Morgunblaðið - 09.02.1983, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 09.02.1983, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. FEBRÚAR 1983 51 Náttúruyemdarráð: Alþjóðarall á hálendinu yrði risaskref aftur á bak í umgengni við landið Morgunblaðinu hefur borizt eftir- farandi frá Náttúruverndarráði: „Síðastliðið haust birtust fréttir og greinar í fjölmiðlum um að franskur rallkappi hygðist, í sam- ráði við íslenska aðila, gera ísland að alþjóðakeppnislandi fyrir rall- akstur, og þá einkum hálendi landsins. Þar kom m.a. fram að auðvitað yrði eingöngu ekið eftir vegum, enda þótt allir sem til þekkja viti að víðast hvar á há- lendinu eru engir vegir, heldur er þar ekið eftir meira eða minna ófullkomnum slóðum sem margar eru aðeins færar farartækjum með drifi á öllum hjólum. Náttúruverndarráð hefur reynt að afla sér frekari upplýsinga um þetta mál og hefur rætt það á mörgum fundum sínum fyrri hluta vetrar. Ráðið er sammála um að vara við hugmyndum af þessu tagi og leggst eindregið gegn áformum um slíka rallkeppni á hálendi landsins af eftirfarandi ástæðum: 1. Gróður landsins, ein mikilvæg- asta auðlind þess, er afar við- kvæmur, einkum á hálendinu, og öll nýting landsins til útivist- ar og ferðalaga því meiri erfið- leikum bundin en víðast í ná- grannalöndum okkar. Viðbótar- álag á viðkvæma staði hálendis- ins af þeirri stærðargráðu sem hér virðist um að ræða, þ.e. all- ur sá mannskapur sem fylgir farartækjum í hundraðatali, er því mjög óæskilegur þar sem margir staðir hálendisins eru þegar ofsetnir ferðafólki á sumrin. 2. Náttúruverndarráð hefur rekið nokkurn áróður fyrir því undan- farin ár, og lög og reglugerðir verið settar um, að ökutæki skuii halda sig á vegum og á hálendinu á merktum slóðum, enda hafa megin bílslóðir þar nú verið merktar. Þetta hefur skilað nokkrum árangri til þessa, þó enn séu allt of mikil brögð að því að slíkar reglur séu ekki virtar, bæði af íslenskum og erlendum ferðamönnum. Óþarfa aukaslóðir og bílför hafa því myndast allvíða, bæði á ógrónu og grónu landi, og hefur sá vandi vaxið að mun með auknum ferðum erlendra manna á eigin farartækjum um landið. Enginn trúir því að í keppni af þessu tagi haldi öll farartæki sig alltaf á hinum merktu slóðum á hálendinu, hvað þá önnur farartæki sem þessu fylgja svo sem farartæki áhorfenda, eftirlitsmanna o.s.frv. Aukaslóðum og bílförum myndi stórfjölga, og það sem enn verra er, að hálfu erfiðara yrði að ná til fólks með áróðri og tilmælum um að halda sig á merktum slóðum eftir slíka stórflengingu hálendisins. 3. Rallkeppni af þessu tagi myndi valda mikilli truflun og ónæði fyrir ferðafólk, friðsælir og við- kvæmir staðir á hálendinu verða fyrir skemmdum og sums staðar gæti jafnvel skapast hættuástand á vegum og slóð- um. Það er af og frá, að ófull- komnar og lélegar hálendisslóð- ir, sem valda ferðafólki nógu miklum erfiðleikum eins og þær eru, þyldu slíkt viðbótarálag, þær myndu stórspillast eða jafnvel eyðileggjast og hverjir borga viðgerðir á þeim aðrir en íslenskir skattgreiðendur? 4. Út yfir tekur þó, þegar áformað er að hafa rallkeppni á fríðlýst- um svæðum hálendisins, sem eiga að vera sérstakur griða- staður fólks og þar sem umferð er leyfð eftir sérstökum reglum. Rallakstur innan slíkra svæða samrýmist engan veginn þeim reglum, heldur flokkast undir náttúruspjöll, að mati Náttúru- Raufarhöfn: Eviknar í báti Kaufarhofn, 7. febrúar. ELDUR KOM UPP í mótorbátnum Kóp VE 11 þar sem hann lá við bryggju á Raufarhöfn á laugardagskvöldið. Eldurinn kom upp í vélarrúmi. Upptök eru ókunn og tjón einnig, en trúlega verður að skipta um alla raflögn í skipinu. Það var um miðnættið að Helgi Hólmsteinsson sjómaður í Sjávar- borg varð þess