Morgunblaðið - 21.01.1983, Síða 11
HVAO ER AD GERAST UM HELGINA?
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. JANÚAR 1983
SÝNINGAR
Norræna húsiö:
Sýningin „Viö
erum á leiöinni“
sett upp aftur
Viö erum á leiöinni, sýning á
teikningum unglinga frá Noröur-
löndunum, sem haldin var í Nor-
ræna húsinu í desember og fram
til 13. janúar, hefur veriö sett upp
aftur og mun standa til 30. janúar.
Sýningin er opin á milli kl. 14.00
og 19.00 daglega. Skólar geta í
samráöi viö skrifstofu Norræna
hússins fengiö aö sjá sýninguna
utan venjulegs sýningartíma.
Norræn vefjarlist
á Kjarvalsstööum
Sýningin Norrssn vefjarlist fyllir
nú aila sali Kjarvalsstaöa. Þar eru
listaverk eftir 86 listamenn frá öll-
um Noröurlöndunum, þar af 5 ís-
lenska. Ennfremur er þar sórstök
smámyndasýning sem 12 íslenskir
textíl-listamenn standa aö.
Sýningin er opin daglega frá kl.
14—22, fram til 30. þessa mánaö-
ar. Héðan fer sýningin til Færeyja.
Sjö listamenn í
Nýlistasafninu
Sjö manna hópur myndlistar-
manna sem starfaö hefur á geö-
deild Borgarspítalans, Arnarholti
og Kjalarnesi sl. ár, sýnir verk sín
í Nýlistasafninu Vatnsstíg 3B
dagana 22. jan. — 30. jan.
Þeir sem sýna eru: Adolf Bjarna-
son, Guöbjörg Helgadóttir, Halldór
Viöarsson, Magnús Guölaugsson,
Ragnar Jóhannsson, Tumi Magn-
ússon og Þorgrímur Vigfússon.
Sýningin er opin frá kl.
16.00—22.00 um helgar.
Eggert Magnússon
sýnir í anddyri
Háskólabíós
Eggert Magnússon heldur mál-
verkasýningu í anddyri Háskóla-
bíós frá 24. jan. — 28. jan.
Þetta er þriöja einkasýning Egg-
erts, en hinar tvær voru í Lindarbæ
1965 og í Djúpinu 1982. Á sýning-
unni núna eru 27 olíumálverk og
eru þau öll til sölu.
Gísli Theódórsson og Guðmundur Viðarsson virða fyrir sér verðlaunafréttamyndir liðinna ára.
Morgunblartið KÖK
World Press Photo 1 Listasafni alþýðu:
Verðlaunamyndir fyrri ára sláandi
— sögðu tveir gestir sýningarinnar
Nú stendur yfir í Listasafni al-
þýðu sýning á fréttaljósmyndum
frá World Press Photo ’82. Auk
fréttamynda frá liðnu ári eru á
sýningunni verðlaunamyndir fyrri
ára. Það er Arnarflug sem fengið
hefur sýninguna hingað til lands
og stendur hún fram til 6. febrúar.
Sigurjón Jóhannsson hjá Arn-
arflugi sagði við opnun sýn-
ingarinnar að myndirnar vektu
blendnar tilfinningar hjá áhorf-
andanum, gleði, hryggð, undrun
og hrylling. „Það er einkennandi
fyrir myndir sýningarinnar að
þær sýna oftast einhver örlaga-
rík og átakanleg augnablik, sem
verður þess valdandi að fólk lifir
sig inn í atburðinn og veltir því
fyrir sér hvað gerðist fyrir og
eftir atvikið sem myndin sýnir,"
sagði Sigurjón.
Tveir gestir sýningarinnar,
þeir Gísli Theódórsson og Guð-
mundur Viðarsson, töldu að
verðlaunamyndir fyrri ára væru
þær myndir sýningarinnar sem
mesti fengurinn væri að. „Þær
eru sláandi," sögðu þeir, „og
maður hugsar ósjálfrátt um það
hvað gott er að búa á íslandi —
hvað sem allri visitölu líður!“
Sýningin er opin frá kl. 14.00
til 19.00 á virkum dögum og frá
kl. 14.00 til 22.00 um helgar.
