Morgunblaðið - 19.02.1983, Síða 39

Morgunblaðið - 19.02.1983, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. FEBRÚAR 1983 87 „Á engan hátt sérstakur“ — Hvernig kanntu því þá þegar þér er líst sem gítarsnillingi? „Já, ég veit það nú ekki. Þetta er bara spurning um tónlist og tónsmíðar frá mínum bæjardyr- um séð. Ég er bara eins og hver annar tónlistarnemandi. Eftir því sem ég læri meira þeim mun betur geri ég mér ljóst hversu lítið ég kann. Eg er á engan hátt neitt sér- stakur. Allt í lagi, ég lagði hart að mér við gítarnámið og sofnaði bókstaflega með gítarinn í kjöltu mér, en þetta er fyrst og fremst spurning um mikla æfingu. Maður þarf að spila og spila og spila og spila og ... Sjáðu til, ég get vel lifað í nokkra daga án þess að snerta gítarinn, en ekki lengi. Ég verð órólegur og þar kemur að því að ég verð að spiia. Svo einfalt er það.“ Talið barst að því, að frami Knopflers í tónlistinni virtist ekki skipta hann svo ýkja miklu máli. Hann hefði mörg markmið í lífinu og tónlistin væri bara eitt af mörgu. Sú spurning var síðan lögð fyrir Mark hvort hann fyndi mjög fyrir álagi og þeirri ábyrgðartil- finningu, sem jafnvel væri troðið upp á hann fyrir það eitt að vera þekktur tónlistarmaður. „Já, oftlega geri ég það og er síður en svo sáttur við þennan framgangsmáta. Stundum er hann hreint og beint fáránlegur og dónalegur. Ég hef ekkert á móti því að axla minn hluta eðlilegrar ábyrgðar, rétt eins og kaupmaður- inn á horninu. En að hlaða á mig einhverri ímyndaðri og tilbúinni ábyrgð fyrir það eitt að vera þekktur, er hlutur sem ég sætti mig ekki við. Fyrir nokkru kom t.d. ungur strákur inn í búningsklefann hjá okkur fyrir tónleika, kastaði sér á hnén og virtist líklegur til til- beiðslu. Ég skipaði honum þegar í stað á fætur og spurði hann hvern andskotann hann meinti með slíkri framkomu. Maður kemur ekki svona fram við einn eða neinn. Stundum fáum við líka bréf, sér í lagi frá Ameríku, þar sem fólk, sem er á „trippi" skrifar okkar þvílíka djöfulsins vitleysu, að engu tali tekur. Ræðir um heima og geima án nokkurs samhengis. Eitt sinn lenti ég líka í því þegar ég vann að plötu með Bob Dylan, að fólk kom úr hinum og þessum fjarlægu ríkjum og tjaldaði fyrir utan hljóðverið. Þvílíkt og annað eins.“ „Reynslan bjargaði mér“ — Hefurðu tekið eftir breytingu á sjálfum þér í kjölfar alls þess, sem gerst hefur hjá Dire Straits undanfarin fimm ár? „Nei, það held ég ekki. Fyrst og fremst fyrir þá sök, að ég var 28 ára, en ekki 18, þegar ævintýrið hófst. Ég var búinn að vinna á dagblaði í tvö ár, ég hafði verið í háskóla, ég hafði kennt í þrjú ár og unnið á bóndabæ og guð má vita hvað áður en ævintýrið hjá Dire Straits hófst, þannig að ég hafði haldgóða reynslu í poka- horninu. Ég er ekki að segja með þessu, að ég viti einhver ósköp. Reyndar veit ég ósköp lítið og alls ekkert um tónlist þó það kunni að hljóma ankannanlega. Málið, er bara, það að hefði ég verið 18 ára, en ekki 28, hefðum við aldrei hald- ið út svona lengi. Við hefðum gef- ist upp, og orðið ein af þessum fjölmörgu hljómsveitum, sem aldrei urðu meira en efnilegar." Margt hefur gerst og mikið vatn runnið til sjávar frá þeim tíma er Dire Straits tóku upp sitt fyrsta „demo-tape“ fyrir 120 pund á fjög- urra rása tæki. Það virðist líka óralangur tími frá þeim dögum er hljómsveitin fékk af og til inni á knæpum í suðaustur-hluta Lund- úna. Mark var að því spurður hvort hannsæi eftir einhverju, sem hann hefði gert á þessum fimm árum og hvort hann kysi að hafa breytt öðruvísi ef hann ætti þess kost að byrja upp á nýtt. „Jú, mikil ósköp, ég myndi haga þessu öðruvísi í ljósi þeirrar reynslu, sem við höfum aflað okkur, sem hljómsveit. Við héld- um t.d. ótölulegan fjölda tónleika á fyrstu árum ferilsins og það var þreytandi, auk þess sem það rugl- aði okkur í ríminu. Svo græddi Ed heil ósköp á þessum tónleikum okkar í þá daga.