Morgunblaðið - 09.02.1983, Page 15

Morgunblaðið - 09.02.1983, Page 15
mannatekna til raunverulegs og stóraukinnar landgæslu, áróðurs, eftirlits, aðstoðar, fræðslu og leið- beininga og afmá þá þjóðarskömm, sem nirfilsháttur á þessu sviði hefur verið? Landverðir, náttúruverndárfólk hefur mátt þola erfið ár. Næsta þögulir hafa iandverðir þraukað, daprir í bragði. Síðastliðið haust bráði svo skyndilega af þeim. Tilefnið? Eitthvað af því, sem ég lýsti í upphafi þessarar greinar? Heilir gróðurflákar niðursneyddir af hjólförum á afréttum? Rusl og ill umgengni um nítján þúsund ferðamanna á tveimur mánuðum í Landmannalaugum? Nei. Það var rallakstur. Opið bréf til mín í Morgunblað- inu. Umhverfisspjöll í Ljóma-ralli. Sýnið Ljóma- rallinu sanngirni I opna bréfinu létu landverðir í ljós áhyggjur vegna áforma Jean- Claude Bernhard um stórt, alþjóð- legt ísiandsrall næsta sumar. Það var ósköp eðlilegt. Óttinn við hið ókunna. En fullyrðingar þeirra út af Ljóma-rallinu vekja mér undr- un. Lítum á staðreyndir málsins. Fimm, segi og skrifa fimm keppnisbílar óku Fjallabaksleið nyrðri fram og til baka í þessu ralli. Það varðaði brottvísun úr keppni að aka ekki veginn, fyrir- skipaða leið. Við, sem þessa leið ókum, fórum eftir veginum og ekkert annað. Getgátur landvarða um spjöll af völdum viðgerðabíla eru lítt skilj- anlegri. Viðgerðar- og þjónustu- bílar voru innan við tíu, sem óku eftir veginum um Dómadalsleið inn á afmarkað viðgerðasvæði, sendið og gróðurvana, á vegamótum Dómadals- og Sigölduleiðar. Sam- kvæmt reglum keppninnar voru viðgerðir á Dómadalsleið, sem var sérleið, bannaðar, að viðlagðri brottvísun viðkomandi keppnis- bíls úr keppni. Einnig varðaði brottvísun, ef viðgerðabíll var inni á leiðinni meðan keppnisbílar óku hana. Sama var að segja um eystri hluta leiðarinnar, frá Jökulgils- kvísl að Skaftártungu. Hver voru þá spjöllin? Við eftirgrennslan Akstursíþróttaráðs hefur það eitt verið tilgreint, að þjónustubíll ft- alans hafi við Landamannalaugar, þar sem hann var í almennri um- ferð á stuttri ferjuleið, ekið út fyrir vegabrún með tvö hjól. Illt, ef satt er, en að fordæma rallakst- ur á þessum forsendum er nú eins og að fordæma skóg fyrir eitt föln- að laufblað. Ekki veit ég til þess að nokkrir áhorfendur hafi farið sérstaklega inn á Fjallabaksleið til að horfa á rallið. ftalskir sjónvarpsmenn tóku hins vegar ágæta landkynn- MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. FEBRÚAR 1983 63 ingarmynd, sem sýnd var í ítalska sjónvarpinu. Ég vek athygli á því, að Ljóma- rallið er alþjóðleg rallkeppni, sem hefur verið haldin þrisvar. Ég ætla bara að vona, að þetta sóma- rall falli ekki undir fordæmingu landvarða, Landverndar og Nátt- úruverndarráðs á alþjóðlegri rallkeppni hér á landi. I fyrstu tveimur Ljóma-röllunum komu ekki fram neinar kvartanir um spjöll, og í hitteðfyrra var Fjalla- baksleið nyrðri ekin, án kvartana. Aðstandendur Ljóma-rallsins vildu reyndar gjarnan halda hana í septemberbyrjun, en það var ekki hægt, vegna þess að þá geys- ar margfalt stærra rollu-rall um alla afrétti! Nei, það er væntan- lega íslandsrallið hans Bernhards, sem átt er við, og það er allt annar handleggur. Fyrirkomulag og reglur eru að vísu í rall-formi, en það er miklu stærra, og farartækin eru fjöl- breyttari. Hvað vitum viö um þetta íslandsrall? Þegar landverðir rituðu mér opna bréfið í haust, taldi ég mig ekki vita nógu mikið um það til þess að geta tekið til þess afstöðu. Þetta hefur hins vegar ekkert vaf- ist fyrir Landvernd og Náttúru- verndarráði. Stórt rall getur haft vissa kosti í för með sér, ekki síður en galla. Bernhard ætlar að hafa í sinni þjónustu tuttugu eftirlitsbfla, þyrlu og flugvél til að sjá um, að reglum keppninnar verði fylgt, og auk þess sjúkrabíl. Hann áætlar, að þátttakendur i rallinu muni skilja eftir í landinu um hálfa milljón dollara eða um tíu milljón krónur á tveimur vikum. Umfang og velta svo stórrar keppni getur því gefið landsmönn- um tækifæri og aðstöðu til þess að hafa með henni eftirlit og gera kröfur til hennar. Bernhard hefur upplýst, að keppnisbílar megi ekki fara út af fyrirskipaðri leið og við- gerðir ekki fara fram á sérleiðum, að viðlagðri brottvísun úr keppni. Viðgerðar- og þjónustubflar eru nán- ast skyldir til að vera á hringvegin- um og sérstök viðgerðarsvæði verða þar. 1 bréfi landvarða til mín í haust var