Morgunblaðið - 19.02.1983, Síða 27

Morgunblaðið - 19.02.1983, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. FEBRÚAR 1983 75 Leifur Blumenstcin fyrir framan Iönaðarmannahúsið og Búnaðarfélagshúsiö við Tjörnina, sem nú er að Ijúka viðgerð á. Húsin eru friðlýst með B-friðun. Nú þegar pallarnir hafa verið teknir af húsunum sést hve falleg þau eru eftir viðgerðina. i.jpsm. ói.K.Mag. unum 1968—69. Annað hús við Tjörnina, hús Sigurðar Briem póstmeistara í Tjarnargötu 20, var næst á dagskrá. Endurbyggt utan og innan. Borgin hafði keypt þetta hús 1971 og fóru viðgerðirnar fram á árunum 1973—74. Um sama leyti var tekið alveg í gegn að utan húsið á Fríkirkjuvegi 11, sem borgarsjóður hafði keypt 1963 af templurum og hafði staðið til að þar yrði byggt Seðlabankahús. Thor Jensen lét reisa þetta glæsi- lega hús 1908 ásamt veglegum úti- húsum og fékk Einar Erlendsson til að gera teikningar að því að sinni fyrirsögn. Þetta var glæsi- legt hús með 16 herbergjum, eld- húsi, búri og tveimur snyrtiher- bergjum. Seinna endurbyggðum við svo listihúsið í garðinum, sem var illa fárið. Samfelld verkþekking — Viðgerðirnar á Fríkirkjuvegi 11 önnuðust feðgarnir Böðvar Bjarnason og sonur hans Böðvar byggingarmeistari, heldur Leifur áfram. Og það skemmtilega er, sem kom sér ákaflega vel þegar þurfti að láta allt halda sér eins og það hafði verið, að Böðvar Bjarna- son lærði hjá Þorláki ófeigssyni, sem hafði unnið við hús hjá bygg- ingarmeistaranum Steingrími Guðmundssyni þegar það var byggt. Þeir kunnu því handtökin eins og þau höfðu verið. En Bjarni Böðvarsson, bróðir Böðvars, sem er verktaki hér í borginni, hefur sérhæft sig í svona endurbyggingu gamalla húsa og er alfarið við það. Hefur m.a. unnið fyrir Þjóðminja- safnið. Hann hefur tekið ýmis þessara verkefna fyrir borgina samkvæmt verksamningi. Það er einmitt hann sem nú er að vinna við húsin í Lækjargötu 14A og B. Þetta er auðvitað alveg ómetan- legt að hafa svona samhengi i verkkunnáttu. — Hefur hann tekið turninn líka? — Nei, turninn er endurbyggð- ur af trésmið borgarinnar. Magn- ús Björnsson trésmiður hefur endurbyggt alla turnana okkar þrjá. Söluturninn á Lækjartorgi, Listihús Thors Jensen og Turninn á Iðnaðarmannahúsinu. Og vegna þess að þú hafðir orð á því að hann væri nú búinn að fá nýja kopar- klæðningu, þá er rétt að geta þess að turninn var upphaflega með galvaníseruðu blikki, en til þess að ekki yrði að endurnýja þetta á 20—30 ára fresti, lagði ég til og fékk leyfi hjá húsafriðunarnefnd til að koparklæða turninn og einn- ig að hafa kórónuna ofan á honum úr kopar. Hann er alveg eins og hann var, nema hvað skipt er um málm. — Liggur ekki mikil vinna í heimildasöfnun um það hvernig húsin hafa verið uprunalega, til að vita hvort einhverju hefur verið breytt? — Jú, þegar mörg af þessum húsum borgarinnar voru að henn- ar beiðni friðlýst með B-friðun 25. apríl 1978, þá höfðum við alltaf unnið að viðgerðum í þeim anda og í samvinnu við húsafriðunar- nefnd og héldum þvi að sjálfsögðu áfram. A árunum 1976—77 var ha- ldið áfram og þá tekið fyrir húsið i Tjarnargötu 33, núverandi Tjarn- arborg. Það teiknaði Rögnvaldur Ólafsson arkitekt fyrir Hannes Hafstein árið 1908. Og í framhaldi af því verki var skipt um járn á Gamla barnaskólahúsinu og yfir- farinn gluggaumbúnaður og gluggar. Þetta hús er