Morgunblaðið - 25.08.1983, Side 24

Morgunblaðið - 25.08.1983, Side 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. ÁGÚST 1983 fMmogtittltfafrife Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Auglýsingastjóri hf. Arvakur, Reykjavík. Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guömundsson, Björn Jóhannsson. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aö- alstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskrift- argjald 230 kr. á mánuöi innanlands. I lausasölu 18 kr. eintakiö. Lóðir og kreppa Sagt frá fundi áhugamanna um úrbætur í hús- næðismálum í gærkvöldi STJÓRNMÁLAMENN voru greinilega ekki f miklu uppáhaldi á fundi „áhugamanna um úrbætur í húsnæðismálum" í Sigtúni við Suðurlands- braut í gær. Þegar Jón Baldvin Hannibalsson hugðist koma á framfæri „staðreyndalegum upplýsingum“ um frumkvæði Alþýðuflokksins, yfir- gnæfðu fundarmenn hann með lófataki og hrópum, þannig að hann sá sér þann kost vænstan að stytta mál sitt og leggja þrjú frumvörp þingmanna Alþýðuflokksins inn á borö fundarstjóra með þeim orðum, að hann vænti góðs samstarfs við fundarboðendur og aðra fundarmenn varðandi úrbætur í húsnæðismálakerfmu. Aðrir stjórnmálamenn létu sér nægja að fylgjast með því sem fram fór og á fremsta bekk mátti m.a. sjá félagsmálaráðherra Alexander Stefánsson. Sem fyrr getur var fullt út úr dyrum og urðu fjölmargir að standa og sitja á gólfi og í stigum. Samþykkt var ályktun og fjölmargar ræður voru fluttar, þar sem áhyggjum var lýst yfir hag húsbyggjenda og íbúðakaupenda. Fréttirnar um að aðeins 53,5% af þeim 895 sem fengu úthlutað lóðum í Reykjavík á þessu ári hafi greitt fyrstu greiðslu gatna- gerðargjalda fyrir tilskilinn tíma staðfesta enn frekar að það harðnar á dalnum hjá al- menningi. Þetta þarf ekki að koma neinum á óvart þegar sveigt hefur verið af þeirri óheillastefnu að halda uppi fölskum lífskjörum með því að safna skuldum í erlendum bönkum og lifa um efni fram. „Þetta þýðir 133 milljón kr. minni tekjur borgarsjóðs en við höfðum gert ráð fyrir á þessu ári,“ sagði Davíð Oddsson, borgarstjóri, hér í blaðinu í gær þegar afleið- ingar greiðsludráttarins voru ræddar við hann. Vinstrimenn í borgarstjórn Reykjavíkur hneigjast til þess í ummælum sínum um þessar fjárhagslegu staðreyndir borgarsjóðs að leggja stefnu sjálfstæðismanna í skipu- lagsmálum og fjárhagsvanda almennings að jöfnu sem ástæðu fyrir slæmum skilum á gatnagerðargjöldum. Þessi röksemdafærsla vinstri- mennskunnar er út í hött. Ásóknin í þær lóðir sem aug- lýstar voru og úthlutað hefur verið sýnir áhuga almennings á því að eignast húsnæði í Reykjavík jafnt við Grafarvog sem annars staðar. Þótt afföll- in séu mest vegna lóða fyrir einbýlishús og raðhús, þar sem af 519 sem fengu lóð stóð að- eins 181 í skilum, segir það ekki þá sögu að hætta eigi að úthluta lóðum undir einbýlis- hús og raðhús í Reykjavík, heldur hitt að á krepputímum hætta menn auðvitað fyrst við dýrustu framkvæmdirnar. Hin þrönga fjárhagsstaða almenn- ings sem meðal annars á ræt- ur að rekja til þess að húsnæð- islánakerfið er í molum fyrir afskipti vinstrimanna má alls ekki verða til þess að horfið verði frá þeirri stórhuga stefnu í lóðamálum sem sjálfstæðismenn komu til framkvæmda á þessu ári, að láta lóðaframboð fullnægja eftirspurn. Nýr meirihluti sjálfstæðis- manna í borgarstjórn undir forystu Davíðs Oddssonar vann stórvirki í lóðamálum á örfáum mánuðum með því að hverfa frá bletta- og punkta- stefnu vinstrimennskunnar og veita öllum umsækjendum úr- lausn á stóru byggingasvæði. Skömmtunin sem vinstri- mönnum er kærust jafnt á lóð- um sem fjármagni leiddi af sér að menn steyptu sér oft í botnlausa skuldasúpu af ótta við að í lóðaskortinum og fjár- magnsskortinum yrði fengur þeirra tekinn af þeim ef þeir reistu sér ekki hurðarás um