Morgunblaðið - 23.02.1983, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 23.02.1983, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 23. FEBRÚAR 1983 47 mínu áliti hefur Biblían hér loka- orðið hvað vizku snertir: „Því að hver meðal manna veit hvað mannsins er, nema andi manns- ins, sem í honum er?“ I. Kor. 2,11. Mark Twain, bandaríski rithöf- undurinn, skrifar í inngangi sjálfsævisögu sinnar: „Hversu agnarsmár hluti af lífi persónunn- ar eru athafnir hennar og orð! Hið raunverulega líf mannsins fer fram í höfðinu á honum og er óþekkt öllum nema honum sjálf- um. Allan liðlangan daginn og hvern dag malar mylla heila hans og það eru hugsanir hans og ekki annað, sem er saga hans. Verk hans og orð eru aðeins hin sjáan- lega skorpa heims hans, með sín- um stöku snjótindum og hinum auðu, óræktuðu svæðum á víð og dreif — og þau eru svo smávægi- legur hluti af honum öllum, aðeins húð utan um hann. Meginhluti hans er hulinn — hann með sína jarðelda sem brjótast um, sjóða og hvílast aldrei nótt eða dag.“ Hvað skyldi svo vera trúverðug- ast — hugsanir mannsins sjálfs um hans eigin reynslu eða álit annarra? Maðurinn getur í raun og veru ekki verið jafn viss um neitt og sína eigin reynslu. Það er hægt að leita til ættingja, kunn- ingja og samstarfsfólks til þess að fá upplýsingar um eina persónu en þær verða aldrei betri en samband þessara aðila við þá persónu. Þegar sjúkur maður hefur verið gerður réttlaus bætist við mynd hans 'félagsleg aðstaða hans. Það er mikill munur á því að vera veik- ur og eiga samastað og hinu að eiga hann ekki og þurfa e.t.v. ár- um saman að vera knýjandi á dyr vandalauss fólks og það á erlendri grund. Þá er það einnig til að fag- mennirnir sem höfðu mörg og endurtekin tækifæri til þess að koma til móts við þarfir þessa veika manns taka nú höndum saman við aðra menn, sem allir tilheyra alþjóðahringnum, og sameiginlega leggjast þeir nú á eitt, með ótal útsendurum sér til hjálpar að gera það heyrinkunn- ugt að þessi manneskja sé bara neikvæð og að hún eigi það ekki skilið að henni sé rétt hjálpar- hönd. Þannig eru veikindin fram- lengd. En hvað með hugarástand- ið? Við ættum e.t.v. að búast við því að undir þessum kringum- stæðum ætti þessi sjúki einstakl- ingur að vera a.m.k. jafn léttlynd- ur og bjartsýnn og rannsakend- urnir sem sitja í sínum hæginda- stólum í allsnægtum heimila sinna, umkringdir ástvinum sín- um? Þegar hér er komið sögu fer leikurinn fyrst verulega að verða ójafn. Sá veiki gat vel hafa átt sér hugsjónir, enda þótt að sjúkdómur hafi komið í veg fyrir að hann gæti fylgt þeim eftir með áþreif- anlegum árangri. Eitt er víst, stjórninni mann, sem kannski hefur drepið gamla konu. Dálítið vafasamur húmor þar. En nú fara þeir á stúfana ráðherrann — sem er vísast ekki eins vit- grannur og hann er látinn vera í upphafi — og mágur hans, og það er fyrst og fremst fyrir þeirra tilstilli, að upp komast svik um síðir og hinn seki fær makleg málagjöld. Að vísu er það meiri háttar brotalöm í sögunni, að lesandi skynjar ekki alls kostar þá for- tíðarforsendu, sem á að gilda varðandi fyrsta morðið. Það mætti gefa ögn meiri bendingar án þessa að sagan missti nokkuð af spennu. Því að hún er heil- mikil og umfram allt er sagan bráðskemmtileg. Ég hygg, að hún hafi heldur betur bætt við sig í þýðingu Guðna Kolbeinss- onar, þó að ég sé ekki dús við þessi gagnrýni íslenskufræðing- ur láti það koma fyrir hvað eftir annað að stytta sér leið með notkun ef að í stað þess að brjóta upp setningarnar. Að öðru leyti hin prýðilegasta skemmtilesn- ing. hann er að leita að