LEIKHÚS
Leikfélag Reykjavíkur:
Salka, Skilnaöur,
Forsetaheimsóknin
og Hassiö
f kvöld (föstudag) er 8. sýning
á Forsetaheimsókninni, frönsk-
um gamanleik, sem nýlega var
frumsýndur hjá Leikfélaginu. Hef-
ur veriö uppselt á allar sýningar
til þessa og er einnig uppselt á
sýninguna í kvöld.
Höfundar verksins eru Regó og
Bruneau en þýöandl er Þórarinn
Eldjárn.
Annaö kvöld er svo Skilnaður
Kjartans Ragnarssonar á fjölunum,
en þaö verk hefur veriö sýnt síöan
í haust og vakiö athygli bæöi fyrir
leik og efnistök. Höfundurinn
leikstýrir sýningunni, sem fjallar
um skilnaö reykvískra hjóna á
okkar dögum. Uppselt er á sýning-
una.
Annaö kvöld er miönætursýning
á Hassinu hennar mömmu eftir
Dario Fo í Austurbæjarbíói í leik-
stjórn Jóns Sigurbjörnssonar og
leikmynd Jóns Þórissonar. Sýning-
in fjallar á gamansaman og hisp-
urslausan hátt um fíkniefnaneyslu
og hættu þá, sem af henni kann að
stafa.
Á sunnudagskvöldið er svo
Salka Valka eftir Halldór Laxness
sýnd í lönó, en sýningar eru nú
hafnar á ný á þessari rómuðu sýn-
ingu eftir hálfs árs hlé, sem gera
varö vegna forfalla í leikhópnum. í
hlutverki Sölku er Guörún Gísla-
dóttir, Sigurlínu móöur hennar
leikur Margrét Helga Jóhannsdótt-
ir. Jóhann Siguröarson leikur Arn-
ald og Þorsteinn Gunnarsson,
Steinþór Steinsson. Alls koma 16
leikarar fram í sýningunni. Leik-
mynd og búningar eru eftir Þór-
unni S. Þorgrímsdóttur, tónlist eftir
Áskel Másson og leikstjóri er Stef-
án Baldursson.
Þjóðleikhúsiö:
Frumsýning á
Línu langsokk
Fimm mismunandi leikrit veröa
sýnd í Þjóöleikhúsinu um helgina
og ættu því allir aö finna þar
eitthvað viö sitt hæfi. Þessi verk
eru Dagleiðin langa inn í nótt, eft-
ir Eugene O’Neill, Lína langsokk-
ur, eftir Astrid Lindgren, Jómfrú
Ragnheiður, eftir Guömund
Kamban, Garðveísla, eftir Guö-
mund Steinsson og Tvíleikur, eft-
ir Tom Kempinski. Aö auki sýnir
leikhúsiö síöan Súkkulaöi handa
Silju, eftir Nínu Björk Árnadóttur
á þriöjudagskvöldiö.
i kvöld veröur síöasta sýningin á
Dagleiöinni löngu eftir O’Neill í
þýöingu Thors Vilhjálmssonar og
leikstjórn Kent Paul. Gefst þá síö-
asta tækifærið til þess aö sjá upp-
færslu Þjóöleikhússins á þessu
frægasta fjölskyldudrama sem
samið hefur veriö á þessari öld.
Á morgun kl. 15.00 veröur frum-
sýning á langþráöu barnaleikriti
Þjóöleikhússins, Línu langsokk,
eftir Astrid Lindgren. Þetta er sú
alþekkta og kostulega Lína sem
hefur lag á aö setja allt á annan
endann hvar sem hún fer. Þórarinn
Eldjárn þýddi leikinn, tónlist er eft-
ir Georg Riedel, hljómsveitarstjóri
er Magnús Kjartansson, dansahöf-
undur er Ólafía Bjarnleifsdóttir,
lýsingu annast Páll Ragnarsson,
leikmynd og búninga gerir Guðrún
Svava Svavarsdóttir og leikstjóri
er Sigmundur Örn Arngrímsson.
önnur sýning á Línu langsokk
veröur á sunnudag kl. 15.00.
Á laugardagskvöld verður sýn-
ing á Jómfrú Ragnheiði eftir Guö-
mund Kamban í leikgerö og leik-
stjórn Bríetar Héöinsdóttur, sýning
sem vakiö hefur mikla athygli.
