Morgunblaðið - 21.01.1983, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 21.01.1983, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. JANÚAR 1983 53 SALUR 1 Flóttinn (Pursuit) Ar-v-v Flóttinn er spennandi og jafn- framt fyndin mynd sem sýnir hvernig J.R. Meade sleppur undan lögreglu og fylgisvein- um hennar á stórkostlegan hátt. Myndin er byggð é sannsögulegum heimildum. Aðalhlutverk: Robert Duvall, Treat Williams, Kathryn Harr- old. Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. H»kkaö verö. SALUR2 Sá sigrar sem þorir (Who Dares, Wins) r 4 /A I Þeir eru sérvaldir, allir sjálf- boðaliðar, svifast einskis, og eru sérþjálfaöir. Þetta er um- sögn um hina frægu SAS (Special Air Service) þyrlu- björgunarsveit. Liösstyrkur þeirra var það eina sem hægt var að treysta á. Aöalhlv.: Lewis Collins, Judy Davis, I Richard Widmark, Robert Webber. Sýnd kl. 5, 7.30 og 10 Ath: breyttan sýningartíma Bönnuð innan 14 éra. Hækkað verð. Litli lávarðurinn (Little Lord Fauntleroy) Stóri meistarinn (Alec Guinn- ess) hittir litla meistarann (Ricky Schroder). Þetta er hreint frábær jólamynd fyrlr alla fjölskylduna. Aöalhlv.: Al- ec Guinness, Ricky Schroder, Eric Porter. Leikstj.: Jack Gold. Sýnd kl. 5 og 7. Dularfullar símhringingar Spennumynd i algjörum sér- flokki. Aöalhiv.: Charles Burn- ing og Carol Kane. Sýnd kl. 9 og 11. Bílaþjófurinn ROHHOWAMSiT^iSi.Vi'&u. TÍ^S 2*—/,*» Bráðskemmtileg og fjörug mynd með hinum vinsæla leik- ara úr American Graffiti, Ron Howard, ásamt Nancy Morg- an. Sýnd kl. 5 og 7. Konungur grínsins (King of Comedy) Einir af mestu listamönnum I kvikmynda i dag, þeir Roþert I De Niro og Martin Scorsese I standa á bak viö þessa mynd. I Framleiöandinn Arnon Milch-1 an segir: Myndin er bæöi fynd- in. dramatisk og spennandi. I Aöalhlutverk: Robert De Niro, ) Jerry Lewis, Sandra Bern- hard. Leikstj.: Martin Scors- | ese. Hækkaö verö. Sýnd kl. 9 og 11.05 Being There Sýnd kl. 9. (11. sýningarménuöur) ■ Allar með ísl. texta. ■ ÁSTRÍÐUMORÐ FRANSKRAR ÆTTAR Kvikmyndir Ólafur M. Jóhannesson Ástrídumorð franskrar ættar. Police Python 357. Sýning á vegum kvikmyndaklúbbs Alliance Francaise. Leikstjóri: Alain Corneau. Gerð: 1977. Leikarar: Yves Montand, Simone Signoret, Francois Périer og Stef- ania Sandrelli. Kvikmyndahandrit: Daniel Bou- langer og Alain (’orneau. Samtöl: Daniel Boulanger. Kvikmyndun: Etienne Becker. Tónlist: Georges Delerue. Það er ekki ónýtt fyrir franska kvikmyndaleikstjóra að eiga að bakhjarli rithöfundinn Georges Simenon sem hefir um áratugi spúð úr ritvélinni ótölulegum fjölda sakamálasagna. Ef sögur Simenon væru aðeins æsisögur myndu franskir kvikmyndaleik- stjórar ekki svo mjög hafa grætt á þeim, fremur getað sótt efnivið beint til amerískra sakamála- mynda. En sumar sagna Simen- on eru ekki aðeins ætlaðar til að vekja með mönnum óþægilegan magaverk, þær eru miklu frekar einskonar skýrslur um viðbrögð hins almenna borgara við óvæntum uppákomum, svo sem morði. í þessum sögum skiptir glæpurinn ef til vill ekki höfuð- máli heldur viðbrögðin við glæpnum. Má segja að allskörp skil séu milli kvikmynda sem byggðar eru á þessari tegund sagna og hinna sem snúast um blóðsúthellingar og eltingaleik. Kvikmynd sú sem sýnd var í Regnboganum fyrir skömmu á vegum kvikmyndaklúbbs „Alli- ance Francaise og nefnist „Pol- ice Python 357“ byggir á þeim grunni sem lagður er með sögum Georges Simenon. Myndin snýst að verulegu leyti um ástríðu- morð sem framið er af lög- reglustjóra í útborg í Frakk- landi. Svo vill til að lögreglu- maður sá sem kvaddur er til að rannsaka morðið er góður