Tíminn - 07.08.1965, Side 14
14
TÍMINN
LAUGARDAGUR 7. ágúst 1965
íslendingur þátttakandi
í Grand-Prix kappakstrinum
HÓI—Reykjavík, föstudag. I flugi. Skúli keppir fyrir enskt I Unnið hefur verið að því að end-
Danska blaðið Aktuelt skýrir firma. urbæta ökubrautina í Hróars-
frá því í fyrradag, að meðal þátt- keldu, en á síðasta ári fórst þar
takenda í Grand Prix-kappakstrin- Grand Prix-kapipaksturinn er ungur danskur kappakstursmaður.
um í Hróarskeldu um aðra helgi helzti kappakstursviðburður árs- Hafa beygjur á brautinmi verið
verði Skúli Þóroddsson, en hann | ins í Dammörku og koma þanigað lagaðar, og er hún nú talin ör-
hefur verið fslandsmeistari í svif- margir heimsfrægir ökumenn. ' uggari en áður.
Sveit varnarliðs-
manna sigraði
Sunnudaginn 1. ág. s.l. var háð
keppni þriggja golfklúbba á
Hólmsvelli í Leiru.
I
LOFUNAR
RINGIR
AMTMANNSSTIG 2
HAI.LDOK KKISTINSSO!\
nillsmiðui — Slmi Ifi97l;
Trúlofunar-
hringar
afgreiddir
samd»»aurs.
Sendurr urr allt land
H A L L D Ó R
Skólavörðustlg 2
Liðin, sem kepptu, voru frá
Golfklúbbi Vestmannaeyja, Golf-
klúbbi varnarliðsmanna á Kefla-
víkurflugvelli og Golfklúbbi Suð-
umesja.
Leikinn var höggleikur, 18 hoi
ur, og árangur sex beztu leik-
Tilrauna-
borarnir
MB—Reykjavík, föstudag.
Nú eru að hefjast tilraunaboran
ir á. Nesjavöllum í Grafningi. en
eins og kunnugt er, hefur Reýkja
víkurborg keypt jörðina og hyggst
hagnýta þar jarðhita fyrir Reyk-
víkinga. Fluttur hefur verið aust
ur borinn, sem notaður var í
Námaskarði á dögunum, og getur
hann borað 500 metra niður.
Þarna eru að sinni aðeins um til-
raunaborun að ræða og er ó-1
mögulegt að segja um að svo:
stöddu, hve langt kann að vera
niður á heitt vatn þarna.
HÓl—Reykjavík, föstudag.
Á fundi Norræna sumarháskól-
ans, sem stendur yfir í Kiruna í
Svíþjóð þessa dagana, var sam- i
þykkt að stofna nýtt menningar- j
málatímarit fyrir Norðurlöndin. j
Verður það á dönsku, norsku og \
sænsku. Segir danska blaðið Akt- i
uelt. að ritstjóri tímaritsins verði j
Norðmaður, Leif J. Wilhehnsen,
prófessor. Á það að koma út sex
sinnum á ári og vera um 60 blað
síður að stærð. Ritið verður gefið
út í Osló, og upplag þess verður
3000 eintök.
Jarðarför mannsins mins
Þórólfs GuSjónssonar
Yfri-Fagradalt
fer fram mánudaginn 9. þ. m. frá Staðarhólskirkju kl. 2 s. d.
Húskveðja fyrir vandamenn, verður að hetmili okkar kl. 10 árd.
sama dag.
Fyrir hönd barna, okkar, tengdabarna og annarra vandamanna,
Elínbet Jónsdóttir.
Hjartans þakkir til allra naer og fjær, sem vottuðu samúð og
vináttu við útför eiglnkonu minnar móður, tertgdamóður og
ömmu,
FriSmeyjar GuSmundsdóttur
Vesturgötu 25, Akranesi.
Magnús Gunnlaugsson,
börn, tengdabörn, og barnabörn.
manna frá hverjum klúbbi reikn-
aður til úrslita.
Leikar fóru þannig, að sveit
Golfklúbbs varnarliðsmanna sigr-
aði á 484 höggum. Sveit Golf-
klúbbs Suðurnesja lék á 501 höggi
og sveit Golfklúbbs Vestmanna-
eyja lék á 526 höggum.
Fyrirhugað er, að sömu lið
keppi aftur í byrjun næsta mán-
aðar og mun sú keppni fara fram
í Vestmannaeyjum.
Mikil
ölvun
Seint í gærkvöldi hafði blaðið
samband við lögregluna í Vest-
mannaeyjum og fékk þá þær upp-
lýsingar, að mikil ölvun væri
meðal fólks, sem komið væri til
EJyja vegna ,,Þjóðhátíðarinnar“,
en engar óspektir hefðu orðið og
cngin ,slys á mönnum. ;a
Stanzlaus straumur fólks var til
Eyja í gær og var mikið annríki
t.d. á Reykjavíkurflugvelli, þar
sem hver flugvélin á fætur ann-
arri hélt með fólk til Vestmanna-
eyja.
