Morgunblaðið - 19.02.1983, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 19.02.1983, Blaðsíða 36
84 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. FEBRÚAR 1983 ___________________________________________« IMZ UniHfMl Pr«»» StlUIMH y, JaItu penr\cxy\ samcx lit i dökkbrónu ?" Ast er ... 22. o .. aðfá daglegan skammt. TM Rea U.S. Pat. Otf.-all riflhts reserved ©19Q3 Los Angetae Times Syndicate Ilrengur minn við verftum að gcra svo margt í lífinu sem okkur mis- líkar en kysstu nú hana frænku! Með morgunkaffinu Ég gerðist sjómaður vegna þess hve leiður ég var orðin á máln- ingarvinnunni. HÖGNI HREKKVISI Eru þetta rétt viðbrögð við rekstrarerfiðleikum SVR? Jeffrey Cosser skrifar: „Mér þykir einkennilegt, hve lítið hefur verið um opinberar umræður í blaðinu um rekstrar- erfiðleika SVR. Verðhækkun- armálið var afgreitt sómasam- lega fyrir stuttu (þó ekki fyrr en SVR hafði tekið óhóflega há far- gjöld í h.u.b. tvær vikur), en síð- an hafa afsláttarmiðar verið ófáanlegir. í Mbl. 12. febr. er haft eftir borgarstjóra að samhliða verð- hækkuninni, um 25%, séu „niðurskurður á leiðum og fleira þess háttar" í undirbúningi, og í bréfi forstjóra SVR (sama dag) er talað um viðunandi rekstr- argrundvöll sem skilyrði fyrir umbótum. Tóninn í yfirlýsingunni um fargjaldahækkunina og viðbrögð borgarstjórans við lögbanni lýsa, að mínu mati, frekar vonbrigðum yfir að hafa orðið að láta í minni pokann fyrir verð- lagsyfirvöldum heldur en áhyggjum yfir þjónustu og fram- tíð SVR. Vegna deyfðar í um- ræðum manna á milli mætti vel álykta að málið væri fjarlægt pólitískt þrætuepli, sem kæmi almenningi ekki við. En þetta með niðurskurð og afnám af- sláttarmiða er hvort tveggja at- riði sem allir ættu að gefa gaum. Bæði er að þetta virðast fyrst og fremst vera refsiaðgerðir sem beint er gegn almenningi, eins og hann beri þarna einhverja ábyrgð, en ekki síður hitt, að hann getur ekki rönd við reist. En mér er spurn, hvort þessar ráðstafanir séu réttu viðbrögðin við rekstrarerfiðleikum fyrir- tækisins, og hvort þeir sem grípa til svona ráðstafana og taka ákvarðanir um rekstur SVR hafi kynnt sér málið nægilega frá sjónarhóli neytandans, eða at- hugað önnur úrræði en niður- skurð og verðhækkun? í höfuðborginni fara umferð- arvandamál vaxandi og skortur er á bílastæðum. Gangandi fólki er oft gert lífið leitt vegna bíla- fjölda meðfram götum og vegna þess hve mörgum bílum er lagt á gangstéttum (og þetta kemur sérstaklega illa við fólk með barnavagna). Það er sorglegt að hugsa um allan þann óþarfa- kostnað, sem bæði einstaklingar taka á sig og þjóðin í heild, vegna bensíns sem er eytt á hverjum degi á þúsundum bíla sem ekið er ýmist langt eða stutt, aðeins til þess að fólk kom- ist til vinnu og heim aftur. Úr öllum þessum óþægindum og allri þessari eyðslusemi mætti stórlega draga, svo ég tali nú ekki um að fækka mætti um- ferðarslysum og minnka umferð- aröngþveitið með því einfaldlega að auka þjónustu SVR, halda fargjöldum niðri, auka ferða- tíðni og fjölga akstursleiðum. Ef fólk gæti verið visst um, að biðin eftir næsta vagni úti í kuldanum stæði aldrei lengur en í fáeinar mínútur; að unnt væri að skipta um vagna án tafar og að fargjald væri hagstætt, mundi það trú- lega fara að skilja bílinn eftir heima og nota vagnana í stór- auknum mæli. Að sjálfsögðu þyrfti að undirbúa slíkt með auglýsingaherferð og sjá svo um, að allir hefðu aðgang að þessari þjónustu. Útgjöld yrðu mikil í fyrstunni, en mundu skila sér innan skamms. Þó að slíkar stórbreytingar séu