Morgunblaðið - 09.02.1983, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 09.02.1983, Qupperneq 14
62 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. FEBRÚAR 1983 Páskadagskráin Ahugi fyrir ensku knattspyrn- unni er gífurlegur hér á landi og hefur veriö nokkuð um það und- anfarin ár að knattspyrnuáhuga- menn hafa ferðast til Englands til að fylgjast með leikjum. Það þyk- ir mikið „upplifelsi" aö „fara á völlinn“ í Englandi, enda stemmningin oft á tíöum ólýsan- leg og gaman að fylgjast með þeim frægu köppum, sem laug- ardag eftir laugardag prýöa sjón- varpsskjáinn hér á landi, með eigin augum. Algengast er að landinn fari þessara erinda út fyrir landstein- ana um páska — þá eru menn yfir- leitt í fríi og þá er einnig mikið um að vera í deildarkeppninni ensku og lokaslagurinn að hefjast. Föstu- daginn langa ber upp á 1. apríl i ár, páskadagur er því sunnudagur 3. apríl og annar í páskum að venju daginn eftir. Eins og áður sagöi er mikið leikið yfir páskahátíðina í Englandi. Á föstudaginn langa er ekkert leikið í 1. deild, en tveir leik- ir eru þá i 2. deild: Charlton og Chrystal Palace mætast í London, og verður örugglega hart barist eins og venjulega er tvö Lundúna- lið eigast við. Hinn leikurinn er við- ureign Oldham og Blackburn. Laugardaginn 2. apríl er heil umferð að vanda í deildunum fjór- um. Þessir leikir eru þá á dagskrá i 1. deild: Arsenal—Southampton Birmingham—Swansea Brighton—Tottenham Ipswich—Aston Villa Liverpool—Sunderland Luton—Norwich Man.Utd.—Coventry Nott. Forest—Everton Stoke—Notts County WBA—Man. City West Ham—Watford Tveir leikir eru í London, sá fyrsti í röðinni og sá síðasti. Þeir sem vilja halda viö heimsborg- ina purfa því ekki að láta sér leið- ast þar, en nokkrir leikir eru einnig tiltölulega stutt frá. Luton og Norwich leika nálægt London, og þá er mjög stutt bæði til Brighton og Ipswich. T.d. tekur aðeins um eina klukkustund að komast til Ipswich í lest (sem fer frá járn- brautarstööinni í Liverpool Street) og aðeins nokkur hundruð metra gangur er frá stööinni í Ipswich á Portman Road, leikvang Ipswich Tdwn. Á sunnudeginum er ekkert leik- ið, en á annan í páskum eru nokkr- ir athyglisverðir leikir. Aðdáendur heimsborgarinnar geta enn sparað sér lestarferðirnar og ekki spillti aö þeir væru áhangendur Arsenal eða Tottenham. Þau mætast einmitt á White Hart Lane og verður það að teljast stórleikur dagsins. í London leika einnig Watford og Luton, og telja verður líklegt aö leiklrnir fari ekki fram á sama tíma. Gætu þeir sem vildu pví séð þá báða. Leikirnir þennan dag eru annars þessir: Aston Villa—Birmingham Everton—Stoke Man. City—Liverpool Norwich—Ipswich Notts County—WBA Sunderland—Man. Utd. Tottenham—Arsenal Watford—Luton Daginn eftir eru þrír leikir á dagskrá í 1. deildinni. Coventry er á heimavelli gegn Nottingham For- est, Southampton fær Brighton í heimsókn