Morgunblaðið - 28.09.1983, Page 12
52
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. SEPTEMBER 1983
ikil gróska
er nú í sigl-
ingum hér á
landi. Sí-
fellt fer
þeim fjölgandi sem
stunda siglingar hér við
land sér til ánægju. Góð
aðstaða er til að stunda
siglingar á Stór-
Reykjavíkursvæðinu. ís-
landsmótinu í siglingum
er nýlokið og kepptu þar
fleiri bátar en nokkru
sinni fyrr. Hér á síðunni
er spjallað við íslands-
meistarann. Keppt var í
mörgum flokkum. Sigur-
vegarar íflokkunum inn-
byrðis keppa síðan um
titilinn bikarmeistari í
siglingum ár hvert.
Keppnislýsing
Keppnir í siglingum skiptast í
tvo hópa, þ.e. opnar keppnir og
dokkakeppnir.
í opnum keppnum, eins og yf-
irstandandi íslandsmeistara-
keppni á kjölbátum er keppnin
opin, þ.e. allir keppa um sama
titilinn óháð því hve stór bátur-
inn er og hve mikil segl er hægt
aó hafa uppi.
Til jöfnunar í opinni keppni er
hverjum flokk báta gefin svoköll-
uð forgjöf sem er hlutfallstala
lengdar vatnslínu, þyngdar og
seglflatar. í flokkakeppni keppa
einungis samstæðir bátar og þá
án forgjafar.
I»eir bátar sem taka þátt í ís-
landsmeistaramótinu skiptast í
eftirtalda flokka, talið frá
minnsta báti til þess stærsta:
Micro, tvær gerðir, Micro 18
og GEM. Lengd er 5,5 m og
mesti seglflötur 36 m2.
22 fet, þrjár gerðir, PB 6,4 m
og heildarseglflötur 40 m2,
Formula One, 6,7 m, seglfl. 49
mz og Boheme, 6,3 m seglfl. 43,5
m2.
25 fet, tvær gerðir, Tur 84 8,5
m langur og með seglflöt 86,2
mz. QT er af sömu stærð, en
með 75 mz seglflöt.
Stærsti keppnisbáturinn er
28 fet, 9,0 m, Drabant með 122
m2 seglflöt.
Þegar keppni hefst eru
merki gefin með flöggum og
hljóðmerkjum, eftir föstum
reglum. Merkjaflöggin segja til
um tímamörk og allir reyna að
koma sér sem best fyrir á línu
sem markast af baujum eða
öðru sem keppnisstjórn greinir
frá í upphafi keppni. Eftir að
rásmerki er gefið er siglt eftir
ákveðinni braut sem öllu jöfnu
er lögð eftir því sem vindstaðan
er. Reglur eru mjög strangar
og brot kærð til keppnisstjórn-
ar. Keppendur þurfa því að
vera tilbúnir til að sækja mál
eða verja að lokinni keppni, en
oft vill verða mjótt á munum
hvort reglur hafa verið brotnar
eða ekki. Aðalreglan er þó að sá
bátur sem hefur vind á stjórn-
borðshlið hefur allan rétt fyrir
þeim sem sigla á bakborða.
kann að koma upp á.
Aths. í lýsingu á bátunum
hér að ofan er getið lengdar í
fetum og metrum. Orsökin er
sú að almennt er rætt um
stærðarflokka í fetum þar sem
þekking á keppnissiglingum og
reglum er upphaflega sótt til
landsins frá Englandi og fyrstu
keppnisbátar voru keyptir það-
an.
í keppni gildir að „haga segl-
um eftir vindi", smámistök
geta þýtt tapað sæti, allir verða
að gæta þeirra stjórnlína
(skauta) sem þeim eru ætlaðar
og skipstjórinn að vera útsjón-
arsamur að nýta alla möguleika
þess vinds, stefnu, afstöðu til
annarra báta eða annars sem
Þeim sem kynnu að verða í
áhöfn er bent á að gæta sín vel
þegar start er í aðsigi og skip-
stjóri kallar á vendingu, að
öðru leyti gildir samvinnan við
áhöfnina. Góð „motiv" fyrir
myndatöku eru við vendingar
og af flotanum þegar venda á
fyrir baujur.