e.t.v. ekki framkvæmanlegar í einu vetfangi, er eitt sem auð- veldlega mætti prófa: að bæta kvöld- og helgarþjónustuna. Það að hafa ferðir aðeins á hálftíma fresti er mjög umhendis fyrir þá sem verða að taka strætisvagna á þessum tímum. Eftirfarandi dæmi lýsir _þessu e.t.v. betur en mörg orð: Akveðin kvöld í viku vinn ég í miðbænum. Um daginn þurfti ég að taka strætisvagn heim í Laugarnes. Ég kom niður á Lækjartorg rétt fyrir kl. 10.00 og hafði því misst af fimmunni. Næsta fimma var ekki væntan- leg fyrr en eftir næstum hálf- tíma, svo að ég ákvað að taka tvistinn inn að Hlemmi. Ætlaði ég síðan að taka áttuna þaðan, en vissi ekki hvenær hún færi. Á Hlemmi komst ég að því, að hún færi ekki fyrr en eftir um 20 mínútur, og ákvað þá að ganga frekar en bíða í svo langan tíma. í biðskýlinu á Hlemmi sá ég gamla konu með ungan strák. Þau voru augljóslega búin að bíða lengi eftir vagni og voru í þann veginn að fara af stað gangandi. Andrúmsloftið í biðskýlkinu var sem oftar væg- ast sagt óþægilegt vegna reykj- arsvælu, áreitni óstýrilátra unglinga og ofdrykkjumanna, og þetta átti sinn þátt í því að kon- an og strákurinn lögðu af stað. Lengst af gengu þau á undan Sjónvarpsumræður um láglaunabætur: Við vissum svarið svo sem fyrir fram Margrét Matthíasdóttir skrifar: „Velvakandi: „Að kveldi 15. þ.m. horfði ég á þáttinn „Kjarabót láglaunamanna — kaupauki hátekjumannsa" Þar upplýsti Þröstur Ólafsson, að í raun væru þetta ekki láglauna- bætur, heldur verðbætur á laun. Þannig var lægsta viðmiðun þeirra 25 þúsund króna árstekjur 1981. Þeir launþegar, sem þau laun höfðu haft það ár, áttu rett á að fá 500 krónur í verðbætur, en þeir sem höfðu haft 75 þúsund krónur í árslaun 1981, áttu eftir þessu kerfi að fá 3.500 krónur í verðbætur. Að mínum dómi hefði þó verið nær að snúa þessu alveg við, þann- ig að þeir, sem fengu 25 þúsund krónur í árslaun, fengju 3.500 króna bæturnar, en þeir, sem fengu 75 þúsund kronur í árslaun fengju 500 krónurnar. Þá hefði fremur mátt mæla að þetta kæmi fólki að gagni. En með réttu hefði lægsta við- miðun átt að vera enn lægri. Nú, svo skaut Rafn Jónsson, annar stjórnenda þáttarins, þeirri ágætu fyrirspurn til Þrastar Ólafssonar, hvort maður með 140 þúsund króna árstekjur 1981, sem einn væri fyrirvinna heimilis er samanstæði af hjónum með fjögur börn, hefði fengið greiddar verð- bætur. Og við vissum svo sem svarið fyrirfram: Nei. Þetta voru alltof háar tekjur til þeís. En eftir áðurfengnum upplýs- ingum Þrastar ólafssonar hefðu hjón, sem bæði ynnu úti og hefðu Margrét Matthíasdóttir haft svipuð laun og þessi maður, fengið greiddar verðbætur, meira að segja með hæstu greiðslum um 3.000—3.500 kr. hvort, eða 6—7 þúsund krónur í heimilissjóð sinn Finnst að íslenskir karl- menn ættu að sitja fyrir Gestur Sturluson skrifar: „Heiðraði Velvakandi: í þætti þínum var einhver að skrifa nokkrar línur um tækni frjógvun kvenna, þeirra er eiga ófrjóa menn. Telur hann þetta hæpna ráðstöfun, sem geti dreg- ið dilk á eftir sér, þar sem óvilj- andi systkinaástir gætu tekist. Þarna er ég honum alveg sam- mála og sýnist mér að þetta mál hafi ekki verið hugsað til enda. En það er annað sem mér finnst dálítið furðulegt og það er að vera að kaupa sæðið úr Dön- um. Nú má enginn skilja orð mín svo að ég hafi eitthvað á móti Dönum. Ég hef ekkert nema gott af þeim að segja og allir þeir Danir sem ég hef kynnst verið prýðismenn og kynblöndun okkar við þá tekist bara vel, að því er ég best veit.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.