frá 1898 og suðurálman frá 1907. Þess má geta að ekki bar á fúaskemmdum nema undir einum glugga á suðurhlið. Um leið var viðgerðin á Söluturn- inum í gangi. Nú og 1979 til 1981 fóru fram viðgerðir á húsinu á Njálsgötu 9, sem ég kom lítið nærri, og utanhússlagfæringar á Tjarnargötu 11, sem ekki er að vísu friðlýst hús. Þetta er tveggja íbúða timburhús frá 1906, sem Eiríkur Bjarnason járnsmiður byggði, en borgin eignaðist á ár- unum 1952—59. Svalir voru m.a. endurbyggðar á þetta hús. Þá tóku við Lækjargötuhúsin 1980, eins og við vorum að tala um. En auk þessara húsa, sem eru í sérflokki, hafa verið tekin til viðgerðar hjá borginni og endurnýjunar önnur hús og yngri, sem eru fínar bygg- ingar þótt þau falli ekki í sama flokk. Má þar nefna Gasstöðvar- stjórahúsið við Hverfisgötu 115, sem er aldamótahús og svo hús Jóns Ásbjörnssonar á Ásvallagötu 14, og húsið á Sólvallagötu 10 frá 1930, en þessi hús eru öll í eigu og notkun Reykjavíkurborgar. Lækjargötuhúsin frá 1906 — í öllum þessum húsum er tekið mjög mið af upphaflegri gerð þeirra, þótt ekki sé það að innan látið koma niður á notagildi þeirra við nútímaaðstæður, heldur Leifur áfram. Þegar um elstu hús- in er að ræða, eins og t.d. Búnað- arfélagshúsið og Iðnaðarmanna- húsið í Lækjargötu, byrjar maður á því að leita allra tiltækra heim- ilda um uppruna þeirra og gerð. Byrjar í Skjalasafni Reykjavíkur, þar sem er m.a. að finna afrit af bókum byggingarnefndar Reykja- víkur og brunavirðingar, sem eru mjög góðar heimilidir. Fundar- gerðir Iðnaðarmannafélagsins frá þessum tíma eru til og góðar heimildir, og ég hefi farið yfir þær allar. Svo er oft upplýsingar og lýsingar að fá í ævisögum. I þessu tilfelli fann ég upplýsingar í bók- inni „Smiður í þremur löndum" eftir Finn Thorlacius og í bókum Árna Óla. Og gamlar myndir eru vitanlega mjög gagnlegar. Vil ég nota tækifærið til að hvetja fólk, sem veit eitthvað um þessi hús sem við erum að gera upp og kynni að eiga gamlar myndir, að setja sig í samband við mig, og eins ef upplýsingar eru til um hvaða iðnmeistarar byggðu þau. — Og hvers hefurðu orðið vís- ari um húsin í Lækjargötu 14? — Þessi hús eru bæði byggð 1906, annað af Iðnaðarmannafé- lagi Reykjavíkur og hitt af Búnað- arfélaginu. í heimildum eru til- greindir tveir höfundar. Árni Óla segir að höfundur sé Rögnvaldur Ólafsson arkitekt. En Finnur Thorlacius, sem var lærlingur hjá Einari J. Pálssyni trésmíðameist- ara Iðnaðarmannahússins, segir f minningum sínum að Einar hafi teiknað það. Hefur hann óneitan- lega verið í beinni snertingu við það, þar sem hann vann við húsið. Sami maður hefur teiknað bæði húsin, en trésmíðameistari Búnað- arfélagshússins var Steingrímur Guðmundsson. f byggingarnefnd hússins var á sínum tíma alltaf verið að fara yfir teikningar og er það bókað, en höfundurinn er hvergi nefndur. Ekki þótt taka því. Allir hafa vitað hver hafði gert framlagðar teikningarnar. En bæði Rögnvaldur ólafsson arkitekt og Jón Þorláksson verk- fræðingur voru í nefndinni. Af húsinu hefi ég haft mjög góðar myndir og veit því hvernig það var að ytra útliti. Þessi hús áttu að rýma fyrir áformuðu nýju ráðhúsi við Tjarnarendann og keypti borg- in þau á árinu 1965 að undanskil- inni baðstofu Iðnaðarmanna í þeirra húsi. Húsin voru því um árabil látin drabbast niður, þar sem þau áttu að hverfa. Og