var að reyk lagði upp af stýrishúsi bátsins, og hafði hann þegar samband við Albert Leónardsson skipstjóra, sem á Kóp ásamt Fiskavík hf. Albert hafði þegar samband við slökkvilið, sem kom strax á vett- vang með brunabíl. Jafnframt var slökkvibíll, sem staðsettur er á flugvellinum, sóttur, og tókst að ráða niðurlögum eldsins með því að fylla vélarrúmið af millifroðu. Slökkvistarfi var iokið um eitt- leytið. Slökkvistarf var að því leyti erf- itt að geysilegur hiti var kominn á olíutanka í vélarrúminu og sprengihætta því mikil. Af þeim sökum þótti ekki ráðlegt að reyna niðurgöngu í vélarrúmið, heldur var brotið kýrauga á vélarhús- kappanum og kvoðunni dælt þar inn. Búast má við að Kópur verði frá veiðum í nokkrar vikur meðan gert verður við skemmdirnar. Bát- urinn lá mannlaus við bryggju þegar eldurinn kom upp. Hann hefur verið á línuveiðum en verið var að búa hann á netaveiðar. Kópur er 81 tonna eikarbátur, smíðaður árið 1942 og keyptur til Raufarhafnar í marz í fyrra. Von er á fulltrúa trygginganna til að taka ákvörðun um áframhaldið, en búast má við að Kópur verði færð- ur til Akureyrar til viðgerðar og skoðunar. Helgi. Hálka og þíðviðri í Stykkishólmi Stykkishólmi, 7. febrúar. ÞAÐ HEFIR verið óhemju snjór hér eins og áður hefir verið minnst á í fréttum. I dag er þíð- viðri og mikii hálka og átti rútan í erfiðleikum hennar vegna. Varð að aka verulega hægar en áður. Snjórinn hefir haft sitt að segja fyrir þá sem íþróttum unna, enda margir sem hafa keypt sér skíði og notað þau óspart og er það við- brigði að sjá fólk á skíðum og skemmtilegt. Útiloft og íþróttir eiga svo merkilega vel saman. Hjónafagnaður var hér laugar- dagskvöldið 5. febrúar og var þar mikið fjör, fjölmennt að vanda og öll skemmtiatriði heimatilbúin. Dansaö var lengi nætur og menn ánægðir daginn eftir. Fréttaritari verndarráðs. 5. Ferðamálayfirvöld hafa auglýst ísland erlendis sem ósnortið land, sérstaklega hið stórbrotna og friðsæla hálendi landsins. Aftur á móti hefur minna verið lagt af mörkum til að fræða er- lent ferðafólk um að hér á landi gildi ákveðnar umgengnisregl- ur, og þá ekki síst á hálendinu, sem miði að því að halda hinni íslensku náttúru eins ósnortinni og ómengaðri og hægt er, og koma í veg fyrir öll óþarfa spjöll. Eh sé áhugi fyrir því að erlent ferðafólk haldi áfram að koma hingað, þá er mikilvægara að búa á viðunandi hátt að þeim sem koma og fræða þá um hina viðkvæmu náttúru landsins og að hennar vegna gildi hér ákveðnar umgengnisreglur en að eyða stórfé í auglýsingar er- lendis. Það hefur nefnilega komið í ljós, að það eru frekar frásagnir slíks fólks af landinu, sem laða hingað annað fólk en auglýsingarnar. Rallkeppni um hið viðkvæma hálendi er í hróp- andi mótsögn við anda allrar landkynningar, hún yrði risa- skref aftur á bak í umgengni við landið.“ Mazda eigendur! , , i r x~" 1 .. 1 i . . S . 1 1... i ■■■ HMpMf :Sv. # 1 i ::xzzj 3; t * Ohöppin gera ekki boð áundan sér Þó að reynslan hafi sýnt, að MAZDA bílar hafi lágmarksbilana- tíðni og mjög góða endingu, þá geta alltaf skeð óhöpp, eða smábilanir, þannig að varahluta sé þörf. Frá því að Bílaborg hf. hóf innflutning á MAZDA bílum fyrir rúmum 10 árum hefur ávallt verið kappkostað eftir bestu getu að eiga jafnan til nægar birgðir af varahlutum í allar gerðir MAZDA bíla. Við fullyrðum að fáir bjóði betri þjónustu á þessu sviði og að verð á okkar orginal varahlutum stenst fyllilega verðsamanburð við óorginal varahluti. Því skaltu hafa í huga, að ef varahluta er þörf í MAZDA bílinn þinn — þá skaltu leita fyrst til okkar. MAZDA gæði — öryggi — þjónusta mazDa p/l ARnDf' un Erm tmJrm %tJ3í íi^lEii Smiöshöföa 23 sími 812 65

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.