dauðri og rotnandi síld komi í rækjutrollið. - Fréttaritari 0 m Spurðu hvers sem er. Öllu er svarað. Hvernig voru: Hljomleikarnir Félagarnir Kynlífspartíin Endalokin? vernig var: Unglingurinn Elvis Tónlistarnámið Rokkkóngurinn Elvis Hjónabandið? Hver var þáttur umbodsmannsins og hvad vard um öll auðæfin? Albert Goldman greinir hér rækilega i sundur manninn Elvis og goðsöguna um hann, enda er þessi bók nefnd: hin fyrsta rétta ævisaga rokkkón gsins. é l&hcVl Kunnáttumaðurinn kýs KNORR í dag kynnir Skúli Hansen Ristaður hörpuskelfiskur á pönnu í sherry-sveppa- sósu Uppskrift fyrir tvo 400 g. hörpuskelfiskur 150 g. sveppir 50 g. beikon 1 pakki KNORR sveppasósa 4 msk. sherry 1 dl. þeyttur rjómi Krydd; KNORR Condi-Mix, KNORR fisk-kraftur og hvítlauksduft Matreiðist: Hörpuskelfisknum velt upp úr hveiti, steiktur á pönnu og kryddaður með ofangreindu kryddi. Sveppirnir hreinsaðir I köldu saltvatni, skornir til helminga og steiktir með á pönnunni ásamt niðursneiddu beikoni. Sherrý síðan hellt yfir. KNORR sveppasósa löguð samkvæmt uppskrift á bakhlið pakkans og henni hellt f pönnuna. Látið suðuna koma upp augnablik. Bragðbætt með Sherry og þeyttum rjóma. Borið fram með hrís- grjónum og hrásalati. Hrásalat: 'A lceberg salat, 2 tómatar, 'h agúrka, 2 rifnar gulrætur. Skorið niður eftir smekk og blandað í skál. Salat dressing (sósa): 1 dóssýrðurrjómiog 1 pakki KNORR Oriento hrært saman og bragðbætt með sítrónu. '&hGVi Kórónan á kóngamáltíð

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.