,Morgunn‘
HÓl—Reykjavík, föstudag.
Blaðinu hefur borizt Morgunn,
tímarit Sálarrannsóknafélags ís-
lands, 1. hefti 46. árgangs. Meðal
efnis í heftinu má nefna greinam-
ar Hvað er það, sem lifir eftir
líkamsdauðann eftir Hornell Hart,
Veggur fordómanna eftir Ævar
R. Kvaran, Þegar ég var á Eiðum
eftir Sigurð Magnússon, Fram-
haldslíf eftir Arthur W. Osborn
og Þættir úr reynslu minni eftir
Karl V. Guðbrandsson. Þá er
grein um bandaríska spákonu frú
Dixon og spádóma hennar. Rit-
stjóri Morguns, séra Sveinn Vík-
ingur ritar Ritstjórnarrabb og
greinina Vorið kemur, auk nokk-
urra smágreina.
LÍTIL SÍLD
Framhald af 2. síðu
ur þessar of djúpt, að sögn Jakobs
Jakobssonar, fiskifræðings, til
Þess að unnt væri að nýta þær,
en allmörg skip voru á leið á
þessar slóðir í von um að síldin
kynni að koma upp í nótt.
HERNAÐARAÐGERÐIR
Framhald af 16. síðu
hendi, en hins vegar vildu þeir
halda góðu sambandi við Vestur
veldin og hefðu nú fallizt á að
taka að nýju þátt ■ afvopnunarráð
stefnunni í Genf.
Sovézkt tímarit sakaði i dag
Johnson Bandar'ktaforseta t'yrir
að stefna fram 3 brún hengiflugs
ins í Víetnam. í tímaritinu segir,
að átökin í Víetnam séu að verða
allsherjar styrjöld Bandarikjanna
í Asíu.
Greinin er skrifuð af Kraminov
ritstjóra tímaritsins Za Rubezjom
og segir þar meðal annars, að
styrjöldin sé eingöngu bandarísk.
Ekkert land, nema leppríki Banda
ríkjanna, eins og Suður-Kórea,
faafi sent herlið til Víetnam. Ekki
er minnzt á herlið það, sem Ástr-
alía og Nýja-Sjáland hafa sent, og
mun átt við, að þau ríki séu lepp
ríki.
Kraminov segir, að í upphafi
faafi Bandaríkjamenn farið að
skipta sér af innanríkismálum í
Suður-Víetnam, síðan hafi þeir
ráðizt á Norður-Víetnam, og nú
beinist hernaðaraðgerðir þeirra
gegn allri Asíu.
Nasser, forseti Egyptalands, og
Sekou Toure, forseti Guineu, gáfu
út sameiginlega yfirlýsingu í dag
þar sem þeir láta í ljós áhyggjur
sínar vegna þróunar mála í Víet-
nam. Sömuleiðis hafa Shastri, for
sætisráðherra Indlands og Obotes
forsætisráðherra Uganda, skorað
á alla aðila að vinna að friði í Víet
nam. Obotes hefur undanfama
daga verið í opinberri heimsókn
á Indlandi.
í fréttatilkynningu frá sovézku
fréttastofunni Tass, segir, að sú
ákvörðun Bandaríkjastjómar að
senda 50.000 manna herlið til Víet
nam til viðbótar liði því, sem fyr
ir er, sé að dómi sovézkra ráða-
rnanna árásaraðgerð og stuðli að
því að kynda undir ófriðarbálið
í Vietnam.
Þá er skorað á bandaríska ráða-
menn að hætta þegar í stað hem-
aðaraðgerðum í Víetnam.
Sovétríkin styðja fólkið í Víet-
nam í hinni réttmætu baráttu þess
gegn árásarstyrjöld bandarískra
heimsvaldasinna, segir ennfremur
í tilkynningunni. Sovétríkin veita
Norður-Víetnam fullah stuðning
í baráttunni gegn hinum banda-
rískum árásum, segir að lokum.
Bandarískir hernaðarráðgjafar
í Víetnam fullyrða, að kínverskir
hermenn berjist við hlið her-
manna frá Norður-Víetnam í orr-
ustu, sem geisar við Pleiku í
Suður-Víetnam. Bardagar þar em
að verða hinir mestu, sem um
getur í átökunum í Víetnam und
anfarin ár, og er talið, að hér
sé um að ræða upphaf „monsún-
árásar* Víetkong, sem lengi hefur
verið búizt við.
Bardagar hafa staðið þarna í
fjóra daga. Skæmliðar hafa hald-
ið stöðvum sínum hingað til, enda
þótt varpað hafi verið yfir þá
fjölda eldsprengja.
