Morgunblaðið - 25.08.1983, Side 45

Morgunblaðið - 25.08.1983, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. ÁGÚST 1983 45 \ ? j [ M 5 ■ VELVAKANDI í SVARAR í SÍMA 10100 KL. 11—12 FRÁ MÁNUDEGI ^ TIL FÖSTUDAGS sem þarna voru sögðu að betra væri þá að hafa stríð en frið án réttlætis". Hann segir síðan eða hefur eftir: „Friðartréð vex af rót- um réttlætis. Réttlæti og friður hljóta þannig ávallt að fara saman og geta ekki án hvors annars ver- ið. — Það er öllum mönnum ljóst að það verður enginn friður f heiminum á meðan menn deyja úr hungri í suðri á sama tíma og menn deyja úr ofáti í norðri." Þess má geta til samanburðar, að rómversk-kaþólska kirkjan mun ekki viðurkenna að stríð sé nokkru sinni réttlætanlegt, nema til varnar gegn óréttlátri árás (Pi- us XII, 1956), og frá dögum Jó- hannesar XXIII: Hefur hún gengið öllu lengra í því að mæla gegn réttlætingu styrjalda. Hún er auð- vitað ekki ein um þetta. Sumir telja varnarleysi betra en stríð. Sbr. McBrien, R.P.: Catholicism, Vol. 2, London <5 1980. Ég hef ekki lesið ályktanir né umræður þings Alkirkjuráðsins, en hef ekki ástæðu til að vefengja framansagðar heimildir. Þó mun ég varast ályktanir að sinni. Mál- efni þessi virðast mér vera um- hugsunarverð fyrir kristna menn; hver sé stefna Alkirkjuráðsins, árangur, hennar, trúverðugleiki og hverjar afleiðingar? Getur stríð verið jarðvegurinn fyrir ræt- ur réttlætisins, sem olívutréð vex af? Faðir Yakunin er nú í fanga- búðum í Úral. Hvaða stuðning fékk átta ára gamalt bænarákall hans um réttlæti? Ég veit ekki, hvort er líklegra til að valda „hræðilegum erfiðleikum", að spyrja eða þegja. Þessir hringdu . . . Það besta sem sjónvarpið hefur sýnt Ásta Hulda Guðjónsdóttir hringdi. Ég hef ekki nógu sterk lýs- ingarorð til að þakka fyrir að sýna óperuna Lucia di Lamm- ermoor á sunnudagskvöldið sl. Flutningurinn var stórkostleg- ur og allt fór saman, söngur, leikur, svið og búningar voru eins og best verður gert. Katia Ricciarelli er ein glæsilegasta söngkona, sem ég hef séð, og sama má segja uin Spánverjann José Carreras, söngur hans var stórkostlegur. Þetta er með því besta sem sjónvarpið hefur nokkru sinni sýnt. Vantar um- sögn alkó- hólista 8665-0363 hringdi og vildi koma þeirri fyrirspurn og til- lögu á framfæri við alkóhólista að þeir létu til sín heyra og skrifuðu um sjúkdóm sinn Fannst 8665-0363 vanta sorg- lega umsögn þeirra sem við vandamálið eiga að stríða eftir öll skrif bindindismanna og hófdrykkjumanna um málið. Umgengnin er heilbrigðu fólki til skammar Bladburóarfólk óskast! Úthverfi Hjallavegur Kleifarvegur SÓLÍ SUMARLEYFINU Lignano-Sabbiadoro SÍÐASTTA BROTTFÖR SUMARSINS 30. ÁGÚST Verð frá aðeins kr. 14.900 í 2 vikur. Góðir greiðsluskilmálar. Reykjavík: Austurstræti 17, Stella skrifaði: Ég var að lesa Velvakandabréf um ketti og kattaóþrifnað. Þar er skorað á kattaeigendur að hugsa betur um dýrin, sem eru jú mál- leysingjar og geta ekki svarað fyrir sig. En hvernig getum við mennirnir kvartað undan óþrifn- aði í dýrum þegar við erum engu betri sjálfir og oft á tíðum verri. Ég bý í miðbænum, einu elsta íbúðarhverfi borgarinnar. Um- gengni vegfarenda hér er með öllu afleit og heilbrigðu fólki til skammar. Hér kemur fólk út af skemmtistöðunum, oft búið að drekka frá sér vit og rænu. Ef svo ber undir hafa þessir vesalingar ekki snefil af virðingu, hvorki fyrir öðrum né sjálfum sér og gera þarfir sínar á tröppur og í bak- görðum okkar sem búum í mið- bænum. Það er slæmt þegar við, eldri borgarbúar, þurfum að eyða okkar þreki í að þrífa úrganginn úr þessu unga fólki, sem ekki virð- ist hafa í sér neina siðsemd. Svo eru það glerbrotin. Flöskur eru brotnar á öllum gangstéttum og götum og glerbrotin dreifast út um allt. Hefur það jafnvel komið fyrir að fullorðin kona sem hras- aði á gangstéttinni, skar sig mikið á höndunum vegna glerbrota. Þá vildi ég benda unglingunum okkar, sem hópast hingað niður í bæ um hverja helgi, syngjandi og hrópandi svo að enginn svefnfrið- ur er, á að slík læti og drykkju- skap geta þau viðhaft í sínum eig- in hverfum. Ég hef lengi þurft að lifa við þetta og hef gert það án þess að kvarta, þó stundum hafi ástandið verið það slæmt að ég hef hringt á lögregluna. En nú get ég ekki lengur orða bundist. Hvers eigum við ellilífeyrisþegar, við sem vilj- um byggja gamla bæinn okkar, við sem höfum gefið hluta af okkar ævi í þágu komandi kynslóða, hvers eigum við að gjalda. GÆTUM TUNGUNNAR Sagt var: Þeir dönsuðu við konu hvors ann- ars. Rétt væri: Þeir dönsuðu hvor við annars konu. 02P SIG&A V/QGA g ÁHVEftAH MetsöluHad á hverjum degi! É6 Sflófll flLLTRF RÐ VtÐ YROUM ffi) VflRfl OKKUR fl HENNI PE55RRI A ^ dk'yNKIÍ

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.