Morgunblaðið - 24.11.1982, Qupperneq 31

Morgunblaðið - 24.11.1982, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. NÓVEMBER 1982 79 SokkatMndið frá IsaflrM. Svart/hvítur draumw úr Kópavogi. MorgunhlaAiA/SSv. Tónabæ. Tvær aðrar sveitir tróöu upp á kvöldinu, sem hald- ið var á fimmtudag í síðustu viku og lítillega var sagt frá á Járnslöunni um helgina, Vé- bandið úr Keflavík og Svart/- hvítur draumur úr Kópavogi. Sokkabandiö reiö á vaöiö eftir aö Bara-flokkurinn haföi leikiö um stund. Til fróöleiks skal þess getið aö Sokkabandiö er ein- vöröungu skipaö kvenfólki. is- lenskir kvenrokkarar viröast því vera í öflugri sókn. Sokkabandiö leið fyrir það, aö hljómborösleik- arinn gat ekki leikiö meö og trommarinn var með 40 stiga hita. Aö mati undirritaös var hljómsveitin sú lakasta þetta kvöld, en hinir rúmlega 150 gest- ír Tónabæjar voru ekki á sama máli og þeirra er auövitaö valiö. Vébandiö tróö næst upp og skilaöi sínu meö ágætum. Tónlist Vébandsins minnir stundum á Vonbrigöi. Er um umtalsveröa framför aö ræöa hjá sveitinni frá því Járnsíöan heyröi síöast til hennar. i Vébandinu er hörku- góöur trymbíll, ágætur bassa- leikari, mjög serstakur gítarleik- ari meö óvenjulegt .sánd", en ekki mjög góöursöngvari. Svart/hvítur draumur, tríó úr Kópavogi, lék næst. Hljómsveitin skilaöi sínu ágætlega, en er um fátt athyglisverö. Hljóöfæraleikur þó þokkalegur. Fékk hún einna blandnastar vjötökur áheyrenda. Ekki fór á milli mála aö Reflex var vinsælasta hljómsveitin þetta kvöldiö. Sveitin leikur rokk, dálít- iö gamaldags á köflum, en skilaöi sínu áberandi best. Trymbillinn í hljómsveitinni er býsna villtur í „bítinu" og fer stundum út úr taktinum. Bassinn er öruggur, sömuleiöis gítarinn, en „sándiö" þar dulítiö gamaldags. Þaö er þó ekki meint hér sem einhver löst- ur. Söngvarinn er miölungi góö- ur. Á morgun er næsta kvöld á dagskránni. Þegar hefur veriö kynnt á Járnsíðunni hverjir koma þar fram, en Start er heiðurs- gestur. „Músíktilraunir" hefjast kl. 20 á morgun. Rod Stewart til íslands? Kisur landsins fram í sviösljósiö: Reflex úr Ruyklavfk. VébandM úr Koflavfk. Það voru hljómsveitirnar Raflex úr Reykjavík og Sokka- bandiö frá ísafiröi, sem komust áfram af fyrsta kvöldinu („Mús- íktiiraunum '82“, sem SATT gengst fyrir ( samvinnu við Jóhann Helgason éttl hugmyndkta. Þaö mun hafa veriö aö frum- kvæöi Jóhanns Helgasonar, aö Dýraspítali Watsons fór í haust aö huga aö plötuútgáfu. Jó- hann er sjálfur einlægur dýra- vinur og kom aö máli viö stjórn- endur spítalans. Kvaöst hann vera meö lög í fórum sínum og vildi láta dýraspítalanum þau í té til plötuútgáfu ef þaö mætti veröa til aö efla starfsemi hans. Þessari hugmynd Jóhanns var vel tekið og undirbúningur hófst strax. Hann fékk í liö meö sér þær Ragnhildi Gfsladóttur og Sigrúnu „Diddú" Hjálmtýs- dóttur. Ragnhildur, sem er menntaður tónlist- arkennari, útsetti lögin og Sigrún söng þau inn á plötu við undirleik úrvalsmanna, m.a. Guömundar Ingólfssonar. Ragnhildur leikur ennfremur á píanó og áslátt- arhljóðfæri, auk þess sem hún syngur bakraddir. Á þessari plötu, sem er nýlega komin út, eru 10 lög Jóhanns. Ekkert þeirra hefur veriö þrykkt í plast áður. Textarnir eru gamalkunn kisukvæöi, enda ber platan nafnið „Komdu kisa mín“. Ekki þarf aö taka þaö fram, aö plata þessi er nýjasta verk Jóhanns og Sigrún hefur ekki sungið inn á hljómplötu í háa herrans tíö. Sem fyrr segir er þaö Dýra- spítali Watsons, sem gefur plötuna út og mun annast dreifingu hennar. Viö fyrstu hlust- un er ekki ann- aö aö heyra en þetta sé hugljúf plata, sem höföar til allra barna og ann- arra dýravina. Reflex og Sokkabandið slógu í gegn í Tónabæ Defunkt/ Thermo Nuclear Sweat: Fönkað af fítonskrafti ★ ★ ★ Ég hef áður tekið það fram hér á Járnsíðunni, aö fönk er ekki mín tónlist. Það er nokkurn veginn sama hvaö ég hef reynt til aö meötaka þetta fyrirbrigði; allt hefur farið á sömu leið og eyrun hreinlega lokast þar til nú, að þau gáfu undan og opnuðust eins og flóðgáttir. Hljómsveitin Defunkt