Morgunblaðið - 09.02.1983, Síða 13

Morgunblaðið - 09.02.1983, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. FEBRÚAR 1983 61 • Cyrelle Regis í baráttu viö Bernd Förster í leiknum gegn Vestur- Þjóðverjum á Wembley. Þó Regis hafi ekki verið valinn í landsliðshóp- inn fyrir leikinn gegn Grikkjum veit hann að hann er liöur í framtíðar- áætlunum Bobby Robsons. segir Richie Barker, fram- kvæmdastjóri Stoke City. Ástæða þess að Barker segir þetta er ekki aðeins að Stoke byrjaði mjög vel í haust — heldur einnig hin frá- bæra frammistaða Mark Chamb- erlain, sem hann keypti frá Port Vale í haust. Þessi 21 árs gamli hægri kantmaður, sem kostaði Stoke 180.000 pund í ágúst, hefur byggt upp meirihlutann af mörk- um liðsins í vetur. í fyrsta leikn- um með Stoke lék hann sér að landsliðsbakverðinum Kenny Sansom eins og köttur að mús, og hann hélt áfram á sömu braut. Það varð til þess að eftir aðeins átta leiki í 1. deildinni var hann valinn í landsliðshópinn. Foreldrar Chamberlain eru frá Jamaica, en þeir bjuggu í Burslem, útborg Stoke, er Mark fæddist. Hæfiieikar hans í knattspyrnu komu fljótt í ljós og lék hann átta leiki fyrir enska skólalandsliðið. 1. deildar liðin fengu mörg hver áhuga á honum, en það var þó Port Vale sem nældi í hann er hann hafði lokið námi og gerði hann samning við félagið. Mark var 17 ára er John McGrath var ráðinn fram- kvæmdastjóri liðsins. „Hann hafði gífuriega hæfileika, en hann var allt of latur á æfingum. Dag eftir dag varð ég að biðja hann að taka æfingarnar alvarlegar," segir McGrath. Um þetta segir Chamberlain: „Nokkrir Ieikmanna liðsins höfðu slæm áhrif á mig. Ég man eftir því, að John McGrath kallaði mig ólátasegg. Ég gat ómögulega skilið hann; ég sem var feimnasti og ró- legasti maðurinn hjá félaginu." Þrátt fyrir að Chamberlain væri lægst launaði leikmaður í aðalliði Port Vale á síðasta keppnistíma- bili — hann hafði um 3.000 krónur á viku — bað hann John McGrath aldrei um launahækkun. Hann hefði þó haft not fyrir peningana þar sem hann og bróðir hans Nev- ille höfðu fjárfest í húsi fyrir rúmlega hálfa milljón. McGrath var orðinn mjög pirr- aður á því hve Mark virtist vera sama um allt — hve mikið skorti á metnað hans til að ná langt. Dag einn bað hann Chamberlain að fara til Stoke og sjá liðið leika einn leik í 1. deildinni. Það yrði kannski til þess að hann færi að leggja meira á sig. Innan við ári seinna var hann seldur til Stoke, ekki aðeins vegna þess að hann óskaði þess sjálfur, heldur vegna þess að af fjárhagsástæðum gat Port Vale ekki neitaði tilboði Stoke. Allir hjá Port Vale urðu svo þunglyndir er hann var seldur að McGrath varð að útskýra fyrir öll- um — m.a.s. verkamönnunum á vellinum — hvers vegna hann var í rauninni seldur, til að reyna að lina þeirra andlegu þjáningar. „Hinn svarti Matthews“ John McGrath er þeirrar skoð- unar að það sé bæði rangt og til- gangslaust að „þjálfa“ Mark Chamberlain — vegna þess að hann sé fæddur knattspyrnumað- ur og eigi að hafa leyfi til að þroska hæfileika sína sjálfkrafa. „Á fyrstu æfingunni hjá Stoke var Richie Barker alltaf að finna að því að ég reyndi alltaf að plata bakvörðinn sem ég lék á móti," segir Mark Chamberlain. „Hann vildi að, um leið og ég fengi boltann, gæfi ég fyrir mark- ið á stóra miðherjann okkar. Fyrir rest sagði ég við hann: „Allt í lagi. Ég skal gera eins og þú vilt núna, en ekki í leiknum á laugardaginn.“ Chamberlain segir að auðveld- ara sé að athafna sig í 1. deildinni en þeirri fjórðu. „Varnarmennirn- ir í 1. deildinni gefa mér meira pláss og þeir sparka ekki eins mik- ið í mann og ég upplifði með Port Vale.