Morgunblaðið - 09.02.1983, Page 1
Miðvikudagur 9. febrúar - Bls. 49-72
Skóli, þar sem menn uppgötva sjálfa sig og aðra
Allt liðið samankomið ofan á skafli. Efst til vinstri eru 5 eins klæddar stelpur, sem sýna hver annarri mikinn kærleik, svo sem vera ber. En þær eru á leiðtogalínunni.
er svona merkilegt við
l> vera í Skálholtsskóla?
Hvað
það a
Gylfi skólastjóri að rýna í fræðin með áhugasömum nemendum, Evu frá Svíþjóð, Andreu frá Þýzkalandi og Snorra
frá íslandi.
- eftir Pétur
Þorsteinsson
„Hvað ætlar þú að
verða væna, voða ertu
orðin stór, hljómar sí-
fellt þessi kór.“ Eitthvað
á þessa leið segir í dæg-
urlagatexta, þar sem
verið er að spyrja unga
stúlku um það, hvað hún
ætli sér að verða þegar
hún er orðin stór. Þegar
unglingur er spurður að
því, verður gjarnan
harla lítið um ákveðin
svör. Unglingssálin er
oft á reiki og á erfitt með
að taka ákvörðun í jafn
viðamiklu máli sem það
að ákveða hvað maður
ætli að verða, þegar
maður er orðinn stór.
Einn er sá staður, sem gott er að
staldra við og hugsa sitt mál. En
það er í skóla kirkjunnar í Skál-
holti, Skálholtsskóla. Þar er rek-
inn skóli, sem veitir óráðnum
krökkum á aldrinum 18 ára og upp
úr veganesti til þess að átta sig
betur á því, hvert skuli halda
áfram í skólakerfinu.
Gylfi Jónsson er skólastjóri
Skálholtsskóla. Sagði Gylfi, að
markmið skólans væri það m.a. að
þeir einstaklingar, sem ekki hefðu
fellt sig við kerfið, gætu komið í
Skálholtsskóla og verið þar einn
vetur og staldrað við til þess að
upplifa sjálfa sig og gætu betur
áttað sig á því, hvað þeir vildu.
I skólanum væru engin próf.
Heldur væri verið að láta krakk-
ana uppgötva þann skapandi
kraft, sem með þeim byggi, en
hefði e.t.v. ekki fengið að njóta sín
í skólakerfinu. Stór hluti unglinga
væri á krossgötum í lífinu. En í
Skálholtsskóla gætu þeir stoppað
og staldrað dulítið við. Sumir
krakkar kæmu úr fjölbrautaskól-
unum og í Skálholtsskóla til þess
að hugsa sig um.
Myndmennta- og fjölmiðla-
lína, nýjung í vetur
í vetur er boðið upp á tvær nýj-
ar vallínur, sem ekki hafa verið
áður. Kona Gylfa skólastjóra, Þor-
gerður Sigurðardóttir, hefur um-
sjón með myndmenntalínunni. Er
myndmenntalínan bæði á haust og
vorönn. Kynnast krakkarnir að-
ferðum í myndmennt og grunnat-
riðum í venjulegu myndlistar-
námi. Jafnframt fá þau verklega
þjálfun. í vetur eru 12 nemendur á
myndmenntalínunni.
Sagði Þorgerður, að sér stofa
hefði verið innréttuð fyrir
myndmenntina í kjallara húsnæð-
is skólans. Stofan væri nokkurs
konar verkstæði, þar sem nemend-
ur gætu komið hvenær dags sem
er og unnið við það, sem þeim
dytti í hug. Væri stofan opin fyrir
utan venjubundinn skólatíma.
Starfsfólk sækir t.a.m. tíma í
myndmennt og finnsku.
Fjölmiðlun er kennd nú á vor-
misseri við Skálholtsskóla. Kennir
þar finnskur maður að nafni Lars,
sem var einmitt nemandi við
Skálholtsskóla fyrir 4 árum siðan.
Verður nemendum gefin innsýn í
helztu þætti fjölmiðlunar, svo sem
hvernig fjölmiðlar starfa, frétt er
unnin, og viðtal tekið. Hvernig
standa á að útgáfu skólablaðs og
hvað skal haft í huga við þá auknu
notkun á myndböndum og öðrum
þeim miðlum, sem komið hafa
fram undanfarin ár.
Þá er ein línan enn, sem boðið er
upp á við skólann. Er það leiðtoga-
lína, sem Oddur Albertsson hefur
umsjón við. Á leiðtogalinu í vetur
eru 5 steipur og hefur nemendum
þar fjölgað þar sem undanfarin
tvö ár hafa aðeins tveir nemendur
stundað það nám.
Á leiðtogalínunni er verið að
gera þátttakendur hæfa til þess að
taka að sér umsjón með æsku-
lýðsstarfsemi. Sagði Oddur, að það
væri ekki einungis til starfa innan
kirkjunnar, heldur einnig til
starfa í félagsmiðstöðvum hvers
konar. Væru stelpurnar þjálfaðar
með margs konar hætti m.a. væri
„fjölskynjun" mikið notuð, þar
sem allir þættir mannlegs lífs
væru notaðir til þess að draga
fram í dagsljósið tilgang og
markmið æskulýðsstarfs og
hvernig hver og einn væri ábyrgur
sem samfélagsþegn, hvort sem það
væri innan kirkjunnar eða þá úti í
samfélaginu. Frá þessari leiðtoga-
línu kæmu starfskraftar, sem
gætu nýtzt við hin margvíslegustu
leiðtogastörf, hvar sem væri innan
þjóðfélagsins. Skálholtsskóli væri
eini skóli sinnar tegundar hér á
landi, og því væri ekki um að
ræða, að þeir sem vildu mennta
SJÁ NÆSTU SÍÐU