Morgunblaðið - 25.08.1983, Qupperneq 33

Morgunblaðið - 25.08.1983, Qupperneq 33
líf nema í andvanafæddum skáld- verkum. Og árangur þess arna er nánast dapurlegur. Sú trú er að verða býsna útbreidd, að íslenskir gagnrýnendur geti aldrei öðlast líf, — nema í afglöpum sinum. Annar ekki síður ókræsilegur ávöxtur þessara undarlegu bók- menntaskrifa er sá, að aldrei hafa hinir tómlátu mörlandar samein- ast af öðrum eins áhuga i neinu og áhugaleysinu fyrir skáldskapnum í landi sinu. Frú Ragnhildur Helgadóttir, menntamálaráðherra: Það eru þessar óbjörgulegu staðreyndir, og örfáar til viðbótar, sem réðu þvi að ég dirfðist að snúa mér til yðar beint. Það er svo komið að það er að verða botnlaust djúp á milli þeirra sem eru að bögglast við að yrkja í þessu landi og hinna sem eiga að skilja og njóta. Hvað stoð- ar það einn höfund að hljóta öll skáldalaun og starfsstyrki ef hann öðlast ekki rúm i neinu mannlegu hjarta? Eða er það til nokkurs fyrir einn höfund að kveða sig svo rækilega innf minnishólfið hjá gagnrýnendum og úthlutunar- mönnum að hann kemst þaðan ekki út aftur, hvernig sem hann reynir, verði þar innlyksa uppa lífstíð? Sannleikurinn er svo grátlega oft sá, að þegar ungur höfundur birtir óburðugt skáldverk á prenti, þá vofir sá háski yfir honum að hann öðlist veruiega skáldfrægð, — á síðum dagbiaðanna. Sú frægð flýgur aldrei lengra. Hún lognast útaf á síðum blaðanna. Og dauð- inn fer að henni með hávaðalausri hægð. Og vitið þér bara nokkuð, ráðherra. Þegar ég hugsa um þessi sorglegu ósköp vill sá kuidalegi grunur flögra að mér, að fslenskir bókagagnrýnendur séu sérstakir fulltrúar þess valds sem voldugast er í öllu lífi, iíka bókmenntalífinu. — En það er nefnilega dauðinn. — Það er ekki einieikinn andskoti hvað aumingja mennirnir eru hjartanlega handgegnir öllu því sem vesælast er og vanburðugast, ef það er þá með lífsmarki. Jæja, menntamálaráðherra, nú geri ég ráð fyrir að þér viljið að ég fari að slá botninn í þetta bréf mitt. Og þá er þar síðast til að taka, að þótt ýmislegt skilji á milli hinna ýmsu skoðana okkar tveggja, þá erum við áreiðanlega sammála um það að skáldskapur og aðrar listgreinar á íslandi lifa fyrst og síðast á þeim styrk sem býr innra með þeim, sem fást við listsköpun, en aldrei á þeim styrkjum sem fást úr opinberum sjóðum. Og þær skáldnefnur eru ekki í hópi þeirra skálda sem hjálpar eiga von af andanum mikla, sem einbeita sér að því einu að ríghalda sem stífast við þau merg- og blóðsjúgandi kvikindi, hórkonurnar miklu, systurnar al- ræmdu ægilegu, hverra atlot öll- um eru til reiðu, aðeins að þeir hafi geð að þiggja, þær ungfrú Vanhelga, Vanviska og ungfrú ó. MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. ÁGÚST 1983 Hjáipaðu mér. — I desember taka vissir aðiljar til við að pira til verðugra úr sjóði sem bókasöfnin standa undir. Nú er það ekkert leyndarmál að upphæð til hvers og eins fer ekkert eftir því hvað bæk- ur hans hafa verið mikið lesnar, heldur hinu hvað Borgarbóka- safninu hefur þóknast að kaupa mörg eintök af bókum hvers höf- undar. Og það vita jú allir, að þau innkaup taka ekki nokkurt minnsta mið af vinsældum höf- unda hjá lesendum. Og væri gott ef þetta dularfulla fyrirbæri yrði rannsakað til hlítar. (Með miðilshjálp ef botn fæst ekki öðru vísi.) í bókafulltrúatíð Guðmundar G. Hagalín, var árlega birtur listi yfir mest lesnu höfundana. Nú er því löngu hætt. Ástæðan er af þeim sem best til þekkja, sögð verða sú, að einmitt þeir höfundar sem enginn fæst til að lesa, þeir þiggja árlega drýgstu fúlgurnar úr téðum sjóði. — Og það eru einmitt þessir sömu ólesnu, ógæfusömu höfundar sem einlægt, já, ár eftir ár, hreppa