Alls gerði 31 bandarísk flug-
vél loftárásir á stöðvar fyrir sunn
an Hanoi í dag. f Saigon er sagt,
að 3050 Víetkong-hermenn hafi
fallið í síðastliðnum mánuði.
Arthur Goldberg, fastafulltrúi
Bandaríkjanna hjá SÞ, kom í
kvöld til New York til þess að
ræða við hina kjömu fulltrúa Ör-
yggisráðsins, en þeir ræða nú
leiðir til þess að koma af stað
samningaviðræðum um Víetnam.
Hinir kjömu fulltrúar Öryggis-
ráðsins era frá Malaysiu, Fíla-
beinsströndinni, Jórdan, Hollandi
Bólivíu og Úraguay.
Það er áð framkvæði Banda-
ríkjastjórnar, að reynt er að fá
þessa fulltrúa til þess að vinna
að málinu. U Thant, framkvæmda-
stjóri Sameinuðu þjóðanna, er and
vigur því. að Öryggisráðið ræði
Víetnam-málið. Slíkar umræður
væra þýðingarlausar úr þvi að
Kína og Norður-Víetnam ættu
ekki fulltrúa við umræður málsins
U Thant hefur ekki fengið nein
ar upplýsingar um erindi utanrík
isráðherra Ghana til Washington
og ekki hefur hann heldur fengið
að vita nokkuð um árangur við-
ræðna sendinefndar Ghana í Ha-
noi.
DAVÍÐSHÚS
Framhald af 16. síðu.
hús skáldsins og var Þórarinn
Björnsson, skólameistari, þar í
fararbroddi. Síðan afhentu safn
endur Akureyrarbæ húsið til eign
ar og bæjarstjórn hefur kosið
þriggja manna nefnd til að annast
rekstur hússins. Formaður henn
ar er Þórarinn skólameistari og
með honum Stefán Reykjalín bygg
ingarmeistari og Stefán Stefáns-
son, bæjarverkfræðingur, bróður-
sonur skáldsins.
Húsið var svo opnað til sýnis
fyrir almenning á sunnudaginn
og verður opið klukkan 15—17
alla daga. Alít er með sömu um
merkjum í húsinu og það var, er
skáldið lézt, smámunir og minnis
blöð eru á sínum stað. Góð aðsókn
hefur verið að húsinu þá daga
sem það hefur verið opið.
GRASRÆKT
Framhald af bls. 1
þurrkunaraðferðum, sem hér tíðk
uðust og taldi íslenzka bændur
standa öðram framar í notkun
isúgþurrkunar. Hins vegar furðaði
hann sig á því, hve algengt væri
að láta hey standa lengi í stökk
um á túnum, í votviðrasömu landi
eins og hér væri, myndi mikil
rýrnun og efnistap heys hljót-
ast af því, að hans skilningi, og
væri þá illa farið, þegar um
slíka gæðavöru væri að ræða og
íslenzkt hey.
Að lokum lét dr. Davies í Ijós
ánægju sína yfir því að hafa átt
þess kost að skiptast á skoðunum
við íslenzka landbúnaðarsérfræð
inga og bændur, og bað hann
blöðin að færa öllum þejm þakkir,
sem stuðlað hefðu að fslandsferð
hans, því móttökur hefðu alls stað
ar verið eins og bezt yrði á kosið.
VANDAMÁL ÆSKUNNAR
Framhald af 12. síðu J
aðeins 32 ára gömlum. H8ns mijin-
umst við ár hvert á dánardegi
hans, og sækjum í þá minningu
heilaga glóð og orku til átaka fyr-
ir frelsi, bræðralagi og bindindi.
„Fram með hug og hjartaprýði
horfum beint á hverja þraut.
Þreytum dug og þrek í stríði
þá mun sigur krýna braut.“
„EKKI ORÐ, HELDUR ATHAFN-
IR.“
Árelíus Níelsson.
IÞRÖTTIR
Framhald af bls. 13
leggja „taktik“ fyrir það,
stjórni því á leikvelli. Hugs-
ura okkur bara, ef fyrirliði
vildi beita sér á leikvelli og
ætti að segja fyrir verkum
þeim manni, sem hefur skipu
lagt leik liðsins! Slík vinnu-
brögð væru hjákátleg.
Þess má geta hér að Rkharð
ur Jónsson hefur verið fyrir-
liði íslenzka landsliðsins í 22
skipti, en Ellert tvisvar sinn-
um.
Formaður landsliðsnefndar
vildi ekkert segja.
Þegar ég náði tali af Sæ-
mundi Gíslasyni, formanni
landsliðsnefndar K. S. I. í
dag, hafði Ellert haft sam-
band við hann og skýrt hon-
um frá ákvörðun sinni. Eg bað
Sæmund að segja álit sitt á
málinu, en Sæmundur sagðist
ekkert vilja segja. „Eg get
ekkert sagt um það þessa
stundina“, var það eina, sem
Sæmundur vildi láta hafa eft
ir sér.