Morgunblaðið - 01.07.1983, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 1. JÚLÍ 1983
55
Mikils höfum við ís-
lendingar farið á mis
Launþegi skrifar:
„Haukur Helgason hagfræð-
ingur skrifar grein í Morgun-
blaðið 15. júní sl. undir fyrir-
sögninni Verðbólgan og stjórn
Seðlabankans. Þar er ekkert
smátt sagt: Ákæra á stjórn
bankans fyrir það, að hún „ ...
eigi mjög drjúgan þátt í þeirri verð-
bólgu sem þrúgað hefur okkur fs-
lendinga um langt árabil og aldrei
meira en nú um stundir." Þetta er
honum sjálfu ljóst, enda er
næsta málsgrein: „Ég geri mér
ljóst að með þessum orðum er
mikið sagt, að í þeim felst mikil
ákæra á hendur stjórn bankans."
Jæja. Mikils höfum við íslend-
ingar farið á mis, að njóta ekki
frekari forsjár slíkra manna sem
Hauks Helgasonar í fjárhags- og
öðrum þjóðfélagsmálum. Hætt
er við, að eitthvað fölni sól Jó-
hannesar Nordal við ádrepu
þessa, enda er hann rækilega
tekinn á kné og rassskelltur, og
er samkvæmt þessu einn af meg-
in bölvöldum þjóðarinnar. Ekki
kæmi þeim, er þetta skrifar, á
óvart, þótt Jóhannes legði ekki í
að svara greininni.
Allir íslendingar þekkja Jó-
hannes Nordal. En hverjir
þekkja Hauk Helgason? Jú,
flestir eldri Reykvíkingar vita á
honum deili, sérstaklega þeir,
sem skipta eða skipt hafa við Út-
vegsbankann. Þar vinnur hann,
hefur góða framkomu og vill
hvers manns vanda leysa. En
hversu mikil hagfræðileg áhrif
hann hefur í bankanum er ekki
að fullu ljóst, enda kemur það
málinu ekki beint við. En eitt er
víst, að Haukur er mikill að-
dáandi þess hagkerfis og stjórn-
arfars, sem kennt er við austan-
járntjalds-löndin, enda talinn
kommúnisti. En hann á fleira
gott í fari sínu. Hann er formað-
ur íslensk-pólska menningarfé-
lagsins, og hann skrifaði grein (í
Morgunblaðið) 21. júlí 1981: „Lít-
il hugleiðing um Pólverja í til-
efni af þjóðhátíð þeirra 22. júlí“.
Þar lýsti hann ágæti Pólverja og
hinni glæstu framtíð þeirra, og
flogið hefur fyrir, að framhald
þeirrar sögu muni koma í Morg-
unblaðinu á næsta þjóðhátíðar-
degi þeirra, 22. júlí 1983. Og von-
andi er, að íslendingar verði
eitthvað sáttari við hina pólsku
söguskýringu hans þá en síðast.
En það er Haukur og hagfræð-
ing sem hér skipta máli. Hann
telur vexti, og líka verðtryggingu
fjár, óbærilega fyrir lántakend-
ur. Þetta er rétt. En af hverju
yrðu greiddir vextir, ef spari-
fjáreigendur gætu ekki að ein-
hverju marki tryggt fé sitt í
lánastofnunum? Vill Haukur
Helgason lána sparifé sitt með
aðeins 25—50% vöxtum í
75—125% verðbólgu? Nei, hann
mundi aldrei gera það, heldur
eyða sínu fé meðan einhverjar
líkur væru fyrir því, að hann
fengi fyrir það svipað verðgildi
og þegar hann vann fyrir því.
Haukur birtir með grein sinni
skýringarmynd tekna úr árs-
reikningum Eimskipafélags ís-
lands, þar sem sýnd er skipting
ýmissa útgjalda. Um skiptingu
þessa segir hann. „Eins og sést á
myndinni nam launakostnaður
11% af heildarútgjöldum félagsins,
en fjármagnskostnaðurinn — vext-
irnir nam 12%.“
það þarf mikil óforskömmug-
heit til þess að bjóða fólki upp á
þetta. Er þetta þekkingarleysi?
Eða er ætlast til þess, að við
lesendurnir séum svo heimskir,
að við gleypum við þessu? Hauk-
ur tekur aðeins 23% af gjöldum
Eimskips og notar það sem for-
sendur fyrir dómi sínum. En
hvað með hitt? Rekstrargjöld
vöruafgreiðslu 10%, sölu- og
stjórnunarkostnaður 6%, við-
hald, viðgerðir og rekstrarvörur
5%, lestun, losun, hafnargjöld og
gámakostnaður 20%, ýmis gjöld
9%. Þetta gerir 50% af rekstr-
argjöldum. Skyldu engir launa-
liðir vera þar? Þá eru eftir:
brennsluolía 11%, afskriftir
skipa 5%, skipaleiga 8% og önn-
ur gjöld 3%.
Sleppum nú allri hagfræði, en
látum almenna skynsemi ráða.