úrklippa með mynd af Bern- hard, og sögðu landverðir, að á henni sæist, að kappinn væri utan vegar í óbyggðum. Kæru landverð- ir, þessi mynd var tekin á stæði fyrir bíla útivistarfólks í Öskju- hlíð í Reykjavík. í bréfi sínu gefa landverðir í skyn, að rallakstur sé íþrótt van- þróaðra Afríkuþjóða, en það er öðru nær. Vagga þessa sports er í Evrópu, og um alla álfuna, allt austur í Sovétríkin, eru rallmót haldin í hundraða- og þúsundatali. Keppnisbílar skipta ekki aðeins tugum og hundruðum í hverju ralli, heldur skipta áhorfendur tugum og hundruðum þúsunda. I sænska rallinu kynntist ég hvern- ig hægt er að halda slíka keppni án spjalla, þótt aðstæður séu eins misjafnar og löndin eru mörg. Það var með góðri framkvæmd, skipulagningu, reglum, fræðslu og áróðri og aga með tilheyrandi sektum og viðurlögum. Reglurnar og viðurlögin verða til þess, að keppendur verða undir smásjá hvers annars ekkert síður en eftir- litsmanna. Er ekki sama, af hverju tekin er mynd? Náttúruverndarmenn hafa áhyggjur af blaðamönnum og kvikmyndatökumönnum frá mörgum sjónvarpsstöðvum í Evr- ópu. Ekki fæ ég séð, hvaða munur er á þeim og öðrum myndatöku- mönnum, sem hingað koma á hverju sumri. Ég minni á kvik- myndirnar „Út í óvissuna" og „Leitin að eldinum". Ef hægt var að leysa vandamálið í sambandi við þessar tökur, hlýtur það líka að vera hægt í sambandi við myndatöku af ralli. Áhorfendur Enn er spurning um fram- kvæmd, og þarf varla að hafa um mörg orð. Þeir eru sárafáir hér, miðað við það, sem annars staðar gerist, og þá helst þeir, sem hvort eð er eru á ferli á viðkomandi slóð- um. Hin gullna rall-regla Náttúruvendarmönnum finnst rallakstur stinga í stúf við við- leitni til þess að fá fólk til þess að aka aðeins merktar leiðir. En það er einmitt það, sem er aðalregla í rallkeppni: að aka fyrirfram ákveðinn veg frá upphafi keppni til enda að viðlagðri brottvísun úr keppni. Náttúruverndarráð hefur áhyggjur af vegunum. Um með- ferð vega á mótshaldari við eig- endur þeirra, landeigendur eða Vegagerð ríkisins. Allt sýnist mér þetta vera samkomu- lagsatriói og spurning um tillitssemi og samstarfsvilja aðilja fremur en tilefni til fyrirfram fordæmingar að óreyndu. Hvers vegna for- dæming að óreyndu? Fulltrúar frá Akstursíþrótta- ráði hafa fylgst með ralli, sem Bernhard hélt í Afríku í haust. Umsögn þeirra hef ég heyrt og um leiðir, sem Bernhard hefur áhuga á í sumar. Flestar þeirra, eins og til dæmis Spengisandur, sýnast mér ekki skapa nein óleysanleg vandræði. Ég hef efasemdir um nokkra kafla, þó ekki hina sömu og Náttúruverndarráð, og því ætti að vera hægt að breyta, ef þarf. Mér sýnist ekki rétt, að vísa manninum að óreyndu á dyr. Hon- um hefur tekist vel upp við að halda svipuð mót í þremur heims- álfum og ekkert fráleitt að hann fái að halda hér keppni í sumar til reynslu, ekkert síður en mönnum sýndist rétt að leyfa töku viðamik- illa kvikmynda á viðkvæmum og fögrum stöðum. Hinir fögru staðir verða oft fyrir vali, vegna þess fegurðar- og landkynningargildis, sem þeir hafa fyrir viðkomandi mynd. Þetta er spurning um vilja óg framkvæmd. •• Ef rallbílar eiga ekki heima í íslenskri landkynningarmynd, þá eiga geltandi byssur í glæpamynd- um eða öskrandi frummenn og villidýr það ekki heldur. Og ekki heldur jepparnir, trukk- arnir og hópferðabílarnir, sem rjúfa öræfakyrrðina, en eru nauð- synlegir til þess að fólk geti notið fegurðar landsins. Ekki skal standa á mér aö leggj- ast gegn stórri, alþjóðlegri rall- keppni hérlendis eða setja mótshald- ara harða kosti, ef reynsla af henni gefur tilefni til. Ljúfur hávaði? Að lokum þetta: Þótt vélarháv- aði í eftirlitsþyrlu eða bíl land- varðar eigi einhvern daginn eftir að rjúfa öræfakyrrðina, verður það vonandi ljúfur hávaði í eyrum náttúruverndarmanna, sem vilja hindra spellvirkja í að eyðileggja verðmæti landsins. Kannski er ekki óhugsandi að umhverfisverndarmenn muni þá hugsa hlýtt til ferðamannanna, landkynningarmannanna, — og jafnvel rallaranna, sem skópu beint og óbeint tekjurnar til þyrlukaupanna. Við eigum örfá eintök eftir af þessum frábæru jeppum árgerð '82. 8cyl. 318 ci. Sjálfskiptur með aflstýri, aflbremsum og Deluxe innréttingu. Bjóddu veðurguðunum byrginn - á Oodac Ramcharocr SE '82 Tryggðu þér einn, - strax í dag. JÖFUR HF Nýbýlavegi 2 - Kópavogi - Simi 42600

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.