Morgunblaðið - 19.02.1983, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. FEBRÚAR 1983
„StíT komið á spjöld sögunnar
— eftir Gunnar Stein Pálsson
MORGUNBLAÐINU hefur borizt
eftirfarandi frá Gunnari Steini
Pálssyni:
„Takk fyrir myndarlega um-
fjöllun um 100 ára afmæli Fram-
tíðarinnar síðustu daga. Ég hef
orðið þess heiðurs aðnjótandi að
fléttast inn í þessi skrif en e.t.v.
mistekist að gera mig skiljanlegan
í viðtali sem við mig birtist. Þess
vegna bið ég ykkur fyrir eftirfar-
andi bragarbót:
Ég rifjaði upp afsögn forvera
míns í forsetastarfi en mistókst
greinilega illilega að koma að öll-
um þeim stíl og glæsileika sem
einkenndi atburðinn. Hið sanna er
að forveri minn hafði einkar
skemmtilegt lag á að finna leiðir
til þess að framkvæma hlutina
með eftirminnilegri viðhöfn og af-
sögn hans var á sama hátt þess
eðlis að mikilvægt er að „stíllinn"
haldi sér á spjöldum sögunnar.
Er að því kom að honum þótti
tími til kominn að láta af störfum
lék hann meistaralega á annars
skothelt kerfi við prentun
atkvæðaseðla, laumaði þeim síðan
af alkunnri kænsku í kjörkassann
og er tryggt var að aldrei mundi
upp komast sté hann í pontu af
ómældum virðuleik, lýsti sig sek-
an af „glæpnum", leiðrétti úrslit
atkvæðagreiðslunnar og sagði af
sér.
Einmitt á þessari stundu náði
litríkt forsetastarf hans hápunkti
sínum, þéttsetinn fundarsalurinn
varð agndofa af hrifningu en þrátt
fyrir miklar fortölur stóð hinn
ástsæli forseti harður á þeirri
ákvörðun sinni að segja af sér
frekari embættisstörfum. Glæsi-
leikinn var í hámarki, forsetinn
var ótvíræður sigurvegari, brellan
var fullkomin og höfuðpaurinn
ákvað það einn og sjálfur að nú
skyldi leiknum hætt.
I lokin langar mig svo að leið-
rétta þann smávægilega misskiln-
ing Morgunblaðsins að í ræðu-
keppni fyrrverarldi forseta Fram-
tíðarinnar hafi ég valið mér það
hlutskipti að mæla fyrir dauða-
refsingu. Svo kaldrifjaður verð ég
59
vonandi aldrei, en í ræðukeppni er
dregið um fyrirfram ákveðið efni,
sem helst öíl krefjast þess að
menn tali þvert um hug sér. Og
auðvitað gerði ég mitt allra besta
til þess að sannfæra fundarmenn
um ágæti dauðarefsingar — von-
andi algjörlega án árangurs!"
MetsöluUadá hverjum degil
UM HELGINA — 1983 ÁRGERÐIRNAR
OPIÐ: LAUGARDAG FRÁ KL. 10.00 -17.00 SUNNUDAG FRÁ KL. 13.00 -17.00
MITSUBISHI
C0LT - LANCER F
C0RDIA - TREDIA
CALANT - SAPP0R0
Sýnum einnig TURBO-linuna
frá MITSUBISHI
ZwdSYNING
ENCINN BÝÐUR MEIRA ÚRVAL
4WD - PAJERO
4WD - L 200
4WD - NÝR L 300
IhIheklahf
JJJj Laugavegi 170 -172 Sími 212 40
.iJaM...*'_______________________
GENERAL^P ELECTRIC
KENWOOD
RAFTÆKJADEILD
KENWOOD
Fra Ki- *
[ulHEKLA
s *' " Laugavegi 170 -172 Sír
VHF
Sími 212 40
SÓLARLAMPAR