vinur lögreglustjórans, en ekki aðeins það, hann var og ástmaður þeirr- ar myrtu sem hann deildi óafvit- andi með lögreglustjóranum og svo má bæta við að hann er sá sem helst kemur til greina sem morðinginn. Flókinn söguþráður og lítt út- skýranlegur í stuttri umsögn. Eg vil aðeins bæta því við að eftir mínu mati er lykilpersóna þessa Yves Montand leikur leynilögguna ógæfusömu. sálarflækjudrama — eiginkona lögreglustjórans sem Simone Signoret leikur. Kona þessi er al- ger sjúklingur og verður því að sætta sig við framhjáhald manns síns. Ofurást hennar á karli veldur því að hún hvetur hann til að hylma yfir ástríðu- morðið og jafnframt leiða hinn saklausa rannsóknarlögreglu- þjón í gildru. Virðist hún hafa furðulegt vald yfir eiginmanni sínum sem nýtur góðs af eignum hennar og ríkidæmi. Er næsta fróðlegt að fylgjast með samræðum þeirra í myndinni sem að verulegu leyti snúast um ástkonuna, líkt og eiginkonan upplifi líkamlegt samband gegnum þá frauku. Enn girnilegra rannsóknarefni er á hvern hátt lögreglustjórinn byggir upp samband sitt við ástkonuna. Hann virðist geta haldið við hana árum saman án þess að nokkur einasta sál verði þess var utan eiginkonan. En hér erum við víst farin að tala um þjóðarsport Frakka. Því miður er hætt að sýna „Police Python 357“ á vegum Alliance Francaise. Ég segi því miður, því það er ekki á hverjum degi sem gefst færi á að sjá hér í kvikmyndahúsum sakamála- mynd sem reynir á heilasellurn- ar og vekur spurningar um nán- asta umhverfi. Aðeins eitt skyggði á hina ánægjulegu kvöldstund í E-sal Regnbogans með þeim Yves Montand, Sim- one Signoret og Francois Périer — hljómflutningstæki hússins voru alltof hátt stillt, svo músík myndarinnar breyttist í skræki og væl. Bækur og blað Kvikmyndir Sæbjörn Valdimarsson THE FILM YEAR BOOK Ritstjóri: Al Clark Virgin Books Ltd., London 1982. 192 bls. £ 5.95 Bókaverslun Snæbjarnar. Á markaðinn er komin ný kvikmyndaárbók, The Film Yearbook, gefin út í tyrsta sinn í vetur af hinu frjálslynda Virgin- forlagi í London og þekkt er fyrir aö fara síst troönar slóöir i út- gáfustarfsemi sinni. í öllu því kvikmyndaárbóka- flóöi sem hellist yfir okkur þarf ný útgáfa að hafa ferskan blæ og frumlegan svip og þaö tel ég aö þeim hjá Virgin hafi tekist vonum framar. Tæpur helmingur bókar- innar er lagður undir stutta, en oft snjalla gagnrýnisstúfa um hverja einustu mynd sem sýnd var á Englandi á árinu (1. júlí 1981 — 30. júní 1982). Jafnframt er getið allra helstu aðstandenda myndanna auk sýningartíma og myndar. Næstu kaflar fjalla svo um þaö markverðasta á árinu vestan hafs og í Englandi, eink- um hvaö aösókn einstakra mynda snertir. Þá er komiö aö þrettán bestu myndum ársins, völdum af hinum mörgu skríbentum T.F.Y., þar sem er aö finna kunnugleg nöfn eins og Raiders of the Lost Ark, Britannia Hospital, Body Heat og Blow Out. I kjölfariö tina þeir til 10 þær verstu, þar sem finna má allnokkrar sem einnig hafa ergt okkur mörlanda; Death Wish II, Butterfly. Fjallaö er ítar- lega um allar þessar myndir. Þá er komið aö greinum um „andlit ársins", sem aö þessu sinni eru hin unga, bandaríska leikkona og barnastjarna, Kristy McNichol, Jeremy Irons, sem hlaut mjög góöa dóma á árinu fyrir leik sinn í sjónvarpsþættin- um kunna, Brideshead Revis- ited og myndunum The French Leutinants Woman og Moon- lightning Skolimowskis. Önnur „andlit ársins“ eru: Klaus Maria Brandauer (Mephisto), Laurene Landon (All the Marbles), How- ard E. Rollins (Ragtime), William Hurt, Harrison Ford, Nastassia Kinski og Bernadette Peters, allt kunn nöfn. Þá er komið aö kafla