Og þá vaknar spurningin: Dettur
nokkrum heilvita manni í hug, að
launakostnaður Eimskipafélags ís-
lands sé ekki nema 11% af heildar-
útgjöldunum? Sá er þetta ritar,
veit ekki hve mikill hann er; það
kemur ekki fram á myndinni.
Fjármagnskostnaður getur líka
verið meiri en 12%. En eitt er
víst, að Hauki Helgasyni er ekki
mjög annt um lærdómstitil sinn,
að hann skuli láta slíka grein frá
sér fara. Hún gæti þótt góð í
Póllandi við núverandi aðstæð-
ur, en ekki á íslandi.
En Haukur kemur víðar við.
Hann birtir einnig súlurit:
„Samtals skerðing verðbótavísi-
tölu frá 1. des. 1978: nálægt
50%.“ Þar eru samtals 14 skerð-
ingar til 1. mars 1983. Ekki segir
hann berum orðum, að þetta sé
50% raun-tekjuskerðing, þótt
draga megi þá ályktun af fram-
setningunni. Hitt er annað mál,
hvort það hafi verið nokkur
skerðing, vegna þeirra aðgerða,
heldur aðeins vörn gegn enn
meiri skerðingu. Eða voru hans
samflokksmenn, sem að mörgum
skerðingunum stóðu, sömu ill-
mennin gagnvart alþýðunni og
þeir hinir? Best mun vera að
láta hagfræðingum eftir að
reikna það út, en þar mun engin
austantjalds-hagfræði koma að
notum.“
Getur hver sem er
fengið byssuleyfi?
Þessir hringdu . . .
Skipulegri og
aðgengilegri fast-
eignaauglýsingar
Sigríður Helgadóttir hringdi
og hafði eftirfarandi að segja:
— Ég er að leita mér að íbúð
og þykir mjög bagalegt, að í
fasteignaauglýsingunum, sem
eru miklar og margar, skuli
ekki nærri alltaf vera tiltekin
stærð og herbergjafjöldi. Ég
þarf að finna 3ja herb. íbúð,
en mér finnst afar erfitt að
leita í öllu þessu kraðaki, mér
finnst það allt í einum hræri-
graut. Einstaka fasteignasali
heldur þessu þó sér, tveggja
herb. íbúðirnar fyrst og svo
koll af kolli. Ég er viss um, að
það yrðu fleiri fegnir en ég, ef
allir söluaðilar tækju upp
fyrrnefnt fyrirkomulag. Það
er svo miklu skipulegra og að-
gengilegra fyrir viðskiptavin-
ina.
Elín H. Jónsdóttir, Egilsstöðum,
skrifar:
„Kæri Velvakandi.
Ég vil gjarnan láta í ljós skoðun
mína varðandi frétt, sem ég las í
Morgunblaðinu föstudaginn 24. sl.
Fréttin var um fýla, sem voru
skotnir á hreiðrum sínum í
Reykj anesfólkvangi.
Þar höfðu tveir skotglaðir menn
svalað drápsfýsn sinni með því að
skjóta þessi dýr, sem eru friðuð á
varptíma, eða frá aprílbyrjun til
ágústloka.
Frétt þessi fyllti mig viðbjóði.
Hvað gengur þessum mönnum til?
Af hverju eru þeir látnir ganga
lausir? Hvers konar löggæsla er
þetta?
Nú er ég á móti fangelsum, en
svona karlar, sem eru bara að
skjóta til að drepa, ættu svo sann-
arlega að fá hirtingu.
Ég spyr: Getur hver sem er
fengið byssuleyfi á íslandi? Eða
hvers er krafist?
Með þökk fyrir birtinguna."
Fleiri
barnaþætti
Anna skrifar:
„Ég heiti Anna og skrifa fyrir
mig og Ragnhildi og Stebba og við
viljum fleiri barnaþætti í sjón-
varpið, að minnsta kosti fimm
þætti í viku. Ragnhildur er 3 ára
og Stebbi er 8 ára og ég er 6 ára.“
GÆTUM TUNGUNNAR
Auglýst var: Þessi vara er sérstaklega framleidd fyrir
þig-
Réttara væri: ... framleidd handa þér.
(Ath.: ... framleidd fyrir þig ætti fremur að merkja
... til þess að þú þurfir ekki að framleiða hana
sjálf(ur).
N
HAGSTÆTT
er heimafengið
öl
ÁMAN ÁRMÚLA 2 1
/
Góa hf. — Sumarfrí
Viðskiptavinir ath. að verksmiöja okkar veröur
lokuð vegna sumarleyfa frá 8. júlí—15. ágúst nk.
Vinsamlegast athugið aö gera pantanir yðar í
tíma.
Góa hf., sælgætisgerð,
sími 53466 og 53467.
Síðumúla33
simar 81722 og 38125
Framdrifslokur - Aflstýrl - Litað gler - Rúllubeltl -
upphltuð afturrúða - Þurrka og vatnssprauta á
afturrúðu - o.m.fl.
Verö frá kr. 514.000