Morgunblaðið - 28.09.1983, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. SEPTEMBER 1983 - 43
Þórir S. Gröndal skrifar frá Flórída
Á skakkri
Sumir unglingar eru svo stál-
heppnir að mynda sér snemma
skoðun á því, hvað þeir ætla sér
að verða í lífinu. Þeir stefna
visst að markinu, afla sér nauð-
synlegrar menntunar og komast
á endanum í það starf, sem þeir
hafa haft í huga. Þeir hafa ekki
einasta lent á réttri hillu í lífinu;
þeir hafa klifrað upp á hana.
En það er minnihlutinn, sem
er svona ákveðinn og heppinn að
geta fundið hilluna sína. Flestir
hinna eru lengi að finna út, hvað
þá langar til að taka sér fyrir í
lífinu, og hjá þeim gildir oft
happa og glappa aðferðin. Marg-
ir eru reikulir í rásinni og ekki
nógu þrautseigir við að undirbúa
sig fyrir lífsbaráttuna. Þeir sjá
heldur ekki fyrir, þrátt fyrir tíð-
ar aðvaranir sér eldri manna, að
það er nauðsyn að afla sér réttr-
ar menntunar, áður en lagt er út
á lífsins braut. Samt eru sumir í
þessum hópi það heppnir, að þeir
skrönglast einhvern veginn á
rétta hillu. En afar margir lenda
á skakkri.
Örfáir lukkunnar pamfílar
hafa einhverja sérgáfu, sem þeir
geta notað sér við lifsstarfið.
Þeir fara beint inn á rétta hillu
án mikillar fyrirhafnar. Þannig
var það með hann kunningja
minn, Fridmund forvitna. Fróð-
leiksfýsn hans eða réttara sagt
forvitni kom honum hvað eftir
annað í klandur á uppvaxtarár-
unum. Eitt sinn var hann meðal
annars gómaður við að kíkja á
glugga kvennaklefanna í Sund-
höllinni. Fleiri afrek vann hann,
en þau verða ekki talin upp hér.
Friðmundur er tollvörður á
Keflavíkurvelli og opnar hann
hverja tösku, sem hann kemst í
tæri við. Yrði ég ekki hissa að
heyra, að hann hefði staðið fyrir
kroppaleit á flugþernunum, sem
ég las um í blöðunum um daginn.
Áður fyrr var kvenfólk undan-
þegið því að þurfa að hafa
áhyggjur af því á hvaða hillu það
myndi lenda í lífinu. Fyrir þær
var hvorki meira né minna en sú
stærsta frátekin og á henni stóð:
Húsmæður. Það voru þeirra ör-
lög, og ekki dónalegt hlutskifti,
að sitja heima og búa um rúmið
og laga kaffi. En nú er þetta allt
breytt, því konur nútíðarinnar
vilja alíar vinna úti, en eru hætt-
ar að vera heima og búa um
rúmið og hella upp á könnuna.
Þær eru farnar að klifra í hillun-
um og lenda sumar á réttum en
aðrar á röngum, alveg eins og
karlfólkið.
Hérna vestur í henni Ameríku
gengur á ýmsu hjá fólki að finna
sér sem bezt lífsstörfin og pláss
á réttu hillunum. Allnokkuð er
gert af því að kynna ungu fólki
mismunandi störf og atvinnu-
greinar, og benda því á stéttir
þar sem vanta muni fólk í fram-
tíðinni. Sömuleiðis er reynt að
bægja því frá atvinnugreinum
þar sem ríkjandi er atvinnuleysi.
Þeir, sem lenda á skökkum
hillum hér 'oggengur illa í lífinu,
taka sig oft upp og flytja í annað
fylki þar sem enginn þekkir þá.
Þar byrja þeir upp á nýtt og
reyna að finna réttu hilluna sína
í annarri atrennu. Sumum tekst
það en flestum ekki. Þetta er erf-
itt að gera á íslandi þar sem allir
þekkja alla.
Mörgum finnst það bölvað ves-
en að þurfa að vinna yfirleitt, og
þeir taka ekki einu sinni í mál að
leita að neinum hillum. Þeir
verða flestir auðnuleysingjar og
verða að sætta sig við fátækt og
ræfildóm.
Svo eru líka til hér vestra fjöl-
skyldur, þar sem fókið hefir ekki
unnið handtak í þrjá eða jafnvel
fjóra ættliði. Afi eða langafi
missti vinnuna í kreppunni
miklu á fjórða áratugnum, en þá
var tekið upp víðtækt kerfi af
atvinnuleysisstyrkjum og fá-
tækraframfæri. Síðan hefir fjöl-
skyldan ekki fengið vinnu, en
fólkið sniðið sér stakk eftir vexti
og látið ríkis- og sveitaframfær-
ið nægja. Það veit heldur ekki
hvað það er, að þurfa að vakna á
hverjum morgni og ganga til
vinnu, hvort sem því líkar betur
eða verr.