sem ber heitiö „tilvitnanir ársins“, þar sem vitnað er í gullkorn sem hrukku af vörum stjarnanna á ár- inu. Því næst fróðlegur þáttur um myndir sem aldrei var lokiö við og annar um misgáfuleg slagorö auglýsingaplakata á árinu sem var aö líða. Af ööru efni í hinni tæplega 200 bls. árbók má nefna yfir- gripsmikla skrá yfir allar helstu kvikmyndaverölaunaafhendingar ársins 1982 og ítarlegur listi yfir bækur sem út komu, tengdar kvikmyndum. T.F.Y. lýkur svo á heimilisföngum kvikmyndafram- leiðslufyrirtækja og kvikmynda- vera vestan hafs og í Englandi, kvikmyndatímarita, kvikmynda- stofnana og -hátíöa víöa um heim. Þeir hjá Virgin hafa aö öllum líkindum hitt í mark meö þessari læsilegu bók. Hún er skrifuð á skörpu, hnyttnu máli meö fjöld- ann i huga. Frágangurinn og út- litið, en T.F.Y. er pappírskilja í stóru broti, er laglegt, efniö aö- gengilegt — engar auglýsingar — og pennarnir flestir valinkunn- ir, eins og Andrew Sarris, Ray- mond Durgnant, Tony Crawley og Dave Marsh. Bókin er rausn- arlega myndum prýdd. Meö The Film Yearbook Virgin-útgáfunnar og hina þurrari — en ómissandi sökum hins al- þjóölega yfirlits — International Film Guide Cowies, má hver kvikmyndaáhugamaður mjög svo vel viö una. THE OSCAR MOVIES From A—Z. Roy Pickard Hamlyn Publishing Group Ltd., Middlesex, England 1982. Ný og aukin útgáfa, 309 bls. £ 1.75. Pappírskilja. Bókaverslun Snæbjarnar. Nýkomin er út handbókin The Oscar Movies from A—Z, í endurbættri og aukinni útgáfu, en sú fyrri sá dagsins Ijós 1978 og var því orðin talsvert ófull- nægjandi. Sem kunnugt er fjallar þessi uppsláttarbók fyrst og fremst um allar þær myndir sem einhver Oscars-verölaun hafa hlotið, í samanþjöppuöu máli. Aö auki er i bókinni aö finna allnokkra forvitnilega lista sem höfundur hefur tekiö saman og eru tengdir hinum eftirsóttu verölaunum. Einn er yfir allar helstu tilnefningarnar frá upp- hafi, hvert ár tekiö fyrir sig, annar um þá leikstjóra sem stýrt hafa flestum Oscarsverölaunaleikur- um — þar hefur William gamli Wyler vinninginn. Þá er aö finna lista yfir fjölmargar merkismyndir — sem ekki hlutu svo mikiö sem eina tilnefningu og enn annan yfir myndir sem hlutu fleiri en eina, en engin verölaunin. Svo mætti lengi telja. The Oscar Movies From A—Z, er prýdd fjölda mynda af sigurvegurunum og hinn ákjós- anlegasti félagi í uppsláttarbóka- hillunni. Kvikmyndablaóiö No. 5. des. 1982. Útgefandi: Fjalakötturinn, kvikmyndaklúbbur fram- haldsskólanema, Skólavörðu- stíg 19. 52 bls. Verð kr. 60.- Áskrift 300 fyrir 6 blöð. Fjalakötturinn, sa ómissandi þáttur í kvikmyndaheimi lands- manna, hefur nú fært sig upp á skaftiö og bætt útgáfu Kvik- myndablaðsins viö starfsemi sina. Blaöið hefur breytt nokkuö um svip viö eigendaskiptin, til hins betra eöa verra skal ósagt látiö. I þessu fyrsta tölublaöi Fjala- kattar-útgáfunnar er m.a. aö finna ágæta grein eftir Ingibjörgu Haraldsdóttir um meistara Eisen- stein, viötal viö Valgeir Guöjóns- son um íslensku kvikmyndina Með allt á hreinu og annað fróö- legt viötal viö Vilhjálm Knudsen um vandamál kvikmyndageröar á Islandi. Þetta er þaö bitastæöasta, en hópurinn sem stendur aö baki efnis blaösins getur þess aö þaö sé opiö öllum félagsmönnum i „Kettinum“, og þaö þarfnist góöra krafta. Skrifstofa blaðsins er á Skólavöröustíg 19, 2. hæö. Aö gefa út tímarit um kvik- myndir þykir minniháttar krafta- verk meöal erlendra þjóöa, og ekki er brattinn minni í fámenn- inu hérlendis. Ég óska Kvik- myndablaðinu langlífis og hvet því kvikmyndaunnendur aö „kýla á eintak".

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.