líka hæstu fjárhæðirn- ar úr öllum öðrum opinberum sjóðum sem rithöfundar geta sótt í. Á sínum tíma gerði einn ágætur maður, hr. Eiías Snæland Jónsson, könnun á þvi hvaða höfundar hefðu ausið drýgst úr þessum opinberu uppsprettum. Þjóðvilj- inn, blað lifandi þjóðfélagsum- ræðu, rak þá upp slíkt hljóð, ískr- andi rámt og ýlfrandi sársauka- fullt, að freisting var að kalla það óhljóð. Vísast hefur blaðið heim- fært þessa könnun undir dauða þjóðfélagsumræðu og þar með draugagang og reimleika. Eftir áramót, ef engar breyt- ingar verða gerðar hér á, hefjast nýjar úthlutanir úr margum- ræddum vandræðasjóðum. Já, þá upphefjast þessi glæfralegu skrípalæti rétt einu sinni. — Og sömu duiúðugu kynjamannaöflin munu sem fyrr, ráða feng hvers og eins. Nú er það tillaga mín til yðar, hæstvirtur menntamálaráðherra, að með því að aðrir aðiljar eru miklu dómbærari á raungildi rit- höfunda en sá söfnuður sem til þessa hefur stjórnað úthlutunum til þeirra, þá verði þeim dómbæru aðilum falið að sjá um úthlutun að þessu sinni. Og hverjir eru það sem ég treysti svo vel? Það eru einmitt þeir aðiljar sem oftast alira, já, og tíðum einir allra handleika bækur þessara sí- styrktu höfunda okkar og gæta þess að bækurnar bókstaflega týn- ist ekki í þeim mjúka vef, sem er fíngerðastur allra vefa, og heitir kóngulóarvefur. — Hér á ég nátt- úrlega við afþurrkunarkonur bókasafnanna. — Svo verði tíminn notaður til að færa könnun hr. E. Sn. J. til dagsins í dag. — En á meðan afþurrkunarkonur verða önnum kafnar við úthlutunar- störfin, verða þeir sem til þessa hafa stjórnað úthlutunum, hafðir til að þurrka ryk, flugnaskít og önnur utanáliggjandi óþrif af bók- um þeirra höfunda, sem þeir hafa verið að dæla í fjármunum og ausa lofi fjöllum hærra á undan- förnum árum. Að lokum vona ég, Ragnhildur Helgadóttir, menntamálaráð- herra, að þér í krafti valda yðar, manndóms og göfugs hjartalags, viljið fyrir fullt og fast bægja þessum sálardrepandi úthlutun- ar-óskemmtilegheitum frá oss langpíndum skattborgurum og unnendum íslenskra bókmennta. Að vér langmæddir þurfum eigi oftar, þegar margumræddar háð- ungar, smánar og skrípa-úthlut- anir fara fram, að hlusta á þau almennu háværu hiátrasköll, sem hafa neytt margan af oss til að spyrja sjálft almættið. — Guð minn, hve lengi ætlar þú að leyfa íslendingum að gefa út bækur eft- ir sína eigin höfunda? Yðar einlægur. Már Kristjónsson. Mír Kristjónsson er Reykvíkingur og heíur geiið út tvær skildsögur. íslandsrallið „Finnst gaman að ævintýrum en ber fulla virðingu fyrir náttúrunni“ „Komum til að kynnast landinu, fjöllunum og jöklunum,“ segja ítalirnir Enrico de Lucchi og Dani Allegroni, sem standa hér við Lada-keppnisbfl sinn ásamt mótorhjólakeppanda í íslandsrallinu. MorgunblaAM/Gunniaugur r. „Við komum hingað af þvf okkur flnnst gaman að ævintýrum og fal- legu og stórbrotnu landslagi," sagði ftalinn Enrico de Lucchi, einn kepp- enda í íslandsrallinu er Morgun- blaðið ræddi við hann á Þingvöllum, en hann ekur ásamt landa sínum, Dani Allegrone, f rallinu. „Það er stórkostlegt að blanda saman jeppakeppni og fallegu landslagi. Island er frábær staður til að aka um og náttúran er mjög falleg," sagði de Lucchi. „Við kom- um ekki aðeins til að keppa, held- ur til að kynnast landinu, fjöllun- um ykkar og jöklunum. Að sjálf- sögðu er full virðing borin fyrir landslaginu í þessari keppni, fólk- ið hérna í rallinu kemur líka mikið til vegna hins óvenjulega lands- lags. En það er geysilega dýrt að taka þátt í svona keppni, við erum líklega búnir að eyða milli 5 og 6 milljónum ftalskra líra í þetta ævintýri. Við ökum velbúnum Lada-bíl, sem við höfum ekið f ýmsum