Morgunblaðið - 09.02.1983, Page 9

Morgunblaðið - 09.02.1983, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. FEBRÚAR 1983 57 Percy Browne (fyrir midju), fulltníi dreifingarsambands kvikmyndaframleiðenda í Bandaríkjunum. Með honum á myndinni eru Gunnar Guðmundsson (til vinstri), en hann er lögfræðingur Universal hér á landi, en það fyrirtaeki er framleiðandi E.T. Lengst til hægri er Grétar Hjartarson, forstjóri Laugarásbíós. MorgunblaðiA KAX Ólögleg notkun mynd- banda í kapalkerfum meinsemd á íslandi — segir Percy Browne fulltrúi kvikmyndaframleiðenda í Bandaríkjunum FYRIR nokkrum dögum var staddur hér á landi fulltrúi dreifingarsam- bands kvikmyndaframleiðenda í Bandaríkjunum (Motion Pictures Export Association), Percy Browne að nafni, fyrrverandi rannsóknarlögreglumað- ur hjá Scotland Yard. Hann var hér í tvíþættum tilgangi, bæði að kynna sér ástand myndbandamála hérlendis almennt og fylgja eftir Ólafsvíkurmálinu svokallaða, en eins og menn kannski muna, var kvikmyndin E.T. sýnd í leyfisleysi í myndbandakerfinu „Villa-vídeó“ í Ólafsvík á jóladag. Fram- leiðendur kvikmyndarinnar og dreifingaraðilar hafa undanfarið verið að undirbúa málshöfðun á hendur Villa-vídeói, en upphæð skaðabótakröfunn- ar mun ekki liggja fyrir fyrr en í lok mánaðarins. Browne sagði í samtali við Mbl., að vandamál í sambandi við ólöglega noktun myndbanda væru mjög mismunandi eftir löndum. Á íslandi væri ólögleg notkun myndbanda í kapalkerf- um helsta meinsemdin. Á Eng- landi eru vandamálin önnur; þar eru ólöglegar upptökur mikið stundaðar og talsvert er um það að myndbönd séu seld í fölsuðum umbúðum. Á írlandi eru aftur ólöglegar myndbandasýningar á börum og matsölustöðum mesta vandamálið. En Browne sagði að talsverður árangur hefði náðst í baráttunni við „sjóræningjana" á Englandi og nú væru í undirbúningi lög sem gerðu mögulegt að sekta menn um 1000 pund fyrir eina ólöglega upptöku. Bandaríkja- menn taka þó enn harðar á mál- um, því þar í landi eru menn sekt- aðir um 250.000 dollara fyrir ólöglegar upptökur eða sæta fangelsi 5 ár ella. Einnig er mjög strangt tekið á þessum málum í Brasilíu og Kenýa. „Stjórnvöld víða um heim eru farin að gera sér betur grein fyrir því hvað þessi myndbandastuldur kostar iðnaðinn og ríkissjóði gíf- urlegar miklar upphæðir. Á Eng- landi er talið að stuldurinn hafi kostað iðnaðinn um 100 milljónir punda á sl. ári. Og vitað er um einn sjóræningja sem varð sér úti um 75.000 ólögleg myndbönd á einu ári,“ sagði Percy Brown að lokum. íslensk lög um hvalveiðar: Stjórnvöld veita hval- veiðileyfi og geta bann- að allar hvalveiðar SjávarútvegsráAuneytiA getur lögum samkvæmt bannaA hvalveiAar viA Ís- land, en ýmsir hafa orAiA til aA velta því fyrir sér eftir afgreiAslu Alþingis á hvalveiAimálinu, hvort íslensk stjórn- völd kunni aA vera skaAabótaskyld gagnvart þeim aAilum, sem atvinnu hafa haft af hvalveiAum. í lögum um hvalveiAar frá 1949 og breytingum á þeim frá 1979, er tekiA fram aA leyfi til hvalveiAa megi aAeins veita íslenskum ríkisborgurum. Sérstakt leyfi þarf til að nota er- lend skip til veiðanna. Einnig er tek- ið fram að bannað sé að veiða hval- kálfa og hvali er kálfar fylgi. Ráðu- neytið geti sett reglur um bann við veiði hvala undir tiltekinni lág- marksstærð, og unnt er að banna hvalveiðar á tilteknum svæðum og á ákveðnum tíma árs. Takmarka megi heildarveiðimagn, unnt