Morgunblaðið - 19.02.1983, Qupperneq 28
76
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. FEBRÚAR 1983
Húsið í Tjarnargötu 20 hefur verið gert upp utan og innan og eru þar nú til húsa sálfræðideild skóla og íþróttafulltrúi
borgarinnar. Löngu áður en viðgerð fór fram var búið að afleggja veggsvalir og útganginn í garðinn, eins og sjá má á
þessari gömlu mynd.
HUSGAGNA
Höfði, sem nú er risnuhús Reykjavíkurborgar, var fyrsta gamla húsið sem borgin lét gera upp, á árinu 1968. Húsið
kom hingað tilbúið frá Noregi 1909.
mjög vel og myndarlega gert við
húsin að utan, og vona ég að borg-
arbúar séu ánægðir með þær við-
gerðir sem fram hafa farið á hús-
unum.
— Er ekki erfitt að fá efnivið til
að gera svona gömul hús upp eins
og þau voru?
— Nei, nei, þetta hefur mikið
breyst. Þegar ég byrjaði á þessu
var minna á markaðinum af slíku
efni, en nú er þetta nánast mark-
aðsvara hjá vissum fyrirtækjum.
Eftirspurnin hefur vaxið svo mik-
ið. Ég hefi ekki lent í neinum erf-
iðleikum. Þó komið fyrir að ég hefi
þurft að panta hluti erlendis frá í
einstöku tilfellum. Til viðgerða
utanhúss þarf mest við og báru-
járn. En gæðunum hefur hrakað
mikið. Járnið er nú valsað hér inn-
anlands og völsun er ekki góð.
Viðhorfin til þess að halda við
gömlum húsum hafa breytzt svo
mikið á þessum áratug. Orðinn al-
mennur áhugi á því, sem gerir allt
miklu auðveldara. Myndum er til
dæmis haldið til haga. Þegar við
vorum að byrja á endurbyggingu
og viðgerð húsanna fyrir Reykja-
víkurborg, sem var þarna í farar-
broddi, þá var stundum verið að
finna að því að fé væri eytt í slíkt.
En þess háttar heyrist vart leng-
ur. Til dæmis hefir enginn gagn-
rýnt endurbygginguna á turninum
á Iðnskólanum. Slíkir turnar eru
mjög fáir hér á landi, nema helzt í
kirkjum og fengur að halda í þá.
Næst Grjótagata 4
— Hvað tekur svo við? Eruð þið
farnir að undirbúa næstu verkefni
á þessu sviði?
— Það er verið að undirbúa
endurbyggingu hússins í Grjóta-
götu 4 og verður ráðizt í það verk
með vorinu. Það hús átti mynd-
skurðarmaðurinn Stefán Eiríks-
son hinn oddhagi. Það er frá 1896,
en Reykjavíkurborg keypti það
1973. Öll þessi viðgerðarverk eru
unnin á vegum byggingadeildar
borgarverkfræðings. Þar er gerð
úttekt á húsunum, settar fram til-
lögur um endurbyggingu og gerðar
kostnaðaráætlanir um endurbygg-
ingu hússins. Deildin hefur gert
slíka áætlun um Bjarnaborg, en
ekki hefur verið tekin afstaða til
framkvæmda enn. Einnig hefur
verið gerð kostnaðaráætlun um
viðgerð á Franska spítalanum
gamla við Lindargötu.
Námsstefnur um við-
hald og endurbyggingu
Loks barst talið að vaxandi
áhuga á því að vernda og halda við
gömlum byggingum, sem m.a.
kemur fram í áhuga á að fræðast
um hvernig standa megi að verki.
Leifur segir frá tveimur nám-
skeiðum hjá Námsflokkum Hafn-
arfjarðar, þar sem hann flutti er-
indi ásamt fleirum og var mikil
aðsókn að þeim. í fyrravetur efndi
Trésmiðafélag Reykjavíkur líka til
30 tíma námskeiðs um endurbygg-
ingu gamalla húsa. Var það á veg-
um Fræðslumiðstöðvar iðnaðarins
og sóttu það 25—30 manns. Og nú
í vetur hafa verið haldnar á vegum
Byggingaþjónustunnar og
Fræðslumiðstöðvar iðnaðarins
tvær námsstefnur og ráðgerðar
fleiri úti um land. Fyrri náms-
stefnan um viðhald og endurbygg-
ingu gamalla húsa var í nóvember
sl. á Akureyri og sú síðari í des-
ember í Reykjavík. Flutti Leifur
þar fjóra fyrirlestra og sýndi
myndir. Fjallaði um: Timburhús-
ið, járnvarið timburhús, viðbótar-
einangrun, endurbyggingu gam-
alla húsa í eigu Reykjavíkurborg-
ar og var vettvangskönnun í sam-
bandi við það. Hafa námsstefn-
urnar verið vel sóttar af eigendum
og fulltrúum þeirra, tækni-
mönnum, bæjarfulltrúum, iðnað-
armönnum og áhugafólki og staðið
í tvo daga. Stendur til að sams-
konar námsstefnur verði haldnar í
Stykkishólmi, Keflavík, Egils-
stöðum og ísafirði, og endurtekin
námsstefnan í Reykjavík.
Virðast því að mestu að baki
deilur um hvort varðveizla og
viðhald gamalla húsa sé æskileg
og áhuginn beinist nú að því
hvernig það verði bezt gert. Málið
komið í eðlilegan og hávaðalausan
farveg.
IDAG
Smiðjuvegi 6 - Sími 44544
Tölvusímar
Tíu númera minni (16 stafa). Endurhringir
síöasta númer sjálfvirkt ef þaö er á tali.
Biötakki o.s.frv.
Sjón er sögu ríkari.
Verð frá kr. 1.773.
VERSLIÐ I
SÉRVERSLUN
MEÐ
LITASJÓNVÖRP
OG HLJÓMTÆKI
E.Pá.