röllum, m.a. ralli sem svipar til hinnar frægu Camel Trophy þolraunar. Við náðum fjórða sæti af 70 keppendum," sagði de Lucchi. „Ég vona að Is- lendingar verði skiiningsríkari í okkar garð þegar íslandsraliinu er lokið,“ sagði de Lucchi að lokum. G.R. Flugleiðasamningurinn markaði tímamót fyrir íþróttahreyfinguna * - athugasemd frá framkvæmdastjórn ISI vegna skrifa Arnarflugs Vegna skrifa markaðs- og sölu- stjóra Arnarflugs, Halldórs Sig- urðssonar, í Mbl. í gær, um samn- ing ÍSÍ og Flugleiða, vill fram- kvæmdastjórn ISÍ taka eftirfar- andi fram: Það er gersamlega út í hött að tala um, að íþróttahreyfingin hafi gengið að einhverjum afar- kostum með undirskrift ferða- samnings við Flugleiðir. Þvert á móti er hér um tímamótasamn- ing að ræða til hagsbóta fyrir íþróttahreyfinguna. í því sam- bandi er rétt að fram komi, að ÍSÍ hafði sjálft frumkvæði að viðræðum við Flugleiðir um af- slátt af ferðum íþróttafólks eftir að íþróttaþing, sem fer með æðsta vald um málefni ISl, hafði gert samþykkt þar að lútandi. Þessi samningur hefur þegar sparað íþróttahreyfingunni verulegar upphæðir á skömmum tíma. Sérstök samstarfsnefnd ISÍ og Flugleiða starfar að framkvæmd samningsins. Hjá þeirri nefnd hefur aldrei verið amazt við því, þótt íþróttafólk ferðaðist með öðrum flugfélögum, hafi Flug- leiðir ekki getað boðið upp á jafnagkvæm fargjöld eða ferða- möguleika. Það er alrangt, sem markaðs- og sölustjóri Arnar- flugs heldur fram, að íslenzku íþróttafólki sé bannað að ferðast með öðrum flugfélögum en Flugleiðum. Áhyggjur hans af Frjáisíþróttasambandi Islands eru því ástæðulausar. Það hefur enga samninga brotið. En varð- andi Knattspyrnusamband ís- lands er rétt að taka fram, að það er ekki aðili að ferðasamn- ingi ISÍ og Flugleiða. Knatt-. spyrnusambandið metur sjálft hvernig hagsmunum þess er bezt borgið hverju sinni, án afskipta ÍSÍ. ÍSÍ óskaði eftir því, að ákvæði um hótelgistingu væri tekið inn í samning ÍSl og Flugleiða, enda við það miðað, að Flugleiðir kæmu á móts við óskir íþrótta- fólks um nýja möguleika á ódýr- ari gistingu. Markaðs- og sölu- stjóra Arnarflugs láðist að birta það ákvæði til fulls í grein sinni af einhverjum ástæðum. Að sjálfsögðu er óþarfi að taka það fram, að íþróttafólki er frjálst að skipta við hvaða hótel, sem er, þar sem kjör bjóðast bezt, hér eftir sem hingað til. Það skal að lokum tekið fram, að framkvæmdastjórn ÍSÍ er einhuga um, að ferðasamningur- inn við Flugleiðir sé til mikilla hagsbóta fyrir íþróttahreyfing- una og hafi stuðlað að auknum samskiptum íþróttafólks innan- lands og erlendis. Eiga Fiug- leiðamenn þakkir skildar fyrir skilning og velvilja á þörfum íþróttafólks á ódýrum og hag- kvæmum fargjöldum. Framkvæmdastjórn ÍSÍ 33 STILL-LONGS ULLARNÆRFÖT NÆLONSTYRKT DÖKKBLÁ FYRIR BÖRN OG FULLORÐNA SOKKAR MEÐ TVÖFÖLDUM BOTNI Regnfatnaöur Kuldafatnaöur Vinnufatnaöur Vinnuhanskar Garöhanskar Klossar Gúmmístígvél ULLARLEIST AR Jf&tddiru OLÍUOFNAR BORÐLAMPAR HENGILAMPAR VEGGLAMPAR GASLUKTIR OLÍUHANDLUKTIR OLÍULAMPAR 10“, 15“, 20“ VASALJÓS Fjölbreytt úrval Útigrill GRILLTENGUR — GAFFLAR VIÐARKOL — KVEIKJULÖGUR Gas-ferðatæki OLÍUPRÍMUSAR STEINOLÍA, 2 TEG. PLASTBRÚSAR Björgunarvesti ÁRAR — ÁRAKEFAR Handfæravindur MEÐ STÖNG Sjóveiðistengur MEÐ HJÓLI SILUNGANET ÖNGLAR, PILKAR, SÖKKUR íslensk flögg FLAGGSTENGUR FLAGGST ANGARHÚNAR FLAGGLÍNUR, FESTLAR YALE KRAFT- BLAKKIR % tonn Vh tonn 3 tonn e TIL SÍLDAR- SÖLTUNAR: SÍLDARHÁFAR SLILDARGAFFLAR SIXLAR — DRIFHOLT HLEÐSLUKRÓKAR LYFTIKRÓKAR BOTNAJÁRN PÆKILMÆLAR MERKIBLEK TUNNUHNOÐ VÍRKÖRFUR PLASTKÖRFUR SÍLDARHNÍFAR STÁLBRÝNI OPID TIL 7 FÖSTUDAGA SÍMI 28855

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.