Á sunnudagskvöld er síöan sýn-
ing á Garðveislu eftir Guömund
Steinsson og fer nú hver aö veröa
síðastur til aö sjá þetta umdeilda
og magnaöa verk. Leikstjóri er
María Kristjánsdóttir.
Á sunnudagskvöldiö er einnig
sýning á Litla sviöinu á Tvíleik, um-
töluöu verölaunaleikriti eftir Tom
Kempinski. Á því verki eru einnig
fáar sýningar eftir. Leikstjóri er Jill
Brooke Árnason.
Revíuleikhúsið:
Karlinn í kassanum
í Hafnarbíói
Á sunnudagskvöldið nk. kl.
20.30 verður 30. sýning á Karlin-
um í kassanum, ærslaleiknum
sem hiö nýstofnaða Revíuleikhús
tók viö af Garöaleikhúsinu.
Miöar verða seldir á laugardag-
inn á milli fimm og sjö og sunnu-
daginn eftir fimm.
31. sýning veröur síöan á
fimmtudagskvöldiö 27. jan., en
miöasala á þá sýningu hefst klukk-
an fimm samdægurs.
KVIKMYNDIR
Ólympíukvikmyndin
sýnd í MÍR-salnum
Hin opinbera ólympíukvikmynd,
yfirlitsmynd um OL í Moskvu 1980,
veröur sýnd í MÍR-salnum, Lind-
argötu 48, nk. sunnudag, 23. janúar
kl. 16.
Heiti myndarinnar, „Ó, íþróttir,
(jér heimur", er sótt í frægan óö eftir
Frakkann Pierre de Coubertin, sem
talinn er upphafsmaöur eða „faðir"
nútíma Ólympíuleika. Myndin var
gerð undir stjórn Júrí Ozerovs.
Aögangur aö MÍR-salnum er
ókeypis og öllum heimill.
FERÐALÖG
Ferðafélag fslands:
Tvær dagsferðir
á sunnudaginn
Á sunnudaginn eru tvær dags-
ferðir á vegum Ferðafélags Is-
lands:
1) kl. 13 — Skíöagönguferó á
Hellisheiöi og með í feröinni veröur
skíöakennari, sem segir til þeim
sem þess óska eöa vilja bæta kunn-
áttuna í skíöagöngunni. Mikill snjór
er á Hellisheiöinni, en hún hefur ekki
verið opnuð fyrir umferö enn eftir
snjókomuna í janúar. 2) kl. 13 —
Gönguferð á Þorbjarnarfell. Þessi
ferð er fyrir gönguskóna, ekki
gönguskíöin, en litið hefur veriö
hægt að fara í gönguferöir þaö sem
af er janúar. Ingrid Heinz á NFL i
Hverageröi er meö Kodak (slides)
filmu í óskilum úr aramótaferðinni.
Hringiö í síma 9533.
Útivist:
Þorraferð í
Borgarfjörð
í kvöld kl. 20.00 veröur lagt af
staö í helgarferð í Borgarfjörð.
Þetta er þorraferö, haldiö verður
þorrablót að þjóðlegri hefð við
sameiginlegt langborð á laugar-
dagskvöldiö og viðhafðir aörir
þjóðlegir sióir.
Fariö veröur í gönguferðir á laug-
ardaginn eftir því sem færö leyfir,
t.d. á Þverfell vestan Reyðarvatns.
Einnig verður skíóagönguferö fyrir
þá sem vilja. Fararstjóri er Jón I.
Bjarnason.
A sunnudaginn, þann 23. janúar,
veröur skiöagönguferö kl. 13.00, en
svæðið verður valiö eftir færö og
veðri. Fararstjóri er Kristinn Krist-
jánsson.
Lagt er af staö í báöar ferðltnár
frá bensínsölu BSl.
íslenska óperan:
Sýningum á
Töfraflautunni
fer fækkandi
Þrjár sýningar verða hjá ís-
lensku óperunni um helgina á
Töfraflautunni eftir W.A. Mozart. í
kvöld, föstudag, laugardag og
sunnudag og hefjast allar sýn-
ingarnar klukkan 20.00.
Astæða er til aö hvetja fólk til aö
verða sér út um miða fljótlega. þvi
nú eru fáar sýningar eftir. Einnig er
rétt aö þaö komi fram aö engar
aukasýningar verða.