Morgunblaðið - 19.02.1983, Side 2

Morgunblaðið - 19.02.1983, Side 2
50 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. FEBRÚAR 1983 r/^/y ,1 Eins og skáldið sagði... „Oll erum vid í ræ.sinu, en sum okkar eru að horfa á stjörnurn- ar.“ (Oscar Wilde) Kosinski og herra Chance í viðtali við rithöfundinn Jerzy Kosinski sem nýlega birtist í Dagens Nyheter fjallar hann m.a. nokkuð um aðalpersónuna í sögunni „Fram í sviðsljósið", sem komið hefur út á íslensku, en kvikmynd eftir sögunni með Peter heitnum Sellers í aðalhlutverki hefur verið sýnd hér í marga mánuði. Kosinski segir eitthvað á þessa leið: „Mr. Chance, Chauncey Gardiner, er að miklu leyti alger andstaða við aðalper- sónurnar í hinum sögunum mínum, en hann er þó eins og þær, í andstöðu við sam- Aukinn og endurbættur Joyce EINS og kunnugt er, m.a. af frábærum írskum sjónvarps- þáttum, hefði írska skáldið Jam- es Joyce orið hundrað ára á þessu ári, hefði hann lifað. Af því tilefni hafa menn hér heima og úti í löndum efnt til margvís- legra athafna og framkvæmda. Hér heima er því nú komin út hjá Máli og menningu bókin „í Dyflinni" (Dubliners), smásögur skáldsins í þýðingu Sigurðar A. Magnússonar. Eitt af því sem menn hafa gert sér til hátíðabrigða af þessu til- efni í útlendum bókmennta- heimi, er að endurútgefa verk Joyce og bækur um hann streyma um bókadálka blaðanna eins og lækir í vorleysingum, margir og hver öðrum líkir, enda allir fullir af vatni. Nýlega sendi Oxford útgáfu- fyrirtækið í Englandi frá sér aukna og endurbætta útgáfu á ævisögu Joyce eftir Richard Ellmann frá árinu 1959 og með öllum viðbótunum er bókin nú orðin litlar 887 blaðsíður. Að frátöldum nýjum ljósmyndum þykir sá fróðleikur hvað skemmtilegastur í viðbótinni, að Joyce mun hafa átt í einhverju ástarsambandi við Gertrude nokkra Kaempffer árið 1916. Að „Hr. Joyce ... hefur veitt því athygli, að það muni hafa verið gerð bylting í Rússlandi í októ- ber, 1917. Við nánari athugun hefur hann þó uppgötvað að Októberbyltingin átti sér stað í nóvember sama ár. Samkvæmt þeim upplýsingum sem honum hefur reynst unnt að afla sér hingað til, er erfitt að dæma um mikilvægi þessa atburðar og hann óskar aðeins að láta þess getið, að eftir undirskrift ritara yðar að dæma, geti breytingarn- ar ekki verið miklar." (Byggt á The Sundav Telegraph.) öðru leyti er víst tíðindalítið á þessum vígstöðvum, en þó þykir svar Joyce við skriflegri spurn- ingu frá „ritara Alþjóðasamtaka byltingarsinnaðra rithöfunda" hreinasti eðalsteinn, en þetta svar hefur ekki birst áður. Spurningin var þessi: „Hvaða þýðingu hefur Októberbyltingin haft fyrir þig sem rithöfund?" Svar skáldsins er svolátandi, í lauslegri þýðingu: félagið, eða öllu heldur utan þess og er dæmi um sér- stæða afstöðu til þess. Hann hefur aldrei þurft að fara út í heiminn og afstaða hans breytist í raun lítt þótt at- burðirnir reki hann út. Hann er ánægður með sjálf- an sig, þar sem hann óskar sér einskis og þráir ekkert. Hann veit að um leið og maður fer að þrá eitthvað utan sjálfs sín er maður að fórna nokkru af sjálfum sér. Þess vegna er kynlíf honum ómögulegt. Því í kynlífi þarf maður á öðrum að halda, verður að hugsa um ein- hvern annan aðila en sjálfan sig og það kostar vissan sál- arfrið. Þráin er óvinur í hans augum. Ólíkt því sem hefur gerst með allar aðrar söguhetjur mínar, þá hefur enginn viljað heimfæra hans eiginleika upp á mína eigin persónu, hann er reyndar einstæður í nútíma- bókmenntum. Chance bend- ir á nýja leið: Kannski þarf maður ekki að fara út í heim, kannski á maður bara að vera kyrr með sjálfum sér, sé þess nokkur kostur." — Myndin var góð. „Já, ég var hissa. Hún var mjög vel heppnuð. Þetta er líka mjög myndræn saga, vel til þess fallin að vera kvikmynduð." — Ertu með fleiri kvik- myndir á döfinni? Jerzy Kosinski „Sagan „Passion Play“ verður kannski kvikmynduð bráðlega. Ég er búinn að gera kvikmyndahandrit og hef fengið leikstjóra til verksins, nú er vandinn að finna rétta leikara í hlut- verkin. Það gæti reynst strembið." — Hvað með sjálfan þig? „Nei. Ég fékk meira en nóg af því að leika í kvik- myndinni „Reds“. Slíkt geri ég aldrei oftar. Ég vil frekar skrifa bækur, hlusta á rokk- tónlist og leika hesta-póló.