Morgunblaðið - 23.02.1983, Page 8

Morgunblaðið - 23.02.1983, Page 8
40 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 23. FEBRÚAR 1983 Reynsluakstur: Nýi Mazda 626 bfllinn hefur mjög góða aksturseiginleika Ríkuleg innrétting — Kraft- y mikill — Loftrými mætti vera meira — rými annars gott Bílar Sighvatur Blöndahl HINN nvi Mazda 626, sem kynntur var á dögunum og er nú kominn hingað til lands, vakti þegar athygli fyrir smekklegt útlit og skemmtilega innréttingu. Bfllinn er í raun endur- hannaður frá grunni og svipar í litlu til forvera síns. Helztu breytingar cru þær að nýi bfllinn er framdrif- inn, með nýja þverstæða vél, hann er rýmri en áður, sparneytnari, hljóðlát- ari og mun straumlínulagaðri en sá gamli, svo eitthvað sé nefnt, en auð- vitað eru fleiri breytingar. A dögun- um reynsluók ég nýju bílunum og er ekki hægt að segja annað en að þær breytingar, sem gerðar hafa verið, séu mjög til bóta. Sérstaklega kemur fimm gíra 2ja lítra bíllinn skemmti- lega út. ÚTLIT Hvað útlit varðar er í raun um þrjá mismunandi bíla að ræða, tvennra dyra.fernra dyra og fimm dyra, en hver þeirra hefur sín sér- kenni. Tvennra dyra bíllinn er með mesta sportbílslagið, enda mjög straumlínulaga. Hefur vindstuðul- inn 0,34 Cw, sem er með því lægsta sem þekkist í þessum stærðar- flokki. Hann samsvarar sér mjög vel. Síðan er það fernra dyra bíll- inn, sem er í raun hin hefðbundna Sedan-útfærsla. Hann er tiltölu- lega venjulegur og stílhreinn jap- anskur bíll í útliti. Loks er það fimm dyra bíllinn, sem er með stórri skuthurð að aftan. Hann er sportlegri en Sedan-bíllinn og finnst mér hann persónulega koma mjög vel út, samsvara sér vel og hafa skemmtilegt yfirbragð. Aðal- ljósin á bílunum eru tiltölulega þunn, en ganga tiltölulega langt inn á grillið. Aðalljósin að aftan eru síðan mjög stór og sér vel á þau, án þess þó að þau séu ósmekkleg. Standard-bílarnir koma með venjulegum hjólkopp- um, en GLX-bíIarnir koma hins vegar með sérstökum sportkopp- um, sem lyfta btinum töluvert upp. Mazda C;crd: Mazda 626, LX o# CJLX Framlcióandi: Toyo Kogyo Co. Framleiöatuland: Japan Innflytjandi: Bílaborg Afj{reidslufrt»Htur: Til á lager Verd: Frá 229.700.- I>yngd: 970—1.015 kg Lengd: 4.360—4.430 mm Breidd: 1.690 mm Ilaeó: 1.350—1.390 mm I Ijólhaf: 2.510 mm Vélarstæróir: 4ra strokka, 1,6 lítra, 1.587 m,{ 81 hestafl 4ra Htrokka, 2,0 lítra, 1.998 m**, 102 hestöfl. Skipting: 4ra gíra beinskiptur, 5 gíra beinskiptur og sjálfskiptur Fjöórun: Sjálfstæð fjöórun á hverju hjóli Stýri: Tannstangarstýri, vökva- stýri í GLX Benzíntankur: 60 lftrar Bremsur: Diskar aó framan, skálar aó aftan Hjólbaróar: 165SR13/185/70SR13 Loftmótstaóa: Frá 0,34 Cw DYR Dyr bílanna eru ágætlega stórar og því gott að ganga um þær. Sér- staklega koma fernra og fimm dyra bílarnir vel út. Þá er mjög handhægt að ganga um skuthurð- ina á fimm dyra bílunum. Hins vegar er því ekki að neita, að til- tölulega þröngt er að komast aftur í tvennra dyra bílinn, en hins veg- ar mjög gott að ganga um hann að framan. Það vekur sérstaka at- hygli, að bíllinn er með óvenju