“ „Of mikid á of skömmum tíma“ „Ég er nú kannski ekki alveg sammála þessu,“ segir umbinn og hlær. „Tónleikahaldið var í sjálfu sér hægt að sætta sig við, þótt þétt væri leikið, en það voru þessi níu milljón blaðaviðtöl og 47.000 sjón- varpsþættir, sem voru alveg að gera út af við hljómsveitina." „Við reyndum að gera allt of mikið á of skömmum tíma,“ segir Mark og tekur við stjórninni á ný. „En þegar á heildina er litið, heid ég að ég sé þokkalega sáttur við þróun mála þessi fimm ár. Ég er svo ánægður með allt núna, að það er næstum skelfilegt á köflum." Við skulum slá botninn í viðtal- ið við Mark Knopfler með þessari spurningu Dave Lewis: Ég held það hafi verið Bertram Russell, sem sagði eitt sinn, að hver sá sem tæki starf sitt alvar- lega væri asni. (Reyndar var það ekki alveg á þessa leið, heldur sagði hann, að væri hann læknir myndi hann ráðleggja þeim sjúkl- ingum sínum, sem tækju starf sitt alvarlega, að fara í sumarfrí.) Tekur þú starf þitt alvarlega? „Nei, af og frá. Ef ég gerði það væri ég í tónlistarnámi. Ég er bara svo latur, að ég myndi aldrei nenna að leggja slíkt nám fyrir mig. í rauninni skammast ég mín fyrir að geta ekki vaknað klukkan sjö á morgnana eins og margt listafólk og unnið að sjálfstæðri sköpun. Ég gæti slíkt aldrei. Ég reyni heldur ekkert að flagga lög- um mínum framan í vini og vandamenn. Þau bara verða til í ró og næði.“ Mark Knopflcr, hinn frábæri gítar leikari Dire Straits. Mezzoforte komin í 14. sætið hjá Record Mirror — breiöskífa flokksins í 2. sæti soul-lista Black Echo Ekkert lát virðist ætla að verða á sigurgöngu Mezzoforte á diskó- lista enska vikuritsins Record Mirror. Tveggja laga plata þeirra fimmmenninga hefur þotið med ör- skotshraða upp listann og situr í þessari viku í 14. sæti hans. Ekki sakar að geta þess, að Mezzoforte kom beint inn í 67. sæti fyrst (alls eru 85 plötur á listanum), þaut þaðan í 40. sætið og í þaö 27. í síöustu viku. Nú er það sumsé sæti númer 14. Harla glæsilegt hjá sveinunum. Eins og skýrt var frá á Járn- síðunni um síðustu helgi fór Jó- hann Ásmundsson, bassaleikari Mezzoforte, út til Englands á þriðjudag til viðtala við útvarp og tfmarit. Járnsíðan hefur fregnað, að bæði Capital Radio, stærsta óháða útvarpsstöðin á Bretlandseyjum, svo og BBC 1 hafi rætt við hann nú þegar. Velgengninni lýkur ekki þar með. Breiðskífan „Surprise, Surprise" situr nú í 2. sæti soul- listans hjá tímaritinu Black Echo, en það sérhæfir sig í um- fjöllun um þá tegund tónlistar. Maður bíður bara spenntur eftir" frekari framvindu mála. Björk Guðmundsdóttir er fáum lík á sviði. Hálf-endasleppt „sjó“ í Broadway Það varð hálf endasleppt kvennakvöldið hjá SATT í Broadway á fyrra sunnudagskvöld. Ragga Gísla í Grýlunum varð að þjóta af landi brott með litlum fyrirvara til að Ijúka við hljóðblöndun á plötu Grýlanna og því varð ekki af fyrirhugaðri þátttöku þeirra í tónleikunum. Fyrir vikið varð heldur ekkert af því, að Egill Olafsson, Stuðmaður, syngi með þeim nokkur vel valin lög. Bakkabræður (Bergþóra Arna- dóttir, Gná Gunnarsdóttir og Anna María, ásamt Gísla Helga- syni) tróðu fyrstar upp og skiluðu sínu með ágætum. Tónlistin dæmigerð vísnatónlist, en undir- ritaður er tæpast dómbærastur á hvað er gott og hvað slæmt í þeim efnum. Tappi tíkarrass tók þvínæst við og flutti fjöldamörg lög, jafnt ný sem gömul. Björk Guðmundsdótt- ir undirstrikaði rétt eina ferðina, að fáir söngvarar landsins komast með tærnar þar sem hún hefur hælana, hvað sviðsframkomu snertir. Að leik Tappa tíkarrass loknum tók Egill Ólafsson við með píanó- leik og mónólógum. Tókst ágæt- lega upp þótt stundum væri hann orðinn býsna langorður. Salamöndrurnar sænsku, eða % hlutar þeirra, tróðu því næst upp og léku jass af fingrum