Morgunblaðið - 23.02.1983, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 23. FEBRÚAR 1983
35
Hjálmar Ólafsson formaður Norræna félagsins:
Liðið ár eitt það starfsmesta
í sögu félagsins á íslandi
STJÓRN Norræna félagsins boðaði til blaðamannafundar fyrir skömmu og
gerði grein fyrir fyrirhugaðri starfsemi á næsta starfsári, og rifjaði jafnframt
upp helstu viðburði á nýliðnu 60 ára afmælisári. Hjálmar Ólafsson, formaður
félagsins, gat þess í upphafi að liðið starfsár hefði verið eitt hið starfsamasta
í sögu félagsins.
"
Hjálmar Ólafsson formaður og Gylfi Þ. Gíslason varaformaður, glaðir á svip
að liðnu góðu ári. Gylfi heldur á eintaki af Norrænum jólum 1982, en á
borðinu liggur eintak af 25 ára gömlum Norrænum jólum. Nýja blaðið er í
sama broti og það gamla.
Liöiö afmælisár
„Það er margs að minnast frá síð-
asta starfsári," sagði Hjálmar. „I
október var haldið upp á 60 ár af-
mælið með tveimur hátíðafundum,
formannaráðstefnu og kynningar-
sýningu á vinabæjasamstarfinu.
Hátíðin fór fram í Norræna húsinu
og á Hótel Sögu og þótti takast vel.
Og í tengslum við afmælið var boðið
hingað til lands Héðni Klein, fyrr-
um lögþingsmanni í Færeyjum.
Hann hélt hér fyrirlestra og tók
þátt í viðræðum um nánari menn-
ingarsamskipti Færeyinga og Is-
lendinga. Þá kom hér einnig form-
aður Norræna félagsins í Færeyj-
um, Bárður Jákupsson, og færði
Norræna féiaginu fagurt og tákn-
rænt málverk eftir sjálfan sig.
Niðurstaða menningarviðræðnanna
var meðal annars sú að unnið skyldi
að því að stofna sjóði í líkingu við
Grænlandssjóðinn íslenska til efl-
ingar samvinnu þjóðanna í menn-
ingarmálum. Ennfremur var ákveð-
ið að Norrænu félögin í báðum lönd-
unum skyldu stefna að því að efna
til námskeiða fyrir móðurmálskenn-
ara.
Á liðnu sumri heimsóttu 100 Is-
lendingar Eystri-byggð á Græn-
landi á vegum Norræna félagsins.
Var farið í tilefni af miklum hátíða-
höldum sem Grænlendingar stóðu
að vegna þess að talið er að 1000 ár
séu liðin síðan Eiríkur rauði fór
fyrstu för sína til Grænlands.
Gefin var út hljómplatan „Eins og
gengur“ með söngtextum Sigurðar
Þórarinssonar. Forsaga þess er sú
að Norræna félagið í Reykjavik
efndi til dagskrár í tilefni sjötugs-
afmælis Sigurðar Þórarinssonar á
sl. árL Þar voru eingöngu fluttir
söngtextar eftir Sigurð. Veruleg
vinna var lögð í undirbúning
dagskrár þessarar og varð að ráði að
gefa söngvana út á hljómplötu.
Norræna félagið er útgefandi plöt-
unnar.
Þá var í sumar haldið námskeið í
samfélagsfræðum á vegum félags-
ins. Var námskeiðið haldið að
Hvanneyri í Borgarfirði. Svæða-
skrifstofan á Egilsstöðum starfaði
með svipuðum hætti og áður. Haft
var samband við skóla og aðrar
stofnanir, sent út fréttabréf og ýms-
ar upplýsingar, meðal annars um
bækur sem skrifstofan hefur í um-
boðssölu frá norrænum stofnunum.
Og svæðaskrifstofan hefur staðið
fyrir kynningu á Norðurlandaráði
og stofnunum þess, svo og starfsemi
Norræna félagsins. Farið var í
margar ferðir á árinu og skólar og
klúbbar heimsóttir. Eins hafa far-
andsýningar farið á milli deilda fé-
lagsins.
Skrifstofa Norræna hússins hefur
undanfarið veitt upplýsingar um
lýðháskóla á Norðurlöndum og
greitt fyrir nemendum á ýmsan
hátt. Á skólaárinu 1982—83 stunda
92 nemendur nám við norræna lýð-
háskóla, flestir í Danmörku.
Norræn jól
Á árunum 1941 til 1954 gaf Nor-
ræna félagið út ritið Norræn jól,
sem hafði það hlutverk að minna á
helgi jólanna og tengja þá böndum
sem trúðu á gildi norræns sam-
starfs. Útkoma Norrænna jóla lá
niðri í 25 ár, en um síðustu jól var
þráðurinn tekinn upp aftur og ný
Norræn jól sáu dagsins ljós. Gylfi Þ.
