Morgunblaðið - 19.02.1983, Qupperneq 3

Morgunblaðið - 19.02.1983, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. FEBRÚAR 1983 51 Dalvík: Námsflokkarnir njóta vinsælda Dalvík, 12. febrúar. Á IINDANFÖRNUM árum hafa verið starfræktir námsflokkar á Dalvík. Hef- ur fólk getað sótt þangað ýmiss konar tómstundanám. Mikill vöxtur hefur nú hlaupið í sUrfsemi flokkanna, en nú í haust fól skólanefnd skólastjóra Dal- víkurskóla að athuga hvort möguleiki væri á áfanganámi í námsflokkum. f framhaldi af því var svo kosin 3ja manna nefnd til að annast undirbún- ing og skipulag á sUrfsomi náms- flokka á Dalvík en í henni áttu sæti auk skólastjóra Ólafur Sigurðsson, kennari og fyrrum forstöðumaður námsflokka, og Inga Benediktsdóttir, fulltrúi í skólanefnd. Nefndin hófst þegar handa og gerði könnun á viðhorfi bæjarbúa til starfsemi námsflokka og náði könn- unin einnig til íbúa í Svarfaðardal og á Árskógsströnd. Mikill áhugi virtist vera meðal fólks á námi er gæfi ein- hver réttindi svo og tómstundanámi. Var því ákveðið að bjóða upp á stutt námskeið í ýmiss konar tómstunda- námi svo og áfanganám er gæfi ein- ingar til aukins náms og er kennt samkvæmt námskrá fyrir fram- haldsskóla á Norðurlandi. Auglýst var kennsla í ensku, íslensku, stærðfræði, bókfærslu, vélritun, smíðum, bókbandi og leðursmíði og eru samtals 35 nemendur skráðir í bóklegt nám og 27 í verklegt.nám. Þá hafa námsflokkar tekið að sér að annast námskeið fyrir starfsfólk Dalbæjar, dvalarheimilis aldraðra, og leikskólans á Dalvík. Eru þetta 2 námskeið og eru 22 nemendur skráð- ir á þau. Munu því verða um 85 nem- endur sem sækja nám í námsflokka á Dalvík nú í vetur í einni eða fleiri greinum. Þess er vænst að í framtíðinni verði hægt að starfrækja fleiri áfanga í hinum ýmsu námsgreinum þannig að fólk geti safnað sér nokkru magni eininga til áframhald- andi náms. Þá hefur einnig verið um það rætt að standa að námskeiða- haldi í samvinnu við fyrirtæki á staðnum fyrir starfsfólk þeirra í ýmsu er lýtur að störfum fólksins. Gert er ráð fyrir að skipulag og stjórnun námsflokka flytjist á hend- ur grunnskólans á Dalvík en hingað til hafa námsflokkar verið algjör- lega aðskildir skólanum með eigin forstöðumann. — Frtiuriurir. 626 4 dyra Saloon Verðlaunabíllinn frá Japan! Hinn nýi framdrifni MAZDA 626 er nýr frá grunni og hannaður til að sinna kröfum fólks á þessum áratug um bíl, sem er rúmbetri, betur útbúinn, þægi- legriíakstri og sparneytnari en sam- bærilegir bílar, en samt ótrúlega ódýr. 3 mismunandi gerðir eru fáanlegar: 4 dyra Saloon, 2 dyra Coupe og 5 dyra Hatchback; vélarstærðir eru tvær: 1.6 L 81 hö. DIN og 2.0 L 102 hö. DIN. Þar sem eftirspurnin eftir þessum vin- sæla bíl er geysileg erlendis munum við aðeins fá takmarkaðan fjölda bíla á þessu ári. Tryggið ykkur því bíl sem fyrst. BILABORG HF. Smiöshöföa 23 sími 812 99

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.