“ Aftur á móti hefur hann ekki vanist því að vera orðinn stjarna. „Ég kom nýlega inn í sportvöruverslun til að kaupa mér skó; ég fékk þá, en náunginn vildi ekki taka við peningum fyrir þá. Hann sagði að ég væri góður strákur og ég gæti litið á skóna sem gjöf. 1 Port Vale þekkti fólk mig varla fyrir utan völlinn." I Stoke líkir fólk honum við frægasta leikmann sem nokkurn tíma hefur leikið með liðinu: Sir Stanley Matthews, sem fólkið dáði, og varð þjóðsagnapersóna áður en hann hætti að leika knattspyrnu. Mark tekur samlík- inguna sem hól, en hún gerir hon- um ekkert erfiðara fyrir. Hann hefur hæfileika til að reka knött- til að komast á samning hjá Wat- ford — sem var mjög illa launað; hann var kannski eitt af fórnar- lömbum gróusagnanna um svarta knattspyrnumenn: þeir séu óstöð- ugir í leik sínum og óáreiðanlegir. Einnig að þeir þoli ekki hina miklu hörku í knattspyrnunni. „Það eru allt of margar goðsög- ur til um svarta knattspyrnu- menn,“ segir Graham Taylor, stjóri Watford. „Þegar við lékum gegn Manchester United á Old Trafford, sýndi Blissett, að hann var óhræddur við Gordon Mc- Queen." Taylor á þarna við í'eik í deild- arbikarnum í október 1978, er Luther Blissett skoraði tvö skalla- mörk og tryggði liði sínu þar með áframhaldandi þátttöku í keppn- inni. Það þótti saga til næsta bæj- ar er 3. deildarlið Watford sló Un- ited út á heimavelli stórliðsins. Dæmigert fyrir hógværð Blissett sagði hann Ross Jenkins, félaga sinn í framlínunni, eiga allan heiðurinn af mörkunum tveimur. „Jenkins lokkaði Gordon Mc- Queen í burtu þannig að ég fékk nóg pláss til að skora," segir Bliss- ett. „Ég fékk þrjú góð færi, og nýtti tvö þeirra. Ég átti erfitt með að kyngja þessu. Er ég var lítill drengur hélt ég með United, og sá alltaf leiki þeirra er þeir léku í London. George Best var mitt uppáhald og ég lærði mikið af honum. Sérstaklega hvernig hann plataði menn og kom þeim úr jafnvægi. Leikurinn á Old Trafford var nokkurs konar upphaf hans sem atvinnuknattspyrnumanns — grunnurinn var lagður að ferlin- um í leiknum. Keppnistímabilið áður hafði hann verið með í 17 leikjum aðalliðsins, þar af 16 sinn- um sem varamaður. Luther Blissett er líkur Leon Spinks, ameríska hnefaleikaran- um, sem vann heimsmeistaratitil- inn af Muhammad Ali, og er hann kallaður Leon af félögum sínum í Watford. Blissett er góðvildin uppmáluð, alltaf brosandi þrátt fyrir þá erfiðleika sem hann hefur orðið að þola. Blissett lék sinn fyrsta landsleik er hann kom inná sem varamaður gegn Vestur-Þjóðverjum. Robson greip til þess ráðs að setja Gra- ham Rix, Tony Woodcock og Bliss- ett inn á í stað David Armstrong, Cyrelle Regis og Paul Mariner er staðan var orðin 2:0 fyrir Þjóð- verjana. Aðeins átta mínútur voru eftir en þrátt fyrir það náðu Eng- lendingar að minnka muninn með marki Woodcocks. Ólátaseggur — nei „Á þessu keppnistímabili finnst mér það ekki vera eins og hver önnur skylda mín að horfa á lið mitt spila — heldur mikil ánægja, • Ricky Hill, ffyrir fyrsta landsleik sinn, ásamt David Armstrong frá Southampton. inn af guðsnáð, og það hræðir hann ekki þó oft sé hann taklaður ólöglega. I 19 leikjum með Port Vale fengu mótherjar hans 11 sinnum áminningu fyrir að sparka hann niður aftan frá. Þeir bræður, Mark og Neville, léku saman hjá Port Vale, og nú eru þeir aftur samherjar. í sept- ember keypti Richie Barker Nev- ille einnig til Stoke. Sonur ofurstans John Barnes er yngstur þeirra sex svertingja sem Bobby Robson valdi í landsliðshóp