Morgunblaðið - 24.11.1982, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. NÓVEMBER 1982
77
hendir ajaldan að slíkir þættir
sleppi í gegnum gæðaeftirlit.
Sjónvarpið mun hafa lagt mikið
fé í þessa þætti og af þeirri
ástæðu getur verið að forráða-
menn þess vilji ekki hætta við
sýningarnar fyrr en öll serían
hefur verið sýnd. En þannig má
ekki hugsa, þættirnir eru ein-
faldlega ekki boðlegir sjónvarps-
áhorfendum. Það er mergurinn
málsins. Ég ætla ekki að fara
nánar út í efni þáttanna um Fé-
lagsheimilið né leikstjórn,
verkin dæma sig sjálf. En sú
spurning hlýtur óhjákvæmilega
að vakna, hvort ekki sé kominn
tími til að stokka upp leiklist-
armál Sjónvarpsins og leyfa öðr-
um en Hrafni Gunnlaugssyni að
fara þar um höndum.
Hvad kostar að
láta klippa sig?
Ellilífeyrisþegi hringdi og hafði
eftirfarandi að segja: — Væri
ekki hægt að fá birta hjá ykkur
verðskrá yfir þjónustu á rakara-
stofum. Eg varð fyrir slæmri
reynslu af því hjá rakara, sem
tók miklu meira, nánar tiltekið
helmingi meira en taxti sagði til
um. Það væri því mjög þarft, að
verðskráin kæmi nú fyrir al-
menningssjónir, svo að fólk vissi
hvar það stendur í þessum efn-
um.
Styðjum sjálfstæð-
iskonur á þing
Þessir hringdu ...
Þættirnir ekki
boðlegir
sjónvarps-
áhorfendum
SX hringdi og hafði eftirfar-
andi að segja: — Ég held að
Sjónvarpið geti ekki dregið það
lengur að taka ákvörðun um
framhald þáttanna um Félags-
heimilið, sem sýndir eru á
laugardagskvöldum.
Þjóðin hefur fylgst með þess-
um „skemmtiþáttum" undan-
farnar vikur með sívaxandi
undrun og þátturinn á laugar-
daginn var sló öll fyrri met í lé-
legheitum. í útlöndum hika sjón-
varpsstöðvar ekki við að taka af
dagskránni þætti sem misheppn-
ast eins gjörsamlega og Félags-
heimilið, jafnvel þótt nokkrir
þættir séu ósýndir. Það gerist
reyndar ekki oft, því að það slys
Sigríður R. Pétursdóttir skrifar:
„Velvakandi.
Prófkjör Sjálfstæðisflokksins
verður í Reykjavík um næstu
helgi. í framboði eru sjö konur,
sem allar eru hæfar til þing-
mennsku. Flestar hafa unnið sér
traust í störfum innan flokksins
og allar skapað sér orð sem
sjálfstæðismenn í þeim trúnað-
arstörfum sem þær hafa gegnt
hver á sínum vettvangi.
Ragnhildur Helgadóttir hefur
setið á Alþingi við góðan orðstír
og ætti það að vera metnaður
sjálfstæðismanna að hún skipaði
eitt af fyrstu sætunum á lista
flokksins fyrir Alþingiskosningar
þær sem framundan eru. Bessí Jó-
hannsdóttir, Björg Einarsdóttir og
Elín Pálmadóttir hafa allar tekið
þátt i prófkjöri áður í Reykjavík
fyrir Alþingiskosningar og hafa
gegnt trúnaðarstöðum innan
flokksins. Bessí er nú formaður
Hvatar, félags sjálfstæðiskvenna í
Reykjavík, Björg var formaður
Hvatar 1978—1981 og situr í mið-
stjórn Sjálfstæðisflokksins, og El-
ín var borgarfulltrúi í Reykjavík
1974—1978 og skipaði 10. sætið í
kosningunum 1979 til Alþingis.
Ása Steinunn Atladóttir er hjúkrun-
arfræðingur og var varaformaður
Hjúkrunarfélags íslands
1978—1981. Esther Guðmundsdóttir
er formaður Kvenréttindafélags
íslands og á sæti í íslensku
UNESCO-nefndinni. Sólrún B.
Jensdóttir er m.a. þekkt af bók
sinni „Island á bresku valdsvæði
1914—1918“, útgefin fyrir tveimur
árum, og er hún án efa eini sjálf-
stæðismaðurinn, sem hefur fengið
síðu í Þjóðviljanum til útskýringa
á öryggismálastefnu Sjálfstæðis-
flokksins. En sú grein birtist í
spurningaþætti sem blaðið hélt úti
um skeið. (Hætti því sjálfsagt eft-
ir þessa ágætu grein Sólrúnar
m.t.t. „öryggissjónarmiða".)
Sjálfstæðismenn, tryggjum sig-
ur Sjálfstæðisflokksins í næstu
Alþingiskosningum með því að
kjósa konur í örugg sæti í próf-
kjörinu."
