Morgunblaðið - 21.01.1983, Page 2

Morgunblaðið - 21.01.1983, Page 2
34 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. JANÚAR 1983 Forstofan er tengiliöur á milli herbergja, stiga og útiumhverfis. Lýsa þarf upp baóherbergió meó einu eöa fleiri Ijósum í loftinu. Þar sem börn leika sér er nauð- synlegt aó hafa góó loftljós. Bætt lýsing - betra tíf Valgerður Jónsdóttir I dag kemur sólin upp klukkan nftján mínútur í ellefu og sólarlag er sfðan þegar klukkuna vantar tuttugu og tvær mínútur í fimm, eða svo segir að minnsta kosti i almanakinu. Dagurinn lengist nú smátt og smátt og dimmasta skammdegið er að baki. Það er einmitt á þessum tíma árs sem rafljósin eru mönnum kærust, en þó ótrúlega kunni að virðast eru ekki nema nokkrir tugir ára síöan fyrsta rafljósstöðin var tekin í notkun hér á landi. Rafljós á heimilum voru f fyrstu eingöngu glólampar, oft skærir og ollu jafnvel ofbirtu. Daglegt frá fyrstu tíð. Finnur sagöi aö besti kosturinn væri jafnan aö byggja Ijósin upp í loftiö eöa lýsa með svonefndri óbeinni lýsingu en í þeim tilfellum sést Ijósgjafinn sjálf- ur ekki eöa sem minnst. Þeir voru einnig sammála um aö fólk hugs- aöi almennt ekki nægilega mikiö um mikilvægi góörar lýsingar í húsum sínum, fólk geröi oft þær kröfur til Ijósgjafans aö hann kost- aöi sem minnst, en minna væri hugsað um hvaöa tilgangi hann ætti aö þjóna. Meöal innanhús- arkitekta er nú lögö mikil áhersla á góöa lýsingu en hún verður auövit- aö aö vera í samræmi viö þaö um- hverfi sem fyrir er og taka miö af stærö herbergja, litum og þeim efnum sem notuö eru. En hvernig er þá góö lýsing? Án þess aö unnt sé að setja fram einhverjar heild- arreglur sem ekki er vikið frá, eru þó nokkur almenn atriði sem flestir ættu að hafa í huga er þeir huga aö þessum málum. Eitt af mikil- vægum skilyröum fyrir góöri lýs- ingu er aö Ijósgjafinn blindi ekki, og því er nauösynlegt aö nota góö- ar hlífar og staösetja Ijósgjafann þannig að þeir gefi ekki truflandi Nú er fariö aö leggja mun meiri áherslu á mikil- vægi góörar lýsingar. I Reykjavík er starfrækt félag áhugamanna um betri lýsingu, Ljóstæknifélagið, en það sinnir aö sögn Eyjólfs Jó- hannssonar framkvæmdastjóra eingöngu útgáfu og fræöslustarf- semi, gefur m.a. út félagsbréf til félagsmanna um helstu nýjungar á sviöi lýsingar. Fólagiö var stofnað 1954 og meöal félagsmanna eru augnlæknar, rafvirkjar, arkitektar, tæknifræöingar, rafmagnsverk- fræðingar og ýmsar fleiri starf- stéttir. En hver eru veigamestu atriöin sem hafa veröur í huga þegar drög eru lögö að góöri heimilislýsingu? Þeir Eyjólfur og Finnur Fróöason innanhúsarkitekt sem viö höföum einnig samband við voru sammála um aö mjög mikilvægt væri aö hafa fyrirkomulag Ijósa skipulagt HEIMSRBSUFÓLK ÁBROMAY Nýársgleði Ferðaskrifstofunnar Útsýnar var haldin á Broadway 14. janúar. Var að venju mikil og vönduð dagskrá, tískusýningar, danssýning, söngur og hljóöfæraleikur, bingó o.fl. Þá hélt Ingólfur Guðbrandsson áramótaávarp. Kynnir var Bryndfs Schram. Fjölmennt var á skemmtuninni sem ennfremur var árshátíð Heimsreisu- klúbbsins, en sá félagsskapur var formlega stofnaður^ vegum Útsýnar þann 17. desember. Stofnendur klúbbsins eru þátttakendur úr heimsreisunum þremur: til Mexi1<ó ’80, Brasilíu ’81 og Kenýa ’82, sem farnar hafa verið á vegum Útsýnar. Markmið klúbbsins er eins og segir ístefnuskránni, „að gefa félögum hans kost á að kynnast undrum og dásemdum heimsins með feröum í heimsreisustil með sem hagkvæmustum kjörum, og auka víðsýni og lífsnautn félaga sinna með þátttöku í slíkum ævintýraferöum“. Morgunblaöiö/ KÖE Ingólfur Guðbrandsson og Bryndís Schram veita hér Garðari Sigurvalda- syni 1. verðlaun í vísukeppni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.