samstarfsfólki, fyrst til þess að ráða bót á mein- um sínum og síðan til þess að starfa með. Hann kann samt að haga leitinni á annan veg en al- mennt gerist. Hann er búinn að eiga nokkuð þunga göngu árum saman og fyrirsjáanlegt er að hann eigi eftir að eiga það eitt- hvað áfram. Að minnsta kosti veit hann vel að hann hefur aldrei val- ið auðveldustu leiðina út úr vanda lífsins. Hann leggst því nokkuð þungt á meðbræður sína, einkum þá er tala mest um fölskvalausa ást á náunganum. En fólk þolir ekki þungann. Einkum á þetta við um Ameríkana, sem oft virðast helst vilja sópa öllum vandamál- um undir teppi eða loka þau inni — bara að þau sjáist ekki. Þá geta þeir látið sem þau séu ekki til. Þessa tilraun sjúklingsins eiga þeir til að kalla „að velta sér upp úr mótlæti fortíðarinnar". Siðan geta þeir í eyðurnar og segja að vandamál sjúklingsins geti verið neikvætt sjálfsálit, sem stafi af samanburði við aðra. Ég hélt ekki að sjúklingur hefði neina þörf til þess að bera sig saman við aðra til þess að vilja njóta hinna augljósu mannréttinda sem felast í því að fá læknishjálp. Hvernig skyldi svo hugsjónum hins veika reiða af ef meðbræð- urnir þola ekki þungann og stand- ast þar með ekki prófið. Ef hann lifir þetta af þá má með nokkurri vissu geta sér þess til að þær skerpast frekar en hið gagnstæða. Mannúðarhugsjónir hans verða stærri vegna persónulegrar reynslu hans. Það verður honum réttlætismál að stuðla að auknum skilningi manna í milli og til þess að koma því til leiðar klæðir hann sannfæringar sínar búningi talaðs eða ritaðs orðs. Væri þá hægt að kalla slíka sannfæringu „ósjálf- ráða hugsun" og „óskynsamlega"? Réttlætismál geta aldrei orðið óskynsamleg í eðli sínu. „A ég að segja þér hvað sönn þekking er: að vita að þú veist það sem þú veist og að vita að þú veist ekki það sem þú veist ekki, þetta er sönn þekking,“ sagði Konfúsíus. Rannsakendur eiga það til að rangtúlka það sem er að gerast í kring um „tilraunadýrið". Hópur fólks fer í bátsferð á Genfarvatn- inu í Sviss. Þetta átti að heita skemmtiferð. Flestir eru þarna með kunningjum frá staðnum sem þeir dvelja á í landinu. Aðeins ein persóna mátti ekki njóta þeirra mannréttinda að vera óáreitt. Rannsakendurnir máttu til með að nota þetta tækifæri til þess að athuga viðbrögð viðkomandi. Sett var á svið — ókunnugt fólk látið nálgast persónu þessa og spyrja hana spurninga. Hún vissi hvað var að gerast og hafði viðbjóð á því. Hún svaraði ekki. Þegar heim var komið var enn á ný sett á svið. Þá var reynt að fiska upp hvers hún hafði orðið vör á bátnum og einnig varðandi viðbrögð hennar. I stað þess að segja við þá er fiska: „Að þið skuluð gera svo lítið úr ykkur að láta meðalmennskunni í té þjónustu ykkar og, með því, að standa í veginum fyrir sönnum framförum," þá segir hún eitthvað villandi vegna þess að henni finnst svona fíflaleikur ekki eiga betra skilið. Síðan eru rannsakendurnir líklegir til þess að skrásetja á blöð sín: „einkennandi er að draga fljótfærnislegar ályktanir án þess að hafa nokkuð fyrir sér og trúa því að niðurstaðan sé rétt.