og West Ham fer til Swansea og leikur við heimamenn. Því má skjóta að hér að mið- vikudaginn 6. apríl veröa leikir í Evrópukeppnunum í knattspyrnu og verði einhver staddur í Englandi þá væri ekki vitlaust að drífa sig á völlinn verði einhverjir leikir þar á dagskrá. Meðfylgjandi kort sýnir vel hvar liðin eru staðsett í Englandi og ætti lítið vandamál að vera að komast á staðina sé viljinn fyrir hendi. Rétt er að benda á að lestarferð til Southampton tekur aðeins um eina klukkustund, svipað og til Ipswich, enn skemur er lestin að skjótast til Brighton og vilji einhver sjá stórliöin í Liverpool eða Manchester leika á heimavöllum sínum tekur sú ferð tæpa þrjá tíma. Nánar tiltekið tekur ferð til Liverpool tvær klukkustundir og fjörutíu og fimm mínútur. Ef einhver hefur hug á að leggja leið sína til Englands um páskana i þeim erindagjörðum aö horfa á knattspyrnu er honum hér með óskað góðrar og ánægjulegrar ferðar og vonandi koma þessar upplýsingar þeim sama að gagni. Að lokum: passið ykkur á vasa- pjófunum, og þegar á völlinn kem- ur, athugið fyrst hvort miöar fáist keyptir í miðasölunum. Svarta- markaðsbraskarar verða að líkum ekki lengi aö bjóöa ykkur miöa, en vert er að athuga hinn möguleik- ann fyrst. — SH Meistaramótið í frjálsíþróttum: Langstökkvarar lyftu mótinu upp LANGSTÖKKVARAR lyftu innan- hússmeistaramótinu í frjáls- íþróttum upp, það eru orð aó sönnu, og vonandi fá frjáls- íþróttaunnendur oft upplyftingu af þessu tagi í sumar. A laugar- dag stukku þrír yfir sjö metra, lengst Jón Oddsson KR, sem stökk lengra en nokkur annar ís- lendingur hefur áóur gert utan húss eða innan, eða 7,52 metra. Kristján Harðarson Á gaf Jóni lítt eftir og stökk 7,41 og Stefán Þór Stefánsson ÍR stökk 7,07 metra. Þá stökk Bryndís Hólm ÍR 5,92 metra á sunnudag, átti góða seríu og 6 metrarnir eru aðeins tíma- spursmál. Árangur Bryndísar og Jóns eru ný Islandsmet, Jón bætti met Kristjáns Harðarssonar um 22 sentimetra og Bryndís eig- iö met um 8 sentimetra. „Ég keppi eflaust ekki nema á einu frjálsíþróttamóti í sumar, Bik- arkeppninni," sagði Jón Oddsson við blaðamann eftir langstökks- keppnina. Hann kvað hafa sótt frjálsíþróttaæfingar frá áramótum og því búið sig sérstaklega undir þetta mót. „Átti kannski ekki von á því að stökkva alveg þetta langt, en það var gaman að þessu,“ sagði Jón. Jón hyggst stunda knattspyrnuna af krafti í sumar. Það sem einkenndi mótið kannski öðru fremur var að ungir íþróttamenn, sem verið hafa efni- legir síðustu misseri, létu einna mest að sér kveða og sýndu að þeir munu láta að sér kveöa í sumar og næstu framtíð. Þannig var Jóhann Jóhannsson, 18 ára spretthlaupari úr ÍR, í sér- flokki í 50 metra hlaupi, kom rúm- um metra á undan öörum í mark. Minnst hefur veriö á Kristján Harö- arson og Stefán Þór í langstökk- inu. Kristján, sem er á 19. aldurs- ári, stórbætti sig í langstökkinu. Stefán