Gíslason ritar formála í Norræn jól
1982 og segir þar meðal annars:
„Norræna félagið skiptist í deild-
ir, sem starfa á ýmsum stöðum í
landinu. Langfjölmennust er
Reykjavíkurdeildin. Fjárhagur
heildarsamtakanna og hennar hefur
verið sameiginlegur. Ifyrra var hins
vegar ákveðið, að frá byrjun þessa
árs skyldi Reykjavíkurdeildin hafa
sjálfstæðan fjárhag, eins og aðrar
deildir heildarsamtakanna. I fram-
haldi þess varð það ein fyrsta
ákvörðun stjórnar Reykjavíkur-
deildarinnar að hefja aftur útgáfu
Norrænna jóla og senda ritið öllum
félögum deildarinnar án endur-
gjalds. Þannig vill stjórnin tengja
félagana gömlum og góðum bönd-
um, með ósk um, að norrænn sam-
hugur megi eflast á Islandi.““
Næsta starfsár
Um næsta starfsár hafði Hjálmar
m.a. þetta að segja: „Stefnt er að því
að halda sambandsþing Norræna fé-
lagsins í Hveragerði og Ölfusi fyrstu
helgina í októbermánuði i haust.
Sambandsþing er haldið annað
hvert ár og var í fyrsta sinn utan
Reykjavíkur 1981, en þá var þingið í
Munaðarnesi í Borgarfirði.
Á þessu ári er gert ráð fyrir að
kynna starfsemi Norðurlandaráðs í
skólum og heimsækja deildir á
Norðurlandi austanverðu, Vest-
fjörðum og á Vesturlandi eftir því
sem aðstæður leyfa.
Stefnt er að því að efna til þriggja
daga Grænlandsferða í sumar með
leiguflugi FÍ.
Og í tilefni af norræna umferðar-
Morgunblaðið/KÖE
öryggisárinu hvetur félagið meðlimi
sína til að taka sem virkastan þátt í
því að bæta umferðarmenninguna.
Skólaárið 1983—84 er norrænt
bókmenntaár og hefur félagið komið
á fót nefnd til að starfa í tengslum
við það.
Þá er fyrirhugað að halda í sumar
íslenskunámskeið fyrir Norður-
kollubúa, eins og gert var í fyrra.
Sérstök nefnd annast þetta starf og
velur einnig þátttakendur á Fram-
nesnámskeiðin í Svíþjóð, en þangað
er 15 Islendingum boðið af Norræna
félaginu í Norðurbotnum til að
nema sænsku. Og ýmislegt fleira er
á döfinni,“ sagði Hjálmar að lokum.
Jean Claude Bertrand og Ólafur Guðmundsson hjá Landssambandi ís-
lenskra akstursíþróttamanna halda hér á auglýsingaplakati fyrir stórrallið á
íslandi. Því var dreift víðsvegar um Evrópu í um 3.000 eintökum.
Ljósm. Mbl. (.unnlaugur R.
hafa síðan meir en hálfan sól-
arhring aflögu til að komast að
næstu leið og skoða sig um.
Keppendur og aðstoðarfólk mun
dvelja í tjaldbúðum mikinn
hluta keppninnar, en ég á enn
eftir að spjalla við rétt yfirvöld
um það hvar við megum slá upp
tjaldbúð, á hverjum stað.“
Hvað er þátttökugjaldið mik-
ið?
„Það er 1000 dollarar á hvern
bíl, en mótorhjólamenn borga í
kringum 6—700 dollara. Islensk-
ir þátttakendur þurfa einungis
að greiða helming þessarar upp-
hæðar.“
Nú er greinilegt að þú leggur
gífurlegan kostnað í rallið, ertu
að skipuleggja þetta af hreinum
áhuga?
„Já, ég get ekki sagt annað. Ég
get ekki lengur snúið aftur.
Fyrir tveimur mánuðum var
ákveðið á fundi hér á landi að
ráðast í þetta verkefni og því
hófst ég handa við skipulagn-
ingu. í Frakklandi er fjöldi fólks
harðákveðinn í að koma ... því
gæti ég tæpast sagt við það: Það
verður ekkert rall. Það má segja
að þetta sé fjárhagslega áhættu-
söm atvinna, sem ég stunda, sem
oftar en ekki hefur skilað sér vel
þó þetta fyrsta rall mitt á ís-
landi verði mér dýrt. T.d. í ralli
sem ég sá um í Marokkó í mörg
ár voru 40% gjaldeyristekna
landsins komnar beint frá rall-
inu. Þetta er ekki fyrir pen-
ingana gert lengur hjá mér, ég
hef oft tapað miklu fé, en þegar
keppendur í röllum mínum koma
til mín að þeim loknum og segja:
„Bertrand, takk“. Það er frábær
tilfinning," sagði Jean Claude
Bertrand að lokum.
G.R.
Helgarfargjöld kr: 5.940
Söluskrifstofur okkar, umboðsmenn og ferðaskrífstofumar veita allar
upplýsingar um m.a. ferðatilhögun, hótel og bílaleigubíla.
FLUGLEIDIR
Gott fólk h/á traustu félagi
Þaðeru
fáar^borgir
erlendar^f ^jafn
tengdar okkur og kærar
og Kaupmannahöfn.Þaðan var
okkur stjórnað, þar háðu fram-
sýnir menn frelsisbaráttu þjóðar
okkar, þangað sóttum við mennt
unokkarog fyrirmyndir allra helst.
En Köben er ennþá /S á sínum
stað^f við sundið og þangað
eigum við margt að sækja
enn sem fyrr ^
Kynntu þér Kaup-
mannahafnará-
ætlun /Z Jf
Flug- m
leiða .¥