Morgunblaðið - 19.02.1983, Page 20

Morgunblaðið - 19.02.1983, Page 20
68 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. FEBRÚAR 1983 ■ ■ Grein og viðtal um ferð til Hollywood, Los Angeles í boði American Film Institute ■ ■ Skömmu eftir nýliðin áramót fóru 5 ungir íslendingar sem numið hafa kvikmyndagerð eða eru í kvikmyndagerðarnámi í Banda- ríkjunum til Hollywood — Los Angeles í tengslum við Scandinavia Today. Var þetta skemmtileg för þar sem þau fengu að sjá og reyna ýmislegt óvenjulegt. Hér á eftir fer grein eftir Ola Örn Andreas- sen og viðtal við Karl Óskarsson sem voru með í förinni. Þeir fóru ekki alveg á sömu slóðir og hafa því frá mismunandi hlutum að segja þó frásögnin skarist að einhverju leyti. Hópurinn staddur í „The Academy of Motion Pictures Arts and Sciences“ og halda þau þarna á Óskars verölaunastyttu. Taliö frá vinstri: Karl, Gústi, Edda, Björn og Óli örn. Hjá þeim „stóru“ í Hollywood EFTIR ÓLA ÖRN ANDREASSEN Ég var nærri farinn ad örvænta um að ég myndi ná í tæka tíð til Los Angeles. Boðið átti að hefjast í Hollywood þann 4. janúar hjá Amerísku kvikmyndastofnuninni (The American Film Institute) og það var nú ekki beint glæsilegt að hefja ferðina með því að mæta of seint. Ég átti pantað flug til Chicago 2. janúar og þaðan áfram morguninn eftir til Los Angeles, en vegna leiðindaveðurs á meginlandi Evrópu varð ekkert af flugi til Chicago þann daginn. Það var ekki fyrr en sólarhring síðar sem Flugleiðavélin lyfti sér upp í myrkrið og kuldann og tók stefnuna í vestur . . . Það var í október á síðasta ári en boð bárust um það að Ameríska kvikmyndastofnunin (AFI) í sam- vinnu við bandarísku Scandinavia today-nefndina, vildi bjóða fimm íslenskum aðilum, þ.e. kvikmynda- Kerðarnemum og kvikmynda- gerðarmönnum ásamt 23 öðrum frá hinum Norðurlöndunum til Hollywood. Meginmarkmiðið var að kynna fyrir okkur nám við bandaríska kvikmyndagerðar- skóla og þá aðallega hjá AFI. Til þátttöku völdust af íslands hálfu þau Björn Emilsson sem stundar nám í kvikmyndagerð í Los Angel- es, Edda Sverrisdóttir sem er við nám í listaskóla í San Fransisco, Agúst Baldursson sem er við nám í kvikmyndagerð í New York, Karl Óskarsson kvikmyndatökumaður og svo undirritaður. Við þrír síðastnefndir urðum samferða vestur og það voru því þrír þreyttir og slæptir íslend- ingar sem mættu hjá AFI í Holly- wood að morgni þess 4. janúar eft- ir næstum samfellda ferð til Kyrrahafsstrandarinnar. Björn og Edda voru þegar mætt á staðinn. Þessa vikuna var okkur ætlað að fylgjast með og taka þátt í námi kvikmyndagerðarnema við AFI. Það var sól og sumarveður þennan fyrsta morgun okkar þarna vestra og 25° hiti og átti eftir að hlýna er leið á vikuna. Þessi fyrsti dagur okkar hófst með því að okkur var sýnd mynd Fellinis “8 ¥2“ af myndbandstæki. Sum atriðin voru skoðuð aftur og aftur og var myndin þannig brotin til mergjar. Þessi kennslutækni var mikið not- uð þarna og var þá um að ræða bæði myndir eftir þekkta kvik- myndaleikstjóra og svo nemend- urna sjálfa. Annars kom það nokkuð á óvart hversu mikil áhersla er lögð á notkun mynd- bandstækja í þeim skólum er við kynntumst. T.d. eru eingöngu not- uð myndbönd við upptökur á verk- um nemenda við AFI fyrra árið af tveggja ára námstíma. Kennararnir við AFI eru ekki af verri endanum — allir hafa þeir hlotið eldskírn sína