Morgunblaðið - 23.02.1983, Qupperneq 20
52
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 23. FEBRÚAR 1983
HOTEL-
ást er ...
... að ganga hljóðlega
um þegar hún er með
mígreni.
T* Rm U.S. P«t. Ofl.-iH rtohts raMrvtd
•1962 Los Ane«tM TlmM Syndtcala
Því grófstu þig ekki út að ofan?
Með
morgimkaffinu
Hvað er þetta maöur, hér beint
fyrir framan nefið á þér í frystin-
um eru svörtu sokkarnir þínir!
HÖGNI HREKKVISI
„pÓHtroR PAL-eTl 'a 05TI 06 HATAR XETT).
Höfum ljósin kveikt
f prófkjörinu!
Anna Snæbjörnsdóttir skrifar:
„Nú þykir mér Svarthöfði kol-
svartur, og vil ég taka undir orð
blaðamanns Þjóðviljans frá 8.
febrúar.
Sjaldan hef ég lesið eins
ósmekklega ritsmíð og þá sem
Svarthöfði lét frá sér fara í DV 7.
febrúar sl., enda getur hann/hún
leyft sér ýmislegt í skjóli nafn-
leyndar. Það er ég viss um að
hann/hún hefði ekki haft kjark til
svona skrifa undir eigin nafni.
Nafnið Svarthöfði gefur til kynna
að hér sé um karlmann eða blaða-
herra, sbr. þingfrú, að ræða, enda
gefur innihald skrifanna vísbend-
ingu þar um.
Hvað fyrir þessum svarthöfða
blaðaherra vakir með því að fara
svo ósmekklegum orðum um frú
Salome Þorkelsdóttur, þingmann
Reykjaneskjördæmis, er ég ekki
viss um. Óneitanlega er kosninga-
lykt af skrifunum, burt séð frá því
hvort hann er sammála frumvarpi
þingmannsins um notkun bílljósa
eða ekki.
Hver og einn verður að geta í
eyðurnar um tilganginn. Kannski
hefði verið betra fyrir Svarthöfða
að kveikja á sinni eigin týru, áður
en hann lét þetta frá sér fara.
„Svo mælir Svarthöfði" í
ákveðnum tilgangi, sé hann sá „að
slökkva á pólitískri týru frúarinn-
ar“ eins og hann kemst að orði, til
framgangs öðrum, þá hefur blaða-
herrann nú skotið heldur hátt og
skrif hans ekki til neins annars en
gera hann sjálfan hlægilegan. Sé
mín tilgáta rétt, höfðu þau nei-
kvæð áhrif. Ég vil hvetja fólk til
að lesa þessa grein og einnig svar
þingmannsins í DV 11. febrúar.
Salome Þorkelsdóttir er ein af
mjög fáum konum sem ennþá hef-
ur möguleika á að komast í öruggt
þingsæti við næstu alþingiskosn-
ingar. Ég vil því hvetja kjósendur
í Reykjaneskjördæmi til að taka
þátt í prófkjöri Sjálfstæðisflokks-
ins 26.-27. febrúar nk. og stefna
að því að koma henni í öruggt
þingsæti. Ekki bara af því að hún
er kona, heldur líka góður fulltrúi
og mjög frambærilegur frambjóð-
andi fyrir kjördæmið.
Það er mikil hætta á að konum
fækki á Alþingi ef svo fer fram
sem horfir og það má ekki gerast.
Þeim þarf að fjölga þar allveru-
lega, því nauðsynlegt er að konur
og karlar vinni saman að málefn-
Salome Þorkelsdóttir
um þjóðarinnar.
Það er ekki bara karlmönnum
að kenna, að hlutur kvenna á Al-
þingi er svo slakur, karlmenn hafa
yfirleitt síður en svo á móti því að
vinna með konum, það þarf ýmis-
legt að breytast hjá konum sjálf-
um, hafi þær aðstæður og áhuga
fyrir að gegna þessum störfum.
Því segi ég: Notum tækifærið
meðan það enn gefst, „höfum ljós-
in kveikt" í prófkjörinu 26. til 27.
febrúar nk., komum frú Salome
Þorkelsdóttur í öruggt þingsæti
við næstu alþingiskosningar."