“ — Þýtt og endursagt úr DN. Viðtal: J. Sjöström. Hugsandi hjarta Umsjón: Sveinbjörn I. Baldvinsson í lok síðasta árs kom út í Hollandi dagbók Etty Hilles- um en hún var ung kona þeg- ar heimsstyrjöldin síðari braust út og líkt og aðrir gyðingar var hún flutt í Góðar sölur í Þýskalandi Það er ekki mjög algengt að norrænir rithöfundar eigi miklu láni að fagna á hinum alþjóð- lega bókamarkaði. Þó nær stundum einn og einn að kveða sér hljóðs utan Norðurland- anna. Nokkrir íslenskir höfund- ar hafa afrekað það, t.d. Hall- dór Laxness, Gunnar Gunnars- son, Jóhann Sigurjónsson, Jón Sveinsson (Nonni) og Krist- mann Guðmundsson, en allir þessir höfundar hafa m.a. feng- ið verk sín útgefin í Þýskalandi og er það algengur hápunktur á ferli rithöfunda frá okkar heimshorni. Um þessar mundir hefur danskur rithöfundur átt bók á metsölulista Spiegel-tímarits- ins í Þýskalandi í samfellt tvö ár, en deila má um hversu merkar bókmenntir eru þar á ferðinni. Þessi maður er grínist- inn kunni, Willy Breinholst, en um þessar mundir er bók hans, „Hallo, hier bin ich!“ í fyrsta sæti Iistans. Auk þess á hann svo fjórar aðrar bækur á listan- um, en síðustu tvö árin hafa ekki aðrir norrænir skrifarar komist þar á blað en kvik- myndastjörnurnar Liv Ullman og Ingrid Bergman. Ævisögur þeirra gerðu þar stuttan stans. Það er ekkert einfalt mál að koma bók á þennan lista því í viku hverri munu um það bil 30 þúsund þýskir bókatitlar keppa um þessi tíu sæti. Af Breinholst er það ennfremur að segja, að útgáfuréttur á öllum þessum metsölubókum hans og fleirum til hefur nýlega verið seldur einu stærsta bókaforlagi í Bandaríkjunum, Simon & Schuster. En á meðan Breinholst situr með fimm bækur á metsölulist- anum í Spiegel, verða viður- kenndir spámenn ritlistarinnar að láta sér lynda að komast ekki þar á blað. Þeirra á meðal eru Hemingway, Somerset Maugh- am, Tolkien, Thomas Mann, George Orwell, Stefan Zweig og Heinrich Böll. — 0 tempora, o mores! mundi nú einhver segja. Bestsellerautor Willy Breinholst 5 Spiegel-Bestseller-Titel in einer Woche. iWiDliHilibvl. BESTSEllER 1 S^h-°htb.nich Bastei-Lubbe (60024j- 0 ^!ChMáma - Hallo Papa # Rastei-Lubbe (600 --- 1 Brelnholst Guck ma,i Í*a?£nn59l ^ Rasiei-Lubbe j600b9j— Breinholst: Liebe macht Spað Bastei-Lubbe (6007U) Úrklippa, sem sýnir auglýsingu frá útgefanda bóka Breinholst i Þýskalandi. fangabúðir og þaðan í út- rýmingarbúðir og átti hún ekki afturkvæmt þaðan. Skylt er að taka fram að þetta er nú að nokkru leyti byggt á ágiskun, þar eð rit- vallarstarfsmönnum hefur ekki auðnast að afla sér óyggjandi upplýsinga um ævilok þessarar ágætu konu. Alltént er það svo að Etty Hillesum var nær algerlega óþekkt nafn í Hollandi þar til dagbók hennar úr stríðinu kom út í fyrra, en hún hefur vakið geysilega athygli og er jafnvel talað um að hér sé á ferðinni einhver merkasta bók um þetta efni síðan Dagbók Önnu Frank kom út. Þessi bók heitir á frummál- inu „Het Verstoorde Leven“ sem á íslensku merkir eitthvað nálægt „Röskun á lífi“ og hefur selst í stórupp- lagi og er í þann veginn að koma út á ensku. Skrif Etty lágu á kistu- botni í nær fjörutíu ár, áður en nokkur fékkst til að gefa þau út, en nú þegar er komin út bók númer tvö, en það er bók sem hefur að geyma bréf sem hún skrifaði í fangabúð- unum Westerbork, en þangað voru hollenskir gyðingar sendir áður en þeir voru fluttir í útrýmingarbúðir í Þýskalandi og ber nýja bókin nafnið „Het Denkende Hart van de Barak“ á frummálinu, sem útleggst á íslensku „Hugsandi hjarta fangabúð- anna“.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.