Morgunblaðið - 24.11.1982, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. NÓVEMBER 1982
73
fclk í
fréttum
SPEGILL,
SPEGILL HERM
ÞÚ MÉR .. .
Mynd þessi var tekin í Lundúnum í síðastliðinni
viku, en þar fór sem kunnugt er fram keppnin um
titilinn Ungfrú Alheimur. Það bar helst til tíðinda
hjá þeim fögru stöllum, að Ungfrú Bandaríkin, Lu-
ann Cauchey, neitaði að taka þátt í atriði þar sem
keppendur áttu að koma fram í sundfötum einum
fata á þeirri forsendu, að það líktist mest veðreið-
um...
Þær fegurðardísir sem sjást á þessari mynd eru
talið frá vinstri: Terni Andi, fulltrúi Indónesíu; Rob-
erta Brown, fulltrúi írlands; María Craig, fulltrúi
eyjarinnar Mön, Anat Kerem, fulltrúi ísraels; og
Raffaella del Rosario, fulltrúi Ítalíu í keppninni.
COSPER
— Ég vissi það alltaf, þú hangir ekki saman.
„Andlit
áttunda
áratug-
arins...“
+ Renée Simonsen var sem kunn-
ugt er valin úr fjölda fegurðardísa
til að bera titilinn „Andlit áttunda
áratugarins", en kcppnin um titil-
inn fór fram á vegum Eileen og
Jerry Ford í New York. Hún þykir
hin prúðasta stúlka og sagt er að
þeir séu ófáir sem standa sig að þvi
að skáskjóta á eftir henni augunum
á götu þvi hún þykir mjög glæsileg.
I viðtali sem birtist við hana
nýlega í heimabæ hennar, Árós-
um, segir hún frá draumum sín-
um og fleiru í sambandi við þann
farveg er hún hefur valið sér.
Hún segist vonast eftir að kom-
ast á þennan hátt inn í heim
kvikmyndanna og er Marilyn
Monroe hennar heista átrúnað-
argoð. Hún hefur verið vöruð við
af foreldrum og nánum vinum, en
hún hlustar ekki á aðvaranir og
segist vera ákveðin í því að halda
ótrauð áfram á þessari braut
þrátt fyrir fordóma fólks og erf-
iðieika sem hún er viss um að
þurfa að mæta.
„Ljósmyndafyrirsætur og sæt-
ar stelpur eru ekki nauðsynlega
heimskar," segir hún og hristir
höfuðið. „Það er ekki hægt að
njóta velgengni í þessu starfi ef
maður hefur ekki skýra hugsun."
Hún mun búa hjá þeim Eiieen
og Jerry Ford fyrst um sinn í
New York, en vill helst verða
„sjálfstæð“ sem fyrst og vonast
eftir að komast í sína eigin íbúð
um jólaleytið ... enda ekki óvön
þar sem hún flutti úr föðurgarði
aöeins sextán ára að aldri.
Kenée Toft Simonsen, sem er aaut-
ján ára að aldri og ættuð frá Árós-
am.
Hjartans þakkir til allra þeirra sem heiör-
uðu mig á 85 ára afmæli mínu í síöastliön-
um mánuöi meö heimsóknum, gjöfum og
heillaóskum.
Guömundur Jóhannesson
frá Króki.
Nýtt — Nýtt
frá Sviss og Þýzkalandi pils — peysur — blússur.
Glugginn,
Laugavegi 49.
Hvaö tík er nú þaö? spyrja sjálfsagt sumir. Flestir vita þó
aö hér er um heiti á tónlistarstefnu í poppinu aö ræöa.
Ein af mörgum, en sennilega sú sem nú nýtur meiri
vinsælda en hinar. Viö mælum alveg sérstaklega með
eftirfarandi 3 plötum sem veröugum fulltrúum nýróman-
tísku stefnunnar.
ULTRAVOX: QUARTET
Tvímælalaust þeirra langbesta plata. Já, meira aö segja
betri en „Vienna“. Og þykir sumum þaö örugglega stórt
upp i sig tekiö.
í BLÍDU OG STRÍÐU
Hreint og klárt meiriháttar plata. 16 flytjendur, 16 lög, 60
mínútur af tónlist fyrir aðeins kr. 249. Sem sagt, allir
bestu flytjendur þessarar stefnu á einni plötu, fyrir
spottprís.
DEPECHE MODE
Depeche Mode voru taldir efnilegasta hljómsveit nýróm-
antísku stefnunnar eftir sina fyrstu plötu. Meö þessari
plötu eru þeir komnir á toppinn.
^KARNABÆR sUinor