Morgunblaðið - 27.03.1983, Blaðsíða 20
68
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. MARZ 1983
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. MARZ 1983
69
Breski rithöfundurinn, blaöamaðurinn og kvenréttindakonan
Rebecca West, lést fyrir skömmu á heimili sínu í London, nítíu
ára aö aldri. A meira en sextíu ára löngum ritferli sínum
skrifaði hún fréttafrásagnir, skáldsögur, ritgerðir, stjórnmála-
greinar og þætti um sagnfræðileg efni. Hefur hún verið kölluð
ókrýnd drottning hins ritaða orðs í Bretlandi.
Altént
tíl að berjast
Rebecca West fæddist á
frlandi árið 1892, dóttir
hjónanna Charles og
Isabella Fairfield. Hún
var skírð Cicely Isabel
Fairfield og fluttist með
móður sinni til Edin-
borgar upp úr aldamótum, eftir lát föður
síns. Þar lauk hún formlegri skólagöngu
sinni þrátt fyrir að berklaveiki yrði til að
tefja hana mjög frá skólasókn. Hún hélt
síðan til London og reyndi í fyrstu fyrir
sér þar sem leikkona.
Hún hélt hins vegar brátt út á ritvöllinn
og steig þar sín fyrstu spor sem róttækur
sósíalisti og kvenréttindakona og ódýr
vinnukraftur í höfuðstöðvum Félags- og
stjórnmálasamtaka kvenna. Eftir að hafa
helgað sig því að berjast fyrir kosninga-
rétti handa konum í tvör ár, fann hún sig
tilknúna að tjá sig um víðtækari málefni.
Hóf hún störf við blaðið „The Free wom-
an“ árið 1911, en það blað þótti fjalla um
kynlíf af slíku frjálsræði að móðir Cicely
Isabel bannaði henni að lesa það. Cicely
Isabel tók sér þá höfundarnafnið Rebecca
West, svo hún gæti í það minnsta haldið
áfram að skrifa í blaðið, en þetta er nafn á
viljasterkri kvenpersónu í einu af leikrit-
um Henriks Ibsen og hafði Cicely leikið
hana á sínum tíma. Uppfrá þessu varð hún
þekkt undir höfundarnafninu, bæði opin-
berlega og í einkalífi.
Skarpskyggni hennar, forvitni, ást á
listum og sérstaklega reynsla hennar af
baráttunni fyrir kosningaréttinum og til-
finningarík viðbrögð við stjórnmálavið-
burðum leituðu útrásar í fjölda greina í
„The Freewoman“. Þær voru einkar vand-
aðar, skrifaðar af óvanalegum þroska og
einatt stórkostlega fyndnar.
Greinar hennar voru í raun blaða-
mennska af hæsta gæðaflokki og hlutu
líka lof sem slíkar hjá mönnum eins og
Bernard Shaw, H.G. Wells, Arnold Benn-
ett og Robert Blatchford, ritstjóra út-
breiddasta vikublaðs sósíalista sem um
getur, „The Clarion". Blatchford var ekk-
ert að tvínóna við hlutina og fékk Rebeccu
til starfa við blað sitt og eftir það var
stöðug eftirspurn eftir greinum hennar
meðal ritstjóra verkalýðsblaða og frjáls-
lyndra blaða ýmiskonar.
Einn ritdóma hennar í „The Freewom-
an“ varð til að gerbreyta lífi hennar. Það
var ritdómur um skáldsöguna „Marriage"
eftir H.G. Wells. Eftir að hafa viðurkennt
sniild höfundarins hélt hún áfram og sagði
eitthvað á þá leið að vitaskuld væri hann
gamla piparjómfrúin meðal breskra
skáldsagnahöfunda og það kynferðislega í
sögum hans aðeins órar slíkrar, svar
holdsins við huga sem of lengi hefði verið
fanginn af loftförum og efnablöndum.
H.G. Wells fylltist slíkri reiði í garð rit-
dómarans, að hann ákvað að hitta hann að
máli og lesa þessum dóna pistilinn.
Rebecca West var þá tvítug og aðlað-
andi, H.G. Wells meira en nógu gamall til
að vera faðir hennar og harðgiftur. Marg-
frægt ástarsamband þeirra stóð í tíu ár og
eignuðust þau einn son, Anthony West.
Rebecca var ekki fyrsta konan sem
Wells eignaðist barn með utan hjóna-
bands. Til að komast hjá öðru hneyksli
neitaði hann að gangast við syni sínum og
vildi ekki heldur sjást opinberlega í fylgd
með Rebeccu.
Alein með barn sitt, varð Rebecca að
hætta að gegna föstu starfi á meðan á
fyrri heimsstyrjöldinni stóð og til að bæta
við tekjur sínar af ritstörfum fór hún í
fyrirlestrarferðir til Bandaríkjanna. Hlaut
hún brátt frægð sem ræðumaður, en á
stundum varð einörð kvenréttindastefna
hennar til að valda miklum deilum, þar
sem hún fór um.