Öll þjóöin tekur
undir þakkir til
forsætisráðherra
Þorkell Hjaltason skrifar:
„Ég vil aðeins geta þess, að
gefnu tilefni, að ég hef áður skrif-
að tvær greinar varðandi íslenska
þjóðsönginn, Ó, guðs vors lands! —
eftir þjóðskáldið Matthías Joch-
umsson við lag Sveinbjarnar
Sveinbjarnarsonar tónskálds.
Fyrri greinin birtist 18. septem-
ber, en hin síðari 12 dögum seinna
í Velvakanda Morgunblaðsins,
fimmtudaginn 30. september 1982.
Mér hefur fyrir nokkrum dögum
borist boðsent bréf frá forsætis-
ráðuneytinu, með frumvarpi því
til laga um þjóðsöng íslendinga,
sem lagt hefur verið fram á 105.
löggjafarþingi 1982. Ég er afar
þakklátur Gunnari Thoroddsen
forsætisráðherra fyrir hans
skjótu viðbrögð til verndar þess-
um þjóðardýrgrip okkar íslend-
inga. Og ég er viss um að öll þjóðin
tekur undir þakkir til hans fyrir
að eiga frumkvæði að löghelgun
þjóðsöngsins. Enginn eilífðarút-
sær getur máð það þakklæti burt.“
Formann SUS
á Alþingi
Guðrún Margrét Valdimarsdóttir
skrifar:
„Geir H. Haarde hefur gefið
kost á sér í prófkjöri Sjálfstæðis-
flokksins dagana 28. og 29. nóv.
nk. Mér þykir það mikið fagnaðar-
efni að óumdeilanlegur fulltrúi
ungra sjálfstæðismanna skuli
vilja taka sér fyrir hendur full-
trúastarf fyrir þjóðina. Eins og
kunnugt er er Geir fyrsti sam-
hljóða kjörni formaður SUS í ára-
Geir H. Haarde
tugi og ætti það að gefa nokkra
vísbendingu um viðurkennda
mannkosti hans. Hvar sem hann
hefur haft afskipti af félagsmál-
um hafa honum verið falin æðstu
trúnaðarstöður, enda þekktur
fyrir að taka á málum af festu og
röggsemi og vinna verkin af
krafti.
Nú á þjóðin í geysilegum efna-
hagsörðugleikum þrátt fyrir að
útflutningstekjurnar hafi aldrei
verið meiri en nokkur undanfarin
ár. Vinstri stjórnum hefur tekist
að koma þjóðarbúinu á kaldan
klaka eins og svo oft áður. Það
dylst engum að við þurfum nýja
menn á Alþingi, sem hafa yfirsýn
yfir starfsemi efnahagslífsins og
þar er Geir H. Haarde á heima-
velli, enda hámenntaður og viður-
kenndur hagfræðingur. Ég vil
hvetja alla sjálfstæðismenn {
Reykjavík til að kjósa dugandi
mann með þekkinguna og viljann
sem þarf til að koma fótunum
undir efnahagslífið á ný.“
GÆTUM TUNGUNNAR
Spurt var: Fékkstu nokkuð góðgæti að borða?
Rétt v*ri: Fékkstu nokkurt góðgcti að borða?
Hins yegar v*ri rétt: Fékkstu nokkuð að borða?
Einnig v*ri rétt: Fékkstu nokkuð gott að borða?
Námskeið og sýningar
fyrir helgarreisufarþega
í Reykjavík
í nóvember og desember verður
helgarreisufarþegum boðið upp
ó þótttöku i nokkrum nómskeið-
um og sýningum:
STJÓRNUNARFÉLAGIÐ
mun standa fyrir tveimur námskeiðum og fyrirlestr-
um um stjórnunarmól:
20. nóv. verður fjallað um tölvumól: — undirstaða,
möguleikar og tölvukynning.
27. nóv. verður fjallað um stjórnun minni fyrirtækja.
UNNUR ARNGRÍMSDÓTTIR
OG MÓDELSAMTÖKIN
verða með nómskeið og kynningu alla laugardaga i
nóvember. M.a. verða þar tiskusýning, snyrtivöru-
kynningar, leiðbeiningar um framkomu, borðskreyt-
ingar og fleira.
RINGELBERG Í RÓSINNI
sýnir og kynnir jólaskreytingar og fleira fallegt laug-
ardagana 4. og 11. desember.
DUDDI OG MATTI
munu sýna það nýjasta í hórgreiðslu ó „Viðeyjar-
sundi" laugardagskvöldið 11.
desember og snyrtistofan SÓL OG SNYRTING mun
sýna nýjungar í andlitsförðun og snyrtingu.
Nónari upplýsingar hjó næsta umboðsmanni.
Nú fljúga allir i bæinn.
FLUGLEIÐIR
Gott fólk hjá traustu félagi
ALLTAFÁ FIMMTUDÖGUM
BRDSTU!
MYNDASÖGURNAR
Vikuskammtur afskellihlátri
AUQi.'r'SINGASrOFA KBtSTINAR HF