bætti sig þar einnig stórum og hélt upp á tvítugsafmælið á sunnudag með því að jafna ungl- ingametiö í grindahlaupinu. Þá eru Bryndís Hólm ÍR, Hrönn Guö- mundsdóttir |R í mikilli framför og Helga Halldórsdóttir KR viröist vera að ná sér á strik að nýju. Loks er Hildur Björnsdóttir Á ungur og efnilegur millivegalengdarhlaupari. Vegna þrengsla er ekki hægt að fjalla nánar um mótið aö svo stöddu, en úrslitin uröu annars sem hér segir: KARLAR: 50 metra hlaup Jóhann Jóhannsson IR 5,8 Hjörtur Gislason KR 5,8 Gisli Sigurösson KR 6,0 Gunnar Lúövíksson Á 6,3 800 m hlaup: Magnús Haraldsson FH 2:06,3 Viggó Þ. Þórisson FH 2:08,1 Siguröur Haraldsson FH 2:08,3 Gunnar Birgisson ÍR 2:13,0 Helgi F. Kristinsson FH 2:19,2 Finnbogi Gylfason Fh 2:22,1 Birgir Jóakimsson ÍR 2:25,3 Einar P. Tamini FH 2:31,5 1500 m hlaup: Magnus Haraldsson FH 4:22,8 Gunnar Birgisson IR 4:29,7 Ómar Hólm FH 4:32,1 Magnús Pálsson FH 4:37,5 Viggó Þ. Þórisson FH 4:41,9 Ingvar Garöarsson HSK 4:45,6 Lýöur Skarphéðinsson FH 4:49,6 50 m grindahlaup: Hjörtur Gislason KR 6,8 Gísli Sigurösson KR 6,9 Stefán Þ. Stefánsson IR 6,9 Siguröur Haraldsson FH 7.8 Hástökk: Stefán Þór Stefánsson ÍR 1,90 Gunnar Sigurösson UMSS 1,90 Kristján Sigurösson UMSE 1,90 Gunnlaugur Grettisson ÍR 1,75 Siguröur Magnússon ÍR 1,75 Langstökk: Jón Oddsson KR 7,52 Kristján Haröarson Á 7.41 Stefán Þ. Stefánsson ÍR 7,07 Guömundur Sigurösson UMSE 6,99 Bragi Gunnarsson ÍFB 6,43 Örn Gunnarsson USVH 6,40 Gunnar Sigurösson UMSS 6,38 Páll J. Kristinsson UBK 6,37 Þrístökk: Guömundur Sigurösson UMSE 14:54 Kári Jónsson HSK 13,81 Örn Gunnarsson USVH 13,37 Gunnar Sigurösson UMSS 13,24 Jóhann Jóhannsson ÍR 13,15 Ólafur Þ. Þórarinsson HSK 12,74 Árni Svavarsson HSK 12,62 Helgi F. Kristinsson FH 12,22 Kúluvarp: Helgi Þór Helgason USAH 15,40 Eggert Bogason FH 14,29 Garöar Vilhjálmsson UIA 13,78 Óskar Thorarensen KR 12,46 Gísli Sigurösson KR 12,23 4x3 hringir boðhlaup: Sveit FH 3:25,4 Sveit IR 3:28,3 Sveit UBK 3:34,2 KONUR: 50 metra hlaup: Helga Halldórsdóttir KR 6.6 Bryndís Hólm ÍR 6.6 Sigurborg Guömundsdóttir Á 6,6 Aöalheiöur Hjálmarsdóttir Á 6.7 800 metrar: Hrönn Guömundsdóttir ÍR 2:23,6 Hildur Björnsdóttir Á 2:26,1 Elín Blöndal UMSB 2:34,9 Marta Leósdóttir ÍR 2:36,3 Anna Valdimarsdóttir FH 2:36,5 Súsanna Helgadóttir FH 2:37,0 Langstökk: Bryndís Hólm ÍR 5,92 Birgitta Guöjónsdóttir HSK 5,21 Linda B. Loftsdóttir FH 5,15 Sigriöur Siguröardóttir KR 5,12 Bryndís Guömundsdóttir Á 5,03 Linda B. Guömundsdóttir HSK 4,83 50 metra grindahlaup: Helga Halldórsdóttir KR 7.2 Sigurborg Guömundsdóttir A 7,3 Birgitta Guöjónsdóttir HSK 7,9 Hástökk: 'Hanna Símonardóttir UMSB 1,45 Sigríöur Guöjónsdóttir HSK 1,45 Kúluvarp: Soffía Gestsdóttir HSK 12,68 Helga Unnarsdóttir UÍA 11,93 Margrét Öskarsdóttir ÍR 10,50 4x3 hringir boðhlaup: Sveit IR 3:59,1 Sveit FH 4:00,4 — ágás.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.