öxl. Skömmtunin á lóðum leiddi til óeðlilegrar spennu á lánamarkaði, hækkaði verð á lánsfjármagni, jók kostnað húsbyggjenda á öllum sviðum og hvatti til verðbólgu. Nægi- legt framboð á lóðum gjör- breytir aðstæðum og dregur úr óeðlilegri og hættulegri spennu. Eftir stendur að borgarsjóð- ur þarf að standa straum af dýrum undirbúningsfram- kvæmdum til að gera lóðirnar byggingahæfar án þess að fá í ár þær tekjur sem til stóð að framkvæmdirnar sköpuðu. Davíð Oddsson lýsir þeirri skoðun að bilið í fjárhagsáætl- un borgarinnar sem þarf að brúa muni ganga saman á næsta ári. Vonandi gengur það eftir því að það yrði til varan- legs tjóns ef efnahagskreppan græfi undan hinni stórhuga stefnu sjálfstæðismanna í skipulags- og Ióðamálum. Langþráð rigning Rigningin á þriðjudag og aðfaranótt miðvikudags gekk úr hófi fram hér á suð- vesturhorninu og var þó nóg komið áður. Má segja að hundadagarnir hafi kvatt með viðeigandi dembu. Auðvitað vona allir að haustið verði gott því og menn þurfi ekki að ganga beint úr rigningunni inn í veturinn. Veðurgæðunum er misskipt en hvaðanæva úr veröldinni berast fréttir um afbrigðilegt tíðarfar. í Evrópu hafa til dæmis verið miklir hitar. Og grein hér í blaðinu um fjölda ferðamanna til landsins í sumar lýkur með þessum orð- um þegar rætt er um ástæður þess að fleiri komu hingað í júlí en áður: „Hvort sem menn trúa því eða ekki hefur tíðar- farið hér í sumar verið nefnt í þessu sambandi. Einn viðmæl- andi blaðsins hafði það á orði að hann hefði hitt erlenda ferðamenn sem beinlínis hefðu flúið á náðir lands rigningar og grálegs veðurfars vegna hitanna í Evrópu í sumar...“ Ögmundur Jónasson, fréttamað- ur, setti fundinn og greindi frá því aö á annað hundrað manns á einum vinnustað á Akureyri, Slippstöð- inni, hefðu undirritað stuðningsyf- irlýsingu við fundarefnið. Hann sagði að markmið þess hóps sem stæði að boðun fundarins væri að upplýsa ráðamenn um raunverulega stöðu mála og stuðla að upplýs- ingamiðlun í fjölmiðlum til almenn- ings. Hann sagði að upplýsingaher- ferðin myndi að einhverju leyti fara eftir fjárhag hreyfingarinnar og hvatti því menn til að styðja við bakið á fundarboðendum með frjálsum fjárframlögum. Fyrsti frummælandi var Stefán Ólafsson, lektor. Hann sagði m.a. í ræðu sinni: „Við eigum erindi við ráðamenn þessa lands. Við þurfum Ögmundur Jónasson fréttamaður. að koma þeim í skilning um það að húsnæðislánakerfið er sprungið. Við þurfum að gera þeim grein fyrir því misrétti í húsnæðismálum sem komið hefur upp á milli kynslóða og því misrétti sem almennt launafólk er beitt. Ungt fólk getur ekki komið sér upp húsnæði á þeim kjörum sem í boði eru.“ Hann sagði að ráðamenn skildu ekki aðstæður þær sem ungt fólk byggi við vegna þess, að sú kynslóð sem nú fer með völdin í landinu hafi byggt og keypt húsnæði á kjörum sem væru óþekkt í sögunni: óverðtryggð lán sem urðu að styrkjum í verðbólgunni. „En hvernig var þetta hægt,“ spurði Stefán, „j ú, með því að étið var upp sparifé elstu kynslóðarinnar, ráð- stöfunarfé lífeyrissjóðanna var einnig stórlega rýrt þannig að nú lána þeir mun minna til húsbygg- inga en ella hefði getað orðið, og loks var étið upp sparifé unga fólks- ins, okkar kynslóðar — skyldu- sparnaðurinn óverðtryggði." Stefán Ólafsson gagnrýndi verð- tryggingu lána. Verðtryggingu hafi verið skellt á án þess að nokkuð annað hafi breyst. „Hlutfall lána var jafn lítið, lánstími lengdist ekk- ert og útborgun íbúðarverðs hækk- aði jafnvel," sagði Stefán og bætti því við að möguleiki húsbyggjenda og íbúðakaupenda til að fá skatta- frádrátt vegna vaxtakostnaðar hafi verið skertur á sama tíma og sá kostnaður margfaldaðist. Þaö eina sem gert hefði verið til úrbóta væru verkamannabústaðirnir fyrir lág- launafólk sem þyrfti að verja og efla. Hann sagði nægt fjármagn til í þjóðfélaginu