Morgunblaðið - 19.02.1983, Page 4

Morgunblaðið - 19.02.1983, Page 4
52 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. FEBRÚAR 1983 — Af hverju — Allir bestu vinir minir hafa látiö líf sitt fyrir mig. segir þú þad? — Ég hef sjálfur hengt þá. (1935.) „Samúðogand- styggð eru bannorð" Um norska skopteiknarann Blix í september síðastliðnum voru hundrað ár liðin frá fæðingu teiknarans Ragnvalds Blix, sem án efa er sá teiknari á Norðurlöndum sem leikið hefur veigamesta hlutverkið í alþjóðastjórn- málum. A stríðsárunum var hann hvað eftir annað nærri búinn að leiða Svía út í veruleg vandræði á sviði milliríkjasamskipta, með beinskeyttum og miskunnarlausum skopteikning- um sínum af þýskum nasistahöfðingjum, hinum norska Quisling og fleirum. Síðar varð Stalín eftirlætis viðfangsefni hans. Blix eyddi flestum árum ævi sinnar í Þýskalandi, Danmörku og Svíþjóð, en hann var þó jafn norskur og Harðangursfiðla, fæddur í Kristínaníu 12. september árið 1882, sonur sálmaskáldsins Eliasar Blix. „Til þess að vera góður skop- teiknari, verður maður að vera öldungis ískaldur gagnvart öllum skoðunum og öllum mönnum. Samúð og andstyggð eru bannorð. Mestu skiptir þó að bera enga virðingu fyrir yfirvöldum, hefðum eða yfirleitt nokkru milli himins og jarðar og ekki heldur neinu í helvíti." Svo mælti Blix tuttugu og þriggja ára gamall í viðtali í norska blaðinu Verdens Gang árið 1905, sem tekið var í tilefni að því að hann var þá um það bil að slá í gegn í París. Hann er því næst spurður, hvort hann sé búinn að koma sér upp þessari stöðu og hann svarar bæði af hógværð og sjálfsöryggi: „Ekki alveg, ennþá." En hann átti eftir að ná á þenn- an tind á næstu árum, einkum eft- ir að hann hóf að teikna í eitt þekktasta skoprit þessa tíma, Simplicissimus, árið 1907, en það var gefið út í Múnchen. Eftir fimmtán ár fjarri heima- slóðum hélt Blix aftur norður á bóginn og bjó fyrst fáein ár í Ósló, en settist síðan að í Kaupmanna- höfn. I Noregi gaf hann út skop- blaðið Exlex, en nafnið merkir „utan laga“ og meðal þeirra sem unnu við blaðið auk hans voru mörg stórmenni andans, þeir Georg Brandes, Knut Hamsun, Martin Andersen Nexö, Johannes V. Jensen og Sigurd Hoel. En norræni markaðurinn reyndist of lítill fyrir blað af þessu tagi og Blix hóf að teikna fyrir dagblöðin og þrjú skandinavísk dagblöð birtu samtímis eftir hann teikningar hans og texta, Dag- bladet í Ósló, Berlingske Tidende í Kaupmannahöfn og Göteborgs Handels- og Sjöfartstidning, sem þá var eitt áhrifamesta dagblað sem gefið var út á Norðurlöndum. Millistríðsárin voru Blix hrein- asta gullnáma og eftirlætisefni- viður hans voru svartstakkar og brúnstakkar, Mússolíní og Hitler, en þeir rauðu fengu líka sinn skammt, Lenín og Stalín voru í fastaliðinu. Efnið var óþrjótandi: Stríðið í Eþíópíu, borgarastyrjöld- in á Spáni, uppgangur nasismans, afskiptaleysi Breta og Frakka. Allt þetta varð Blix að yrkisefni í myndum og beittum textum. Há- stemmd mótmælaskeyti bárust til utanríkisráðuneytanna í Dan- mörku og Svíþjóð frá þýskum og ítölskum stjórnvöldum. í Berlín urðu myndir hans til þess að gerð var húsleit hjá fréttaritara Berl- ingske Tidende árið 1933 og nokkrum árum síðar varð blaðið að lofa danska utanríkisráðuneyt- inu að framvegis yrðu ekki birtar teikningar af „kóngi Ítalíu, Múss- olíní eða Hitler". Þetta minnkaði nokkuð mögu- leika Blix, en þó tókst honum að þyrla upp geigvænlegu moldroki í ítölskum stjórnarskrifstofum með teikningu af Haile Selassie Eþíópíukeisara, þar sem hann eggjaði sína menn til dáða með orðunum: „Hver ykkar gæti lifað Ragnvald Blix, 1932. við þá skömm, að ítalir sigri nú í orrustu í fyrsta sinn í sögunni." Það var einkum ein skopteikn- ing hans sem vakti reiði Hermans Görings, en það var teikning af Mússolíní, þar sem fasistaleiðtog- anum voru lögð þessi orð í'munn: „Ég get vel haft gaman af góðri skopteikningu af sjálfum mér, en Hitler, það er móðgum." Göring greip til aðgerða. Hann sendi harðort skeyti sem birtist í Göteborgs Handels- og Sjöfarts- tidning 8. febrúar 1933. í mörg ár hékk það innrammað á ritstjórn- arskrifstofunum. Þegar Danmörk og Noregur voru hertekin af Þjóðverjum, 9. apríl 1940, var Blix í fríi í Noregi og um leið og þessar fréttir bár- ust, hraðaði hann sér yfir landa- mærin til Svíþjóðar og vafalítið bjargaði hann sér þar með frá um- talsverðum óþægindum. Hann hóf nú að teikna í Gautaborgarblaðið, en í þetta sinn undir öðru nafni, Stig Höök. í ljósi aðstæðna reynd- ist stundum nauðsynlegt að taka örlítið af broddinum úr textunum sem Blix sendi með myndum sín- um, því að öðrum kosti hefði blað- ið hugsanlega verið bannað. Nú hefur verið gefin út í Noregi bók um þennan mikla norræna listamann, til að minning hans gleymist aldrei, minning manns- ins sem beitti pennanum líkt og sverði gegn harðstjórum samtíðar sinnar. SIB — þýtl og endur- *agt úr A-Magasinet. — Mamma, jólasveinninn er aö koma. — Þaö gerir ekkert til, hér er ekkert meira að hafa. (1942.) — Og svo fæ ég ekki einu sinni að skrifa sjaitur unair mmn «■„„) dauðadóm. (1945.)

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.