Morgunblaðið - 28.08.1983, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. ÁGÚST 1983
69
Vestur-Þýskaland:
Stórfé sett
til höfuðs
nýnasista
Wiesbaden, 26. ágúst. AP.
LÖGREGLAN í Vestur-Þýskalandi
hefur heitið hverjum þeim manni
nærri 600.000 kr. ísl., sem getur veitt
upplýsingar um vestur-þýskan ný-
nasista, sem sakaður er um að hafa
skipulagt hryðjuverk og banatilræði
við bandaríska hermenn.
I desember sl. slösuðust tveir
bandarískir hermenn þegar
sprengja sprakk við heimili þeirra
í Vestur-Þýskalandi og í öðrum
sprengingum við aðsetur banda-
rískra hermanna hafa orðið veru-
legar skemmdir. Fimm félagar í
hægrisinnuðum öfgahópi hafa
verið handteknir en forsprakkinn,
Ottfried Hepp, gengur enn laus.
Eru hryðjuverkamennirnir grun-
aðir um að hafa fjármagnað ódæð-
isvérkin með fjöldamörgum rán-
um.
Lögreglan hafði hendur í hári
þriggja þessara manna í febrúar
sl. en tveir eru í haldi í Englandi.
Þangað flýðu þeir frá Vestur-
Þýskalandi.
Fangavörður
skotinn
Nuoro, Sardiníu, 23. ágúst. AP.
FANGELSISVÖRÐUR var skot-
inn til bana seint í gærkvöldi við
heimili sitt í Arzana í Austur-
Sardiníu. Stjórnvöld segja, að
hryðjuverkamenn hafi verið að
verki, en enginn hefur enn sem
komið er lýst verknaðinum á
hendur sér. Ástand hefur verið
ótryggt á Sardiníu lengi og hafa
mannrán og hvers kyns glæpir
þar, bersýnilega af pólitískum
toga, færzt í vöxt.
Hjól
fyrir kaffi
Dar es Salaam, Tanzaníu, 23. ágúsL AP.
AUSTUR-Þjóðverjar hafa ákveðið
að selja til Tanzaníu tíu þúsund
reiðhjól og ýmis önnur tæki i
skiptum fyrir kaffi, bómull, te og
tóbak frá Tanzaníu, segir í við-
skiptasamningi, sem var undirrit-
aður af fulltrúum landanna í dag.
Viðskiptaráðherra Tanzaníu sagði
að þessi vöruskiptasamningur
hefði verið gerður vegna takmark-
aðra birgða Tanzaníu af erlendum
gjaldmiðli. Hliðstæður samningur
hefur einnig verið gerður við Búlg-
aríu.
íslenskir bridgespilarar hafa aldrei
fengið tækifæri sem þetta:
*
Við efnum til viku skemmtisiglingar með M.S. Eddu og skipuleggjum tvö
stórmót um borð, þar sem spilað er um ein hæstu verðlaun sem sögur fara af
í íslenskri bridgesögu 160.000 kr.
■ Tvímenningskeppni ■ Viðkoma í Bremerhaven og Newcastle
■ Sveitakeppni ■ Lúxus aðbúnaður
■ Bridgenámskeið ■ Verð aðeins kr. 7.800 pr. farþega
í tveggja manna klefa.
■ Valkostur: 2ja nátta hótelgisting í Newcastle án aukakostnaðar.
Upplýsingar og pantanir hjá Samvinnuferðum-Landsýn í Reykjavík og hjá
umboðsmönnum um land allt.
Spilið rétt úr draumahöndinni,
- tryggið ykkur þátttöku í tíma.
Samvinnuferdir - Landsýn
AUSTURSTRÆTI 12 - SÍMAR 27077 & 28899
Við kynnum LK-NES raflagnaefni
í rafmögnuðu hjólhýsi hjá Sætúni 8
Notið tækifærið og kynnist LK-NES.
Heimilistæki hf Sætúni 8. — Sími 27500
Heimilistæki hafa fengið til landsins hjólhýsi þar
sem komið er fyrir sýnishornum af slökkvurum,
tenglum, „dimmerum“ og öllu því raflagnaefni sem
þarf í íbúðarhúsnæði. Allt er tengt og tilbúið, til
þess að fólk geti kynnst LK-NES af eigin raun.
Hjólhýsið verður við verslunina í Sætúni 8 á venju-
legum opnunartíma alla næstu viku.