vönduðum þéttilistum við dyr og er því mjög þéttur og ekki er um neitt dósarhljóð að ræða þegar dyrum er lokað. Skottloki og skuthurð er stýrt innan frá, þ.e. ekki er hægt að opna þau nema með sérstökum stjórnrofa inn í bílnum, sem er kostur. Þá lenda eigendur bílanna ekki í brasi á frostköldum dögum með lykil í skránni. SÆTI — RÝMI Um tvær mismunandi gerðir sæta er að ræða í nýja Mazda 626-bílnum, annars vegar hefð- bundin sæti í LX-bílunum og síðan sérstaklega vönduð sportleg sæti í GLX-bílunum. öll eru sætin klædd áferðarfallegu áklæði, sem þægi- legt er að sitja í. Þegar lagt er mat á sæti verður það alltaf töluvert persónulegt. LX-sætin finnst mér ósköp venjuleg, hvorki góð né vond, nema hvað mér finnst vanta dálít- ið á hliðarstuðninginn. Hins vegar finnst mér sætin í GLX-bílunum alveg sérstaklega vel úr garði gerð og held að þar geti menn í flestum tilfellum fundið hina réttu still- ingu fyrir sig. Þar er um verulega góðan hliðar- og bakstuðning að ræða, auk þess sem stillimöguleik- ar þeirra sæta eru fleiri en á LX-bílunum. Hvað rými áhrærir, þá skiptir þar hokkuð í tvö horn, annars vegar tvennra og fimm dyra bílana og hins vegar fernra dyra bílinn. Reyndar er hliðarrými og fótarými mjög gott í ðllum bíl- unum, reyndar óvenjulega gott í bíl af þessari stærð. Hins vegar skortir nokkuð á, að loftrými sé nægjanlegt í tvennra og fimm dyra bílnum, ef um stærri menn er að ræða og á það bæði við frammi í og aftur í. Mjög vel fer um tvo full- orðna í aftursæti bílanna hvað hliðarrými og fótarými áhrærir, en nokkuð er farið að þrengja að þeim þriðja, ef um langkeyrslu er að ræða. Farangursrými er nokkru meira en í gamla bílnum, sem er til mikilla bóta, en rýmið í þeim gamla var nokkuð af skornum skammti. MÆLABORÐ Það er með mælaborðið eins og svo margt í nýja Mazda 626-bíln- um, að þar skiptir í tvö horn. Ann- ars vegar er mjög sportlegt og skemmtilegt mælaborð í GLX-bíl- unum og síðan nokkuð venjulegt mælaborð í LX-bílunum. Mjög vel hefur tiltekizt að þjappa borðinu saman til að gera alla stjórnun sem auðveldasta í GLX-bílunum. Það má segja, að öll stjórntæki séu vel innan seilingar og það vekur athygli, að stjórntæki miðstöðvar- innar hafa verið færð nær en mað- ur á að venjast í fólksbílum al- mennt. I GLX-mælaborðinu er að finna tiltölulega stóran hraðamæli með ferðamæli, sem gott er að lesa af, og síðan stóran snúningshraða- mæli. Milli þeirra eru benzínmælir og hitamælir, sem ágætt er að lesa af. Síðan eru ýmiss konar aðvörun- arljós og leiðbeiningaljós í panel undir mælunum. Þar má finna Ijós, sem sýnir stöðu aðalljósa, hleðslu, stöðu handbremsunnar, afturrúðuupphitara, benzínsparn- aðarljós, sem leiðbeinir um gír- skiptinguna, og benzíngjöf til að ná sem hagstæðustu benzínnnýt- ingunni. Þá er að finna olíuþrýst- ingsljós og ljós sem sýnir, þegar benzínið er að verða búið, og fleiri ljós. Þá hefur stjórntækjum fyrir aðalljós, afturrúðuupphitara, neyðarljós, afturrúðupiss og þurrkur verið komið fyrir mjög smekklega utan á sjálfu mæla- borðinu og er einstaklega höndu- legt að stjórna