er að banna íslenskum ríkisborgurum að taka þátt í hvalveiðum sem ekki eru háð- ar jafn ströngum skilyrðum og á ís- landi, og í f-lið 4. greinar laganna segir svo: ... „sett hvers konar önn- ur ákvæði, sem talin eru nauðsynleg vegna þátttöku íslands í alþjóða- samningum um hvalveiðar." í lögunum virðist með öðrum orð- um vera skýrt tekið fram að íslensk stjórnvöld hafi í hendi sér hvernig að hvalveiðum skuli staðið, og jafn- vel að banna þær ef rétt þykir. Lögfróðir menn er Morgunblaðið ræddi við sögðu, að vafasamt yrði að teljast, að íslenska ríkinu bæri nokkra skaðabótaskylda gagnvart þeim, sem stunda hvalveiðar, þótt veiðar verði bannaðar. Annað kunni hins vegar að vera upp á teningnum varðandi greiðslu fyrir skip, hafnir og önnur mannvirki, er verða gagns- laus eftir hvalveiðibann. Rockwell Delta sagir, rennibekkir og súluborvélar G. Þorsteinsson og Johnson hf. Armúla 1, sími 85533. Auglýsing um skoðun bifreiða í lögsagnarumdæmi Kópavogs Samkvæmt umferðarlögum tilkynnist hér meö, aö aöalskoöun bifreiöa 1983 hefst miðvikudaginn 16. febrúar og veröa skoö- aöar eftirtaldar bifreiðar svo sem hér segir: Miövikud 16. febrúar Y- 1 til Y- 300 Fimmtud 17. febrúar Y- 301 — Y- 600 Föstud. 18. febrúar Y- 601 — Y- 900 Mánud. 21. febrúar Y- 901 — Y- 1200 Þriöjud. 22. febrúar Y- 1201 — Y- 1500 Miðvikud. 23. febrúar Y- 1501 — Y- 1800 Fimmtud. 24. febrúar Y- 1801 — Y- 2100 Föstud. 25. febrúar Y- 2101 — Y- 2400 Mánud. 28. febrúar Y- 2401 — Y- 2700 Þriöjud. 1. mars Y- 2701 — Y- 3000 Miövikud. 2. mars Y- 3001 — Y- 3300 Fimmtud. 3. mars Y- 3301 — Y- 3600 Föstud. 4. mars Y- 3601 — Y- 3900 Mánud. 7. mars Y- 3901 — Y- 4250 Þriöjud. 8. mars Y- 4251 — Y- 4600 Miövikud. 9. mars Y- 4601 — Y- 4950 Fimmtud. 10. mars Y- 4951 — Y- 5300 Föstud. 11. mars Y- 5301 — Y- 5650 Mánud. 14. mars Y- 5651 — Y- 6000 Þriðjud. 15. mars Y- 6001 — Y- 6350 Miðvikud. 16. mars Y- 6351 — Y- 6700 Fimmtud. 17. mars Y- 6701 — Y- 7050 Föstud. 18. mars Y- 7051 — Y- 7400 Mánud. 21. mars Y- 7401 — Y- 7700 Þriðjud. 22. mars Y- 7701 — Y- 8000 Miövikud. 23. mars Y- 8001 — Y- 8300 Fimmtud. 24. mars Y- 8301 — Y- 8600 Föstud. 25. mars Y- 8601 — Y- 8900 Mánud. 28. mars Y- 8901 — Y- 9200 Þriðjud. 29. mars Y- 9201 — Y- 9500 Miðvikud. 30. mars Y- 9501 — Y- 9800 Þriðjud. 5. apríl Y- 9801 — Y-10200 Miövikud. 6. apríl Y-10201 — Y-10500 Fimmtud. 7. apríl Y-10501 og yfir Bifreiöaeigendum ber aö koma meö bifreiðir sínar aö Áhalda- húsi Kópavogs viö Kársnesbraut og veröur skoöun fram- kvæmd þar mánudaga — föstudaga kl. 8:15 til 12:00 og 13:00 til 16:00. Viö skoöun skulu ökumenn bifreiöanna leggja fram fullgild ökuskírteini. Sýna ber skilríki fyrir því að bifreiöagjöld fyrir áriö 1983 séu greidd, og lögboöin vátrygging fyrir hverja bifreiö sé í gildi. Hafi gjöld þessi ekki verið greidd, veröur skoðun ekki framkvæmd og bifreiöin stöövuö þar til gjöldin eru greidd. Vanræki einhver aö koma bifgreið sinni til skoöunar á réttum degi, veröur hann látinn sætá sektum samkvæmt umferöarlög- um og lögum um bifreiöaskatt og bifreiöin tekin úr umferö hvar sem til hennar næst. Þetta tilkynnist öllum sem hlut eiga aö máli. Umskráningar veröa ekki framkvæmdar á skoöunarstaö. Bæjarfógetinn í Kópavogi, 3. febrúar 1983. I afsláttur myndarömmum ■■ ummmmmmmrnmm LJÓSMYNDAÞJÓNUSTAN h.f. LAUGAVEGI 178 REYKJAVIK SIMI85811

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.