Morgunblaðið - 25.08.1983, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. ÁGÚST 1983
Atli Steinarsson ráðinn á fréttastofu
Hljóðvarps;
„Mjög ánægður
yfír að þessu
máli skuli lokiðu
— segir Atli Steinarsson
„ÉG ER MJÖG ánægður yfir að
þossu máli skuli lokið, ég hef sótt
þrívegis um stöðu á fréttastofu
Hljóðvarps," sagði Atli Steinarsson,
blaðamaður, í samtali við Morgun-
blaðið í gærkveldi, en Atli hefur nú
verið ráðinn að fréttastofu Hljóð-
varpsins eftir að Útvarpsráð mælti
með ráðningu hans, með 5 atkvæð-
um af 7, á fundi sínum í fyrradag.
23 þúsund
gestir
NÚ HAFA um 23 þúsund manns
séð iðnsýninguna í Laugardalshöll
frá opnun sýningarinnar sl. föstu-
dagskvöld. Fjölmennast var á
sunnudaginn, en þá komu yfir 6
þúsund gestir. Að sögn aðstand-
enda sýningarinnar virðist ekkert
lát vera á aðsókninni.
»Ég var fyrst og fremst að
sækja um starf vegna þess að ég
var atvinnulaus blaðamaður og
hafði hug á þessu starfi. Það er
óneitanlega dálítið leiðinlegt að ég
skuli vera ráðinn í trássi við viss
öfl á fréttastofunni, en ég vona
bara að þetta gangi allt saman vel.
Ég hugsa gott til þessa tíma, en ég
er ekki ráðinn nema til fjögurra
mánaða. Ég vona að það sem á
hefur gengið, sé liðin tíð með
þeirri ákvörðun að ráða mig á
fréttastofuna og vona að menn
hugsi ekki meira um liðna tímann.
Ég vil þakka stjórn Blaða-
mannafélagsins og ekki síst
fréttamönnum Morgunblaðsins
fyrir mjög dyggan siðferðilegan
stuðning í þessari baráttu minni
að fá atvinnu á fréttastofunni,"
sagði Atli að lokum.
Atli kvaðst aðspurður um hve-
nær hann myndi hefja störf, hafa
verið beðinn um að mæta til vinnu
á mánudagsmorgun.
Útvarpsauglýsingar sf.:
Stofnað til ad gera
auglýsingar í rás 2
Lögreglumaður með fargjaldastaukinn, sem fannst á Landsbokasafnslóðinni.
Fargjaldabauk stolið meðan
vagnstjórinn brá sér frá
FARGJALDABAUKUR frá Stræt-
isvögnum Reykjavfkur fannst síð-
degis í gær í ruslatunnu á Lands-
bókasafnslóðinni. Það var vegfar-
andi sem fann baukinn og lét lög-
regluna vita af fundi sínum. Bauk-
urinn hafði verið brotinn upp og
reyndist tómur.
Um var að ræða sama far-
gjaldabauk og stolið var í Lækj-
argötu í fyrrakvöld. Strætis-
vagni var lagt fyrir framan
benzínafgreiðslu Esso og brá
vagnstjórinn sér frá skamma
stund. En á meðan fóru óprúttn-
ir inn í vagninn, brutu upp lás,
sem notaður er til þess að festa
fargjaldabaukinn og höfðu bauk-
inn á brott.
Óljóst er hve mikið fé var í
bauknum. Allt fé sem farþegar
höfðu greitt á mánudaginn var í
bauknum, svo um allháa fjárhæð
getur verið að ræða. Fargjalda-
baukum hefur áður verið stolið
úr strætisvögnum.
Hækka landbúnaðarvör-
ur um 8-15% 1. október?
HAGSTOFA íslands hefur reiknað út verðhækkanir gjaldaliðs verðlags-
grundvallar landbúnaðarvara vegna næstu hækkunar sem verður þann
1. október næstkomandi. Að sögn Guðmundar Sigþórssonar ritara sex-
mannanefndar hækka gjaldaliðirnir um tæp 8% en inni í þeirri hækkun
er hækkun launa bóndans sem verður 4%. Sagði Guðmundur að þessi
8% hækkun gæti haft í för með sér 8 til 15% hækkun útsöluverðs
landbúnaðarvara vegna hækkunar á vinnslu- og sláturkostnaði sem
bættist við miðað við að niðurgreiðslur yrðu óbreyttar að krónutölu.
ÁRNI Gunnarsson, fyrrver-
andi alþingismaður, og
Magnús Einarsson, hafa
stofnað auglýsingafyrirtæki,
Útvarpsauglýsingar sf., til að
framleiða auglýsingar fyrir
Stjórnar-
andstaðan;
Vill að þing-
hald hefjist
10. september
FORMENN þingfiokka stjórnar-
andstöóunnar sendu Steingrími
Hermannssyni, forsætisráóherra,
bréf í gær þar sem þeir ítreka þá
kröfu þingflokkanna að Alþingi
verði kvatt saman fyrr í haust en
venja hefur verið og leggja til að
þinghald hefjist eigi síðar en 10.
september næstkomandi.