“ Ef sálfræðingarnir líta á það sem stórt vandamál þegar maður segir við sjálfan sig: „Öllum finnst ég ljótur. Aldrei get ég sagt neitt skemmtilegt. Ég er algerlega mis- heppnaður," þá ættu þeir e.t.v. að sérhæfa sig í því að hjálpa slíku fólki. Að staðhæfa það að hinn hlédrægi, þegjandi maður sé neikvæður finnst mér of einfeldn- ingslegt. Persóna er sætir meðferð eins og þeirri framangreindu get- ur nefnilega lamast á sinn hátt, líffræðilega, sálarlega og félags- lega. Eftir að búið er að þagga niður í slíkri persónu, árum sam- an, einmitt þegar hún hefur leit- ast við að tjá sig um sín bráðnauð- synlegustu málefni — á þá að segja að hún sé að byrgja sig inni ef dag einn skyldi koma hlé í túlk- unarviðleitninni? Skyldi ekki mis- kunnsami Samverjinn í sögunni hafa fengið annað viðurnefni ef hann hefði farið með skjólstæðing sinn, særðan og illa haldinn, rak- leitt inn á einhverja rannsóknar- stofu, framlengt þjáningar hans þar og meira að segja bætt við sár hans í tilraunaskyni — og allt í þágu vísindanna? Væri ekki líka gáfulegt að orða það þannig, ef slíkt „tilraunadýr" lítur ekki sömu augum á hlutina og þeir sem til- raunirnar annast, að maðurinn sé ekki í tengslum við raunveruleik- ann. Þá mætti líklega bæta við: hvaða raunveruleika? Hans eigin eða einhverra annarra? Eigum við svo að segja að það sé eitthvað furðulegt ef álit annarra hefur áhrif á hinn sjúka þegar einmitt álit og umsagnir annarra hafa stuðlað að framlengingu þjáninga hans. I grein Mbl. var einnig minnst á það að hinir þunglyndu neituðu sér um hvíld vegna þess að þeir álíti sig skyldum hlaðna. Það er dálítið athyglisvert að þessi at- hugasemd skuli koma á tíma þeg- ar dagblöðin fjölyrða um það að hjúkrunarfræðingar, margir hverjir, hafi yfirgefið starf sitt vegna of mikils vinnuálags og lágra launa. Hitt er engu síður at- hyglisvert að sagt hefur verið að vinnusvik hafi verið óþekkt fyrir- brigði á íslandi áður en varnarlið- ið settist hér að. Gausdal 1983 1. pistill: Titilstríð Titilstríð Ýmsir skákmenn kveina sáran yfir hve erfitt sé að krækja sér í titil þessa dagana. Samt er það staðreynd, að titilberar hafa aldrei verið fleiri en einmitt nú. Við verðum þó að hafa í huga, að líkast til hafa aldrei verið jafn margir á höttunum eftir þessum hégóma en á líðandi stund. í hverju alþjóðlegu skákmóti eiga að jafnaði nokkrir möguleika á að næla sér í áfanga að titli, ef þeim tekst að vinna í sfðustu umferð. I nákvæmlega þessari aðstöðu voru Tom Wedberg frá Svíþjóð, Sergei Kudrin frá Bandaríkjunum, og landi okkar Karl Þorsteins á skákmótinu í Gausdal fyrir skömmu. Fyrsti áfangi að stórmeistaratitli var í augsýn þeirra Wedbergs og Kudrins, en Karl hafði sinn fyrsta áfanga að alþjóðlegum meistaratitli innan seilingar. Þeir urðu bara að vinna. Hvítt: Margeir Pétursson Svart: Tom Wedberg Ben Oni (?) 1. d4 — Rf6, 2. c4 — c5, 3. d5 — a6?! Þessi fáséði leikur hefur stundum sést í skákum Schússl- ers, en hann er landi Wedbergs. Algengara er 3. — e6 eða 3. — b5, en Wedberg telur vænlegra að fara lítt kannaðar slóðir, því að Margeir er vel lesinn í fræð- unum. 4. Rf3 — e6, 5. g3 — b5, 6. Bg2 — Bb7. Eftir 6. - bxc4, 7. Rc3 stendur hvítur vel. 7. e4! Ófl- ug peðsfórn eins og brátt kemur í ljós. 7. — Rxe4, 8. 0-0 — bxc4, 9. dxe6 — fxe6? Þegar teflt er stíft til vinnings, eins og Wedberg verður að gera hér, hafnar skák- maðurinn iðulega öllum leikjum, sem leiða til jafns tafls. Oft verður því versti kosturinn fyrir valinu. Rétt var að leika hér 9. — dxe6, því svartur þarf ekki að óttast 10. Dxd8+ — Kxd8,11. Rg5 - Rxg5, 12. Bxb7 - Ha7, 13. Bxg5+ — f6, en Wedberg vill halda í peðin tvö, sem Margeir fórnaði. 10. Re5! Hótar 11. Dh5+. 10. — Df6,11. Bf4 — Be7,12. Hel — Rd6. Einnig var óyndislegt að leika 12. — d5 vegna 13. Da4+. 13. Bxb7 — Rxb7, 14. Rc3 — Ra5. Svartur heldur sig við sama heygarðshornið og valdar sitt peð, en ekki var fýsilegt að hróka vegna 15. Rxd7. 15. Rd4 — Df8, 16. Da4 — Rbc6 17. Rxd7! Þar féll sprengjan. 17. — Kxd7, 18. Hadl+ — Ke8. Eftir 18. - Kc8, 19. Rd6+ - Bxd6, 20. Hxd6 er svartur bjargarlaus. 