fram við góðar undirtektir. Vissulega vakti það athygli að sjá tvær jafn færar stúlkur meðhöndla saxófón og þá ekki síður trommusettið af snilld. Lokahnykkinn í samkunduna rak jassöngkonan Oktavía Stef- ánsdóttir ásamt kvartett Jass- vakningar. Þarna var sveiflan gamla góða í fyrirrúmi og ekki bar á öðru en Oktavía syngi af kunn- áttu, þótt stundum fyndist mér hún fara dálítið hátt upp, jafnvel óþarflega hátt, af söngkonu i þess- ari tegund tónlistar að vera. Reyndar var allsherjar „jam- session" á eftir þessu atriði, en ég hafði fengið nóg af jassinum að þessu sinni og lét mig hverfa út í náttmvrkrið. — SSv. Q4U verður á skjánum í kvöld Fyrsta plata Q4U á tveggja ára ferli er væntanleg innan skamms. Óhætt er að segja, að tónlistin kemur stórkostlega á óvart. Fyrir aðdáendur fjór- menninganna er rétt að vekja at- hygli á því, að Q4U kemur fram í þættinum Glugginn í sjónvarpi í kvöld. Þá er og væntanlegt viðtal við sveitina á Járnsiðunni innan skamms. Wright hættur í Pink Floyd Við skýrðum frá þvi á Járnsíð- unni í haust, að Pink Floyd hefði endanlega lagt upp laupana í kjölfar brottfarar Nick Wright, hljómborðsleikara flokksins. Fylgdi þá einnig sögunni, að Nick Mason, trymbill, fylgdi í kjöifar- ið. Fregn þessi var á sínum tíma borin til baka, en nú hefur það verið staðfest, að Wright sé hættur. Mason mun hins vegar halda áfram og plata sveitarinn- ar, The Final Cut, er væntanleg innan skamms. Plata Bubba á lokastigi Bubbi Morthens er nú að vinna ' við sólóplötu sína, sem að mestu leyti mun verða „acoustic". Hefur hann að undanförnu verið við upptökur með hinum og þessum. Á meðal þeirra, sem fram koma á plötu hans, er a.m.k. einn, sem víst er að á eftir að vekja mikla athygli. Við segjum ekkert meira að sinni. Þá eru þrjár íslenskar plötur frá Steinum til viðbótar á loka- stigi. Áður höfum við sagt frá Jóhanni Helgas.vni og Grýlunum, en plata þeirra er mjög athyglis- verð, en Björgvin Gíslason varð einhverra hluta vegna útundan hjá okkur um daginn. Hans plata er einnig á lokastigi vinnslu. Steinar Berg, forstjóri Steina hf„ sagði ekki víst hvenær þessar plötur kæmu út, en reikna mætti með þeim öllum á tímabilinu mars-maí. Hávaðinn einn hefði nægt til fjöldamorða Síðastliðinn lostudag voru haldnir rokktónleikar í Menntaskólanum við Sund. Voru þeir liður í þorravöku skól- ans. Tíu sveitir tróðu þar upp og í heild- ina má segja, að tónleikarnir hafi verið afar lélegir. Hávaðinn einn var slíkur, að nægt hefði til fjöldamorða. Vert er þó að geta tveggja sveita, sem sluppu sæmilega frá sínu. Svefnpurrkurnar var sveit fjögurra 12 ára stráka úr Vogaskólanum, sem kom fram fyrsta sinni. Var þeim vel tekið, einkum af félögum sínum úr skólanum, sem fjölmenntu til að sjá sína menn. Ómíkron var þriggja manna hljómsveit, sem aðallega „instru- mental“-tónlist, en þó gerði einn þeirra tilraun til að syngja í einu laginu og var það meira en hægt var að segja um söngvara hinna sveit- anna.sem ekkert gerðu annað en að öskra og garga. Því miður var Ómíkron áttunda í röðinni og þá höfðu flestir gefist upp og yfirgefið salinn. Fyrir sitt framlag fékk hver sveit 660 krónur, en óhætt er að segja, að margar þeirra höfðu eytt meiri fjár- munum í vimugjafa fyrir kvöldið. Án þess að nefna nokkur nöfn var virkilega leiðinlegt að sjá til sumra, þar sem þeir komu fram og gátu vart staðið í lappirnar. Sveinn M. Árnason, yfirkennari, sem hafði yfirumsjón með þorravök- unni, var mjög óánægður með fram- komu þessara aðila og taldi, að sum- ir þeirra hefðu verið undir áhrifum fíkniefna. Er ömurlegt til þess að vita, að menn treysti sér ekki til að koma fram öðruvísi en undir áhrifum. Slíkir menn ættu bara að halda sig áfram í bilskúrunum og taki þeir það til sin sem eiga. — I)P/— SSv.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.