leggur fyrir sig fönk, eins og nafnið bendir ótvírætt til. Það veröur aö segjast af hreinskilni, að þessir menn leika fönk af meiri ferskleika og krafti en ég hef áöur upplifað. Geysiþéttur rythmaleikur, með gítar eins og maður á að venjast úr rokkinu, og hvínandi blæstri í þokkabót gerir það aö verkum, að ill- mögulegt er að loka sig frá verkum þeirra. Defunkt er skipuö þeim Jos- eph Bowie (bróður Lester, hins kunna jazzara, en meö öllu óskyldur David), sem blæs í hvaö sem fyrir verður, John Mulkerin, sem þenur trompet, Kelvyn Bell á gítar, Kim Clarke á bassa og Kenny Martin. Aö auki eru þeir meö fjóra úrvalskappa meö sér á þessari plötu og þegar þeir ieggj- ast allir á eitt verður útkoman hvínandi. Þaö er í raun tii lítils fyrir und- irritaöan, sem hefur takmarkaö vit á fönki, aö ætla sér aö fella dóm yfir plötu sem þessari. Þaö veröur því ekki gert svo einhver myndarbragur veröi á. Þaö er þó sannfæring mín, aó ef einhver plata getur fengiö menn til aö snúa sér aö fönki er þaö Thermo Nuclear Sweat. nýjar plotur ... nýjar plötur ... nýjar plötur ... nýjar plötur ... Diddúy Ragga og Jói Helga á plötu Michael McDonald/ If that’s what it takes: Tilvalin á fóninn rétt undir lágnættið ★ ★ Ég er nú enn ekki orðinn svo gamall, aö ég taki plötu eins og „If that’s what it takes“ frá Michaei McDonald, söngvara Doobie Brothers, átakalaust. Plata þessi er yfirleitt svo róleg og með svo „slick“ yfirbragð, aö ég held aö fólk hljóti almennt að sofna yfir þessu. Nema að þvf gefnu að viökomandi sé svona ofboðslega rólegur aö eðlisfari. Nei, í alvöru talaö er þetta ( stuttu máli sagt afskaplega lítt áhugavekjandí plata. Michael McDonald er líkast til þekktastur fyrir framlag sitt til Doobie Brothers. Reyndar lék hann áöur meö Steely Dan og þá var söngurinn hjá Doobie-bræör- unum í höndum (hálsi?) Tom Johnston. Sannast sagna er erf- itt aö greina, aö hér sé á feröinni sólóplata frá einum eöa neinum. Ef ekki kæmi til söngur McDon- ald gæti platan allt eins verið af- sprengi Doobie-bræðranna. Þaö eru engir aular, sem koma fram á þessari plötu meö McDonald. Steve Gadd og Jeff Porcaro (úr Toto) berja húöir, Edgar Winter snýtir sér ögn í saxófón, Steve Lukather (einnig úr Toto) leikur á gítar og meira aö segja Ted Templeman, sem m.a. er „pródúser“ hjá Van Hal- en, treöur upp og laðar fram tóna úr hljóögervlum. Fyrir vikiö er allur hljóöfæra- leikur hnökralaus meó öllu og um leiö óskaplega dauöyflislegur. Ekkert frumlegt og ekkert ferskt. Lögin hvert öóru lík, en líkast til er titillagió þaö besta af þessum graut. Þetta er plata, sem ekki vekur upp neinar kenndir hjá mér aörar en þær, aö mann langar mest til aö leggja sig. Þessi verö- ur þvi sennilega mest leikin eftir klukkan 11 á kvöldin. MorpmbMU RAX Magnús EirikMon ( Broad- way. Fremur fátt var í Broadway á fimmtudag er SATT gekkst fyrir tónllstarkvöldinu 4M. Þar komi fram Magnús Eiríksson, Mannakorn, Magnús Kjart- ansson og Magnús Þór Sig- mundsson. Virðist svo sem útilokaö sé aö fá fólk í Broad- way á fimmtudögum, sama hvaö boöiö er upp á. Þrátt fyrir fámenniö skemmtu gest- ir sér prýðilega. Járnsíðan hefur hleraö, aö fyrir dyrum standi samninga- viöræður viö þann síunga popp- ara Rod Stewart, um að koma til landsins. Ef af þeirri heimsókn yrði kæmi hann næsta sumar. Þá hefur einnig frést, aö i fullri alvöru sé veriö aó athuga þann möguleika aö fá AC/DC hingaö til lands. Upp og ofan í Hafnarbíói Heldur varð okkur á í mess- unni á Járnsíðunni á fimmtudag í síðustu viku. Þar stóð nefni- lega aö hljómleikarnir, sem eiga að vera í Hafnarbíói á föstudag, 26. nóvember, ættu aö vera sl. föstudag. Þetta leiöréttist hér með. Á þessum tónleikum felags- skaparins Upp og ofan á föstu- dag veröur margt um skemmti- krafta. Ber þar fyrsta aö telja Þeysarana, glóövolga og ferska úr utanlandsreisunni, þá Von- brigði, Jóa á Hakanum, Hjört Geirsson, Trúöinn og Hina kon- unglegu flugeldarokksveit. Tón- leikarnir hefjast kl. 22.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.