19. Bc7! Svörtu riddararnir halda dauðahaldi hvor í annan og geta sig ekki hreyft. Annar hvor þeirra hlýtur því að falla. 19. — Kf7, 20. Bxa5 - Rd4, 21. He3 — De8, 22. Dxc4 — Dd5? í þessari óhrjálegu stöðu leikur svartur af sér manni, en aðrir leikir bjarga ekki taflinu heldur draga aðeins baráttuna á langinn. 23. Hxd4! — Hfe8. Svartur verður mát eftir 23. - cxd4, 24. Rd6+! - Bxd6, 25. Dxe6+ - Kf8,26. Hf3+. Hér hefði Wedberg undir venjulegum kringumstæðum gefist upp, en hann vonar enn að kraftaverkið gerist. 24. Dxb5 — axb5, 25. Hd7 — Hxa5, 26. Rd6+ — Kf8, 27. Hf3+ — Bf6, 28. Hf7+ — Kg8, 29. H7xf6. Hvítur gaf manninn til baka um stundarsakir, en vinnur hann nú aftur. 29. — gxf6, 30. Rxe8 — Hxa2, 31. Rxf6+ — Kg7, 32. Re8+ — Kg6, 33. Hf6+ — Kh5, 34. Hxe6. Einnig mátti tefla upp á mát og leika 34. h4 eða 34. Kg2. 34. — Hxb2, 35. He5+. Og hér gafst Wedberg loks upp. Margeir hafði breytt draumi hans um stórmeistaraáfanga í martröð. — Það er af þeim Karli og Kudrin að segja, að hvorugum þeirra tókst að vinna, og urðu því þeir sálufélagar Wedbergs í þessu titilstríði. Austurlandskjördæmi: Styðjum Tryggva — eftir Helga Þórð- arson, Vopnafirði Tryggvi Gunnarsson skipstjóri skipaði þriðja sætið á lista Sjálf- stæðisflokksins í Austurlands- kjördæmi í síðustu alþingiskosn- ingum. Talið var að listinn væri mjög sterkur með alþingismann í fyrsta sæti, bónda í öðru og skip- stjóra í því þriðja. Raunin varð líka sú að listinn var sterkur, því að þó Sjálfstæðisflokkurinn tapaði fylgi í flestum kjördæmum lands- ins, þá vann hann á í Austurlands- kjördæmi. í komandi kosningum er mikilvægt að veikja ekki fram- boðslistann og þess vegna má Tryggvi Gunnarsson ekki lenda neðar en í þriðja sæti og helst ætti hann að skipa annaðhvort fyrsta eða annað sætið. Tryggvi Gunnarsson Margir kunna að spyrja til hefur setið á Alþingi, að þar er hvers ætti að kjósa Tryggva. réttur maður á réttum stað. Ástæðan fyrir því er sú, að hann I jómfrúræðu sinni á Alþingi hefur sýnt það, þá sjaldan að hann talaði Tryggvi um „stóru slysin í „Talið var að listinn væri sterkur með al- þingismann í fyrsta sæti, bónda í öðru og skipstjóra í því þriðja. Raunin varð líka sú að listinn var sterkur.“ fiskiðnaði“. Stóru slysin voru þau að fiskurinn skemmdist í meðför- um og þess vegna fengist ekki nógu mikið verðmæti fyrir hann. Hvað hefur svo komið á daginn? Jú, vegna gallaðrar vöru hefur orðið síerfiðara að selja fiskinn og reyndar sumar sendingar verið endursendar. Þetta sá Tryggvi fyrir og varaði við. Einnig mætti benda á þings- ályktunartillögu, sem hann bar fram og fékk samþykkta um að kanna vetrarvegarstæði milli Vopnafjarðar og Héraðs. Við fyrstu sýn getur virst að þetta sé eingöngu mál Vopnfirðinga. Ef málið er skoðað nánar kemur það í ljós að Vopnfirðingar sækja mest- alla þjónustu til Akureyrar og eru því smám saman að einangrast alveg frá Austurlandi. Þegar veg- urinn verður gerður, leiðir það hins vegar til þess að menn sæki þjónustu sína í æ ríkara mæli til Egilsstaða en ekki til Akureyrar, enda verður sú leið mún styttri með tilkomu vegarins og auk þess fær allt árið. Við þetta aukast samskipti Vopnfirðinga við aðra aðila innan kjördæmisins og hlýt- ur það að vera hagsmunamál allra Austfirðinga/ Ekki má gleyma örygginu fyrir allt norðaustur- hornið, ef hafís leggst að landinu. Þá gæti þessi vegur orðið betri en enginn. Þó ekki sé minnst á fleiri en ofangreindar ástæður sé ég ekki annað en Tryggvi Gunnarsson sé sjálfsagður og reyndar nauðsyn- legur maður á Alþingi fyrir Aust- urlandskjördæmi. Helgi Þórðarson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.