til að setja í húsnæði. Fjármunirnir lægju í fiskiskipum, sem lengja veiðibönnin, vinnslu- stöðvum, sem hefðu ekki einu sinni nægt vinnuafl, landbúnaðarfram- leiðslu, sem hefði enga neytendur, virkjunum, sem seldu raforku til stóriðju undir framleiðsluverði skrifstofu-, verslunar- og banka- höllum, sem þó ættu að dragast saman ef tölvutæknin væri nýtt á réttan hátt. „Okkur er jafnvel sagt að hægt sé að byggja hallir eins og utan um Seðlabankann og Fram- kvæmdastofnun, án þess að það sé tekið af öðru í þjóðfélaginu! Stein- steypan sem bara fer í grunn Seðla- bankabyggingarinnar nægir í tugi eða hundruð íbúða," sagði Stefán Ólafsson. Hann ræddi loks um kjaraskerðinguna og sagði að ekki þýddi lengur að auka ráðstöfunar- tekjur heimilanna með aukinni yfir- og næturvinnu, vegna þess að hún væri þegar hneykslanlega mikil. Næsti frummælandi var Sig- tryggur Jónsson, viðskiptafræðing- ur. Hann sagði að ekkert hefði verið gert til að uppfylla grundvallarskil- yrði verðtryggðra húsnæðislána, þ.e. að hækka lán og lengja lánstím- ann. „í hvert sinn sem atkvæði okkar eru föl, draga stjórnmálamennirnir upp öll fögru loforðin, en um leið og kosningum lýkur er þeim stungið undir stól. Allt fram til ársins 1979 voru húsnæðiskaup niðurgreidd sem nemur tugum og hundruðum millj- óna króna. Öll lán voru óverðtryggð og brunnu upp á örskömmum tíma í verðbólgubálinu. Á þeim tíma fjár- festu flestir þeir sem nú ráða því í þjóðfélaginu að við, sem nú erum að eignast húsnæði, skulum greiða það sjálf að fullu, og á jafnskömmum tíma og lánin þeirra brunnu áður upp í verðbólgunni. Þegar sú kjara- skerðing sem nú blasir við leggst ofan á verðtryggð skammtímalán er ljóst að eitthvað verður að gera í málinu,“ sagði Sigtryggur. Hann sagði að þeim sem nýlega hefðu fest kaup á húsnæði væri að sjálfsögðu ljóst, að þau lán sem byð- ust væru bæði lítil og flest til skammtíma. „En okkur var líka lof- að bót og betrun, og enginn átti von á þeirri miklu kjaraskerðingu sem nú er orðin að staðreynd," sagði Sig- tryggur einnig. Hann tók dæmi af skuldum íbúðareiganda, sem fengið hefði 500 þús. kr. skammtímalán Stefán Ólafsson lektor. Ályktun fundarins var samþykkt með öll Einvarðssonar, aðstoðarmanns síns, og 1 sem myndi hækka milli 40 og 50 þús. kr. eftir örfáa daga. Þessi sama skuld hefði þá hækkað um 200 þús. kr. frá því á páskum. Ofan á þetta bættust síðan langtímalániri. „Á sama tíma og nær öll lán til eigin íbúðarhúsnæðis hafa hækkað um rúm 40% á þessum tíma hefur kaupið hækkað um 8%. Um næstu jól má búast við því að þessi sömu lán frá því í vor hafi hækkað um nálægt 60% eða 5 sinnum meira en launin, og er þá gert ráð fyrir að ástandið fari batnandi," sagði Sig- tryggur og bætti við: „Það þýðir ekkert fyrir stjórnvöld að segja við okkur að ef litið sé til nógu langs tíma sé allt í lagi. Þá hækki lánin ekki meira en kaupið, heldur hækki kaupið meira en lánin. Það þýðir ekkert að segja við okkur að við lif- um þetta af til lengri tíma, ef við erum þegar dauð til skamms tírna!" Sigtryggur sagði að sú krafa væri gerð til stjórnvalda, hverju nafni sem þau nefndust, að verðtryggð lán til eigin húsnæðis verði hækkuð nú þegar og hámarkslánstími verði lengdur. Gera yrði þá kröfu að hærri lán nái ekki aðeins til þeirra sem fjárfesta í framtíðinni heldur og til þeirra sem fjárfest hafa á tímum verðtryggingarinnar. Hann sagði og að gera yrði þá kröfu til stjórnvalda að þau stæðu við eitt- hvað af loforðunum frá því í vor. „Við erum ekki að biðja um mikið. Við biðjum aðeins um að menn standi við gefin loforð. Við biðjum ekki um að okkur sé gefið neitt. Við biðjum ekki einu sinni um að spari- fénu sem var stolið af okkur verði skilað til baka. Við biðjum bara um að fá að lifa eins og fólk en ekki

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.