við störf í kvikmyndagerð utan skólans og vinna þeir flestir við kvikmynda- iðnaðinn annaðhvort sjálfstætt eða fyrir stóru kvikmyndafélögin jafnhliða kennslunni og má þar nefna nöfn eins og Robert Boyle, Robert 0. Kaplan, Daniel Petrie, Howard Schwartz og Robert Wise svo einhverjir séu nefndir. Þarna var hluti námsins að horfa á nýlegar kvikmyndir og síðan voru þær teknar og „krufn- ar“. Oft kom þá einhver sem haföi unnið að gerð myndarinnar t.d. stjórnandi, kvikmyndatökumaður eða leikari og tók þátt í umræðum um myndina, tilurð hennar og framkvæmdir við hana auk þess sem viðkomandi fékk yfirleitt á sig mikið magn af spurningum sem hann reyndi að svara eftir bestu getu. Þessa vikuna bauðst okkur m.a. aó sjá nýjustu mynd Costa Gavras, „Missing". Eftir þá sýn- ingu kom annar aðalleikari mynd- arinnar Jack Lemmon til okkar og ræddi við okkur og sat fyrir svör- um. Jack Lemmon kom fyrir sjón- ir sem alúðlegur, næmur og alþýð- legur maður sem lagði sig allan fram um að svara spurningum okkar eftir bestu getu. Hann er alltaf jafnmikill æringi þó svo að árin færist yfir — hann varð 58 ára nú í febrúar, og hefur leikið í rúmlega 40 kvikmyndum sem hafa gefið honum tvo „Óskara“ og sjö tilnefningar til þess sama. Hann sagðist vera orðinn mjög vandlát- ur á hvaða verk hann tæki að sér og miklu máli skipti hver væri leikstjóri að viðkomandi verki. Hann hefði t.d. hafnað öllum leiktilboðum í heilt ár til þess að geta unnið að „The China Synd- rorne". Fyrir leik sinn í þeirri mynd var hann tilnefndur til Óskarsverðlauna, ... „svo stund- um borgar sig að bíða“, eins og hann sagði. Jack Lemmon sagði ennfremur varðandi „Missing", að það að vinna að mynd sem þessari gæti skaðað feril hans. Það sýndi fjöldinn allur af lesendabréfum í blöðum og tímaritum víðsvegar um landið ... og átti hann þá við hin neikvæðu skrif, þar sem hann var jafnvel ásakaður um föður- landssvik og kommúnisma og hann gæti alveg eins flutt til Rússlands o.s.frv. ... „en ég tel ekki að sá skaði vegi nærri eins þungt eins og það að vita að ég sé að vinna að einhverju sem ég tel að sé geysilega þess virði ..." Þessir tveir tímar sem okkur voru ætlaðir með Jack Lemmon voru fljótir að líða og eftir þriggja stunda samveru kvaddi þessi ágætis maður okkur. Þessa vikuna voru tímar í gerð kvikmyndahandrits og leikstjórn, auk þess sem á hverjum morgni voru myndbandsupptökur nem- enda skoðaðar og þótti okkur nú svona og svona um árangurinn. Kennarinn var ekkert að skafa utan af hlutunum ef honum sýnd- ist svo og vakti það athygli mína að viðkomandi leikstjóra var ekki ætlað að svara fyrir sig né heldur að útskýra myndefnið. En menn reyndu auðvitað að gera sitt besta, því að það er dæmt eftir árangri fyrra árs hvort nemandi heldur áfram síðara árið eður ei. Þó þótti okkur dálítið súrt í broti að fá ekki tækifæri til að fylgjast með nem- endum í verklegum fögum en það var ekki á dagskránni að þessu sinni. Okkur hafði verið tjáð áður en við fórum í þessa ferð að við myndum hitta þá félaga Steven Spielberg („E.T.") og George Luc- as („Star Wars“) ef af einhverjum orsökum sem ég kann ekki skýr- ingu á þá varð ekkert úr því. Hinsvegar hittum við aðra góða SJÁ NÆSTU SÍÐU Þar snýst allt um peninga RÆTT VIÐ KARL ÓSKARSSON Þad hlýtur að vera mikil upplifun fyrir ungt kvikmyndagerðarfólk að fá að skyggnast inn í