Undir bréfið skrifa: Svavar
Gestsson fyrir hönd þingflokks
Alþýðubandalagsins, Eiður
Guðnason fyrir hönd þingflokks
Alþýðuflokksins, Guðmundur
Einarsson fyrir hönd þingflokks
Bandalags jafnaðarmanna og
Sigríður Dúna Kristmundsdóttir
fyrir hönd þingflokks Samtaka
um kvennalista.
NATO-skip
SEX SKIP fastaflota Atlantshafs-
bandalagsins koma í heimsókn til
Reykjavikur dagana 25.-29. ágúst
nk., segir í fréttatilkynningu frá
utanríkisráðuneytinu.
Skipin eru: USS Dewey (banda-
rískt), HNLMS Piet Heyn (hol-
lenskt), HMS Glasgow (breskt),
HMCS Skeena (kanadískt), HMCS
Preserver (kanadískt) og FGS
Schlesvig Holstein (þýskt).
Yfirmaður skipanna er Captain
G.F. Streetar, skipherra í banda-
ríska flotanum.
rás 2 í útvarpinu sem vænt-
anlega mun hefja útsend-
ingar 1. nóvember nk.
Árni sagði í samtali við Mbl.
að framleiðsla leikinna aug-
lýsinga í tali og tónum fyrir
væntanlega rás 2 í útvarpinu
væri eini tilgangur fyrirtækis-
ins og væru þeir búnir að viða
að sér starfskröftum til að
vinna fyrir fyrirtækið, svo
sem textahöfundum, tónskáld-
um, íslenskumönnum, leikur-
um og einnig hefði verið samið
um upptökuaðstöðu og gengið
frá tæknihlið mála. Sagði Árni
að starfsemin myndi hefjast
af fullum krafti í byrjun sept-
ember, en þá myndi fyrirtækið
opna skrifstofu.
Guðmundur sagði að sex-
mannanefnd væri að byrja að
vinna að verðlagningunni og
gæti margt breyst vegna þess að
nú eru lausir samningar á milli
bænda og neytenda um búvöru-
verðið og færu því fram sam-
ningar um ýmsar magntölur í
verðlagsgrundvellinum. Sagði
hann að stefnt væri að því að
nefndin ákvæði bráðabirgða-
haustverð á kartöflum og
sauðfjárafurðum í byrjun sept-
ember þar sem sala á þeim af-
urðum færi þá að hefjast en
endanlegrar niðurstöðu væri
ekki að vænta fyrr en uppúr
miðjum mánuði.
Það skal tekið fram að á veg-
um landbúnaðarráðherra hafa
verið í undirbúningi ráðstafanir
til að draga úr búvöruhækkun 1.
október og verða þær aðgerðir
meðal annars ræddar á aðal-
fundi Stéttarsambands bænda í
byrjun september en ekki liggur
fyrir í hverju þær aðgerðir muni
felast né hve mikið verður dreg-
ið úr hækkuninni. Er því of
snemmt að spá fyrir um hver
hækkunin til neytenda verður
þó hækkunin til bænda verði um
8% samkvæmt ofangreindu.
Rokið í fyrrinótt
í rokinu í fyrrinótt sökk skúta í Hafnarfjarðarhöfn. Þór Ólafsson tók
myndina er verió var að huga að skútunni.
Ekki mikið af
hrygningarloðnu
á Kögurgrunni
— segir Hjálmar Vilhjálmsson, fiskifræðingur
LOÐNUSÝNI það, sem skipverjar á togaranum Dagrúnu tóku á Kögurgrunni
og sendu Hafrannsóknastofnun fyrir helgina, hefur nú verið greint. Reyndist
hér um að ræða tveggja ára loðnu, en loðnan hrygnir venjulega þriggja eða
fjögurra ára. Mikil áta var í loðnunni en hún hefur ekki verið fitumæld enn.
Að sögn Hjálmars Vilhjálmsson- mikið magn af tilvonandi hrygn-
ar, leiðangursstjóra á Bjarna Sæ-
mundssyni, sem nýlega hefur kann-
að þetta svæði, er það fremur
óvenjulegt að loðna á þessum aldri
haldi sig á þessum slóðum á þessum
árstíma. Sagði hann, að eldri loðn-
an hefði tilhneigingu til að halda
sig á meira dýpi en yngri loðnan.
Teldi hann fullvíst, að aðallóðn-
ingar togara á þessum slóðum stöf-
uðu af loðnu á fyrsta og öðru ári, en
eldri og stærri loðnan ánetjaðist
frekar. Hann bæri ekki brigður á
það sýni, sem stofnuninni hefði bor-
izt, en teldi, að þarna væri ekki
ingarloðnu á ferðinni. Leiðang-
ursmenn hefðu kannað þetta svæði
nýlega og aðallega orðið varir við
smáloðnu.
Sagði Hjálmar, að ekki væri hægt
að draga neinar af ályktanir þessu
hvað varðaði stofnstærð eða loðnu-
göngur. Vísbendingar lægju ekki
fyrir fyrr en að lokinni úrvinnslu
gagna úr leiðangri skipanna
þriggja, Bjarna Sæmundssonar,
Árna Friðrikssonar og Hafþórs.
Jafnvel ekki fyrr en að loknum
haustleiðangri Islendinga og Norð-
manna í október.