þegar byrjað var á endurbyggingu þeirra utanhúss á árinu 1980 reyndust vera miklar fúaskemmdir í turni og fyrir neðan turnbygginguna. Eins var vesturhlið Búnaðarfé- tagshussins mikið skemmd af fúa og bakstigahús var svo til ónýtt, en suður-, austur- og norðurhliðar voru alveg óskemmdar undir bárujárninu og í þaki voru lítilleg- ar fúaskemmdir við brunagafl. Að þessu hefur svo verið unnið og á að ljúka því í sumar. Steinbygging hefur verið sett milli Iðnó og Iðn- aðarmannahússins, og á að rífa hana. Engin ákvörðun hefur verið tekin um hvað eigi að gera mikið við húsin að innan. í húsunum eru nú leigjendur, Leikfélag Reykja- TÖLVUFRÆÐSLA Grunnnámskeið um tölvur Tilgangur námskeiösins er að gefa þátttakendum innsýn í hvernig tölvur vinna, hvaöa mögule'ka þær hafa og hvernig þær eru notaöar. — Grundvallarhugtök í tölvufræöum. — Stutt ágriþ af sögu tölvuþróunar- innar. — Lýsing helstu tækja sem notuö eru i dag. — Hugbúnaður og vélbúnaður. — BASIC og önnur forritunarmál. — Notendaforrit: Kostir og gallar. — Æfingar á tölvuútstöövar og smá- tölvur. — Kynning á notendaforritum fyrir rit- vinnslu og áætlanagerö. LMðbviMndur: Staöur Tölvufræðsla SFÍ, Ármúla 36. Tíml 7.—10. mars kl. 13.30—17.30. Ath.: Fræðslusjóður Verslunarmannafé- lags Reykjavíkur greiöir þátttökugjald fyrir félagsmenn sína á þessu námskeiði og skal sækja um þaö til skrifstofu VR. Þátttaka tilkynnist til lagsins í síma 82930. Stjórnunarfé- A STJÚRNUNARFÉLAG ISLANDS SIÐUMULA 23 SIMI 82930 ERLENT NAMSKEIÐ Markaös- og sölustjórnun Tilgangur námskeiösins er aö gera grein fyrir helstu verk- efnum viö markaös- og sölustjórnun i fyrirtækjum og hvernig vinna má skipulega aö markaösmálum. Stefnt er aö því aö þátttakendur geti tileinkaö sér helstu hugtök í mark- aðsstjórnun og sjái dæmi um hvernig virk sölustjórnun skil- ar góðum árangri. Efni: Á námskeiöinu veröur m.a. farið yfir eftirfarandi: — Grundvallarþættir markaösstjórnunar. — Skipulagning sölustarfseminnar. — Persónuleg sölumennska í Ijósi nýrra sjónarmiöa í markaösmálum. — Mótun markaðsáætlunar. — Raunverkefni og hópæfingar. — Ný viöhorf í markaösmálum. Þátttakendur: Námskeiö þetta er eink- um ætlaö sölustjórum og þeim aöilum sem ábyrgö bera á undirbúningi og framkvæmd markaösmála í fyrirtækjum. Johannet Bredal cand. jur. Leiðbeinendur: oie Hvidt Jenten, H.O. Johannes Bredal cand. jur. Hann hefur starfaö viö inn- kaupa- og sölustjórnun í ýmsum dönskum fyrirtækjum, stjórnaö námskeiöahaldi fyrir danska iðnrekendafélagiö og vinnumálasambandiö og rekur nú eigin ráögjafaþjónustu ásamt Ole Hvidt Jensen. Ole Hvidt Jensen H.D. Hann hefur starfaö viö markaðs- stjórnun bæöi í stórum og smáum fyrirtækjum, og á árunum 1967—1979 sá hann um námskeiöahald í markaösmálum fyrir danska iönrekendafélagiö og danska vinnuveitenda- sambandiö. Hann rekur nú eigin ráögjafaþjónustu ásamt Johannes Bredal. Námskeiöiö fer fram á dönsku. STAÐUR OG TÍMI: Kristalssalur Hótels Loftleiöa 7. og 8. mars kl. 08:30—16.30. Þátttaka tilkynnist til lagsins í síma 82930. Stjórnunarfé- A STJÓRNUNARFÉLAG ISLANDS SIÐUMULA 23 SÍMI 82930 vikur Leiklistarskólinn í Búnaðarfélags- húsinu, og ekki vitað hvenær Reykjavíkurborg tekur húsin til eigin nota. En það hefur verið SJÁ NÆSTU SÍÐU Áskriftarsíminn cr 83033

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.