þeim. Miðstöðvar- panellinn er síðan færður eins nál- ægt borðinu og hægt er. Þar er bryddað upp á þeirri nýjung, að maður ýtir léttilega á litla rofa, 1, 2, 3, 4 eftir því hversu öfluga miðstöð maður vill og síðan til baka. Hvað stýrishjólið sjálft áhrærir, þá er það tiltölulega ein- falt og flautunni hefur verið komið fyrir í því miðju. Stefnuljósarofinn er að venju í vinstri væng stýris- ins. Síðan er boðið upp á GLX-bíl- ana með rafstýrðum rúðuupp- hölurum og eru rofarnir fyrir framan gírskiptinguna í miðstykk- Mazda 626 GLX, 2ja dyra. Mælaborð er mjög samþjappað og skemmtilegt í GLX-bflunum. Mazda 626 GLX, 5 dyra. Hönnuð hefur verið ný þverstæð vél. Farangursrými er mjög gott. Ljósmynd Mbl. Kristján Kinarsson GÍRSKIPTING — PEDALAR — VÉL Bílarnir eru boðnir fjögurra gíra, fimm gíra og síðan sjálfskipt- ir. Gírskiptingunni er vel fyrir komið í öllum bílunum og tiltölu- lega létt er að skipta þeim. Það eina sem hægt er að finna að skipt- ingunni er að tiltölulega langt er milli gíra, en það kemur lítið að sök vegna þess hversu létt er að skipta bílnum. Sjálfskiptingin er lipur og létt. Hvað vinnslu áhrærir í gírunum, þá kemur fimm gíra 2ja lítra bíllinn alveg sérstaklega vel út. Góð vinnsla er í öllum gírum, enda upptakið liðlega 10,2 sekúnd- ur í 100 km hraða. Hvað 1,6 lítra fjögurra gíra bílinn áhrærir, þá er hann tiltölulega venjulegur, ágæt- lega kraftmikill og vinnsla ágæt í gírunum. Hann er þó óneitanlega skemmtilegastur í 3ja gírnum. Sjálfskipti bíllinn með 2ja lítra vél kemur ágætlega út og hann vinnur sig létt og lipurt upp. Pedölunum hefur verið komið vel fyrir, þannig að engin hætta er á því, að stíga á tvo þeirra samtímis eins og stund- um vill vera. Ástigið er þægilegt, þ.e. bremsur eru léttar og kúpling- in er létt og slítur á góðum stað. AKSTURSEIGINLEIKAR Aksturseiginleikar bílsins reyndust vera mjög góðir. Hann er með sjálfstæða fjöðrun á öllum hjólum. Hann er hæfilega stígur, þannig að hann leggst ekki niður í hornin, þótt honum sé ekið hratt inn í krappar beygjur. Þá kemur hann furðu vel út á ósléttum mal- arvegum. Óneitanlega nýtur bíll- inn sín þó bezt, þegar honum er ekið hratt á malbikinu. Hann kom mér hreinlega á óvart fyrir hversu stöðugur hann var á miklum hraða. GLX-bílarnir eru með vökvastýri, sem kemur mjög vel út. Þá er boðið upp á rafstýrða högg- deyfa, þar sem ökumaður getur valið 3 mismunandi stillingar í 2ra dyra Coupé S/R GLX-bílinn. NIÐURSTAÐA Niðurstaðan, eftir að hafa ekið þremur mismunandi útfærslum, 2ra dyra 2 lítra fimm gíra bein- skiptum, 4ra dyra 1,6 lítra, 4ra gíra beinskiptum og fimm dyra, 2ja lítra sjálfskiptum, er sú, að með Mazda 626 er á ferðinni mjög skemmtilegur bíll. Hann hefur hreinlega allt fram yfir forvera sinn, sem þó var ágætur. Bíllinn er með skemmtilega fjöðrun, er til- tölulega kraftmikill og er með mjög ríkulega búna innréttingu. Helzti gallinn er eins og áður sagði sá, að loftrými er ekki nægilega mikið í 2ra dyra og 5 dyra bílnum, en að öðru leyti er rými mjög gott í bílunum almennt.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.