hinn undraverða heim kvikmyndanna í Hollywood - Los Angeles, þessari þungamiðju kvikmyndaiðnaðarins, þar sem að allt getur gerst og ekkert er ómögulegt. Við ræddum við Karl Óskarsson er heim kom um það sem á daga hans hafði drifið og það helsta, sem hafði vakið athygli hans. „Við bjuggum öll á hóteli rétt hjá Sunset Boulevard (sem er að- algatan í Hollywood) og áttum við margar góðar stundir saman,“ segir Karl í upphafi frásagnar sinnar. „Fyrstu vikuna kynntumst við American Film Institute (AFI), sem er líklega einn af bestu kvikmyndaskólum í heimi. Skól- inn er staðsettur í hæðum Holly- wood. Var okkur skipað í bekk í skólanum og hlýddum þar á fyrir- lestra, sem sumir voru skipulagðir sérstaklega vegna veru okkar þar. Meðal þeirra, sem ræddu við okkur, var leikarinn Jack Lemm- on, en áður en hann hóf máls, þá horfðum við á sýningu kvikmynd- arinnar „Missing“, sem hann leik- ur í ásamt Sissy Spacek og nú er verið að sýna á kvikmyndahátíð- inni hér.“ Hvernig leist þér á Jack Lemm- on? „Hann er afar alþýðlegur og skemmtilegur maður og virtist leggja sig fram um að svara spurningum okkar á einlægan og persónulegan hátt: Meðal þess sem bar á góma voru samskipti hans, sem leikari, við leikstjóra. Kvaðst hann leggja mikla forvinnu í hlutverk sín og vinna mjög náið að þeirri vinnu með leikstjóranum og kom það fram, að hann velur mjög vand- lega hlutverk sín og þá leikstjóra sem hann vinnur síðan með. Þá lýsti hann því hve erfitt það gæti verið fyrir leikara að skipta um ímynd og tók sjálfan sig sem dæmi um það. Hann hefði verið þekktur sem grínleikari og síðan farið út í alvarleg hlutverk og hefði hluti kvikmyndahúsagesta átt erfitt með að taka honum sem slíkum. Broti af viðræðum okkar við Jack var sjónvarpað af CBS í stuttri kynningu á heimsókn okkar. Annar minnisstæður maður, sem þarna hélt fyrirlestur var Walter Murch. Hann fékk óskars- verðlaun fyrir hljóð í kvikmynd Francis Coppola, „Apocalypse Now“. Hann ræddi meðal annars um framtíð kvikmyndanna og þá hröðu þróun, sem nú á sér stað varðandi myndbönd, kapalsjón- varp og myndplötur. Sagði hann, að sú kynslóð, sem fæddist á árun- um 1946—56 og væri nú óðum að stofna fjölskyldur og gegndi nú þegar ýmsum lykilstöðum í bandarísku þjóðfélagi, væri sá hópur, sem fjárfesti langmest í hinum nýja tæknibúnaði, og ætti þar af leiðandi eftir að hafa áhrif á gerð og inntak þeirra kvikmynda sem framleiddar yrðu í nánustu framtíð. Tæknibyltingin færði kvikmyndunum þannig nýjan áhorfendahóp. Walter sagðist einnig sjá fyrir sér sjónvarpsskerma, sem myndu þekja heila stofuveggi framtíðar- heimilisins og fleiri myndræna möguleika. Þá yrði jafnvel hægt að vera áskrifandi að ákveðnu út- sýni, það er að segja að sjónvarpað yrði beint frá kvikmyndavél í kyrrstöðu og beint til dæmis að ákveðnu götuhorni í New York eða fallegu útsýni í svissnesku Ölpun- um. Þannig gæti fólk verið í nán- um tengslum við það sem er að gerast einmitt á þessari stundu, alveg eins og það væri að horfa út um gluggann heima hjá sér, þrátt fyrir mikla fjarlægð frá hinu raunverulega myndefni. Kvað hann þetta ætti eftir að skapa ný viðhorf til kvikmyndagerðar, bein- ar útsendingar kæmu til með að veita nýja möguleika og umfang og kostnaður tækjanna ættu eftir að gera það mögulegt fyrir al-

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.