Fyrirspurn til Osta-
og smjörsölunnar sf.
Þessir hringdu . . .
Abending til
þingmanna
Jóhann Þórólfsson hringdi og
hafði eftirfarandi að segja: — Hvað
er að gerast í stjórnmálum íslend-
inga? Halda forystumenn þjóðar-
innar, að það sé meðalið til að íækna
efnahagsmál og önnur aðkallandi
mál, sem leysa þarf, þar með að
minnka verðbólguna, að fjölga
flokkunum? Ég held að þingmenn
ættu að ganga aftur í skóla og læra
betur. Eftir því sem flokkarnir
verða fleiri, eftir því verður sundr-
ungin meiri. Nú eru allir forystu-
menn þjóðarinnar menntaðir, en
samt geta þeir ekki stjórnað þessu
landi, svo að vel fari. Ég sem kjós-
andi fæ engan botn í pólitíkina á
Islandi eins og hún er nú rekin. Ég
held að bæði kjósendur og stjórn-
málmenn verði að breyta um hugs-
unarhátt; það er það eina sem gæti
orðið þjóð okkar til heilla. Þetta
sundurlyndi í flokkunum getur ekki
gengið lengur. Ég hef álitið það hin
síöari ár, að það sé algjör hræsni, að
þingmenn fari í guðshús, þegar þing
kemur saman, vegna þess að þegar
þingstörf hefjast vinna þeir ekki
samkvæmt boðuninni. Þeir skamm-
ast og svívirða hver annan, en hafa
ekki bænina að leiðarljósi eða trúna
á Jesú Krist eða leysa málin í anda
Guðs, í trúnni á þann sem öllu ræð-
ur. Ef þingmenn vilja þjóð sinni vel,
ættu þeir að taka þessa ábendingu
til greina. Engin þjóð getur leyst sín
mál nema hafa Guð í stafni.
„í fótspor SnorraM
A.H. hringdi og hafði eftirfarandi
að segja: — Ég skoðaði sýninguna
hennar Sigrúnar Jónsdóttur á hótel-
inu í Borgarnesi, þegar ég átti leið
þar um fyrir skömmu. Kaílar lista-
konan sýninguna „I fótspor Snorra".
Þó að tíminn væri naumur fannst
mér ekki hægt að láta það tækifæri
úr greipum ganga að skoða þessa
sýningu. Og ég sá ekki eftir því.
Dýrindis myndir prýddu alla veggi
og vil ég nota þetta tækifæri til að
þakka Sigrúnu fyrir mig, um leið og
ég hvet fólk, sem ekki hefur enn lát-
ið verða af því að sjá sýninguna, til
að gera það í tíma.
Noröurmýrarbúi skrifar:
„Velvakandi.
Á undanförnum mánuðum og
árum hef ég komið oft í verslun
Osta- og smjörsölunnar sf. við
Snorrabraut í Reykjavík. Þar eru
einkum til sölu ostar og smjör.
Ennfremur þykir viðeigandi að
hafa á boðstólum kex, sem fólk et-
ur gjarnan með osti. Nú skyldi
fólk halda að þarna væri á boð-
stólum íslenskt kex ósætt, t.d.
heilhveitikexið frá Fróni, sem að
mínu mati er ómissandi með pip-
arosti, eða rúgkex frá sama fyrir-
tæki. Það síðarnefnda er að vísu
heldur sætt fyrir minn smekk.
Afgreiðslustúlkur ostabúðarinnar
hafa tjáð mér að stöku sinnum fá-
ist þar íslensk hafrakex úr bakaríi
og er það góðra gjalda vert. En
hvers vegna styður Osta- og
smjörsalan ekki innlendan kexiðn-
að? Súkkulaðikex, auðvitað útlent,
er alltaf á boðstólum í ostabúðinni
en ostur er ekki étinn með því þar
sem ég þekki til.“
GÆTUM TUNGUNNAR
Sést hefur: Þeir unnu að því öllum árum.
Rétt væri: Þeir reru að því öllum árum.