Einnig er hér stór hópur fólks
af öðru sauðahúsi, þar sem eng-
inn hefir unnið ærlegt handtak í
marga ættliði. Hér er um að
ræða afkomendur viðskiptajöfra
og stóriðjuhölda, sem urðu svo
ríkir að þeir vissu ekki aura
sinna tal. Þeir lögðu grundvöll
að ríkidæmum, sem hafa gert
niðjunum kleift að lifa í vellyst-
ingum praktuglega allar götur
síðan án þess að dýfa hendi í kalt
vatn eða heitt.
Margt slíkt fólk á vetrarhallir
eða bústaði í Palm Beach, sem er
hér rétt fyrir norðan. Gaman er
að keyra þangað og kíkja á þessa
sjaldgæfu fugla. Þeir basla við
að fylla daginn af einhvers kon-
ar dundri og skemmtunum en
virðast ekki, í fljótu bragði, vera
neitt ánægðari eða lukkulegri en
allir hinir. Og á nóttunni þurfa
þeir að sofa rétt eins og vanalegt
fólk. Sofandi er allir jafnir.
Það er gaman að spekúlera í
hillunum, réttum og skökkum,
og fylgjast með baráttu mann-
anna barna við að finna sér þar
stað. Það eru svo margir, sem
ekki vita hvað þeir vilja. Það er
þannig með mig. Ég er ekki enn
búinn að ákveða, hvað ég ætla að
verða!
Herstöðvaandstæðingar:
Senda sovézkum yfirvöldum yfirlýsingu
KOMIÐ
OG
Bók fyrir böm:
Komið
og sjáið
KAÞÓLSKA kirkjan á fslandi hefur
gefið út bókina „Komið og sjáið“,
kristindómsfræðslubók fyrir börn á
fjórða aldursstigi (9 ára).
Þetta er fjórða bókin í þessari
ritröð, en bækur þessar eru samd-
ar í Kanada og gefnar út samhliða
á Norðurlöndunum. Torfi ólafsson
hefur þýtt bókina. Hún er 108
blaðsíður með mörgum myndum,
bæði teikningum og litmyndum,
en í þessari bók er þó meira lesmál
og minna af litmyndum en í fyrri
bókunum þrem, enda er hún ætluð
þroskaðri börnum en þær.
Háskóli íslands:
„Að halda
lífi í
kulda“
DAGANA 1. og 2. október nk. verð-
ur haldin hér í Reykjavík ráðstefna
um vandamál tengd kulda og vos-
búð.
Norræna samstarfsnefndin um
heilsufarsrannsóknir á norðurslóð
hefur forgöngu um ráðstefnuna,
en fjöldi íslenskra stofnana,
félagasamtaka og áhugamanna
um vandamál, sem upp koma við
mikinn kulda, standa að ráðstefn-
unni.
Fjöldi erlendra og innlendra
sérfræðinga mun flytja fræðsluer-
indi á ráðstefnunni. Erindin verða
flutt á ensku en umræður geta
farið fram á skandinavisku. Þátt-
tökugjöld eru engin en þátttaka er
takmörkuð.
VEGNA þeirra voöaverka sem Rauði
herinn framdi yfir Sjakalín um síð-
ustu mánaðamót vilja SHA koma
eftirfarandi yfirlýsingu á framfæri
við sovésk stjórnvöld.
Sovétríkin hafa upp á síðkastið
mikið reynt að vingast við vest-
rænar friðarhreyfingar og hafa
teflt fram hinum opinberu friðar-
nefndum sínum sem systurhreyf-
ingum vestrænna hreyfina í bar-
áttunni fyrir friði og afvopnun.
Árásin á suður-kóresku þotuna,
dauði 269 farþega hennar og eftir-
mál þeirra atburða, bera þó vott
um slíka hernaðarhyggju og virð-
ingarleysi fyrir mannslífum, að
allt friðarhjalið hljómar sem
öfugmæli ein.
Þegar slíkir atburðir gerast, á
sama tíma og Rauði herinn heyr
sitt blóðuga stríð í Afganistan og
á meðan óháðri friðarhreyfingu er
bannað að starfa í Sovétríkjunum,
munu SHA tortryggja allar yfir-
lýsingar Sovétstjórnarinnar um
friðarvilja sinn og stuðning við
friðarbaráttu.
SHA krefjast þess, að Sovét-
stjórnin biðjist afsökunar á
mannvígunum yfir Sjakalín, dragi
Rauða herinn út úr Afganistan,
leyfi stofnun óháðrar friðarhreyf-
ingar, síðan má hún tala um frið.
LLSTVIÐBURÐUR
Um leið og við minnum á sýningu Ragnars Kjartanssonar í Listmunahúsinu, Lœkjargötu, viljum
við taka fram að öll verkin eru unnin í Listasmiðju Glits. Höggmyndir Ragnars og Lágmyndir eru
gerðar í leirmassa frá hollenska fyrirtækinu Vingerling B. V. Tækniaðstoð annaðist starfsfólk í
Glit.
Listasmiðja Glits