Árið 1930 giftist Rebecca, Henry Max-
well Andrews, bankastjóra, sem eins og
hún hafði mikinn áhuga á listum og bók-
menntum. Fór vel á með þeim og aðstoðaði
hann konu sína meðal annars á frægum
ferðum hennar um Balkanskagann, en um
þær ritaði hún þá bók sem af flestum er
talin hápunktur ferils hennar, „Black
Lamb and Grey Falcon". Henry lést árið
1968 eftir langt sjúkdómsstríð.
Á síðari árum hvarf Rebecca West frá
fyrri sannfæringu sinni um yfirburði
sósíalismans og leit á hugmyndakerfi og
kenningar sem hverful vísindi, sem tækju
stöðugum breytingum í tímans rás. Hún
öðlaðist reyndar aldrei þá sætu vissu að
einhverjar slíkar kenningar gætu leyst úr
margvíslegum vanda jarðarbúa. Alla tíð
var hún hins vegar ákveðin og sannfærð
kvenréttindakona.
Á síðustu árum hafa ýmis verk hennar
hlotið endurnýjaða athygli, þannig hafa að
minnsta kosti tvær skáldsögur hennar ver-
ið kvikmyndaðar nýlega, fyrsta skáldsaga
hennar „The Return of the Soldier" (1918)
og sú síðasta, „The Birds Fall Down“
(1966). Ennfremur hafa verið gefnar út á
ný skáldsögurnar „The Judge", og „Harriet
Hume“ sem hún sendi frá sér á þriðja ára-
tugnum.
Af öðrum bókum hennar má nefna
fyrsta greinasafnið „The Strange Necess-
ity“ (1928) og svo stórvirkið „Black Lamb
and Grey Falcon" (1942).
Rebecca West, sem af mörgum hefur
verið talin einn snjallasti blaðamaður
þessarar aldar, sendir frá sér sína fyrstu
bók árið 1916 og fékkst við að skrifa rit-
dóma og blaðagreinar fram undir lok síð-
asta áratugar. Hún sameinaði í skrifum
sínum ríkan skilning, ákveðni og innsæi og
skrifaði stíl sem gat hafið upp í hæstu
hæðir eða veitt hárnákvæma og uggvæn-
lega ráðningu, sem sveið undan. Blaða-
greinar hennar, einkum frásögn hennar af
stríðsglæparéttarhöldunum í Nurnberg og
lýsingar hennar á svikurum í síðari heims-
styrjöld, vöktu mikla athygli og var þeim
lýst af gagnrýnanda nokkrum á þann veg,
að þar væri „blaðamennska hafin upp í
gildi bókmennta".
(SIB — Byggt á The Timea
og New York Times.)
„Þaö er hægt að leita ástar
á tvo vegu. Þaö er hægt aö
senda alla lífsorku sína af
staö í réttlátan bardaga, ef
til vill til sigurs, ef til vill
ekki, en altént til að berjast;
og svo er einnig hægt aö
velja þá leiö aö koma sér
fyrir í biöröö og bíöa auð-
mjúkur eftir ölmusu, líkt og
ástin sé almenningseldhús
og hjonabandiö ávísun á
súpudisk."
— The Freewoman. 21. mars, 1912.
„Miðað viö endalaust
mælskuflæði hans og þaö
hve hann skrifaði mikið og
vel, viröist hann hafa haft
ótrúlega lítiö aö segja.“
— Um Bernard Shaw.
„Karlmenn vilja frekar láta
karlmenn gera út af viö sig,
en aö láta konu bjarga sér.“
— Um ótrygga flokksbræöur Mar-
grétar Thatcher.
„Vissulega eru söguefni
hans óskemmtileg, en hann
er sá eini sem hefur þá
skynjun sem þarf, til aö
skilja og vara okkur viö al-
dýpstu tilhneigingunum í
mannlegu samfélagi.“
— Um rithöfundinn Anthony Burg-
ess.
r
skápar
Syrpuskáparnir eru aö sönnu ekkert sérstaklega flókiö fyrirbæri - heldur
móti. En í þeim sannar einfaldleikinn einmitt yfirburði sína:
Staðlaðar einingar
lækka verð og stytta afgreiðslutíma.
Mismunandi breiddir
auðvelda þérað leggja skápana "vegg ívegg."
Færanlegar innréttingar
"bjóða upp á endalausa möguleika á breytingum
eftir börfum hverju sinni.
Einn, tveir eða tíu
syrpuskápar eru ávallt fáanlegir og bú getur bætt
við skápum hvenærsem það hentar.
Greiösluskilmálar
eru auðveldari viðfangs fyrir okkur vegna staðlaðrar
framleiðslu. Við bjóðum 1/3 út og eftirstöðvar á 6
mánuðum.
Sþyrjið um bæklinginn
AXEL EYJÓLFSSON
HÚSGAGNAVERSLUN SMIÐJUVEGI 9 KÓRAVOGI SÍMI 43577
þverta
ÓTRÚLEGT
HONDA Á ÍSLANDI Vatnagöröum 24. Sími 38772.