sinn; hann fæddist í nóvember 1963 í Kings- ton á Jamaica, og enn ferðast hann með vegabréf sem gefið er út í þeim hluta breska ríkisins. John Barnes kom til London 1977 ásamt foreldrum sínum. Faðir hans var sjálfur góður knattspyrnumaður hér áður fyrr og lék tuttugu lands- leiki fyrir Jamaica sem miðherji. Foreldrar hans eru nú fluttir til Jamaica á ný, þar sem faðirinn starfar sem ofursti í hernum og móðirin vinnur í menningarráðu- neytinu. „Hefði ég ekki orðið eftir í Eng- landi til að leika knattspyrnu, væri ég örugglega í Bandaríkjun- um í háskóla nú,“ segir Barnes. Hann lék rugby er hann var í skóla, og það var ekki fyrr en hann varð 17 ára sem hann fór að leika knattspyrnu fyrir alvöru — á sunnudögum. Það var í einum af þessum sunnudagsleikjum sem einn af áhangendum Watford sá hann af tilviljun, og í hrifningu sinni lét hann Graham Taylor, stjórann á Vickarage Road, vita um leikmanninn. Þó enn séu skiptar skoðanir um svörtu leikmennina meðal enskra áhugamanna um knattspyrnu, finnst öllum leikmönnum í lands- liðshópnum þeir vera vinningur fyrir liðið. Phil Thompson, Liver- pool, talaði fyrir hópinn er hann sagði: „Þeir munu fylla okkur hina andagift með sínum „brasilíska" leikstíl, og þar af leiðandi styrkja allt liðið, og með fyndni sinni og áhuga fyrir íþróttinni sjálfri, sjá þeir til þess að tíminn í æfinga- búðunum fyrir leiki verður aldrei leiðinlegur.“ Aðeins Ricky Hill og Luther Blissett voru valdir í liðið fyrir leikinn gegn Grikkjum í Saloniki um miðjan nóvember; Viv Ander- son var enn meiddur og Mark Chamberlain og John Barnes voru látnir leika með unglingaliðinu gegn Grikkjum í Aþenu. Bobby Robson valdi ekki Cyrelle Regis, og kom það mörgum á óvart, en hann hafði einmitt staðið sig mjög vel gegn Vestur-Þjóðverjum. Landsliösmaöur að læra f staðinn var enn einn sverting- inn valinn í A-landsliðshópinn: hinn 21 árs Danny Thomas, hægri bakvörður frá Coventry. Hann hefur leikið nokkra leiki fyrir landsliðið skipað leikmönnum 21 árs og yngri, m.a. úrslitaleikina gegn Vestur-Þjóðverjum í haust í Evrópukeppni unglingalandsliða. Danny Thomas, fyrsti landsliðs- maðurinn frá Coventry síðan Reg Matthews var valinn í landsliðið 1957, var á óskalista margra 1. deildarliðanna í sumar. Arsenal, Manchester United og Notting- ham Forest vildu öll kaupa hann, en þrátt fyrir að geta fengið mun hærri laun hjá þessum félögum kaus hann að framlengja samning sinn við Coventry. „Ég á enn margt ólært, og ég held ég geti ekki fengið betri leið- beinanda en Dave Sexton, fram- kvæmdastjóra Coventry," segir Danny. „Ég vildi heldur ekki taka sömu áhættu og margir aðrir leikmenn hafa gert — að taka freistandi tilboðum frá stóru lið- unum, og daga síðan uppi í vara- liðinu.“ Það voru mikil vonbrigði fyrir Cyrelle Regis að vera ekki valinn í 22 manna hópinn fyrir leikinn gegn Grikkjum; en það var bót í máli fyrir hann að Bobby Robson sagði honum frá því áður en frá því var greint í fjölmiðlum. Enn- fremur fullvissaði Robson Regis um að hann væri liður í framtíð- a’aætlunum hans. Það er ekki ólíklegt að fleiri svertingjar séu inni í myndinni hjá Robson — en þessir sjö, sem nú þegar hafa fengið nasasjón af landsliðinu. Þýtt og endursagt — SH. • John Barnes (t.v.) og Luther Biissett gera það gott hjá Watford um þessar mundir. Blissett lék sinn fyrsta landsleik í vetur, og gegn Luxemborg skoraði hann þrjú mörk. Barnes er fastur maöur í ungl- ingalandsliðinu og þess varla langt að bíða að hann fari að leika með aðalliðinu.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.